Dagur - 12.09.1998, Page 14

Dagur - 12.09.1998, Page 14
r 30 - LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 Kæfisvefn algengur Þárarinn Gíslason er sérfræðingur í lungnasjúkdómum. Hugtakið kæfisvefn erfrekar nýtt, enda ekki nerrui nokkrirám- tugirsíðéin læknavísindin gerðu sérgrein fyrírþví að öndun sof andifólks erfrábrugðin því sem geríst í vöku og ákveðnir sjúk- dómargeta tengst öndunartrufi- unum í svefni. Algengustu öndunartruflanir í svefni eru öndunarhlé, þegar menn hætta að anda í 10 sekúndur eða lengur. Þegar það gerist margoft yfir nóttina, ásamt öðrum ein- kennum er talað um kæfisvefn, sem stafar af þrengslum í efri loftvegi. Þórarinn Gíslason, sérfræðingur í lungnasjúkdómum og yfirlæknir á Vífils- stöðum kom til starfa á Islandi árið 1987 en hafði þá í þrjú ár á undan unnið að rannsóknum í kæfisvefhi í Uppsölum í Svíþjóð. „Doktorsverkefni mitt fólst að hluta í rannsóknum á 4.000 mönnum á aldrinum 30-69 ára þar sem svefn þeirra var kann- aður,“ segir Þórarinn. „Eg hef tekið þátt í að fylgja þeim eftir. Nýlega voru Iiðin 10 ár frá fyrstu rannsókninni og kom þá í ljós að þeir sem höfðu haft sögu um hrotur og sylju að deginum höfðu talsvert hærri dánarlíkur en þeir sem voru einkenna- lausir eða aðeins hrutu en kvörtuðu ekki um syfju. Einnig var mun algengara að sjá háþrýsting hjá þeim er höfðu hrotið að staðaldri, þó svo tekið væri tillit til ann- arra þátta. Hætta að anda Þórarinn segir að til að einkenni teljist sjúldeg þurfi sjúklingur að hætta að anda allt að 30 sinnum yfir nóttina. Væg ein- kenni allt að 50 sinnum en fari tíðnin yfir 80, séu einkenni alvarleg og þeir sem verst eru á vegi staddir hætti að anda allt að 2-300 sinnum yfir nóttina. „Þetta jafn- gildir því að viðkomandi fari í öndunar- stopp á hverri mínútu og andi þá ekki í 10-30 sekúndur,11 segir Þórarinn. „Dragi svo andann aftur að sér oft með háværum hrotum nokkrum sinnum og hætti aftur. Þetta orsakar að fólk nær engum djúpsvefni og er sífellt þreytt fyrir utan álagið sem þetta skapar. Hér á Iandi eru á 5. hundrað manns með svo alvarleg ein- kenni að þeir fá sérstaka svefngrímu sem þrýstir Iofti í öndunargöng að nóttunni og sofa með þessar grímur allar nætur.“ Þrengsli sem orsaka hrotur og kæfisvefn geta stafað af skekkju í nefi, bólginni slím- húð, sepum eða stórum úf, stórum háls- kirtlum eða IítiIIi höku. Þegar svo bætist við að margir sjúklingar eru of feitir, þá bætist fita í kokinu við og þrengir öndun- arganginn enn. Því er mikilvægt að reyna að víkka loftveginn út og mönnum er gjarnan ráðlagt að fara í megrun til að byrja með og fjarlægja allt sem þrengir loftveginn. Afengi hefur sljóvgandi áhrif að nóttu til og það koma gjarnan meiri einkenni í kjölfar drykkju, þó ekki sé nema lítið magn. Oreglulegir lifnaðar- hættir eru ekki heppilegir og er þá einkum átt við vaktavinnu eða svefntap af öðrum orsökum. „Þessi einkenni eru nokkuð bundin við kyn og aldur," segir Þórarinn. „Kæfisvefn finnst hjá börnum og tengist oft sýkingum í Ioftgangi, sjaldan hjá unglingum og ungu fólki en upp úr þrítugu verða hrotur og kæfisvefn algeng einkenni hjá körlum. Hjá konum ekki eins að fimmtugu en eft- ir fimmtugt eru bæði karlar og konur með slík einkenni. Þó leita karlar frekar eftir aðstoð vegna þessa og eru það oft ættingj- ar sem verða til þess að þeir koma, eftir að hafa lýst fyrir þeim því sem gerist á nótt- unni. Einnig koma sjúklingar sem hafa önnur einkenni eða sjúkdóma sem versna við kæfisvefninn, svo sem háþrýsting og hjartasjúkdóma." Vantar fólk til starfa A Vífilsstöðum er aðstaða til að mæla kæfisvefn fólks. Þar eru notuð mælitæki frá íslensku fyrirtæki, Flögu, en sá búnað- ur hefur reynst mjög vel og hefur verið fluttur út til Ijölmargra annarra landa. „Við getum tekið á móti fjórum til fimm sjúklingum á nóttu tækjanna vegna,“ seg- ir Þórarinn, „en skortur á starfsfólki kem- ur f veg fyrir það. Nú er um 1 'A árs bið eft- ir að komast í mælingu og ekki hjálpar hátt í þriggja mánaða lokun í sumar. Okk- ur vantar bæði hjúkrunarfræðinga og ann- að sérþjálfað starfsfólk hingað til að geta starfað með fullum afköstum." HEILSUMOLAR Strákur eða stelpa? Nú er það orðið að veruleika að hægt sé að velja kyn barna. Nokkur fyrirtæki hafa verið að gera tilraunir til þess að flokka sæði fyrir getnað og hefur gengið vel hvað varðar kýr, hesta og börn. Eitt barn að minnsta kosti