Dagur - 17.04.1999, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 - 35
JSÖNINL
DOMSMAL
Það þurfti að
redda fjármagni
og Jósafat upp-
götvaði góða leið
til skammtíma-
lánsöflunar; keðju-
tékkasvik sem
byggðu á því að
póstvarðstjórinn-
væri samvinnufús. En „björg-
unaraðgerðin" uppgötvaðist
og dómstólarnir litu öðrum
augum á „reddingarnar“ en
sakborningarnir.
Forsprakkinn í máli þessu, sem uppgötv-
aðist í febrúarbyrjun 1964, var Jósafat
Arngrímsson, sem síðan hefur oft verið
bendlaður við umdeild og stundum sak-
næm fjármálviðskipti. Með tilliti til
þyngdar dómanna í málinu verða aðrir
sakborningar aðeins nefndir fornöfnum
sínum; viðskiptafélagar Jósafats voru þeir
Albert og Áki og fjórði sakborningurinn
var Þórður, póstvarðstjóri í pósthúsinu á
Keflavíkurflugvelli. Viðskiptafélagarnir
höfðu frá árinu 1960 eignast fyrirtækin
ísfélag Keflavíkur, Kyndil (smásöluversl-
un) og Kassagerð Suðurnesja. Til stóð að
breyta ísfélaginu í nútíma frystihús og
hafði fengist gott lán í London, en það
þurfti að redda meiri peningum og sú
hlið mála var á könnu hins úrræðagóða
Jósafats.
Jósafat uppgötvaði að póstútibúið á
Keflavíkurflugvelli skilaði ekki uppgjöri til
aðalstöðvanna fyrir hvem mánuð fyrr en
um vika var liðin af næsta mánuði. Með
eða án fullrar vitundar Alberts og Aka
hrinti hann af stað tékkakeðju sem færði
fyrirtækjunum verulegar summur í veltuna.
Við rannsókn málsins reyndist ekki unnt að
tölusetja nákvæmlega hversu háum upp-
hæðum hafði verið velt með innistæðu-
Iausum tékkum og byggði dómur eingöngu
á þeim ellefu tékkum sem fundust við
rannsóknina, ýmist i sjóðum póstútibúsins
eða komnir í banka. Ljóst þótti að einhveij-
um tékkum hafði verið fargað sem keyptir
höfðu verið út áður en málið komst upp.
Tékkamir ellefu sem fundust í febrúarbyij-
un 1964 voru að andvirði uppá nær 2,7
milljónir gamalla króna, sem að núvirði
samsvarar um 20,3 milljónum nýkróna.
Sakborningarnir iétu senda sjálfum sér póstávísanir frá póstútibúinu á Keflavíkurflugvelli. Þeir fengu
peninga og greiddu fyrir með innistæðulausum ávísunum.
Keðjutékkarnir
í póstútibúinu
Virðist Ijóst að í „björgunaraðgerðum" vik-
urnar áður en málið komst upp hafi tekist
að kaupa út innistæðulausa tékka upp á
nokkru hærri upphæð.
Biörgunar-
aogerðir póstvarðstjórans
Með keðjutékkasvikunum fengu fyrirtæki
Jósafats kærkomna peninga til ráðstöfun-
ar. Jósafat, eða annar hinna í hans nafni,
fóru í póstútibúið og tókst að fá þar póst-
senda peninga til Reykjavíkur og greiddu
fyrir með tékkunum, sem auk þess að
vera innistæðulausir, voru geymdir um
heppilega langt skeið í vörslu póstvarð-
stjórans. Móttakendur peninganna í
Reykjavík voru þrír einstaklingar, tveir
bræður Jósafats, Arngrímur og Kristján
og viðskiptafélagi hans, Pétur Einarsson.
Þeir tóku við fénu og afhentu Jósafat
peningana til ráðstöfunar, en ekkert kem-
ur fram um að þeir hafi fengið umbun
fyrir milligönguna eða haft vitund um
hinar ólöglegu athafnir og verður að telja
að svo hafi ekki verið. Peningarnir fóru í
veltu fyrirtækja Jósafats og félaga og á
meðan Iágu tékkarnir umdeildu óhreyfðir
í fórum póstvarðstjórans og biðu upp-
gjörs. I málinu kemur fram að póstvarð-
stjórinn hafi samþykkt að láta vita
hvenær uppgjör væri yfirvofandi. Hug-
mynd Jósafats var að kaupa tékkana út
þegar þar að lcæmi, eftir atvikum með
öðrum innistæðulausum tékkum eða að
tryggja innistæðu fyrir þeim.
