Dagur - 26.02.2000, Blaðsíða 19

Dagur - 26.02.2000, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 - 35 Xk^nr WMMM ÍMjáJst úháð dagblat &C. - rftSTt.'UAGVK ?■ Jt’l I 117H - 144. I Bl, RIisrJÍ>KNsloU,M(i1.A liAi:<Jl.ÝS!NfíARO<; AKÍRMDSIA t>VF.KHOI.Í111— ADM SI.MI *Tu Staðhæft að styrkurinn nemi 33 milljónumalls Cr.!S £«*t ckii boui t taálið. ipumut bífur »,' ölttiaiístufeáafi ; j»ItM*ítnuitai IVjV k.3 i NoföwVStvd ura við A^Ouílotlcm. &utA**ttst nVfjRi u?pJýstr*ufn. ÍKm lk&hd& hríuf ffnfifl frl jNuresi. ncmw hciU»n:pph**in afl Rlttrsu lostí 33 milI/Kium ktöns. GffltVÍSl, IwitttflsK iuckaðt enn cinu *tnn> > nwteun afl noiAwmn hcffli - enhvarerþá helmingurþessfjárniðurkominn? UppIJíitiíAf DB tru lomrjr fti nortVuatNafVimarjii.{Xídva/ IhjOhik hji VersSetw Gang S OiH>. cn hann tók aö stf »8 kantu miSfl f>rú DB. Hirm segir *fl Sven Dahlm. tiUn nort.rnu Mn»urísneXiv.Jannnat iflínaCcunta ntwl fcafi suðfest íð hesUafurphrðm v*íi 475.200 's.TEtS.ar któmir. bafl pfntMv túmkfÁ 27 mslijða é>I. krönum i scr^i dagúni I dag. Ennír*mut hafi Matunnt Súat. SjuMkeri finnska >afAáfliimur,ita fíílUms. tuflfcst afl {uflín tufi iilenzka jafrufljrnunrufloUnuar bori/t a!K I0S 000 vaemtar Ltónur. vem jafiiíikJu rúmVtgu xi railljftnu.-n fal. Irfma i nav«i»nfliíer.j». Dröjtuk ses? tUi hxgt afl fá ni IvarnMt uppiýungtr fri dflmkura jafnsðarroCiRnum f>rr en í bytjun veptetnhcr xt%m >fimandmdi syrtur teyfitur, Bcnedikt GrCndat kvafl*.i i nyxgun cilflunn* sijtuifjr i {trau mtvijcrm I tfthira norvka hiifljtninnvms ug tðfum Atþýðufktkt.ún. ..tf. i tiáj;; rr.eð að «ú» l»l, aðSven DihUn. sero vifl hekljum á^ctíegi, fu.fi Uiifl pctu fri ser fara," vvífli lunn. ..fmtv o* tf ct ma.-fhiiinr, afl vegja, fá ffik AIMfluStaSið túrrui liu mlljftr.tr i pappífsayrtjum, «>í vWin hofura vifl fengtfl 3 u-rfc£í iveiniur á»-m S~6 m;llii‘ir>.ir fri norrtefM uppíjstnga og út}>te»A«!iajúðfturo.“ lotnuflut AlhJvVftokkvinv uUi úúlokafl, ím'i MxU peíMigaim reffli ..horfvS’ » kkVnro lil I.*í»r*í* .Pctia tt vBvíiandi jirtt irfo cfrfal;." v»(ðt lkrxd.lt. Jiviaroir cru tililarmí* raeð tnjðf fauar rcglvif unt þcua.. bxfli hvað varflae iiyrki úl okkar og annarra >»fr.aAi rmar.r.iIUikka. Peniaprnif til ARijfluhlaflvín. föru j ECgnum fyntuckið, sem h Ufla prer.!\i-le>fli n lufa sktpí *ifl og inn i feankarcikiivií hér. k’ hicið<rfupcRÍnt(Afmr fon» mtt á unx» rcttnm#' flcncrfik; kvafl 1*0 aspjflnílokkv ttvenn lufa snruri roiikpftrgu her lcndtt ug hafa fcah með pcning»na afl gcm hér, cn mundr ckki ,.i »ví; tivaða mcnn psfl vom 6v. Hneyksknleg emhœttisveiting StöföstudogskjaUara Vilmundar Gyifosonar á öh. 10—11 Tilraun til leynikgra kosninga J>/6 kjallarugrdn Omars Valdimarssonar á bis. 10—11. „Mér var tekiA sem árlndum gUcpumannt" — rterr i *I KririmanM GeJmcnrfvwn i flfl. 19. Heimsmet (Jdo liayer I kúlurarpi, 22.15 Siglfiróingar misnotuöu ríti og Vaiur ram. nauman sigur á KS Sjálfirórtir Fréttin í DB þann 4. júlí 1978 var uppspuni símritara sem missti vinnuna. Dýrkeyptur spéskapur Snemma árs 1978 var mikið rætt og ritað um fjárstyrki sem Alþýðuflokk- urinn fékk frá Norðurlöndum. Það kom þó ekki í veg fyrir stórsigur flokksins í kosning- unum í júní. Yfirsímritari hjá Rit- símanum ákvað að stríða starfsfélaga sínum, krata sem gladdist mjög