Dagur - 11.07.1998, Side 17
Tk^ur
—i—
LAUGARDAGUR 11 .JÚLÍ 199 8 - 33
LÍFIÐ í LANDINU
Matvörukóngur með
öfluga vekj araklukku
JónÁsgeirJóhannesson erí næstu kynslóð í
matvörubmnsanum. Hann segist vilja mæta
nýrri öld með nýjungaruppi í erminni. Kaup-
maðursem sofnará verðinum vaknarekkert
endilega aftur.
Jón Ásgeir Jóhannesson við húsnæði birgðastöðvarinnar Baugs við Skútuvog sem senn verður tekið I notkun. Gífur-
lega stórt mannvirki, um 10 þúsund fermetrar með 8,5 metra lofthæð, eitthvað á annan fótboltavöll á stærð. Eins og
Jón Ásgeir sagði, þá gætu þeir leikandi hýst Rolling Stones tónleikana í haust efút I það væri farið. mynd: teitur.
„Kóngarnir í þessum bransa
hafa oft sofnað. Við ætlum hins
vegar að hafa öfluga vekjara-
klukku og vaka yfir öllum góð-
um nýjungum," segir Jón Asgeir
Jóhannesson, maðurinn sem er
einn helsti arkitektinn að mat-
vörudreifingu sem nær til fjög-
urra fjölskyldna af hveijum tíu í
landinu. Maðurinn sem ætlar að
stjórna 23 stórmörkuðum og
fleirí fyrirtækjum. Hann segir að
menn verði að vera vakandi, -
sofandi kaupmaður vaknar ekki
alltaf aftur.
Nýtt matvörudreifingarfyrir-
tæki, það öflugasta í Islandssög-
unni, er rekið undir nafninu
Baugur hf. og Jón Ásgeir er and-
lit þess. Hann stendur á þrítugu,
sonur Jóhannesar Jónssonar í
Bónusi og Ásu Ásgeirsdóttur
konu hans, sem lengi hefur
starfað við Bónus með körlum
sínum tveim.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Jón Ásgeir farið í gegnum ferli
frumherjans í þessu fjöl-
skyldurekna fyrirtæki. Þegar
Bónus opnaði sína fyrstu versl-
un fyrir nær tíu árum, stóð Jón
Ásgeir við hlið föður síns og ör-
fárra annarra sem að fyrirtækinu
stóðu. Þeir Jóhannes hafa síðan
reist glæsilegt fyrirtæki á stutt-
um tíma.
Nú þykir mönnum Ijóst að Jón
Ásgeir Jóhannsson verði sá mað-
ur sem verður í fararbroddi í
matvörukaupmennsku á Islandi
í upphafi nýrrar aldar. Hann
verður matvörukóngurinn. Rétt
eins og Duus og Thomsen,
kaupmenn á fyrri öld, Silli og
Valdi um miðja þessa öld. Eða
Pálmi í Hagkaup. Eða Jóhannes
faðir hans mörg undanfarin ár
Sex ára við goskælinn
Jón Ásgeir var aðeins sex ára
þegar hann „hóf afskipti" af
matvörubransanum. Það var {
SS-búðinni í Austurveri þar sem
faðir hans var verslunarstjóri.
Afi hans og nafni, Jón Eyjólfs-
son, var um áratuga skeið versl-
unarstjóri í SS-búðum. Fyrsta
verkefni Jóns Ásgeirs var að raða
kókflöskum í kælinn. Síðan varð
ekki til baka snúið. Með aldrin-
um urðu verkefnin flóknari og
vinnudagurinn lengri.
Jón Ásgeir var mættur í býtið
laugardagsmorgunn einn í apríl
1989, þegar Bónusbúð númer
eitt var opnuð í Skútuvogi í
blautu og hráslagalegu veðri.
