Dagur - 18.12.1999, Side 6

Dagur - 18.12.1999, Side 6
22 - LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 LlPJÐ 1 LÁjJUJjJU J- Davíð Bergmann stóð áður í ströngu við að bjarga ung- mennum Reykja- víkur upp úr svaði fíkniefnanna. Hann er nú fluttur til Dal- víkur, þar sem hann starfar að forvörn- um og segir verk- efni sín ekki vera minni nú en var syðra. „Þessum krökkum verðum við að hjálpa og þar hafa allir skyldur,“ segir Davíð meðal annars hér í viðtal- inu. „Þörf er fyrir forvarnir á sviði vímuvarna og að- gerða sem snúa að fjöl- skyldumálum, samskipta- erfiðleikum og erfiðleikum barna í skóla og annars- staðar er ekki minni hér en fyrir sunnan," segir Davíð Bergmann, ung- linga- og vímuvarnaráð- gjafi. Hann hóf í byrjun september sl. störf á Dal- vík eftir að hafa starfað um alllangt skeið í Rey'kja- vík. Þar komst hann starfa sinna vegna í krappan dans við fíkniefnasala, sem varð ásamt öðru til f ,,. bess að hann kaus að "Þo "knieíni seu ekki áberandi hér þá skulum við heldur ekki gleyma þvíað áfengið er alltaf hættumesti vímugjafinn og sá sem er mest skipta ' um starfsvettvang ðnc,/' Áfengteey^a barna undir lögaldri er óásættanleg og ólögleg, “ segir Davíð Bergmann, meðal annars hér í viðtalinu. mynd: sbs Sinnir Davíð nú störfum með og fyrir unglinga í Dalvík- urbyggð, Hrísey og Olafsfirði, en þessi sveitarfélög hafa sam- einast um félags- og skólaþjón- ustu. „Verkefnið er yfirgripsmikið," segir Davíð, sem segir að hluti af því sé meðal annars að tryggja betur en nú er stöðu unglinga á aldrinum 16 til 18 Sjö fíkniefnamál í fyrra „Vímuefnaneysla hér er ekkert frábrugðin því sem gerist ann- arsstaðar," segir Davíð. „A Dal- vík komu upp sjö fíkniefnamál á síðasta ári sem tólf einstak- Iingar tengdust. Svona mál koma ekkert síður upp úti á landi en í Reykjavík; á vertíð hér á árum áður reyktu menn hass einsog Bubbi Morthens hefur oft sungið um. Fari neyslan hinsvegar að verða meiri en ein og ein pípa eða ef farið er að neyta þaðan af sterkari efna er illmögulegt að fela slíkt. Það er frekar hægt í fjölmenninu fyrir sunnan. Smæð sveitarfélagsins vinnur aðjiessu leyti með okkur." A síðustu misserum hefur með samvinnu ríkis og sveitar- félaga víða verið stofnað til for- varnaverkefna á sviði vímu- varna f samvinnu við SAA. Þau ganga út á alhliða stefnumörk- un og eru virkjaðir til starfa all- ir þeir sem geta lagt baráttunni lið. Verkefni af þessum toga er starfrækt sameiginlega af Dal- víkurbyggð og Ólafsfjarðarbæ. Falskir biðlistar „Krakkar hér við utanverðan Eyjafjörð þurfa að fara í fram- haldsskólaskóla á Akureyri. Þar með skilja leiðir þeirra og fjöl- skyldna þeirra, en rannsóknir sýna að þegar náin tengsl milli foreldra og barna fara að rofna eykst hættan á því að ungling- arnir leiðist út í vímuefna- neyslu. Því held ég að það væri sterkur leikur að koma á fót fjölbreyttri framhaldsmenntun hér um slóðir,“ segir Davíð, sem kveðst ekki geta dæmt um árangur af störfum sínum, þau séu eilífðarverkefni í eðli sínu. „Hitt get ég þó sagt að á Dal- vík og á Ólafsfirði er vilji til þess að sinna þeim sem best. Þar á meðal málefnum ung- menna á aldrinum 16 til 18 ára. Það er kostnaðarsamt að sinna þessum hópi og það sáum við sem störfum á þess- um vettvangi fyrir þegar sjálf- ræðisaldur var hækkaður, en miklu síður stjórnmálamenn sem tóku ákvörðunina. Þannig er orðið erfitt að koma ung- menni, helteknu af vímuefna- neyslu, f meðferð. I barna- verndarlögunum segir að reynd skuli öll úrræði áður en sótt er um meðferðarvist, en fyrr má aldeilis fyrr vera. Og þó biðlist- ar séu langir gefa þeir ekki rétta mynd af stöðunni. Fagfólk sækir ekki um meðferðarpláss fyrr en allt um þrýtur og jafn- vel Iöngu eftir að öll önnur úr- ræði hafa verið reynd. Því eru hiðlistarnir falskir og gefa ekki rétta mynd. Einsog staðan er nú breytir eitt meðferarheimili, sem tekur við kannski sex til átta einstaklingum, ekki miklu í stöðunni. Sjálfur sótti ég, í fé- lagi við fleiri, um að koma á laggirnar meðferðarheimili hér á Dalvík fyrir fíkla og unga af- brotamenn og fékk sú umsókn mín jákvæðar undirtektir Barn- arverndarstofu. I sama streng var ekki tekið af Páli Péturs- syni félagsmálaráðherra, en eftir opinber orðaskipti sem ég hef átt við hann er ég ekki á jólakortalista hans.