yfir kosningasigri sinna manna. Yfirsímritarinn, hinn hálffertugi Vignir (breytt heiti), ætlaði sér aldrei neitt annað en að stríða starfsfélaga sínum góðlátlega og meinlaust - og kannski var hann dulítið fúll pólitískur andstæðingur - en svo óheppilega vildi til að stríðnin náði út fyrir veggi stofnunarinnar og endaði á forsíðu Dagblaðsins (DB). Starfsfélaginn, Jón, var gallharður Al- þj'ðuflokksmaður og var í skýjunum yfir kosningasigri síns flokks - og það leyndi sér ekki á vinnustaðnum. Vignir taldi sjálfsagt að það mætti lækka í Jóni rostann og ákvað að semja skeyti til að stríða honum. Hann samdi skeytið sjálfur og beindi hinu tilhúna skeyti til DB, sem skrifað hafði hvað mest um fjárstyrkina til Alþýðuflokksins. Efni skeytisins var alger tilbúningur en aftur á móti sett upp og samið á mjög trúverðugan hátt. „Skeyti nr. 33“ Skeytið var á norsku- og sænskublendingi, þess efnis að Alþýðuflokkurinn hefði þegið frá sænskum og finnskum jafnaðarmanna- flokkum samtals 472.200 sænskar krónur í styrk (um 18 milljónir króna framreiknað miðað við þáverandi gengi). Var Sven Dahlin, ritari hinnar norrænu samstarfs- nefndar jafnaðarmanna, borinn fyrir fjár- hæðinni og einnig vitnað til Marianne Saar. Vignir falsaði undir skeytið tilbúið nafn „Oddvar Dröjbak“ hjá dagblaðinu Ver- dens Gang í Oslo og sendi það milli fjar- ritatækja í ritsímastöðinni. Það átti ekki að fara lengra en milli herbergja í stofnuninni. Jón krati fékk skeytið í hendumar, eins og til var ætlast og fylgdist Vignir vandlega með móttökunni - og fór síðan að glettast við hann um efni skeytisins. En Jón vildi ekkert við hann tala um efni skeytisins og kom hann því í hefðbundna meðferð. Vign- ir kveðst þá hafa talað við ritara, sem við nefnum Þórdísi, 21 árs, og beðið hana um að eyðileggja skeytið, en hún vissi af glens- inu. Fyrir dómi sagði Þórdís að hún hefði vit- að hvað til stæði og meira að segja beðið Vigni um að framkvæma grínið þegar hún væri viðstödd. Mánudaginn 3. júlí hefði Vignir sagt henni að „skeyti nr. 33“ væri grínskeytið og að hún ætti að gæta þess að það yrði ekki borið út. Barst skeytið með eðlilegum hætti til hennar frá varðstjóra, eftir að Jón hafði séð það, og setti hún það í skúffu hjá sér og ætlaði að eyðileggja það þegar Jón væri farinn af vaktinni þá um kvöldið. Forsíðuuppsláttur í DB Um svipað leyti spurði Vignir hvort hún væri búin að eyðileggja skeytið, sem hún neitaði. Hvarf hún til annarra verkefna um stund og rétt áður en hún hætti vinnu kl. 21 um kvöldið spurði Vignir hana aftur hvort skeytið hefði verið eyðilagt - og nú svaraði hún gegn betri vitund játandi. Þór- dís gaf þá skýringu fyrir dómi, að „þetta hefði verið einhver meinloka hjá sér eða kæruleysi. Hún hafi einhvern veginn ekki munað eftir skeytinu". Þórdís fór í sumarleyfi daginn eftir - og skeytið varð eftir í skúffunni hennar. Sam- kvæmt rannsóknargögnum hefur varðstjóri tekið skeytið úr skúffunni á fimmtudags- morgni, þremur dögum eftir að það var búið til, og sent það út með öðrum skeyt- um. Þennan fimmtudag barst síðan skeytið inn á ritstjórn DB, þar sem því var tekið sem heilögum sannleik, enda sannfærandi texti. Daginn eftir birtist forsíðufrétt með fyrirsögninni: „Fjárstuðningur norrænna krataflokka: Staðhæft að styrkurinn nemi 33 milljónum [gkr] alls - en hvar er þá helmingur þess fjár niðurkominn?