Fjölskyldan og örfáir starfsmenn
búðarinnar voru uggandi. Fjöldi
manns mætti til að gera góð
innkaup, en nýjungar í rekstrin-
um, strikamerkingakerfið, klikk-
aði hvað eftir annað og ekki
annað sýnilegt en að loka yrði
búðinni.
En fall er fararheill, segir mál-
tækið. Kaupmenn víða um borg-
ina brostu sumir innra með sér
þegar þeir fréttu af hremming-
um Bónuss með strikamerking-
arkerfið. Þeir höfðu talið að það
kerfi yrði ekki að veruleika á
þessari öld, frekar þeirri næstu!
Og verðlagið í Bónusi sögðu þeir
að gæti ekki gengið lengur en út
vikuna, þá yrði Jóhannes fallít!
Stærstu keppinautarnir sváfu
á verðinum, gáfu Bónusi dýr-
mætt olnbogarými og svöruðu í
engu lágverðstilboðum þess.
Hagkaup, risinn á markaðnum,
svaf fastast allra framan af, en
hugði um síðir á stofnun lág-
verðsverslunar. Sú hugmynd að
Hagkaup færi að berjast af krafti
varð til þess að sannkallaðir
óvinir í Hagkaupi og Bónusi,
slíðruðu sverðin. Hagkaup
keypti 50% í Bónusi.
Ekki fjölskylduvæn vinna
„Eg mundi ekki vilja upplifa
svona dag aftur eins og þegar við
vorum að opna búðina. Hann
var eins og sagt er, algjör steypa.
Það góða var þó að það var nóg
að gera og einhvern veginn tókst
okkur að afgreiða þá sem komu,
þótt kerfið klikkaði hvað eftir
annað,“ segir Jón Ásgeir.
Síðustu árin hafa verið algjört
puð. Viðskiptavinir létu ekki á
sér standa. Þeir héldu áfram að
mæta í Bónusbúðirnar þrátt fyr-
ir tæknilegar hremmingar í upp-
hafi og biðraðir aldarinnar sem
stundum mynduðust við búðar-
kassana. Spamaðurinn var aug-
ljós, fólk var á góðu tímakaupi
meðan það verslaði í Bónusi.
Næsta búð kom fljótlega í Faxa-
feni, síðan ein af annarri. Jafn-
vel tvær búðir í Færeyjum, sem
er sjálfstætt hlutafélag í sam-
vinnu við Rúmfatalagerinn. Og
alls staðar var nóg af viðskipta-
vinum. Jón Ásgeir viðurkennir
að vinnutíminn hafi verið Iangur
og frídagar fáir.
„Svona eftirá verð ég að viður-
kenna að þetta er ekki fjöl-
skylduvænn vinnutími, og starf-
ið hefur tekið stóran toll,“ segir
Jón Ásgeir sem er faðir þriggja
yndislegra barna eins og hann
segir, tveggja stúlkna og drengs.
Jón Ásgeir segir að það hafi
aldrei vakað fyrir sér að fara í
háskólanám og hann segir að
vinnan hafi reynst sér besti skól-
inn. Hann hafi beðið eftir að
komast út í viðskiptalífið eftir
verslunarskólann. Stofnun Bón-
uss kom á réttum tfma, þegar
Jón var að ljúka skólanum.
Kennarar fóru í verkfall í apríl
og prófum var frestað. Hann gat
því tekið þátt í upphafinu hjá
Bónusi. Jón sýndi ýmsa góða til-
burði í viðskiptum strax meðan
hann var í skóla, kornungur.
Hann pantaði sér leiktæki fyrir
yngstu borgarana, sem hann
fékk að setja upp í Kringlunni
og víðar þar sem almenningur á
leið um. Barnaspítalasjóður
Hringsins fékk hluta af ágóðan-
um af þessum tækjum og hefur
það fé komið í góðar þarfir. En
ungi námsmaðurinn fékk sitt út
úr þessari frístundavinnu sinni,
og foreldrana plagaði hann ekki
með innheimtum á vasapening-
um. Um slíkt sá hann sjálfur
enda þótti hann fljótlega sjálf-
stæður einstaklingur með afar
ákveðnar skoðanir.
