Dagur - 17.04.1999, Qupperneq 21
X^nr-
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999- 37
3 . '
RADAUGLYSINGAR
wmm
Kennslufræði til
kennsluréttinda
Nám í kennslufræði til kennsluréttinda fyrir starfandi
leiðbeinendur hefst á haustri komanda ef næg þátttaka
fæst.
Námið miðast við kennslu á framhaldsskólastigi og í
efri bekkjum grunnskólans. Til námsins er stofnað á
grundvelli laga um lögverndun á starfsheiti og starfs-
réttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara
og skólastjóra, nr. 86/1998.
Áskilinn er réttur til þess að takmarka fjölda innritaðra
ef þörf krefur. Umsóknarfrestur er til 1. júní n.k. Sækja
ber um námið á þar til gerðum umsóknareyðublöðum
sem fást á aðalskrifstofu háskólans að Sólborg, ki.
8:00-16:00, sími 463-0900 og á deildarskrifstofum,
Þingvallastræti 23, sími 463-0930 og Glerárgötu 36,
sími 463-0961/0940. Afgreiðslutími deildarskrifstofa er
frákl. 8:00 til 12:10.
Nánari upplýsingar veitir kennslustjóri námsins
í síma 463 0923 eða 463 0900.
Háskólinn á Akureyri
Vigtarmenn
Vornámskeið 1999 til iöggildingar
vigtarmanna verða haldin sem
hér segir;
^ Ef næg þátttakaN
fæst !!!
____________________________J
• Á Egilsstöðum 26., 27. og 28. apríl.
Endurmenntun 29. apríl.
Skráningu þátttakenda lýkur 21. apríl.
• Á Hnífsdal 3., 4. og 5. maí. Endurmenntun
kvöldnámsk. 3. og 4. maí.
Skráningu þátttakenda lýkur 26. apríl.
• í Reykjavík dagana 10., 11. og 12. maí.
Endurmenntun 14. maí.
Skráningu þátttakenda lýkur 3. maí.
Námskeiðunum lýkur með prófi.
Skráning þátttakenda og allar nánari upplýsingar á
Löggildingastofu í síma 568-1122
Námskeiðsgjald kr 24.000,-
Endurmenntunarnámskeið kr 10.000,-
Löggildingarstofa.
F II N D I R
!
Efling - stéttarfélag
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Eflingu - stéttarfélagi
þriðjudaginn 20. apríl nk. Fundurinn verður haldinn
í Kiwanishúsinu við Engjateig og hefst kl. 20:30.
Fundarefni:
1. Lagabreytingar vegna sameiningar
félaga/deildaskipting.
2. Kjaramál.
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið
Stjórn Eflingar - stéttarfélags.
- LÍFRÆN RÆKTUN -
í nútíð og framtíð
Almennur fundur verður haldinn í Skálanum á Hótel
Sögu, 2. hæð, föstudaginn 23. apríl kl. 14.00.
Fjallað verður um stöðu lífrænnar ræktunar innan land-
búnaðarkerfisins.
Frummælendur verða:
Guðni Ágústsson, formaður landbúnaðarnefndar
Hákon Sigurgrímsson, landbúnaðarráðuneyti
Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdarstjóri Bl
Þórður Halldórsson, formaður VOR
Umræður og fyrirspurnir verða að erindum loknum.
VOR - félag framleiðenda í lífrænum búskap
Aðalfundur Iðju
Aðalfundur Iðju, félags verksmiðjufólks verður
haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Hvammi,
mánudaginn 26. apríl 1999
kl. 17:00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Sameining við Eflingu: Tillaga um
skoðanakönnun meðal félagsmanna
um sameiningu við Eflingu verður borin
fram á fundinum.
3. Önnur mál.
Reikningar Iðju fyrir árið 1998 liggja frammi á
skrifstofu félagsins.
Kaffiveitingar í boði félagsins.
Iðjufélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
HÚSNÆDI ÚSKAST
ðtvinnuhúsnæði, skip
og kvóti
Jóhann Ólafsson &
Kristjón V. Kristjánsson, löggiltur F&S
568-2323 og 863-6323
Saumastofu vantar 1.000 fm. „góS bílastæSi"
Heildsölu vantar 500 fm. „snyrtilegt svæSi"
TrésmíSav. vantar 200 fm. „Vogar - HöfSi"
Saltfiskverkun vantar 200 fm. „m/leyfi"
ÚtgerS vantar 150-300 t. togbát „góSan"
ÚtgerS vantar „þorsk, ýsu, karfa og rækju"
Fyrirfæki selur 2.500 fm. „m/leigusamning"
ÚtgerS selur þorskaflahámark.
ÚtgerS selur þorsk í Barentshafi.
ÚtgerS selur 20 t. bát meS kvóta.
Til sölu bátar meS þorskaflahámarki.
Ý M I S L E G T
Auglýsing frá yfirkjör-
stjórn Norðurlandskjör-
dæmis eystra um móttöku
framboðslista og fleira
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 8. maí 1999 rennur
út föstudaginn 23. apríl nk. kl. 12 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra tekur á móti fram-
boðslistum þann dag kl. 10-12 á Lögmannsstofu Akureyrar
ehf., Geislagötu 5, Akureyri (Búnaðarbankahúsinu 3. hæð).
Á framboðslista skulu vera að lágmarki sex nöfn frambjóðenda
en þó ekki fleiri en 12. Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýs-
ing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að
nafn þeirra sé á listanum. Hverjum framboðslista skal fylgja
skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í
Norðurlandskjördæmi eystra. Fjöldi meðmælenda skal vera
120 hið fæsta en 180 hið mesta. Enginn má mæla með fleiri
en einum framboðslista. Komi það fyrir strikast nafn meðmæl-
andans út í báðum (öllum) tilvikum. Framboðslista skal enn-
fremur fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um
hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn
frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu og heimili, til þess að
enginn vafi geti leikið á því, hverjir í kjöri eru. Við nöfn með-
mælenda skal greina kennitölu og heimili.
Yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra mun koma saman
til fundar í Ráðhúsi Akureyrar, bæjarstjórnarsalnum á 4. hæð,
Geislagötu 9, laugardaginn 24. apríl 1999 kl. 17 til að ganga
frá framboðslistunum, sbr. 38. gr. laga nr. 80/1987 um kosning-
artilAlþingis.
Meðan kosning fer fram laugardaginn 8. maí 1999 verður að-
setur yfirkjörstjórnar Norðurlandskjördæmis eystra í Oddeyrar-
skólanum á Akureyri. Talning atkvæða að kjörfundi loknum
mun fara fram í KA-heimilinu, Lundartúni, Akureyri.
Sími hjá formanni yfirkjörstjórnar er 462-4606 og faxnúmer:
462-4745.
Akureyri 13. apríl 1999
Yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra,
Ólafur Birgir Árnason
Guðmundur Þór Benediktsson
Inga Þöll Þórgnýsdóttir
Jóhann Sigurjónsson
Þórunn Bergsdóttir
Karlakór Akureyrar
Forsala aðgöngumiða að tónleikum Karlakórs
Akureyrar, Kristjáns Jóhannssonar, bræðrum og
systursonum er í Bókvali, Hnotunni, Djásni
Egilsstöðum, Pennanum-Eymundsson og íslands-
flugi Reykjavík.
Undur oq stnrmerkl...
www visir is
FYRSTUR MEO FRÉTTIRNAR