“ Markaðurinn er að breytast Þau stóru fíkniefnamál sem hafa komið upp að undanförnu þar sem lögreglan hefur haft hendur í hári stórra eiturlyfja- baróna, segir Davíð að gefi ástæðu til að ætla að breyting sé að verða á fíkniefnamark- aðnum. Af fréttum megi líka ráða að harkan í undirheimum Reykjavíkur hafi aukist í kjölfar þess að framboð á fíkniefnum hafi minnkað. Hvað varðar stóra fíkniefnamálið sem upp kom í haust þá segir Davíð að liðin séu þrjú til fjögur ár síðan farið var fyrst að tala um þá menn, sem nú sitja bak við lás og slá vegna þess, sem stór- tæka innflytjendur og sölu- menn fíkniefna. Ekkert hafi hinsvegar verið gert til að hafa hendur í hári þeirra, bæði vegna fjárskorts hjá lögreglunni og almenns skilningsleysis, að því er Davíð segir. „Lögin hafa torveldað lög- reglu að vinna í fíkniefnamál- um, en nú hefur þeim góðu heilli verið breytt. Því var fram- faraskref þegar efnahagsbrota- deild var sett á laggirnar hjá Ríkislögreglustjóra og farið var að vinna mál niður í kjölin, meðal annars með upptöku fíkniefnagróða. - Fíkniefnasal- arnir eru heldur engin fífl, heldur útséðir peningamenn sem kunna vel til markaðssetn- ingar. Við skulum ekki vameta þá,“ segir Davíð Páll að hætti strútsins 1 sumar sem leið skrifaði Davíð í Morgunhlaðið greinina Hand- taka í hoði Eimskips eða Kók. Þar skoraði hann á stjórn- völd að auka fjárframlög til lögreglu, þannig að hún gæti eflt baráttu sína við baróna fíkniefnanna. „Greinin fór fyrir brjóstið á yfirvöldunum og Lög- reglan í Reykjavík bað mig um að skýra málið nánar fyrir sér. Síðar gerðist það á tröppunum heima hjá mér að sendisveinn fíkni- efnasalanna birtist og bar mér þau skilaboð að héldi ég mig ekki á mottunni og til hlés yrði ég drepinn. Þessi heimsókn varð ásamt mörgu öðru til þess að ég ákvað að fara til starfa á öðrum vettvangi og þar varð Dalvík lend- ingin. Nægu var ég búinn að fórna áður.“ Davíð bætir því við að í framhaldi af þessum blaðaskrifum hafi hann átt fund með Sólveigu Péturs- dóttur dómsmálaráðherra, þar sem hún hafi lofað sér því að aðgerðir í fíkniefna- málum yrðu efldar. „Það hefur hún staðið við og á hrós skilið fyrir. Hinsvegar get ég ekki hrósað Páli Péturssyni, sem hefur að hætti strútsins stungið hausnum í sandinn og neitað að horfast í augu við vandann sem við er að glíma.“ Öll höfum við skyldur „Mér líður vel á Dalvík og ég veit að hér er vilji til verka. Hér er gott samfé- Iag og það á eftir að verða enn betra," segir Davíð áber- Rergmann. „Þó fíkniefni séu ekki áberandi hér þá skulum við heldur ekki gleyma því að áfengið er alltaf hættumesti vímugjafinn og sá sem er mest áberandi. Afengisneysla barna undir lög- aldri er óásættanleg og ólög- leg.“ Davíð, sem er fæddur 1970, neytti sjálfur fíkniefna um tíma, en hefur haldið sig frá þeim síðustu þrettán árin. Frá 1995 hef’ur hann starfað sem ráðgjafi þeirra sem eru í sama vanda staddir og hann var á sínum tíma. „Eg hef aldrei far- ið í háskóla og lært sálfræði eða félagsráðgjöf. Eg ber mikla virðingu fyrir fólki sem hefur þá menntun, en það sem ég hef þó sjálfur fram yfir þetta fólk er að ég hef sjálfur verið í neyslu og þekki málin frá þeirri hlið. Sjálfur fór ég í gegnum skólagöngu sem var hreint hel- víti. Oft sé ég sjálfan mig í þessum krökkum sem ég er að hjálpa. Eg þekki Iygabrögðin, plottin og klækina. Sum eru snillingar, en það verður að hafa í huga að þetta eru hörn sem eru alltaf að tapa, bæði í skóla eða félagslífi. Þau leita sér að vímu sem leið út úr vanda og Ieiðast svo út í afbrot. Þessum krökkum verðum við að hjálpa og þar hafa allir skyldur." -SBS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.