Dagur - 26.02.2000, Blaðsíða 18
34 - LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000
Skáldagenin liggja víða og
unga kynslóðin á íslandi yrkir
Ijóð og semur sögur af mikl-
um þrótti. Það sannar þátt-
taka í nýlegri Ijóða-og smá-
sagnakeppni þar sem um eitt
þúsund börn á aldrinum sex
til tólf ára sendu inn efni,
mörg hver fleiri en eitt verk.
Ritsmíðarnar sem börnin sendu í keppn-
ina voru afar fjölbreyttar og þar má
glöggt sjá hvað liggur æsku landsins á
hjarta. Umhverfisvernd, fegurð landsins,
vinátta, vonir og draumar, sólin og lífið
og samstaða fjölskyldunnar. Allt er þetta
er yrkisefni unga fólksins og ævintýri
líka sem alltaf eru sígild,
Það var Æskan, í samvinnu við Flug-
leiðir og Ríkisútvarpið, sem efndi til
keppninnar. Aðalverðlaunin voru flug-
ferð til Frankfurt fyrir vinningahafa og
foreldri og dvöl þar í þrjá daga. Þau
hlutu tvær stúlkur, Arngunnur Arnadótt-
ir, 12 ára, fyrir ljóðið Hafið og Sigrún
Inga Garðarsdóttir, 9 ára, fyrir Ijóðið
Regndropinn. Æskan hefur forgangsrétt
að birtingu verðlaunaljóðanna, en skáld-
konurnar ungu féllust á að leyfa lesend-
um Dags sjá sýnishorn af öðrum rit-
smíðum sínum og svara nokkrum spurn-
ingum blaðamanns.
Sagan varð að Ijóði
- Sigrún Inga, sendir þú fleiri Ijóð í
keppnina en Regndropann?
„Nei, en ég sendi líka tvær sögur.
Onnur er álfasaga sem ég samdi í fyrra.
Eg skrifa mest sögur en minna af ljóð-
um og verðlaunaljóðið mitt var saga
fyrst en breyttist svo í Ijóð.“
- Ertu með skáldablóð í æðunum?
„Ég veit það nú ekki. Ég held það séu
engin stórskáld í ættinni minni en Sig-
rún amma mín er verðlaunaþýðandi og
henni finnst gaman að fylgjast með því
sem ég er að skrifa."
- Hefurðu nokkurn tíma fengið verð-
laun fyrir ritverk áður?
„Nei, en ég las einu sinni upp sögu í
Ráðhúsinu."
- Segðu mér, áttu margar sögur í
skúffu?
„Þær eru nú flestar í bókum. Bæði
bókum sem ég hef búið til sjálf heima
og gefið í gjafir og svo bókum sem ég
skrifa í skólanum. Islenskukennarinn
minn í Melaskólanum, Edda Pétursdótt-
ir, lætur okkur krakkana skrifa mikið,
bæði það sem okkur dettur í hug og ljóð
eftir aðra. Svo myndskreytum við bæk-
urnar. Edda hvatti okkur krakkana til að
senda efni í samkeppnina í Æskunni og
við gerðum það öll. Ég var ekki sú eina í
bekknum sem fékk verðlaun, Birgitta,
besta vinkona mín fékk líka."
- Varstu lítil þegar þú byrjaðir að
skrifa?
„Svona sex ára. Ég fæddist úti í
Éondon og var þar til fimm ára aldurs
en ég held ég hafi ekki skrifað mikið
þar. Var samt búin að læra að lesa bæði
íslensku og ensku þegar ég kom heim.
Mamma og pabbi lásu alltaf mikið fyrir
okkur Gunnhildi systur mína þegar við
bjuggum úti svo við Iærðum góða ís-
lensku og núna les ég ensku á hverju
kvöldi til að gleyma henni ekki. Samt
eru viss orð sem ég skil ekki alveg.“
- Ruglaði enskan þig ekkert i ríminu
þegar þúfórst í Melaskólann?
