Dagur - 17.04.1999, Síða 9

Dagur - 17.04.1999, Síða 9
 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999- 25 LÍFIÐ í LANDINU og sýnir af þér hroka? „Eg hitti mann sem stendur framarlega í Samfylkingunni og hann sagði að auglýsingasér- fræðingur hefði sagt þeim að viðhafa þessi orð um mig. I kosningabaráttu myndi ég aldrei iáta auglýsingasérfræðing segja mér hvernig ég ætti að vega að andstæðingnum. Slíkt virkar illa á mig. Eg vildi ekki hafa þannig mann í vinnu. En þau hafa valið að fara þessa Ieið og ég get engu um það breytt. Einhvern tíma fyrir daga skoð- anakannana sagði Bjarni Bene- diktsson við flokksbræður sína: „Við skulum ekki keyra um í bíl- um, við skulum ganga um bæ- inn. Þá sjáum við á viðmóti fólks hvernig fólk hugsar til okkar.“ Sjálfur geng ég mikið um bæ- inn. Mér er afar vel og hlýlega tekið af almenningi sem virðist hvorki telja mig drambsaman né hrokafullan. En sennilega vona samfylkingarsinnar að ef þeir segi nógu lengi og nógu oft að ég sé haldinn þessum eiginleik- um þá muni fólk trúa þeim.“ - Menn hafa sagt að áherslurn- ar eftir síðasta landsfund bendi til þess að þú sért að færa Sjálf- stæðisflokkinn inn á miðjuna. Er það rétt skilgreining? „Það kann að vera eitthvað til í því. Það er ákveðin tilhneiging í þjóðfélögum Vesturlanda til að færa flokka inn á miðjuna og það má vera að það hafi gerst með Sjálfstæðisflokkinn, með- vitað eða ómeðvitað. Hins vegar er ljóst að miðja stjórnmálanna hefur líka færst til hægri, þannig þótt við stöndum einungis í stað í áherslumálum þá færumst við ósjálfrátt nær miðjunni.“ - Er Samfylkingin að þínu mati vinstri flokkur en ekki miðjuflokkur? „Já, eins og hún kynnir sig. Það sem þar hefur gerst er að fólk hefur sest niður og ákveðið að passa Alþýðubandalagið svo Steingrímur J. Sigfússon tæki ekki allt fylgið með sér þaðan. Samfylkingin er sundraður hóp- ur sem er að reyna að Iíma sig saman. Enginn veit hver kom hvaðan, hver trúði hverju og hver treysti hverjum. Þetta er skrítin pólitík og hugsjónirnar virðast farnar lönd og Ieið. Til að sýna að þarna sér á ferð ein hreyfing er valinn einn tals- maður sem félagar hans trúa þó engan veginn á. Svo verður þetta sama fólk ákaflega hissa þegar ég mæti ekki í einhverja umræðuþætti. Astæðan fyrir því er sú að við sjálfstæðis- menn höfum marga talsmenn, þótt ekki fari milli mála hver formaðurinn er, því formaður flokksins er sæmilega öflugur. Þeir sem hafa engan forystu- mann þurfa að hafa aðeins einn talsmann, til að breiða yfir sundurlyndið og fela alla aðra. Úr því verður tómur vand- ræðagangur." næstu fjögur árin. Samfylkingarsinnar hafa kynnt stefnu sína. Þar er ekki þverfótað fyrir loforðum. Sam- fylkingin býður fram gríðarlegan eyðslupakka og segist síðan ætla að setja á skatta til að koma til móts við 35 milljarða eyðslu, sem reyndar er alveg sérstaklega varfærnislega áætlaður kostnað- arauki, miðað við þær fjárhæðir seni má lesa út úr Ioforðunum. Þau velja öll gæluverkefnin sem þau halda að slái í gegn en gleyma því að á kjörtímabilinu verða væntanlega gerðir kjara- samningar. Eru þau að segja fólkinu í landinu að það eigi ekki að hækka kaupið? Ossur ályktanir. Ég segi: Takið kosn- ingastefnuskrá okkar frá 1995. Hún hefur legið til grundvallar verkum okkar á kjörtímabilinu og hún hefur leitt til þess að kaupmáttur hefur vaxið um 20 prósent. Við sögðumst ekki ætla að hækka skatta. Við höfum lækkað þá. Menn eiga að horfa til þessa. Menn eiga miklu frem- ur að treysta fólki sem Iofar minna en efnir meira.