Póstvarðstjórinn Þórður var af augljós-
um ástæðum í afar viðkvæmri aðstöðu
sem starfsmaður ríkisins og því var náið
rannsakað hvað væri á hans vitund um
fjársvikin. Ekki þótti sannað að hann
hefði verið fullur þátttakandi í svikunum,
né heldur að hann hefði haft fulla vit-
neskju um innistæðuleysi tékkanna fyrr
en undir það síðasta. Þess má geta að í
október 1963 eða rúmlega þremur mán-
uðum áður en málið komst upp hafði
hann lagt fram uppsagnarbréf og átti því
ekki nema fáeina mánuði óunna í stöðu
sinni. Þótt ósannað væri um vitneskju
hans um innistæðuleysi tékkanna viður-
kenndi hann að hafa ekki kannað sérstak-
lega hvort innistæða væri fyrir tékkunum
og þar með að hafa brotið starfsreglur.
Sagðist hann það sitt mat að ekki hefði
verið sérstök ástæða til að kanna hvort
innistæða væri fyrir hendi vegna fyrri
snurðulausra viðskipta þeirra félaga.
Hann hafi hins vegar fengið vitneskju um
hvernig málum háttaði í janúar og þá tek-
ið þátt í „björgunaraðgerðum", þ.e. leyft
þeim félögum að kaupa út tékka í tilraun
til að leysa málið. Hann leit á sig sem
„fórnarlamb fjáröflunarkerfis, sem stefndi
Jósafat Arngrímsson hafi komið sér upp
þegar á árinu 1962“. Er komið hafi í ljós,
hvernig málin stóðu „hafi hann reynt að
bjarga því sem bjargað yrði, en það hafi
brugðist".
Tveggja ára dómur Jósafats
Niðurstaða um sekt í málinu var í raun
eingöngu skýr hvað Jósafat varðar. Hann
var talinn frumherji afbrotanna, hafi
stuðlað að því að hafa fé af póstinum og
verið sá sem hagnýtti andvirði tékkanna.
Fyrir sakadómi fékk Jósafat tveggja ára
óskilorðsbundinn fangelsisdóm, sem
Hæstiréttur staðfesti.
Þórður póstvarðstjóri þótti ekki svo
sannað væri hafa vitað um innistæðuleysi
tékkanna fyrr en um mánaðamótin janú-
ar-febrúar, þótt ýmislegt benti til að vit-
neskja hafi skapast fyrr. Stærsta brot
hans fólst í „björgunaraðgerðunum" og í
gjörðum hans sem opinber starfsmaður.
Hlaut hann 8 mánaða fangelsisdóm sem
Hæstiréttur staðfesti.
Aðeins þótti sannað á Aka og Albert að
þeir hefðu gefið út tékka í febrúar, þ.e.
staðið fyrir „björgunaraðgerðunum" og
með þeim hjálpað til við að viðhalda
ávinningnum sem skapast hafði, en að
öðru leyti hafi „keðjutékkafyrirkomulag-
ið“ eða umfang þess komið þeim á óvart.
Þeir voru ekki taldir sekir um auðgunar-
brot og í sakadómi hlutu þeir 6 mánaða
fangelsisdóm skilorðsbundinn, sem þeir
áfrýjuðu ekki.
I sérstöku skaðabótamáli voru þeir síð-
an dæmdir einn fyrir alla og allir fyrir
einn að greiða Pósti og síma skaðabætur,
þ.e. andvirði tékkanna ellefu að frá-
dregnu því sem fékkst fyrir eignir fyrir-
tækja þremenninganna.
Dátar. Um miðjan sjöunda áratuginn
var hljómsveitin Dátar sú vinsælasta á
landinu, en lifði þó ekki lengi. Hvervar
söngvari þessarar sveitar og um hvaða
sjóara var sungið í vinsælasta lagi
sveitarinnar.
