Dagur - 17.04.1999, Blaðsíða 17

Dagur - 17.04.1999, Blaðsíða 17
 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 - 33 A erindi við Islendinga Táknræn mynd úr Þorskastríöinu. „Við getum hugsað okkur hvernig ástandið væri í Reykjavík ef 25 þúsund manns misstu vinnuna á einu bretti, “ segir MargréL sem hefur rannsakað hvað varð um bresku sjómennina eftir að landhelgisdeilunni lauk. „Lengsta viðtaiið var 5 tímar, það var við Richard Taylor, sem sat þrisvar sinnum á Litia Hrauni, tvisvar fyrir landhelgisbrot og einu sinni fyrir að kýla lögregluþjón á ísafirði." Margrét Jónasdóttir, sagnfræðingur. mynd: þók Breska ríkisstjórnin brást sjómönnunum sem voru á togurunum á íslandsmiðum algjör- lega þegar þorskastríð- inu lauk, árið 1976. Það er niðurstaða rannsókn- arritgerðar, sem Mar- grét Jónasdóttir vann í MA-námi sínu í sagn- fræði við University Col- lege í London. Margrét segir að ekki hafi verið staðið við loforð sem sjómönn- unum voru gefin þegar samið var um Iok þorskastríðsins um mitt ár 1976. Þá fengu bresk skip sex mánuði til þess að koma sér út úr landhelginni. „Ein- hvern veginn gleymdust sjó- mennirnir algjörlega, ég hef enga skýringu á því af hverju það var. Ég hef þó von til þess að finna hana því ég ákvað að stækka rannsóknina og halda áfram með verkefnið meðal ann- ars til að finna svarið.“ Margrét var í Hull í tvo mán- uði að vinna að ritgerðinni, en hún segir að ferlið sjálft hafi tekið um 9 mánuði og líkir þessu við meðgöngu. „Ég var að vinna þetta með öðrum verkefn- um sem tengdust náminu en ég einbeitti mér svo að þessari rannsókn síðustu Qóra mánuð- ina. Ég talaði við um tuttugu sjómenn þegar ég var að vinna ritgerðina en síðan hef ég talað við ýmsa aðra í sambandi við heimildamyndina. Lengsta við- talið var 5 tfmar, það var við Richard Taylor, sem sat þrisvar sinnum á Litla Hrauni, tvisvar fyrir landhelgisbrot og einu sinni fyrir að kýla lögregluþjón á Isafirði," segir Margrét. Hún er núna að vinna að heimildar- mynd um efnið ásamt Magnúsi Viðari Sigurðssyni, kvikmynda- gerðarmanni, sem væntanlega verður sýnd í haust. Gera það besta úr aðstæðunum Hún segist fyrst hafa valið efnið vegna áhuga síns á sjómennsku. Hún hafi ætlað að byija rann- sóknina á því að fá að fara túr með breskum togara frá Hull en ekkert orðið af því, hinsvegar „Ég vildi taka fyrir efni sem væri dálítið sér breskt. Með því að skrifa um það sem gerðist eftir hrunið gat ég opnað efni sem ég get svo haldið áfram með hérna heima.“ hafi hún fengið far heim með Gjafari VE 600 frá Vestmanna- eyjum þegar hún var búin með rannsóknina. „Ég kunni voða- lega vel við þetta og fannst það skemmtilegt að vera svona út á sjó. Þetta er samfélag sem mað- ur þekkir ekki. Þar sem menn búa í náinni sambúð vikum saman og ekkert hægt að flýja. Maður verður því að gera það besta úr aðstæðunum." Margrét segist fyrst hafa ætlað að skrifa um félagslegar afleið- ingar þess að útgerðin hrundi en þegar hún hafi komið á staðinn hafi verkefnið breyst og tekið á sig dálítið aðra mynd. „Auðvitað getur maður ekki spurt mann sem er á bótum frá breska rík- inu og hefur lent í ýmsum vand- ræðum eftir að atvinnuleysið dundi yfir, hvaða félagslegu vandamál komu upp. Mér fannst það of persónulegt til þess að ég gæti réttlætt það. Skilyrði um skaðabætur Þessir menn voru ráðnir til þess að fara einn og einn túr í einu. Þeir voru þijár vikur á sjónum og áttu svo tvo