“ - Samfylkingin hefur sagt að breyting á kvótakerfinu sé mesta réttlætismál í stjómmálum sam- tímans. Er þetta ekki rétt hjá þeim? „Samfylkingin segist ætla að henda kvótanum og árið 2002 á „eitthvað" að koma í staðinn. Bara „eitt- ætlum að gera þetta með byggðatengingu. Já, hvernig þá, spyr maður. Við ætlum að gera þetta með byggðatengingu. Já, ég heyrði það, en hvernig þá? Sko, við ætlum að gera þetta með byggðatengingu. Svona málflutningur gengur ekki upp. Þarna er ekki heil brú í einu eða neinu.“ - En hvað viljið þið sjálfstæðis- menn gera í þessu mikla hags- munamáli? „Við viljum byggja á því kerfi sem við höfum. Menn segja að á því séu ágallar og við erum til- búnir að endurskoða kerfið ef sýnt verður fram á útfærslu sem virðist sanngjarnari en sú sem fyrir er. Við lokum ekki á það að greinin borgi meiri gjöld af þeirri þjón- tölum. Tímasprengja oq hvellhetta °9 - I afar stuttu máli, hver eru að- alkosningamál Sjálfstæðisflokks- ins? „Þegar stjórnmálamenn nefna hvað verði kosið um eru þeir oftast að nefna óskaatriði sín. Menn nefna öryrkja og aldraða og um þau mál má gjarnan kjósa. Ferill okkar eru ólíkt betri í þeim málum en andstæðing- anna. Þá nefna menn sjávarút- veg til sögunnar og fleira og fleira. Frá okkar sjónarhóli má gjarnan kjósa um það líka. Ég er hins vegar sannfærður um að þegar fólk mætir á kjörstað þá kjósi það fyrst og fremst um það hvernig hag þjóðarinnar og þar með þess eigin verði best borgið Skarphéðins- son getur ekki leyft sér að tala um tifandi tímasprengju því hann er höfund- ur að þessum efnahagspakka. Ossur er ekki bara sjálfur stór hluti af tíma- sprengjunni, hann er Iíka sjálf hvellhettan. Það er gamaldags og ógeðfelld kosn- ingabarátta að halda að menn kaupi fólk til fylgilags með lof- orðaskvaldri í tölum. Ég vil að menn lýsi aðal- stefnumálum sínum, meginað- ferðarfræði, meginviðhorfum og út frá því geta kjósendur dregið ^uauræoi, meginviðhorfum nn m f -1 ‘,,UIUd^vaidri í t, áiyktanir." 9 1 fra Þvi geta kjósendur dregið hvað“. Þau segja: Meðan við erum að velta því fyrir okkur hvað við ætlum að gera ætlum við kannski að taka 10 pró- sent kvótans á ári og selja á uppboði. Ég spyr, ef Grandi býður í kvót- ann og ef Jón Jónsson býður í kvótann hver fær kvótann? Auðvitað Grandi. Þetta fólk segist ætla að auka nýlið- un í greininni. Er það nýliðun ef Grandi kaupir allan þennan kvóta? Nei, segja þau þá, við „Samfylkingin er sundr- aður hópur sem er að reyna að líma sig sam- an. Enginn veit hver kom hvaðan, hver trúði hverju og hver treysti hverjum. Þetta er skrítin pólitík og hugsjónirnar virðast farnar lönd og leið.