Dagur - 11.07.1998, Side 11
LAUGARDAGVR 11. JÚLÍ 1998 - 27
iV I ‘Étsnr
UMSJÓN:
GUÐRÚN HELGA
SIGURÐARDÓTTIR
Leyndir
draumar í
kaffiog
tertu
Kaffi ermeira en að
hendafjórum skeiðum
afkaffi í kaffivélina. Úr
kaffinu má fá höfuga
uppáhellingu og seið-
andi kaffidrykki. Hér
birtast nokkrarfrábærar
uppskriftir og svofylgir
uppskrift að sykursætri
tertu - í kaupbæti.
Við Vitastíginn í Reykjavík er
rekinn spennandi lítill kaffistað-
ur, Kaffi Puccini, sem bræðurn-
ir Orn og Hjalti Þorvarðarsynir
og fjölskyldur þeirra hafa rekið í
tæp tvö ár. Kaffi Puccini býður
upp á gott úrval af kaffi og kaffi-
drykkjum, hægt er að fá yfir 37
tegundir af kaffi, nokkrar teg-
undir af tertum og öðru meðlæti
og að sjálfsögðu er hægt að fá
sér þar eitthvað í svanginn í há-
deginu. Fyrirtækið er með um-
boð fyrir Barnie’s Coffee and
Tea Company í Bandaríkjunum
og leggur aðaláherslu á vandaða
og bragðgóða drykki og góða
þjónustu.
A kaffilistanum kennir ýmissa
grasa. Orn Þorvarðarson segir
að djassblandan þeirra, Jazziz,
blanda af baunum frá Mið- og
Suður-Ameríku og Indónesíu, sé
afar vinsæl enda hefur stundum
verið boðið upp á Iifandi djass-
tónlist á efri hæðinni í takt við
kaffið. Þá er „Ástarkaffið", kaffi
sem er afar vinsælt í brúðkaups-
veislum og á kvöldin „þegar pör-
in læðast inn.“ Þá má nefna
ostakökukaffi með aðeins átta
kaloríum, sem er vissulega val-
kostur í staðinn fyrir eftirrétt.
Það kemur enginn að tómum
kofanum.
Hér koma nokkrar uppskriftir
að kaffidrykkjum og tertu frá
Erni Þorvarðarsyni.
Hazelnut Truffle
__________Mocka_____________
1 msk. súkkulaðisíróp
1 msk. Barnie’s Hazelnut síróp
/ bolli mjólk
/ bolli nýlagað Barnie's espresso
Hellið sírópi í bolla eða glas.
Flóið mjólk. Bætið espressi í
bollann og hrærið vel. Fyllið
bollann með flóaðri mjólk. Berið
fram strax.
Caramel Nut Mocka
1 'A msk. Barnie’s karamellusíróp
2 tsk. súkkulaðisíróp
!4 bolli mjólk
Z msk. nýlagað espresso
þeyttur ijómi
karamellusósa
Hellið sírópi í bolla eða glas.
Flóið mjóik. Hellið espressó í
bollann og hrærið vel. Fyllið
bollann með flóaðri mjólk. Látið
þeyttan rjóma ofan á. Hellið síð-
an karamellusósu yfir þeytta
rjómann. Berið strax fram.
Café Viennese
2 msk. kaffilíkjör
2 msk. créme de cacao
/ bolli nýlagað espresso
'A bolli heitt vatn
þeyttur tjómi
Hellið kaffilíkjör og créme de
cacao í könnu. Bætið við
espresso og heitu vatni. Hrærið
vel. Látið þeyttan ijóma yfir.
Karamellu-, hnetu- og mokkakaffi eða kannski bara kaffi Viennese? Það er ómöguiegt að segja hvað ieynist i bollanum
enda býður Úrn upp á 37 kaffitegundir. Hann gefur hér uppskriftir að fjórum kaffidrykkjum. Myndir: þök.
Rocky Road
2 msk. Frangelico
2 msk. créme de cacao
Z bolli nýlagað espresso
'A bolli heitt súkkulaði
litlir sykurpúðar
1 / dl ijómi
2 msk. romm
Tvö kringlótt form, 22 sm í um-
mál, eru ldædd með álpappír og
smurð að innan.
Örn Þorvarðarson gefur líka uppskrift að þessari frábæru tertu, sem heitir
Leyndur draumur. Hann mælir með djasskaffi með tertunni.
Hellið Frangelico og créme de
cacao i krús. Bætið við espresso
og heitu súkkulaði. Hrærið vel.
Setjið sykurpúða út í. Berið
fram strax.
Leyndur draumnr
Botnar:
65 g smjörlíki
12 5 g sykur
4 eggjarauður
100 g hveiti
1 'A tsk. lyftiduft
5 msk. rjómi
100 g gróft saxaðar valhnetur
Marens:
4 eggjahvítur
180 g sykur
Krem:
200 g sykur
7 5 g kakó
Aðferð:
Smjörlíki og sykur er hrært sam-
an ljóst og létt. Eggjarauðum er
bætt út í einni og einni. Sigtið
hveiti og lyftiduft út í og síðan
rjómann.
Setjið deigið í tvö form og
stráið valhnetum yfir.
Eggjahvítur eru þeyttar stífar.
Sykrinum er því næst bætt saman
við og hrært vel. Setjið marens-
inn yfir báða botnana og bakið
við ca. 150 gráður í 50 mínútur.
Meðan kakan kólnar hitið
saman allt í kremið nema
rommið (eða rommessens).
Bætið því síðast út í, kælið svo
kremið og setjið það á milli
botnanna og ofan á kökuna.
Tertan er borin fram með
rjóma.
Þessi terta er góð með sterku
kaffi. Örn mælir sérstaklega
meðjazziz. -GHS
Sjd einnig ú bh. 29