Dagur - 11.07.1998, Side 21
Tk^iir
■■11
LAUGARDAGUR ll.JÚLÍ 1998 - 37
RAÐAUGLÝSINGAR
A T V I N N
Knattspyrnufélag
Akureyrar, KA
Óskum eftir að ráða í eftirtalin
störf fyrir KA:
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri hefur yfirumsjón með starfsemi
félagsins, markaðssetningu, ráðningarsamningum,
fjármálum og öðrum þeim málum sem starfinu
tilheyra.
Leitað er að sjálfstæðum og dugmiklum
einstaklingi með reynslu af stjórnunarstörfum og
fjármálum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst. í boði er áhugavert og krefjandi starf.
Umsjón eigna, húsvarsla
Óskað er eftir starfsmanni til að annast húsvörslu,
viðhald og umsjón eigna á íþróttasvæði félagsins.
Um er að ræða vaktavinnu.
Vinnutími er frá kl. 7.45-15.45 og
frá kl. 15.45-23.45 virka daga auk þriðju
hverrar helgar.
Leitað er að dugmiklum og reglusömum
einstaklingi sem á gott með að umgangast fólk.
Viðkomandi þarf að geta hefið störf
sem fyrst. i boði er áhugavert og líflegt starf.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf
óskast sendar til KPMG Endurskoðunar Akureyri
hf. fyrir 21. júlí nk.
Með allar umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem trún-
aðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
KPMG
Endurskoðun Akureyri hf.
löggiltir endurskoðendur
Glerárgötu 24 • sími 462 6600 • 600 Akureyri
Ráðsmannshjón í
Viðey
Störf ráðsmannshjónanna í Viðey eru laus til umsóknar.
Þau eru m.a. fólgin í almennri gæslu eyjarinnar og
mannvirkja Reykjavíkurborgar í Viðey. Hjónin annast
reglubundið eftirlit með ástandi húsa og annarra mann-
virkja, hafa umsjón með öllum búnaði og annast minni-
háttar viðhald. Þá ber að telja heyskap, sorpflutninga og
þrif úti við, einnig aðstoð við fólks- og vöruflutninga að
og frá Viðeyjarstofu.
Starfinu fylgir íbúð og áskilið er, að hjónin hafi lögheimili
og fasta búsetu í Viðey. Þau hafa bát til umráða og fá
nokkurn akstursstyrk vegna útréttinga í 1andi. Störf
þessi gætu t.d. hentað fólki, sem vant er bústörfum.
Starfið hefst 1. október nk., en æskilegt er að umsækj-
endur geti hafið þjálfun 15. september. Umsóknarfrest-
ur er til 31. júlf.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
Þórir Stephensen staðarhaldari.
vs. 568 0573,
Atvinna
Au-pair - Noregi - óskast til íslenskrar fjölskyldu
með 4 börn (2ja-10 ára) frá miðjum ágúst.
Þarf að vera barngóð, reyklaus og með bílpróf.
Upplýsingar í s. 0047-3284-7084.
Umsóknir sendist á afgreiðslu Dags merktar
„Au-pair Noregi'1 fyrir 22. ágúst.
Óskum eftir að
ráða sölumann
í verslun okkar sem selur meðal annars heimilistæki
Starfið er fjölbreytt, sölu-, lager- og útkeyrslustörf.
Viðkomandi þarf að vera snyrtilegur og umfram allt
þjónustulundaður. Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknir þar sem koma skulu fram
upplýsingar um fyrri störf leggist inn á afgreiðslu
Dags í Strandgötu 31
eigi síðar en 15. júlí, merkt 0109.
Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar við
grunnskóla Hafnarfjarðar:
Víðistaðaskóli: Staða bókavarðar.
Æskilegt er að umsækjandi sé menntaður
bókasafnsfræðingur. Upplýsingar gefur
Sigurður Björgvinsson í síma 899 8530.