Selma. Selma Björnsdóttir verður full-
trúi (slands I söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í vor. Hvað heitir lag
hennar og Þorvaldar Bjarna Þorvlads-
sonar, sem flutt verður í keppninni að
þessu sinni - og hvar verður hún hald-
in að þessu sinni?
Fegurðardrottning. Hún var um síð-
ustu helgi valin Fegurðardrottnig
Norðurlands og mun í framhaldinu
keppa við aðra konur hver sé þeirra
fegurst á íslandi. Hvað heitir þessi
norðlenska blómarós?
Hannes Pétursson hefur lengi verið
meðal dáðustu skálda þjóðarinnar.
Hvaðan er Hannes og hvað heitir
kvæðabókin sem hann sendi frá sér
1955 sem strax þá markaði honum
sess á skáldaþingi?
Sverrir og laxinn. Á dögunum vitjaði
Sverrir Hermansson þessa lax síns hjá
Haraldi Ólafssyni, hamsekera á Akur-
eyri. En hver er saga þessa fiskjar?
LAND OG
ÞJÓD
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar
1. Hópur flóttamanna kom hingað til
lands frá Kosovo á dögunum. Hvenær
var það sem fyrsti hópur flóttamanna
sem kom hingað til lands?
2. í hvaða byggðarlagi á landinu er það
sem St. Franciskussystur koma að
rekstri sjúkrahúss?
3. Úr hvaða vatni kemur Straumfjarðará
sem er á sunnanverðu Snæfellsnesi?
4. Hvar á landinu er Gíslholtsvatn?
5. Hvað heitir torgið sem er í miðbæ
ísafjarðar og hvað heitir skrúðgarðurinn
þar í bæ?
6. Hvar á landinu er Öskurhólshver?
7. Valtýr Stefánsson, Morgunblaðsrit-
stjóri, skrifaði laust fyrir miðja öldina
ævisögu merks manns sem kom út í
tveimur bindum sem heita Reynsluár og
Framkvæmdaár. Eru þær góð heimild
um uppbyggingarsögu íslands. Hver er
maðurinn sem Valtýr skrifaði hér um?
8. Hvaða Ijóðskáld var það sem árið
1897 sendi frá sér bókina 1897 sem þá
þegar skipaði honum á bekk með ís-
lenskum öndvegisskáldum?
9. Hvar á landinu eru Unadalur og Deild-
ardalur?
10. Hver eru mörk hins foma Norðlend-
ingafjórðungs?
* Rúnar Gunnarsson hét söngvarinn og lagið er Gvendur á Eyrinni. * Hún heitir Bjarney Þóra Hafþórsdóttir og er frá Vopnafirði. * Hannes Pétursson er Skagfirðingur að uppruna, en það var árið 1955 sem hann sendir frá sér sína fyrstu bók,
Kvæðabók, sem strax þá markaði upphafið að glæstum ferli hans sem skálds. * Lagið heitir All Out of Luck og keppnin verður í ár haldin í Jerúsalem í ísrael. * Lax þennan veiddi Sverrir Hermannsson í Hrútu í september á síðasta ári. Laxinn,
sem var 26 pund, var settur í klakkassa, en þaðan hvarf hann en um síðir kom hann í leitir á Hólum í Hjaltadal. Þangað hafði hann verið tekinn í klak. Er talið að úr kassanum hafi laxinn stokkið. Hólamenn fóru svo með laxinn til hamskera á
Akureyri þar sem Sverrir vitjaði hans. 1. Árið 1956 kom fyrsti flóttamannahópurinn hingað til lands, þetta voru 56 Ungverjar sem komu hingað eftir að Sovétmenn brutu á bak aftur uppreisn fólks í Ungverjalandi gegn kommúnisma og ægi-
valdinu i Moskvu. 2. í Stykkishólmi. 3. Baulárvallavatni. 4. Gíslholtsvatn er í vestanverðum Holtum í Rangárvallasýslu. 5. Silfurtorg og Simsongarður er skrúðgarður bæjarins. 6. Á Hveravöllum. 7. Thor Jensen. 8. Þorsteinn Eriingsson. 9. Þessir
dalir eru í Skagafirði og ganga inn ÍTröllaskaga frá Höfðaströnd. 10. Þessu mörk eru í vestri við Hrútafjarðará og í austri við Helkuntuheiði og Skoravíkurbjarg á Langanesi.