Dagur - 13.10.2000, Blaðsíða 12
12 - FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2000
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2000 - 13
FRÉTTASKÝRING
L.
Tkyyr
Daptr.
Dansað á glóðiun
SIGURDÓR
SIGURDÖRS
SON
SKRIFAR
íslenski fjármála-
heiinurinn titrar
vegna umræðunnar
um sameiningu ríkis
bankanna. Ólíklegt er
talið að hægt verði að
taka ákvörðun um
sameiningu nú uin
helgina eins og til
stóð. Rættumað
hankastjórinn verði
hara einn með tvo til
þrjá aðstoðarmenn
með sér.
Afturkippur kom í viðræður um
sameiningu bankanna eftir að
Dagur og aðrir fjölmiðlar greindu
frá því að til stæði að ganga frá
málinu í vikunni og tilkynna um
ákvörðun um sameiningu um
þessa helgi. Ræða átti málið á rfk-
isstjórnarfundi síðastliðinn
þriðjudag en það var ekki gert.
Ekki er víst að það verði rætt á
ríkisstjómarfundi í dag og að til-
kynnt verði um sameininguna nú
um helgina þótt það sé talið bráð-
nauðsynlegt að flýta afgreiðslu
málsins sem mest.
Menn úr viðskiptalífinu hafa
sagt að svona vinni menn ekki
lengur í viðskiptalífinu eins og
gert hefur verið í þessu samein-
ingarmáli. Það hefði aldrei átt að
komast í fjölmiðla fý'rr en það var
afstaðið. Engin umræða hefði átt
að eiga scr stað fyrirfram. Hér sé
um að ræöa fyrirtæki á markaði
og því kvikuviðkvæmt. Þess vegna
leiði allt umtal til þess að gerðar
eru athugasemdir við viðskipti
mcð hréfin á verðbréfaþinginu.
Og í gær voru raunar hréf í ríkis-
bönkunum sett til hliðar á verð-
hréfaþingi þar til niðurstaða um
sameininguna liggur fyrir.
Rétta aðferðin við þetta mál,
segja sérfræðingarnir, hefði verið
að þeir sem ráða ferðinni, þeir
Davíð Oddsson og Halldór As-
grímsson, hefðu sest niður og
gengið frá málinu á einum degi.
Þeir áttu að ganga frá því hverjir
yrðu bankastjórar og hverjir skip-
uðu bankaráðið, hafa samband
við þessa menn og segja þeim að
lokað hafi verið fvrir hlutabréfin
og næsta morgun yrði svo til-
kynnt að bankarnir verði samein-
aðir um næstu áramót og hverjir
væru nýráðnir stjórnendur hans.
Svona mál séu unninn á einu
kvöldi og kannski að viðbættri
nóttinni. Mál af þessu tagi þoli
ekki fjölmiðlaumræðu eins og
verið hefur alla þessa viku.
Fjariiialaheimiiriim titrar
Vegna þess að þetta var ekki gert
svona er ríkisstjórnin lent með
málið í afar erfiðri stöðu. Pressan
á ráðherrum er mikil og tíminn
/
■HH
Hinn nýi sameinaði banki, ef hann losaði sig ekki við Landsbréf og VÍS yrði með um 60% af íslenska fjármálamarkaðnum sem er of mlklð til þess að það standist samkeppnislög.
orðinn skammur. Og á meðan
titrar fjármálaheimurinn á Is-
landi og óvissan er til þess eins að
skemma fyrir. Menn dansa á
glóðum eins og einn viðmælandi
Dags komst að orði.
Rétta aðferðin við
þetta mál, segja sér-
fræðmgarnir, hefði
verið að þeir sem
ráða ferðinni, þeir
Davíð Oddsson og
Halldór Ásgrímsson,
hefðu sest niður og
gengið frá málinu á
einiini degi.
