Dagur - 26.02.2000, Blaðsíða 2

Dagur - 26.02.2000, Blaðsíða 2
18 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 HELGARPOTTURINN Sú eiturskarpa baráttukona, hagfræðingur- inn Edda Rós Karlsdóttir. hefur nú yfir- gefið Alþýðusamband íslands og öreigaboð- skapinn þar og er komin á grænni lendur. Nú mun hún, samkvæmt þvf sem Helgar- potturinn heyrir og veit, vera komin til starfa hjá Búnaðarbanka íslands - verðbréfum, til hinna nýríku ríkisbubba þar sem Valgerður Sverrisdóttir viðskíptaráðherra hefur séð ástæðu til þess að taka í lurginn á. En úr því Edda Rós er komin í þessi vé þykir helgar- pottinum rétt að spryja hvort leiðin frá ASÍ til Samtáka atvinnulífsins hefði ekki verið beinni' og ef til vill eðlilegri?! Fyrir helgina mun hafa verið gengið frá kaup- um Stöðvar 2 á gljáfægðum Range, Rower Wogue sem hefur til að bera allt það semfor- stjórajeppar þurfa að hafa, það er jeppar eins- og sjást stundum fyrir utan Hótel Sögu þegar Verslunarráðið heldur þar hádegisverðar- fundi. Fyrir jeppann góða greiddi Stöð 2 ekki nema átta og hálfa milljón, en hvað munar um einn kepp í sláturtíðinni þegar kaupa þarf nýj- an bíl fyrir Jón Ólafsson... Það eru fleiri en Jón Ólafsson sem eru að fá í hendur glæsijeppa um þessar mundir. Páll Pétursson félagsmálaráðherra lét sér ekki duga neitt minna en Grano Cherokee Limit V8 og mun hann nú aká-á dýrasta bíl ráðherrahópsins en svoria jeppar kosta um og yfir 6 milljónir króná eftir búnaði. Páll Pétursson. Sportveiðiblaðið er án vafa glæsilegasta veiðiblað landsins. Það hefur til þessa verið gefiö út í Reykjavík en nú hefur ritstjóri þess, sá frægi maðkaveiðimaður Gunnar Bend- er, ákveðið að flytja útgáfuna til Akureyrar. Hann mun sjálfur vera að flytja sig um set frá Blönduósi til Akureyrar. Sportveiðiblaðið er nýkomið út og eru þar viðtöl við veiðimenn að vanda meðal annars þá Finn Ingólfsson seðlabanakstjóra og Björgvin Halldórsson poppsöngvara. Það kemur oft ýmislegt skrýtið og skondið fram í tvífaraþætti Fókuss í DV. Ekki tekst þeim alltaf vel upp og stundum eru samlík- ingarnar örlítið langsóttar, en oftast er eitt- hvað til í ábendingunni. Þannig gerðist það síðastliðið haust að Fókus útnefndi tvífara, Halldór Gylfason leikara og Geirfugl og stjörnuna á Skjá einum, Egil - silfur- Helgason. Ekki fannst öllum að þeir væru líkir, enda kannski aðeins svipur með þeim, snöggt á litið, sérstaklega á mynd. Það sann- aðist í gær þegar Morgunblaðinu tókst að ruglast svo hastarlega á Halldóri og Agli, að hann kallaði Halldór Gylfason, Egil Helgason í myndatexta. Leikstjórinn Guðjón Sigvaldason hefur nóg að gera við að drífa upp leikverk úti á lands- byggðinni. Hann er núna á Siglufirði að setja upp ísaðar gellur sem fjallar um breskar stelp- ur sem koma í fiskvinnu á íslandi og bregða upp dálítið sérstakri mynd af okkur Frónbúum, Með þessu verkefni er verið að velga Leikfélag Siglfirðinga upp af 5 ára Þyrnirósarsvefni og undanfari þess var hrina umbrota og skjálfta í formi námskeiða sem nefndur Guðjón stjórnaði. Guöjón Sigvaldason. Margir muna eftir ísuöu gellunum Ingrid Jóns, Ásu Hlín og Lollu sem fóru um landið ásamt Halldóri Björns og fleirum og sýndu verkið við góðan orðstír. Egill Helgason. Gunnar Bender. Sprækir nemendur í Framhaldsskóla Vest- fjarða á ísafirði munu efna til mikillar hátíðar um næstu helgi, Sólrisuhátíðar, sem er eins- konar árshátíð skólans. Hátíðin er hluti af opnum dögum skólans. Margt er á dag- skránni af þessu tilefni, svo sem sýning á Draumi á Jónsmessunótt. Framhaldsskóla- nemar á ísafirði hyggjast ekki setja upp leik- sýningu fyrir hálftómu húsi og buðu meðal annars öllum alþingsismönnum okkar með töluvupósti að koma á sýninguna. Margir þeirra hafa látið í sér heyra en reyndar allir afboðað komu sína. Sé gripiö niður (skeyti þeirra, sem helgarpotturinn hefur fengið að glugga í, kemur fram að um næstu helgi verði ísólfur Gylfi í Finnlandi, Halldór Ásgrímsson afboðar komu sína vegna Rússlandsferðar, Hjálmar Jónsson á fundi hjá Norðurlandaráði og Árni Ragnar Árnason telur alls óvíst að hann komist á æskuslóðir sínar fyrir vest- an um næstu helgi, en biður þó fyrir góðar kveðjur heim ... fl i „Prófin eru opin öllum sem hafa áhuga. Það þarf bara að geta sungið með rétt- um stíl og áhersl- um, “ segir Mich- ael Jón Clarke, tónlistarkennari. ............