“. I frétt- inni segir að DB hafi borist upplýsingar frá Oddvar Dröjbak hjá Verdens Gang, og um þann tilbúna mann sagt; „en hann tók að sér að kanna málið fyrir DB“. Eitthvað hafa menn á DB viljað setja sig á háan hest, að segjast hafa fengið tilvistarlausan mann í verktöku fyrir sig! Hirðuleysi í starfi Slysið komst því alla leið á forsíðu DB, sem þessi árin mátti búa við harða samkeppni við Vísi á síðdegismarkaðnum (nú ríkir þar engin samkeppni). Þegar málið komst upp missti Vignir samstundis vinnu sína og var í kjölfarið ákærður fyrir „stórfellda van- rækslu og hirðuleysi í starfi". Héraðsdóm- ara þótti ekkert benda til þess að illfysi hafi ráðið gerðum hins ákærða og ekki ástæða til að efast um að hann hafi aðeins ætlað að glettast við samstarfsfélaga sinn. Hann hafi sannanlega gert ráðstafanir til þess að skeytið yrði ekki borið út; fól Þórdfsi að sjá um það og tvíspurði hvort skeytið hefði verið eyðilagt. „Þórdís brást hins vegar loforði sínu um að eyðileggja skeytið og gleymdi því í skúffu sinni. Hefur hér tekist í meira lagi slysalega til, og var ákærða nokkur vor- kunn, þótt hann teldi sig hafa húið svo urn hnútana, að skeytið færi ekki út. Hins veg- ar verður að telja það óhæfu af ákærða að nota tæknibúnað ritsfmans til þess að hafa í ffammi spéskap, og kemst hann ekki hjá því að bera ábyrgð á, að skeytið var borið út og varð þannig heimild að hlaðafrétt". Refsingu frestað Héraðsdómari taldi að ekki væri um ítrek- aða vanrækslu eða hirðuleysi að ræða, en að athæfið fæli í sér stórfellt hirðuleysi. Með hliðsjón af því að Vignir missti vinnu sína hjá Ritsímanum þótti héraðsdómaran- um við hæfi að ffesta refsingu og fella hana niður að tveimur árum liðnum, héldi hann almennt skilorð. Hæstiréttur var sama sinnis, taldi óhæfi- legt af ákærða að nota tæknibúnað Ritsím- ans til að senda hið tilbúna skeyti. „Gat honum ekki dulist, að með þessu háttalagi kom hann af stað atburðarás, sem fól í sér hættu á, að skeytið yrði borið út til skráðs viðtakanda, svo sem raun varð á. bar hon- um sjálfum að gera virkar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir útburð skeytisins, og voru viðtöl hans við samstarfsmann sinn eigi einhlít í því efni“. Hæstiréttur staðfesti dóm undirréttar. Hin unga Þórdfs slapp með skömmina. Og DB-menn með ijóðar kinnar. fridrik@ff.is Fniðrik Þóp Guðmundsson skrifar Menntaskólinn. Fullyrða má að Menntaskólinn í Reykjavík sé eitt af reisulegustu húsum Reykjavíkur og setur það sterkan svip á miðborgina. Hvað heitir bókhlaðan sem stendur lít- ið eitt sunnan við aðalbyggingu skól- ans og hver er rektor MR? Bikarleikurinn. Hverjar urðu lokatölur í bikarúrslitaleik Fram og Stjörnunnar í handknattleik um sl. helgi, þar sem Frammarar náðu hinum eftirsótta titli? Þórhildur. Óhætt er að segja að Þór- hildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri hafi staðið í ströngu í Borgarleikhúsinu að undanförnu, því auk leikhússtjómar- innar sjálfrar og þess fræga slags, er hún jafnframt leikstjóri í viðamiklum söngleik sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu innan skamms. Hver er hann? Frost á Fróni. Nú fer kuldaboli ham- förum um allt land og tröllshrammur veturs