Ossur Skarphéðinsson spurði
Valgerði Sverrisdóttur viðskipta-
ráðhcrra um stöðuna í málinu á
Alþingi á miðvikudaginn. Hann
spurði hvort ekki þyrfti að Ieita til
Samkeppnisstofnunar nú þegar
um hvort sameiningin stæðist
samkeppnislög. Valgerður sagði
að ekki værið unnið að samein-
ingu hankanna heldur að sölu
þeirra. Þess vegna væri ótíma-
bært að spyrja þessarar spurning-
ar. Hins vegar sagði Davíð Odds-
son þann sama dag að sameina
beri ríkisbankana til þess að ríkið
fengi sem mest fyrir þá áður en
þeir yrðu scldir. Þetta þýðir auð-
vitað það að unnið er að samein-
ingu bankanna áður en sala á
hlut ríkisins hefst. Svona er talað
í austur og vestur á sama sólar-
hringnum, sem sýnir aðeins hvc
málið er allt í lausu lofti.
Eiirn bankastjóri
Ríkisstjórnin er hins vegar komin
í afar erfiða stöðu. Þegar samein-
ingarmálið komst í fjölmiðla má
scgja að orðið hafi sprenging.
Ráðherrar voru óviðbúnir þeirri
pressu sem myndaðist þegar fjöi-
miðlar tóku að spyrja, starfsfólk
hankanna varð órólegt og hjá því
myndaðist mikil spenna. Pen-
ingamarkaðurinn vissi ekki
hvernig átti að bregðast við, því í
raun vissi enginn nákvæmlega
hvernig staðan var. Það er þessi
mikla upplausn sem staðið hefur
f vegi fyrir því að frá málinu yrði
gengið f þessari viku eins og til
stóð.
Þá er enn ófrágengið hver eða
hverjir verði stjórnendur hins
nýja bankana. Talað var um að
þeir Halldór J. Kristjánsson úr
Landsbanka og Sólon Sigurðsson
úr Búnaðarbanka yrðu banka-
stjórar. Nú er því haldið fram að
ráðherrar vilji að einn sterkur
bankastjóri verði yfir bankanum
með tvo til þrjá aðstoðarbanka-
stjóra með sér.
Ef um einn bankastjóra verður
að ræða munu vcrða mikil átök
um hver það á að vera. Ef sjálf-
stæðismenn fengju að ráða þenn-
an mann má gera ráð fyrir að það
yrði Kjartan Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri flokksins og banka-
ráðsmaður í Landsbanka. Það
myndu framsóknarmenn trauðla
samþykkja. Ekki er jafnaugljóst
hvern framsóknarmenn myndu
skipa ef þeir réðu. Víst er að
stjórnarflokkarnir vilja tryggja
áhrif sín í þessum hópi stjórn-
enda hins nýja banka og því eru
átök um þetta og málið algerlega
óleyst enn. Sá maður er eflaust
vandfundinn sem hefur hæfileika
til að vera aðalbankastjóri þessa
eina ríkisbanka og algerlega
óháður í pólitík þannig að báðir
stjórnarflokkarnir gætu sætt sig
við hann.
Þá er það bankaráðið. Ymsir
hafa verið nefndir til sögunnar
sem formannsefni og hæst hefur
nafn Geirs Magnússonar, for-
stjóra ESSO, borið í þeirri um-
ræðu. Raunar hefur nafn hans
verið nefnt sem hugsanlegs aðal-
bankastjóra. Menn benda á að ef-
laust ættu sjálfstæðismenn erfitt
með að sætta sig við hann í það
starf. Og enda þótt flokkarnir vilji
koma sfnu fólki fyrir í bankaráð-
inu þá er bankaráö eitthvað sem
kemur og fer og mannast eftir því
hvaða ílokkar fara með lands-
stjórnina hverju sinni. Þess vegna
er það sjálf yfirstjórnin sem skipt-
ir stjórnarflokkana máli.
Skipt um skoðirn
Davíð Oddsson og sjálfstæðis-
menn hafa lengi verið því hlynnt-
ir að sameina ríkisbankana og
selja þá svo. Halldór Ásgrímsson
hefur hins vegar fram til þessa
verið heldur andvígur því að sam-
eina ríkisbankana. Hann sagði í
sumar í samtali við fjölmiðla að
hann tcldi að upp kæmi of mikil
fákeppni til þcss að ncytendur
gætu treyst á góða þjónustu ef
ríkisbankarnir yrðu samcinaðir.
Hann sagði það því ekki sjálfgefið
út frá einhverrjum hagkvæmisað-
stæðum að sameina bankana.