Fer tnn í sína skel
En hvað segja kunnugir um Jón
Ásgeir: „Hann er óhemju rétt-
sýnn maður og sanngjarn. Og
Jón Ásgeir finnst mér vel skapi
farinn og fer ekki í fýlu. Hann
fer aldrei í baklás. Það má setj-
ast niður með honum og komast
að niðurstöðu. Og hann er
geysifljótur að hugsa. Hann er
áræðinn, töluglöggur og hann
sér alltaf marga leiki fram í tím-
ann, yfirsýn hans er einstök.
Þetta eru góðir eiginleikar fyrir
mann í stórum viðskiptum. En
Jón Ásgeir er feiminn og dregur
sig svolítið í sína skel, það má
ekki rugla því saman við
drembilæti eða mont, sem hann
er ekki haldinn," segir Ragnar
Tómasson lögfræðingur og fræg-
ur fyrir samruna fyrirtækja und-
anfarin misseri. Hann hefur
kynnst þeim Bónusfeðgum og
átt samstarf við þá en er þeim
óháður og því góður dómari í
þessu efni.
Búðum mun fjölga, ekki
fækka
Fyrirtækið Baugur hf. rekur 23
matvörubúðir Nýkaups, Hag-
kaups og Bónuss í Reykjavík,
Kópavogi, Seltjarnarnesi, Mos-
fellsbæ, Garðabæ, Njarðvík og á
Akureyri, - auk Hraðkaups í
Borgarnesi. Þessu til viðbótar er
Baugur - aðföng hf., innkaupa-
og safnlager verslananna, sem
skiptir mildu um alla framvindu
mála.
Eitt þeirra mála sem nýja fyr-
irtækið mun taka á er fjöldi
verslana. Jón Ásgeir segir að 23
búðir séu sfst of mikið. Þeim
eigi eftir að fjölga í framtíðinni.
En það sem nú þurfi að huga
að, þegar siglt verður inn í nýja
öld og nýtt árþúsund, sé að
straumlínulaga reksturinn, gera
hann hagkvæmari, fyrir fyrirtæk-
ið, - og ekki síður viðskiptavini
þess.
Baugur-aðföng hf. var stofnað
fyrir örfáum árum af Bónusi og
Hagkaupi sameiginlega. Hug-
myndin er komin frá Bónusfeðg-
um. Jóhannes hafði skoðað slík
fyrirtæki í Danmörku þar sem
þau hafa leitt til verðlækkana
um áratuga skeið. Hér á landi
var Sambandið með slíka birgða-
stöð fyrir kaupfélögin, án þess
að takast að lækka matvöruverð.
Baugur-aðföng hf. er sameigin-
leg hirgðastöð og innkaupafyrir-
tæki, sem hefur gjörbreytt inn-
kaupamynstri kjörbúða. Eigend-
ur hafa haft góðan hag af stofn-
un þessa fyrirtækis, en við-
skiptavinir búðanna hafa líka
hagnast vel á nútíma innkaup-
um.
Eftir nokkrar vikur flytur
Baugur í stórbyggingu, sem
kostað hefur á fjórða hundrað
milljóna króna. Ávaxtalager er í
sérbyggingu suður af aðalbygg-
ingunni, og er hann kominn í
notkun. Sérhönnuð bygging yfir
starfsemina með fullkomnum
tæknilegum búnaði mun fljót-
lega gefa góða raun, enda er
hún betur staðsett á hafnar-
svæðinu en í Hafnarfjarðar-
hrauni. -JBP
iítHiHfc MWfMkófo tfitfíHíjl ‘ht{jh9‘Fidj
Vvf
'fÍSfSfPi ‘ÁÁA
íífiíiHP.