hefur fæðst þar sem þessi flokkun hefur verið notuð og þar átti í hlut fyrirtækið Genetics & IVF institue í Virg- iníu. I fjöl- skyldunni var vandamálið sjúkdómur sem gekk í erfðir, en að- eins í karl- legg °g því vildu foreldr- arnir aðeins stúlku. I Colorado hefur h'tið fyrirtæki, XY Inc, verið að gera tilraunir með hesta og á vegum þeir- ra fæddist meri 6. ágúst sl., og af 28 merum sem urðu fylfullar fæddust 27 folöld sem voru af réttu kyni. I fyrra fæddust 19 kálfar af 20 af réttu kyni. Vísindalega séð eru þetta stórfréttir, en siðferðilega er það auðvitað spurning og gæti orðið til þess að annað kynið yrði í miklum meirihluta í framtíðinni. (LA Times) Tóbaksreykur og vöggudauði Hópur vísindamanna frá Bandaríkjunum og Svíþjóð hefur gefið út skýrslu þess efn- is að greinileg tengsl séu á milli vöggu- dauða og reykinga móður á meðgöngu- tíma. Hópurinn skoðaði yfir sjö milljónir fæðinga í Bandaríkjunum og Svíþjóð og fundu 8700 tilfelli vöggudauða. Ahættan af vöggudauða við reykingar 1-9 sígaretta móður var 60-1 50% meiri en ef móðirin reykti ekki. Ef móðirin hins vegar reykti meira en 10 sígarettur á dag var áhættan 130-280% meiri. Þessi aukna áhætta var fyrir utan aðra áhættuþætti, svo sem lítinn fæðingarþunga, mörg börn og svefnstöðu Máttur snertingar! Skynjun Skynjunarhluti heilans skiptist í svæði, sem taka við boð- um frá öllum hlutum líkamans og fá þau svæði líkamans sem rúma flestar skynjunarbrautirnar stærsta svæðið. Hendur, fætur, varir og andlit hafa til að mynda stórt skynjunarsvæði í heilanum. Það kann að hljóma undar- lega að kynfærin virðast ekki hafa jafn stórt svæði í skynj- unarhluta heilans og til dæmis tærnar hvað snertiskyn varðar. Bolurinn á karlmannslimnum og leggöng konunn- ar að mestum hluta dýptar sinnar eru ekkert sérstaklega viðkvæm fyrir snertingu. Næmustu hlutar kynfæranna eru kóngurinn á fremsta hluta karlmannslimsins. Næm- asta svæðið á kynfærum konunnar eru ytri kynfærin sjálf og næmastur þar er snípurinn og fyrstu 5-10 sentimetr- arnir í leggöngum konunnar. Snertíngin Okkur er almennt eiginlegt að draga of mikið af okkur þegar við gælum hvort við annað í ástarleikjum. Vegna þess að oft strýkur fólk og kjassar „nærgætið" missa elskendur stundum af unaðslegum hörundsskynjunum sem svo auðveldlega má upplifa með því að þreifa sig áfram í sairteiningu. Reýna má mismunandi áðferðir ffl örvunar á mismun- andi Iíkamshlutum makans. Til dæmis Iéttar snertingar og þéttar snertingar, smelli, hita, kulda- og sviðaskyn og má þá gjarnan notast við efni eins og loðskinn, silki, leð- ur og gúmmí. Einnig finnst sumu fólki mjög örvandi þeg- ar blásið er á blautt hörundið og margir elskendur njóta þess að fara saman í bað og/eða sturtu og stijúka þá og nudda blauta líkama hvors annars til dæmis með góðri olíu. Það er engin tilviljun að atlot við höfuð og háls makans er mjög áhrifaríkt, því ekki er svæðið einungis mjög að- gengilegt, heldur eru stærstu tilfinningastöðvar heilans bundnar því. Þess vegna finnst mörgu fólki sérstök nautn að láta gæla við og kyssa á sér hálsinn, eyrun, varirnar og tunguna. Mikilvægt er að elskendur gefi sér góðan tíma og fái frið til að kanna áhrif og unað snertingar á líkama hvors annars. Njótið vel. Halldóra Bjamadóttir er hjúkrunarfræðingur og skrifar urn kynlíffyrir Dag. Það að snerta og njóta snertingar í kynlífi getur skilið á milli hversdags- legrar reynslu og töfratilfinningar. Húðin er stærsta líffæri líkamans og vegur um það bil fjögur kíló hjá venjulegum manni og er meira en tveir fermetrar að stærð. Vegna hinna óteljandi skynjana sem hún getur numið gefur hún okkur geysi- mikla möguleika á því að auka á ánægju oklcar og unað í kynlífi. Hör- undið getur gefið okkur nær óslitið gagnsvar á örvunarstigi líkamans við ástarathafnir í gegnum hitastig húðarinnar, næmni við snertingu, þrýsting og titring í húðinni. Segja má að hörundið taki við meiri upplýsingum um kyn- ferðislegar athafnir, en nokkurt annað líffæri og snertilistin sé því lykilatriði við góðar samfarir. ÖIl höfum við síðan okkar sérstaka skynjunarmunstur á hvað okkur finnst gott eða miður gott til kynferðis- legrar örvunar. Hvað er það sem er áhrifaríkast fyr- ir okkur hvert og eitt persónulega. Hvað er það sem örvar okkur? Hvað er það sem sefar okkur? KYNLIF m Halldóra Bjarnadóuir skrifar

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.