Enn fremur að líta þyrfti til sam-
keppnislaga i' þessu tilfelli. Ekki
væri víst að sameining bankanna
stæðist þau.
Nú hefur Halldór skipt um
skoðun því hann sagði í gær að
það þyrfti samruna á fjármála-
markaði og tryggja samkeppni því
vextir væru hér allt of háir. Þá
þyrfti líka að líta á atvinnusjónar-
Til þess aö sparisjóð-
iruir geti komið að
máliirn þarf að breyta
lögum vegna þess að
þeir eru sjálfseignar-
stofnanir. Ef þetta færi
nú svona þá væri kom-
inn til sögunnar þriðji
bankinn, álika stór og
sameinaði ríkisbank-
inn og íslands-
banki/FBA.
mið bæði á höfuðborgarsvæðinu
og út á landi í þessu sambandi.
Það gæti tengst þessum skoð-
anaskiptum Halldórs að nú er al-
mennt talið að Landsbankinn
verði að losa sig við Landsbréf og
VÍS áður en til sameiningar við
Búnaðarbankann kemur. Og ef
Landsbankinn losar sig við Lands-
bréf og VIS er verið að ræða um að
Frjálsi fjárfestingarsjóðurinn komi
þarna inn og hugsanlega spari-
sjóðirnir. Til þess að sparisjóðirnir
geti komið að málinu þarf að brey-
ta lögum vegna þess að þeir eru
sjálfseignarstofnanir. Ef þetta færi
nú svona þá væri kominn til sög-
unnar þriðji bankinn, álíka stór og
sameinaði ríkisbankinn og Is-
landsbanki/FBA. Um leið væri
komin sú samkeppni sem Halldór
Ásgrímsson telur nauðsynlegt að
tryggja og allir myndu eflaust
fagna.
Þetta er ein af þeim hugmynd-
um eða útfærslum sem menn eru
að velta fý'rir sér og ýmsar fleiri
leiðir eru sagðar koma til greina
því fullyrt er að í raun sé allur fjár-
málamarkaðurinn undir í málinu.
Markaðsráðandi
Hinn nýi sameinaði banki, ef
hann losaði sig ekki við Landsbréf
og VÍS yrði með um 60% af ís-
lenska Ijármálamarkaðnum sem er
of mikið til þess að það standist
samkeppnislög. Bankinn myndi
hafa 55-56% af öllum innlánum í
landinu. Hann myndi hafa um
46% af öllum útlánum, þar af um
40% af útlánum til einstaklinga.
Hann mvndi hafa um 57% af
rekstrarlánum til fyrirtækja og 62-
64% af gjaldeyrisviðskiptum til
einstaklinga og fyrirtækja. Þetta
eru augljóslega allt of sterk tök
sem Samkeppnisstofnun gæti ekki
annað en tekið á.
Við sameiningu Landsbanka og
Búnaðarbanka er talið að hægt
verði að hagræða og spara upp á
allt að einum milljarði króna. En
þar kemur líka inn f afar viðkvæmt
mál sem eru uppsagnir starfsfólks.
Það liggur alveg ljóst fyrir að ekki
færra en 300 manns yrði sagt upp.
Bankarnir eru með of margar af-
greiðslur hér á höfuðborgarsvæð-
inu. Einhverjum þeirra yrði lokað.
Ut á landi eru bankarnir báðir
með útibú á 9 stöðum. Dagljóst er
að annarri þeirra verður lokað á
öllum þessum 9 stöðum og fólki
því sagt upp. Þetta er ofur við-
kvæmt mál í Ijósi þess að allir eru
að tala um að flytja stofnanir út á
land til að skapa þar atvinnu og
stöðva þannig fólksflóttann til höf-
uðborgarsvæðisins.
Spernia hjá starfsfóLkinu
Dagur befur fyrir því öruggar
heimildir að mikil spenna ríki nú
meðal starfsfólks bankanna hér á
höfuðborgarsvæðinu. Starfsfólk í
Búnaðarbankanum vill ekki að
bankinn sameinist neinum banka,
hvorki Landsbanka né öðrum. Það
vill að bankinn haldi bara áfram
eins og verið hefur. Þá veldur það
að sjálfsögðu mikilli spennu hjá
starfsfólki beggja bankanna að tal-
að er um að segja upp 300 manns.