daga frí milli túra. Þannig var þetta allt árið um kring. Þeir voru skilgreindir sem lauðsráðnir starfsmenn (cflSMflí xvorkers heitir það á ensku) þó sumir hafi kannski verið 30 ár hjá sama fyrirtæki. Þeir róteruðu dálítið milli fyrir- tækja og skipa. Það er í sjálfu sér eðli iðnaðarins. Menn höfðu lítið við það að athuga þangað til útgerðin hrundi og fyrirtækin urðu gjaldþrota. Samkvæmt reglum um félagslega kerfið í Bretlandi þurftu menn að vera samfellt í vinnu í tvö ár hjá sama fyrirtæki til að uppfylla skilyrði um skaðabætur sem greiddar eru þegar iðnaður er Iagður niður. Síðar hefur það komið í ljós að sjómennirnir fengu misvísandi upplýsingar og hefðu í raun átt rétt á bótum. Þeir fengu dálitla skaðabóta- greiðslu árið 1993. I stað þess að eyða málinu efldi hún hug sjómannanna. Ég ákvað að fókusera ekki of mikið á Þorskastríðin í þessum hluta rannsóknarinnar. Ég vildi taka fyrir efni sem væri dálítið sér breskt. Með því að skrifa um það sem gerðist eftir hrunið gat ég opnað efni sem ég get svo haldið áfram með hérna heima. Ég komst að því að það hafi ver- ið mikill munur á HuII og Grimsby. Grimsby var fljótari að rétta úr kútnum eftir hrunið. Fyrst ætlaði ég að gera saman- burð á þessum tveimur stöðum en þetta var bara svo Iítil ritgerð að ég ákvað að vera ekkert að eyða púðri í það, en halda mig bara við söguna eins og hún var í Hull.“ Fjórðungur borgarbua atvinnulaus Þegar útgerðin stóð í blóma í Hull voru gerðir út þaðan 170 togarar en árið 1983 var aðeins einn togari gerður út þaðan, núna eru þeir átta. A hveijum togara voru 20 menn auk þeirra sem unnu við fiskiðnaðinn í landi. „Hull var ekki bara byggt upp á fiskiðnaði en um Ijórð- ungur borgarbúa hafði atvinnu sína beint eða óbeint af fiskin- um. Við getum hugsað okkur hvernig ástandið væri í Reykja- vík ef 25 þúsund manns misstu vinnuna á einu bretti. Eitt er að taka frá þeim störfin og lofa þeim einhverju nýju og svíkja það síðan. Viðurkenna svo ekki rétt þeirra eins og hann var. Það þarf ekkert að útskýra það hverskonar afleiðingar það hefur fyrir einstaklinginn að missa vinnuna sína og hafa ekki mögu- leika á að fá hana aftur af því að það er búið að þurrka hana út. Þessir menn eru margir orðnir gamlir í dag. Sumir hafa fengið önnur störf. Það eru þó ýmsir af þeim sem hafa ekkert fengið að gera síðan þorskastríðinu Iauk. Það eru ekki peningarnir sem keyra þá áfram i þessari baráttu heldur er það að fá viðurkenn- ingu á sinni starfsævi." Blikur á lofti Margrét segist fylgjast með því hvað gerist hjá sjómönnunum. Hún segist reikna með að þeir fái bætur frá breska ríkinu það sé einungis spurning hvenær það gerist. Það gæti verið á þessu ári eða eftir fimm ár. „Það eru ýmsar blikur á Iofti í augna- blikinu. Siðustu mánuðina hef- ur ýmislegt bent til það það væri eitthvað að gerast. Þingmaður- inn þeirra fundar með þeim reglulega og lætur þá vita af stöðunni og kýlir í þá kjark. Maður getur ímyndað sér hvort einhver væri ekki búinn að gef- ast upp eftir öll þessi ár, en þeir eru andskotanum þverari." Margrét segir að saga bresku sjómannana eigi erindi við Is- lendinga, þar sem þetta var sam- félag sem byggði lífsafkomu sína á einum atvinnuvegi, sem síðan var skyndilega kippt í burtu. „Eru ekki lítil byggðarlög úti á landi að leggjast af vegna þess að kvótinn fer í burtu?“ spyr Margrét að lokum. -PJESTA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.