Öldutúnsskóli: Staða námsráðgjafa (1/2 staða).
Kennsla í ritvinnslu (1/2 staða).
Kennsla samfélagsgreina á unglingastigi
(2/3 staða).
Upplýsingar gefur Viktor A. Guðlaugsson í
síma 566 8648.
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 24. júlí.
Framkvæmdastjóri fræðslusviðs
Hafnarfirði.
Ú T B 0 Ð
AKUREYRARBÆR
ÚTBOÐ
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í að byggja 4. áfanga
Síðuskóla við Bugðusíðu. Grunnflötur byggingarinnar er
655 m2 og kjallari 233 m2, samtals 888 m2.
Verkið skal hafið strax og tilboði hefur verið tekið og
vera að fullu lokið 1. ágúst 1999.
Útboðsgögn verða seld á Arkitekta- og verkfræðistofu
Hauks Kaupangi við Mýrarveg frá og með mánudegin-
um 13. júlí nk. á kr. 30.000,-.
Þeim sem skila fullgildu tilboði verða endurgreidd
gögnin að fullu. Tilboðin verða opnuð á byggingadeild
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, fjórðu hæð, föstudaginn
24. júlí nk. kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Byggingadeild Akureyrarbæjar.
F 0 R V A L
Forval
um gerð
samanburðartillagna
að viðbyggingu við
Árbæjarskóla
Auglýsing
Byggingadeild Borgarverkfræðings f.h. bygginganefndar skóla
og leikskóla óskar eftir umsóknum arkitekta/teiknistofa um
gerð samanburðartillagna vegna viðbyggingar við Árbæjar-
skóla.
Rétt til þátttöku í forvalinu hafa allir þeir sem rétt hafa til að
skila inn aðaluppdráttum til bygginganefndar Reykjavíkur.
Valdir verða 4-5 þátttakendur til að gera samanburðartillögur.
Við val á þátttakendum verður færni, menntun, reynsla, af-
kastageta og hæfileikar til samvinnu og stjórnunar ásamt ár-
angri í samkeppnum lögð til grundvallar.
Byggingarnefnd skóla og leikskóla mun velja þátttakendur í
gerð samanburðartillagna.
Forvalsgögn liggja frammi hjá byggingadeild Borgarverkfræð-
ingsins í Reykjavík, Skúlatúni 2, fimmtu hæð, 105 Reykjavík,
frá og með mánudeginum 13. júlí 1998.
Umsóknum skal skila til byggingadeildar Borgarverkfræðings-
ins í Reykjavík, Skúlatúni 2, fimmtu hæð, 105 Reykjavík, eigi
síðar en kl. 16.15, þriðjudaginn 21. júlí 1998, merktum:
Forval
um gerð
samanburðartillagna
að viðbyggingu við Árbæjarskóla.
Ý M I S L E G T
Sumarferð
Framsóknarfélaganna
í Reykjavík verður farin
laugardaginn 15. ágúst nk.
Farið verður um Kjalarnes, komið við í
Hvammsvík, síðan ekið til Nesjavalla;
Nesjavallastöðin og framkvæmdir
skoðaðar.
Að lokum verður stansað í Heiðmörk og
stöðvar Vatnsveitu Reykjavíkur skoðaðar.
Nánar auglýst síðar.
Fulltrúaráðið.
Dvalarleyfi í Canada
Með því að fjárfesta í „Fleet Rent a Car“ sérleyfi
(franchise) er þér tryggt dvalarleyfi í Canada, jafn-
vel þeim sem ekki hafa hreint sakavottorð. Heildar-
fjárfesting er 50.000 Kanadískir dollarar eða um
30.000 US$.
Hægt er að fá frekari upplýsingar með því að skrifa
til: 5950 Bathurst Street, Suite 1009, Toronto,
Ontario, Canada M2R IY9 eða með því að hringja
í síma 416-667-1676 eða með því að senda
símbréfí 416-667-1467.