“ ustu sem hún fær. Samfylkingarfólkið ætlaði fyrir fimm mánuðum að taka þijátíu milljarða af sjávarútveg- inum, nú ætlar það að taka þrjá milljarða. Þannig margfaldast eða skreppur saman verðgildið á því sem þau kalla stærsta rétt- lætismál þjóðarinnar. Það verkar ekki trúverðugt. Þau fyrirtæki sem eru á verðbréfaþingi skila þriggja milljarða króna hagnaði. A að taka allan hagnað fyrirtækj- anna? Það eru næstum tuttugu þúsund eigendur að þessum fyr- irtækjum. Eiga þeir ekki að fá neinn arð af sínum bréfum? Jóhanna Sigurðardóttir sagði á dögunum að við í ríkisstjórninni hefðum verið að selja vinum okkar fyrirtækin. Mér er heiður að þessari yfirlýsingu. Ég hef samkvæmt þessu eignast 90.000 vini sem keyptu Búnaðarbank- ann. Ég er búinn að eignast 10.000 vini sem keyptu Lands- bankann og Fjárfestingarbanka atvinnulífsins. Við Jóhönnu Sig- urðardóttur vil ég segja að mér er heiður að eiga þetta fólk að Kann ekki illa við vörnina - Ossur Skarphéðinsson gaf í skyn í opnuviðtali t' Degi, að þú yrðir ekki lengi í stjórnmálum og ég hef heyrt fleiri tala á þann veg. „Ég las viðtalið og mér fannst Ossur setja dæmið upp eins og forsenda þess að Samfylkingin kæmist að væri sú að ég hætti afskiptum af stjórnmálum. Ef svo er þá er það sennilega í þágu þjóðarhags að ég sæti sem lengst því ég sé ekkert sem er eftirsóknarvert við Sam- fylkinguna. Hún vill fara á eyðslufyllerí og kollsteypa stöðugleikanum. Af hverju ættu menn að kjósa Sam- fylkinguna? Til að þjóðin fari í gamla strætó í stað þess að vera á fyrsta farrými eins og hún er nú? Samfylkingin hefur ekkert upp á að bjóða. Þar segja menn: „Það er svo gaman, við höfum náð saman. Það er I draumur að vera saman og gaman að draumurinn hefur ræst.“ Það er ekki nóg að bjóða upp á svona nokkuð. Forvígismennirnir eru ekki að stofna neinn flokk. Þeir koma sér upp talsmanni og safna peningum en ekki fyrir Samfylkinguna heldur hver fyr- ir sinn flokk. Einn Samfylking- armanna sagði mér að Samfylk- ingin væri búinn að gera leyni- samning um það að þeir fjár- munir sem eiga að ganga frá rík- inu til framboða gangi ekki til Samfylkingarinnar heldur fari ákveðið hlutfall til Alþýðuflokks- ins, annað til Alþýðubandalags- ins og það þriðja til Kvennalist- ans. Ef þetta er rétt sem sá inn- vígði segir mér þýðir þetta að Jó- hanna fái ekki neitt. Þessi samningur byggir þá á því að strax eftir kosningar verði aftur til þrír flokkar og þangað eigi peningarnir að renna.“ - Svo ég vitni aftur t Össur, hann sagðist ætla að skrifa bók ef hann yrði ekki ráðherra. Ætlar þú að gera sltkt hið sama? „Ég skrifa með störfum mín- um og myndi ekki skrifa neitt meira ef ég væri í öðru starfi en ég er, ekki nema ég myndi setj- ast í helgan stein einn góðan veðurdag. Össur veit allt um kynlíf urriðans en ég veit álíka mikið um kynlíf urriðans og hann virðist vita um efnahags- mál, ef eitthvað er að marka stóryrði hans undanfarna daga. Við erum takmarkaðir í þessum fræðum, hvor fyrir sig.“ - Þií hefur sagst vera tilbúinn að sitja á þingi sem stjómarandstæð- ingur. En ætti það vel við þig? „Ég hef milda reynslu í stjórn- málum og ég býst við að ég myndi valda því verkefni. Þegar ég tefli skák og spila bridds líður mér ekkert verr í vörninni en í sókninni. I bridds er vörnin mjög flókin og vandmeðfarin ekki síður en sóknin. Það sama á við í stjórnmálum. Það vefst ekkert fyrir mér að sætta mig við hlutverk í stjórnarandstöðu en ég yrði ekkert glaður yfir því að hafa ekki þau áhrif á þróun mála sem ég hef sem forystu- maður í ríkisstjórn. En ég geri mér fulla grein fyrir því að það er ekki hægt að vera í stjórnmál- um og ætlast til að vera alltaf bara öðru megin við borðið. Það gengur ekki.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.