Dagur - 12.09.1998, Side 18

Dagur - 12.09.1998, Side 18
34r- LAUGARDAGVR 12. SEPTEMBER 1998 LÍFIÐ í LANDINU Xfc^MT' Tónfist úr tveimur áttum Úr sjóði Morrisons Van Morrison dregur fram ýmislegt gott úr geymslunni á nýja safninu. Tónlistarmaðurinn írski, Van Morrison, er tvímælalaust með þeim merkari sem þaðan hafa komið og jafnvel þó víðar væri Ieitað. Með blöndu sinni á blús, djassi og poppi hefur Morri- son skapað sér mikla sérstöðu á sínum um það bil 35 ára ferli, fyrst með Them og svo undir eig- in nafni, þannig að ekki eru margir fleiri sem standast saman- burð við hann. Um þessar mundir eru um 30 ár frá því að önnur einheijaplatan hans, snilldarverk- ið Astral Wigs kom út, en eftir það hefur svo hver platan annarri betri Iitið dagsins ljós. Morrison hefur jafnan við upptökur á plöt- um sínum hefur Morrison, tekið upp mun meira en rúmast hefur. Hefur því mörg lagasmíðin farið upp á hillu til geymslu og rykfallið með árunum. Nú er hins vegar búið að dusta rykið af mörgum þessara laga og þau að koma út á veg- legri tvöfaldri geislaplötu er nefnist Philosophial stone - The unreleased tapes. Þar er að finna sam- tals 30 lög frá tímabilinu 1971 til 1988, sem óhætt er að fullyrða að sé sannkallaður Ijársjóður fyrir hina Ijölmörgu hörðu aðdáendur söngvarans og marga fleiri. Kemur þessi útgáfa í beinu fram- haldi af annarri frá í sumar, Them, The story of Them featuring Van Morrison, sem er eins og nafnið gefur til kynna, safn með því helsta sem Them sendi frá sér. Platasem kemur á óvait Nafnið Sveinn Hauksson, er ekki að líkindum þekkt svo miklu nemi í íslensku poppi, en samt hefur þó þessi liðlega fertugi Húsvíkingur að uppruna starfað meira og minna að tónlist í ein fimmtán ár. Og ekki nóg með það, heldur hefur Sveinn, sem syngur og spilar á gítar, sent frá sér tvær plötur (sem reyndar eru komnar til ára sinna) og einnig tekið þátt í að gera barnaplötu fyrir kirkjustarfið í Vestmannaeyjum, þar sem hann var búsettur um árabil eftir að hann fluttist frá Húsavík. Starfaði Sveinn með hléum sem trúbador á þessum tíma og fór víða, en gerði svo hlé á öllu músíkstarfi. Nú um nokkurt skeið hefur hann svo aftur snúið sér að tónlistinni og stund- ar meðal annars nám í gítarleik hjá FÍH. í sumar tók Sveinn sig svo til og lét loks verða af því að gefa út þriðju plötuna, sem hann hafði reyndar gengið með í maganum í meira en áratug. Upptökur hófust reyndar 1993, en það var ekki fyrr en á þessu ári sem verkinu lauk. Sól- fingur nefnist gripur- inn, tíu laga og sem- ur Sveinn þau öll en íjóra af þeim sjö textum sem eru á plötunni hefur Jóhannes Sigur- jónsson, sá góðkunni blaðamaður og háðfugl með meiru, samið. Sér til fulltingis á plötunni hefur Sveinn Há (eins og hann kallar sig á plötunni) mikinn fjölda góðra og þekktra tónlistarmanna. Þar á með- al eru Jón Ólafsson, Eyþór Arnalds, Jóhann Ásmundsson, Jóhann Hjörleifsson, Þorsteinn Gunnarsson og síðast en ekki síst söngparið Sigurður Ingimarsson (sem fyrir slysni er feðraður Ingvarsson á plöt- unni) og Rannvá Olsen. Sigurður er Akureyringur að upplagi og þar löngu þekktur fyrir sína miklu hæfileika á söngsviðinu, sem og í gít- arleik og fleiru. syngur hann flest lögin af mikilli list, en Rannvá syngur eitt, Nóttin, fallegt lag sem eins og reyndar flest Iögin og text- arnir, ber vott um natni og góða íhugun. Auk Sveins sjálfs sáu svo meðal annarra Sveinn Kjartansson, Axel Einarsson og Þórir Úlfars- son um upptöku, hljóðblöndun og fleira er sneri að gerð plötunnar. Þórir spilar svo einnig á hljómborð í nokkrum laganna. Verkið er sér- lega vel unnið og af smekkvísi og er jafnframt greinilegt að Sveinn hefur notað tímann langa vel hvað lagagerðina sem