- - Leita að söngfólki í Tónlistarskólanum á Akureyri er verið að undirbúa tónleika þar sem tekin verða fýrir lög úr söngleikjum. Verið er að leita að söngvurum og gefst fólki kostur á að fara í raddpróf. „Við erum að leita að fólki með söngleikjaraddir og sem þekkir þann stíl. Fólk getur komið með söngleikjalag sem það kann, helst utanbókar, og flutt. Þetta má líka vera popplag, en fólk verður að sýna hvað það kann, án þess að vera haltrandi. I prufusöng þarf þó ekki að gera allt fullkomið heldur þarf að sýna ákveðna hæfileika," segir Michael Jón Clarke söng- kennari. Hann er í undirbúnings- nefnd fyrir tónleikana ásamt þeim Pálma Gunnarssyni og Sif Ragn- hildardóttur og verða raddprófin á miðvikudagskvöldið í Tónlistarskól- anum. Michael segir að á undan prófunum sé kóræfing sem hefjist klukkan 18.00 og þeim sem hyggj- ast taka þátt í prófunum sé guðvel- komið að koma þangað og hlusta. Hver tónlistarstefna hefur sinn stíl Söngleikjatónleikarnir verða í byrj- un apríl og segir Michael efn- iskránna vcra svolítið óvenjulega. Þar verði fluttar fjórar til fimm syrpur af söngleikjalögum sem spanni söngleiki frá South Pacific og Oldahoma og að Óperudraug Andrews Loyd-Webber. Hann segir að ekki sé aðeins verið að leita að fólki til þess að koma fram í þessum syrpum heldur fólki sem langi til þess að syngja. Það þurfi ekki endi- lega að vera söngmenntað fólk. „Prófin eru opin öllum sem hafa áhuga. Það þarf bara að geta sung- ið með réttum stíl og áherslum. Þetta þarf að vera einhver sem vill koma fram. Það er alltaf áhugi á söngleikjum. Fólki finnst þetta al- veg ofboðslega gaman, en þetta þarf að gera alveg geysilega vel. Þetta þarf líka að vera í takt við músíkina. Það þýðir ekkert að syngja söngleikjatónlist eins og óperur. Það þýðir heldur ekki að syngja óp- erusöng eins og popptónlist. Hver tónlistarstefna hefur sinn stíl og sérstakar aðferir." Tóhleikarnir verða 5. apríl í Iþróttaskemmunni og það verður heilmikið um að vera þá vikuna, segir Michael Jón. „Hljómsveitin verður skipuð gæðakröftum héðan og víðar að. Þar verður valinn mað- ur í hverju rúmi. Pálmi Gunnars- son verður á bassa og við erum að gera okkur vonir um að Kjartan Valdimarsson geti spilað með okk- ur. Þetta vérður svona 6 til 7 manna band. I þessari sörnu viku verður Sinfóníuhljómsveit Norður- lands með tónleika og það er mein- ingin að þetta verði tónlistarvika á Akureyri með ýmsum uppákomum. Ég held að það dragi ekki úr að- sókninni," segir hann. Leita að nýju fólki Einhverjir þekktir söngvarar koma fram á tónleikunum, en Michael vill ekki nefna nein nöfn. Þau Pálmi Gunnarsson og Sif Ragnhild- ardóttir hafa verið nefnd til sög- unnar en þau eru bæði í ncfndinni sem sér um raddprófin og Sif dvel- ur nú norðan heiða og nemur söng hjá Michael. Hann vill ekl<i viður- kenna að hann setji þumalskrúfu á þau. „Það er ekki búið að taka nein- ar ákvarðanir ennþá en við viljum helst finna nýja talcnta sem ekki hafa fengið að njóta sín. Við erum fyrst og fremst að leita að nýju, ungu eða gömlu fólki og við viljum gjarnan að það gefi sig fram. Það þýðir ekkert að vera feiminn við að gefa sig fram. Ef fólk ætlar að gera eitthvað þá verður fólk að gjöra svo vel að hrista af sér slenið og mæta.“ -PJESTA MAÐUR VIKUNNAR ER OFURLAUNAMAÐUR! Fjárfestingarbanki atvinnulífsins er banki vikunn- ar, framkvæmdastjórar FBA menn vikunnar og að- albankastjórinn Bjarni Ármannsson því sjálfkjör- inn ofurmaður vikunnar. Allt auðvitað vegna þess að þeir skila bankanum með ofurhagnaði og fá í staðinn ofurlaun þannig að jafnvel hefðbundnir hálaunamenn á borð við forsetann og forsætis- ráðherrann blikna við samanburð. Er ekki rétt að verkalýðshreyfingin fái þá til að semja fýrir sig? Bjarni Ármannsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.