konungs setur allt úr skorðum. Samgöngur eru fljótar að raskast við þessar aðstæður. Samkvæmt hinu gamla ísienska tímatali er nú góa - en hvaða tveir mánuðir koma svo? Hrafnhildur. Á fimmtudagskvöld var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu nýtt verk eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmunds- dóttur sem heitir Hægan Elektra. Þetta er annað verk Hrafnhildar, en fyrra verk hennar var sett svið í Borg- arleikhúsinu fyrir tíu árum og sló þá rækilega í gegn. Hvert var það verk? LAND OG ÞJÓÐ Siyurður Bogi Sævarsson 1. Hver var læknirinn sem var frum- kvöðull að því að Heilsuhæli Náttúru- lækningarfélags íslands var sett á lagg- irnar í Hveragerði og yfirlæknir þar fyrstu árin - og hver er dóttursonur hans - landsþekktur skeleggur fjöl- miðlamaður? 2. Rifgirðingar. Hvar á landinu eru þær? 3. Hvar á landinu er Grunnafjörður? 4. Hvar var það sem Drangeyjarkappinn Grettir Ásmundarson fæddist endur fyrir löngu? 5. Milli hvaða fjarða sem ganga inn úr ísafjarðardjúpi er fjallið Hestur og hvað heitir annesið framan við fjallið sem gengur út í Djúpið ? 6. Sól ég sá er afar fallegt nafn á ævi- sögu þjóðþekkts manns sem hann skrifaði og sendi frá sér fyrir um tuttugu árum. Hver var maðurinn? 7. Hvar á landinu er eða var Kóngsveg- urinn svonefndi? 8. Hvar á landinu er bærinn og kirkju- staðurinn Þingmúli? 9. Sjötúnahlíð. Hvar á iandinu er hún? 10. Hvað hét kona Ingólfs landnáms- manns Arnarsonar? skrifar ■Jinopepoj-j B!9A||bh ’Ol |pfe J upjjov) ||o rug nu uigs ‘!|Áq ofs luuigjm i ntOA rnnjjAj pe iac) jb jjis ujbu iBejp Qjiqeunjofs pe J9 Jöbs 'djocljmiiAepns J9 eujQjiqjnjsoA qia U9 ‘dnfpjepjefjesj pw ipjyBjjiy uinpjgAUBjsns psui jn66i| uias uiQj|q jjpaq Qjiqeunjofs '6 ‘PjBajp suuefæq ujeu J9 jac( je 6o e6ep cunpjoj spue| -jnjsny JnpBjs6u!d6unpjofj jba jb^ ‘ejjsto |eppu>is e jb i|nui6u!q ‘8 ssojnng 6o isAag iqbqovjs 6o jn6unísdn>|S!a 6o |epjB6neq ‘pi9|B>|>|BqB[g uin jnjsne uin||OA6u!q bjj joj uuunBunuon U9 ‘sueq sijXaunjgj 6o s6unuo>| suefjsu>| nuio>| je lujapj j /061PP? Jnp6e| jba uias uuunöaA ja ejjsq jsausuiijg 6o uin6unjsdn>|S!g ‘|epje6neq j ‘uuqjoq epjA nu ‘ipo|S neuieé ja uuun69As6uo» L 'ujeu e69||ej ejjacj Jeq ‘uinpuiq jnuipAj j jn uio» uias VlA! ejejsiauje|0>|s 6o s6u!pæjjnjnjjeu 'wnpo|H bjj jeuossjopujajs sjppuiajs e6es|A3/ -g -jnjojeioj J9 jsan P|a ueuiejj 6o jepjefjjsan 6o jBpjefjsipjfas !|||w e ja jnjsajj ‘g 'ipjypilAI! |6JBfg y 'k '!sauej>iv e pejsdnB>| njjos was eBujpjijBjog pia| 6o[w qbc) jjjAjs epua 'jBUjmiai J|jA puejipfj jea jjÁj jnpy 'l 'Ju jnBaApofcj jn66|| sujoqjepjefj uejo jwwe»s 'PipuaiJipunjejiaASJBJiaq j uui uueq jsja»s 6o s||b[jbj>iv ubjsba jnpjofj jnuumé ja 'jn6oAjej|aq jnpujau ja wnpunjs was ‘jnpjofjeuunjg -g ‘pugjjsjB6o>is jb jn jn66|| 6o ipjyepiajg b eMa ia JB6u|pj|6j!g z 'AQ ‘iJofisqu 'uossub[jsu» seuop ja |ujbu|b 6o sueq jnuosjnjjpa ‘i»oj»jBpnBS e j|u»æ| jba jnpe was uossue[jsu» seuop 'i ‘uuuejsraw ja 63 , 'edjeu 60 jnpnuewug nja peq , 'jajjog a|og jyja eje» 6|w njssi» ja um jjnds ja jaq was uuun>na|6ugs, 'jejejsiawjeyiq paw jecj jbjbwwbj^ npjn 60 zz - LZ aunujgfjs npnjéjs jbjbwwbjj pe jæc| npjn su|s»|a| jn|gje>|oq , ‘jyjopejjoi jnp||qu6ey ja uuuoj»aj 60 e»ecj| ja y|/\| epe|q>|og ,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.