annað við ffá- gang plötunnar varðar. Er Sólfingur ein af þessum plötum sem mað- ur veit ekkert um fyrirfram og býst ekki við miklu af, en kemur svo þægilega á óvart og á margfalda athygli skilið. Þegar svo Iitið er yfir nafnalistann hlýtur bara útkoman að vera verð athygli og það kemur svo sannarlega heim og saman hér. Sveinn Hauksson hefur ýmislegt gott og óvænt fram að færa með Sóifingrum. Það hefur víst ekki farið framhjá Iandsmönnum, að nýjasta íslenska kvikmyndin, Sporlaust eftir Hilmar Oddson, var frumsýnd fyrir hálfum mánuði. Um myndina sjálfa hafa verið skiptar skoðanir eins og svo oft áður þegar íslenskar myndir eru annars vegar, en um tónlistina sem hana prýðir má hins vegar segja að þar hafi býsna vel tekist til eins og heyra má á nýrri geislaplötu sem kom út sam- hliða myndinni. Mætast þar annars vegar lög Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar af dansmeiði, sem Selma Björns syngur af innlifun og hins vegar seiðandi og á köflum dramtísk tónlist Hjálmars H. Ragnarssonar, sem er gegn- umgangandi í myndinni, áhrifatónlist svökölluð og/eða þematónlist (á enskunni kalla menn þetta í það heila Brian May. Önnur platan loksins komin. Murray og trommarinn Cozy Powell til staðar, en þetta mun vera eitt síðasta verkefni Powells sem lést í umferðarslysi síðastliðinn vetur. Svo eru þarna ekki minni menn en gítarhetjan Jeff Beck og söngvarinn Ian Hunter. Hunter þessi gerði garð- inn frægan fyrr á árum sem söngvari Mott the Hoople og var síðar í slagtogi með gítarleikaranum Mick Ronson er lést fyrir nokkrum árum og starf- aði m.a. með meistara David Bowie. Brian May hefur ekki aðeins þótt slyngur gítarleikari gegnum tíðina, heldur Ifka magnaður lagasmiður. Mun því væntanlega ekki vanta gómsætt efni á þessari annarri plötu kappans. Soundtrack). Heppnast þessi bræðingur tónlistar úr tveim- ur áttum, ef svo má taka til orða, bara nokkuð vel og stendur að því er virðist vel ein og sér. Nú hefur Poppsíðu- ritari að vísu ekki séð myndina (engin verið svo vitlaus að bjóða honum né hann tekið sjálfur á sig rögg) en ekki verður efast um með tilliti til fyrri verka Hjálmars fyrir Hilmar, Tár úr steini sérstaklega, að allt falli þar saman sem flís við rass, eins og þar stendur. Platan er semsagt vel eiguleg bæði fyrir þá sem séð hafa myndina og einnig hina sem ekki hafa séð. Hún er sömuleiðis almennt athygliverð fyrir alla sem heyra vilja vel samda og útsetta tónlist Hjálmars og hið „flotta popp“ Þorvalds í einum og sama pakkanum. Brian May, Brian May, fyrrum gítarleikari ofursveitarinnar Queen, hefur haft í nógu að snúast síðustu árin, meðal annars kringum mál Queen eftir að söngvarinn ástsæli, Freddy Mercury lést. Þar með talið var að koma út síðustu eiginlegu plötunni, Made in heaven, ásamt hinum tveimur eftirlifandi meðlimum Queen, Roger Taylor trommara og John Deacon bassaleikara og svo í framhaldinu út- gáfu á Queen Rocks safnplötunni, sem eins og nafnið gefur til kynna geymir flest helstu rokklög- in sem sveitin sendi frá sér. Þar má til dæmis nefna smelli á borð við Hammer to fall, We will rock you og Tie your mother down. Út af þessum verkefnum og ýmsu fleiru reyndar líka, hefur orðið bið á að May gæfi sér tíma til að senda frá sér plötu undir eigin nafni að nýju, en fýrsta platan hans af slíku tagi kom út 1992. Þessa dagana er hins vegar þessi gripur loks að líta dagsins ljós, sex árum eftir útgáfu þeirrar fyrstu og ber platan heit- ið, Another world. Er May þar eins og á þeirri fyrri, á rokkbuxunum og hefur sér til aðstoðar ýmsa fræga garpa til að gera verkið sem veglegast. Eins og á fyrri plötunni eru bassaleikarinn Neal

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.