„Nei, það eina sem ég tek eftir er að
ég skrifa t stundum eins og gert er út,
ekki með tengikrók."
- Hverjar eru uppáhalds námsgreinarn-
ar þínar í skólanum?
„Éeikfimi og enska. Við byrjuðum í
Alfasaga
Einu sinni voru álfakóngur og drottning sem áttu heima í álfahöll sem
var lítið fjall. En einu sinni kom eldgos í fjallinu sem höllin var í og það
rann hraun fyrir opið á höllinni og enginn komst inn eða út. Einni öld
síðar voru krakkar sem höfðu þennan stað fyrir leiksvæði. En morgun
einn kom jarðskjálfti og við það varð grjóthrun í fjallinu og hraunið
hrundi frá opinu.
Þegar krakkarnir komu var kominn hellir í fjallið. Krakkarnir fóru inn í
hellinn en álfarnir voru auðvitað farnir af því þálangaði ekki til þess að
búa í fjalli sem gýs. Börnin fóru Iengra inn í hellinn og þá opnuðust göng
inn í sjálfa höllina og þar fundu börnin sem hétu Maren, Steini, Asa,
Osk, Pétur og Sigurjón álfagersemar. Þetta gerðist auðvitað í gamla daga
svo það að finna svona gersemar á þeim tímum er eins og að eignast heilt
konungsríki fyrir okkur. Þeir skiptu fjársjóðnum á milli sín og voru lengi
að því. Og þegar þau komu heim til sín voru þau öll rík og lifðu vel til
æviloka.
Það er að segja af álfunum að þeir fluttu í friðsælt fjall og það kom
aldrei aftur eldgos hjá þeim.
Sigrún Inga Garðarsdóttir (8 ára)
Arngunnur Árnadóttir er með mörg jðrn í eldinum
mynd: árni
Sigrún Inga Garðarsdóttir skrifar aðallega
sögur en sumar þeirra breytast I Ijóð
mynd: hilmar
Sjávarhljóð
og Draumar
Sjávarhljóð
Kríugarg.
Sjórinn leikur við skartgripi hafsins.
Lítil bláskcl sem liggur í
fjörunni, syngur óð til hafsins.
Mávarnir hanga í loftinu eins
og fastir í strengjum.
Sólin sem drottning Iffsins
kemur upp við sjóndeildarhringinn
og lýsir upp veröldina og vermir.
Dagur.
Fallegur dagur.
Draumar
Draumar eru í lit.
Draumur er dynjandi foss,
Iágvært suð
eða fallegur söngur.
Draumar eru óskir um betra líf.
Draumur er draumur.
Amgunnur Ámadóttir (12 ára)
Fleiri
verðlaunahafar
Þessir krakkar fengu tvær nýjar útgáfu-
bækur frá Æskunni og geisladisk frá Skíf-
unni sem verðlaun:
Alexander Elfarsson
Hólmgarði 9, Reykjavík
Anna Sæunn Ólafsdóttir 12 ára
Bjarnarstöðum, Bárðardal
Arni Þór Arnason 11 ára
Skildinganesi 12, Reykjavík
Árni R. Styrkársson 11 ára
Funafold 28, Reykjavík
Birgitta Ragnarsdóttir 10 ára
Klapparstíg 17, Reykjavík
Elín Rún Birgisdóttir 10 ára
Stapasíðu 7, Akureyri
Guðrún Eydís Ketilsdóttir 10 ára
Hlíðarhjalla 31, Kópavogi
Haukur Sigurðarson 12 ára
Assessorsvágen 1, Bjarred, Svíþjóð
Helga Margrét Helgadóttir tólf ára
Kálfborgará, Bárðardal,
ensku í haust og það eru nokkrir krakk-
ar í bekknum sem hafa búið úti í lönd-
um. Svo hef ég verið í ballett síðan ég
var fjögurra ára.“
- Hlakkarðu ekki til að fara til Frank-
furt?
„Jú, kannski koma mamma, pabbi og
Gunnhildur öll með mér ef þau geta
safnað fyrir því.“
- Heldurðu að þú verðir rithöfundur
þegar þú verður stór?
„Ég er ekki búin að ákveða það.“
Ætlar að verða
söng- og leikkona
- Arngunnur. Er langt síðan þú byrjaðir
að yrkja?
„Ég byrjaði þegar ég var 5 eða 6 ára að
semja sögur og lítil ljóð og hef haldið
því áfram. Mér finnst það bara svo gam-
an. Við erum með sögugerðarbækur í
skólanum og þær geyma mikið af mín-
um sögum og Ijóðum“
- Þar færðu auðvitað brosandi kall eða
stjörnur að launum?
„Já, oftast.“
- / hvaða skóla ertu?
„Vesturbæjarskóla í 7, bekk.“
- Sendi bekkurinn þinn Ijóð og sögur í
keppnina?
„Nei, ég tók það bara upp hjá sjálfri
mér. Það eru samt nokkrar stelpur í
bekknum mínum sem yrkja Iíka.“
- Veisiu hvenær þið vinningshafarnir
farið til Frankfurt og hvað þið gerið þar?
„Nei, ég held það sé ekki ákveðið
hvenær við förum og ég hef ekki fengið
neina dagskrá ennþá. Við skoðum ör-
ugglega eitthvað merkilegt og skemmt-
um okkur. Svo verðum við auðvitað að
skrifa ferðasögur þegar við komum
heim.“
- Áttu þér fleiri áhugamál en skriftirn-
ar?
„Já, ég spila á klarinett og hef mjög
gaman af að synda og dansa. Svo æfi ég
djassballett og er að fara að keppa í
„free style“ danskeppni í Tónabæ fyrir
10 -12 ára krakka í kvöld. Þar tek ég
þátt í einstaklingskeppni."
- Ertu búin að æfa dansinn vel sem þú
ætlar að sýna?
„Ég er ekki búin að æfa hann lengi en
mér gengur ágætlega svo ég er bara
bjartsýn."
- Og hvað ætlarðu svo að verða þegar
þú verður stór. Þú virðist hafa úr mörgu
að velja.
„Ég ætla að verða söng- og leikkona."
- Akveðin?
Já, ég ætla að minnsta kosti t leiklistar-
skóla
- Ilefurðu prófað að leika?
„Bara jólaleikritum og fleiru í skólan-
um. Svo var ég einu sinni á leiklistar-
námskeiði og í lok þess var sýnt í Nor-
ræna húsinu. Það var skemmtilegt."
GUN.
Helgi Sigurðsson 10 ára
Holti 2, Kirkjubæjarklaustri
Hildur Stefánsdóttir 12 ára
Háaleitisbraut 51, Reykjavík
Hildur Kristfn Stefánsdóttir
Skaftahlíð 1, Reykjavík
Hrafnkell Guðmundsson 9 ára
Lynghaga 4, Reykjavík
Kamma Thordarson Sigvaldadóttir 12 ára
Háaleitisbraut 109, Reykjavík
Katla Hólm Vilbergsdóttir 12 ára
Rúpufelli 25, Reykjavík
Kristrún Selma Ölversdóttir 11 ára
Skólavegi 85 B, Fáskrúðsfirði
Lilja Dögg Jónsdóttir 11 ára
Brekkubæ 31, Reykjavík
Margrét Edda Örnólfsdóttir 12 ára
Tómasarhaga 27, Reykjavík
Miriam Laufey Gerhardsdóttir 12 ára
Gaukshólum 2, Reykjavík
Steinunn Harðardóttir 12 ára
Holtsgötu 14, Reykjavík
Telma Huld Ragnarsdóttir 1 1 ára
Einigrund 19, Akranesi.