Annað væri óeðlilegt.
Enda þótt að talað hafi verið um
að málið yrði afgreitt nú um helg-
ina eru allir stjórnmálamenn sem
Dagur hefur rætt við á einu máli
um að það þyrfti kraftaverk að
koma til ef það eigi að takast mið-
að við þá ringulreið sem verið hef-
ur í málinu frá því fjölmiðlar
skýrðu frá stöðunni í vikunni.
Auðunn og Álfheiður á erfiðri stundu. Ekki var búið að slökkva bálið í fjósinu í gærmorgun
þegar myndin var tekin.
Sldptir mestu að
skepmimar lifðu
Mikið tjón í bruna í
Köldukmu eu ábúend-
umir eru staðráðnir í
að gefast ekki upp.
Voru nýbúin að taka
við jorðmni.
Mikið tjón varð í stórbruna á
Fremstafelli í Köldukinn í S-
Þingeyjarsýslu í gærmorgun.
Fjós eyðilagðist í eldi og líkur
eru á að hlaða hafi skemmst.
Engar skepnur voru í útihúsun-
um ef frá eru taldir tveir kálfar
og tókst a.m.k. að bjarga öðrum
þeirra. Nýir ábúendur eru á jörð-
inni og segja þeir rnestu máli
skipta að skepnurnar hafi bjarg-
ast.
Mjólkurbílstjóri sem ók eftir
aðalþjóðbrautinni í Köldukinn
sá fyrstur eldinn og tilkynnli um
brunann til lögreglu um kl.
06.40. Ilann vakti síðan ábú-
endur og rúmum hálftíma síðar
kom slökkvilið úr þremur áttum.
Bíll frá Húsavík kom fyrstur en
síöan bættist við liðsauki úr Að-
aldal auk heimamanna. „Það
var allt að hrvmja þegar við mætt-
um á staðinn," sagði slökkviliðs-
maður sem kom fyrstur á stað-
inn. Rjúfa þurfti þakið áður en
eldurinn slokknaði endanlega og
tók slökkvistarf á þriðju klukk-
stund.
Vatnsskortur
Benedikt Jónasson, aðstoðar-
slökkviliðsstjóri á Húsavík, sagði
að slökkvistarf hefði gengið eftir
atvikum en vatnsöflun hefði
valdið erfiðleikum. Um kilómetri
var í næsta vatnsból frá Fremsta-
felli og sagði Benedikt þetta
kunnugt vandamál í dreifljýlinu.
„Það brann allt sem brunnið
gat,“ sagði Benedikt en gat þess
ennfremur að viðbragðstími
slökkviliðsins hefði veriö mjög
góður.
„Að redda fjósi“
„Eg er að reyna að redda fjósi,“
sagði Auðunn Ingvar Pálsson
bóndi í' gærmorgun þegar blaða-
menn Dags litu við hjá honum
og konu hans. Þau eiga þrjú
börn og er skammt sfðan þau
fluttust úr Bárðardalnum og
tóku við kúabúskapnum í
Fremstafelli. Áfallið er rnikið en
þau eru staðráðin í að gefast ekki
upp heldur leita húsnæðis í ná-
grcnninu til að hýsa kýrnar tíma-
bundið ogf reyna síðan uppbygg-
ingu.
Kaldhæðni örlaganna er að
eldsupptök eru rakin til rafsuðu-
framkvæmda sem fram fóru i
útihúsunum nóttina fyrir brun-
ann og var sú vinna þáttur í nýju
skipulagi rekstrarins eftir að
hjónin tóku viðjörðinni. „En það
var hundaheppni að hýsa ekki
kýrnar," sagði Auðunn og lét
engan bilbug á sér finna.
Álfheiður Birna Þórðardóttir,
eiginkona Auöuns, sagði að á
erfiðum stundum væri líkt og
einhver aukakraftur kæmi yfir
mannssálina en þau voru sam-
mála um að það hefði orðiö full-
stór biti að kyngja ef skepnurnar
hefðu farið líka.
Óljóst með tryggingar
Oljóst var í gær hvernig ábúend-
urnir á Fremstafelli eru tryggðir
fý'rir tjóninu, þar sem svo
skammt er síðan Auðunn og Álf-
hciður tóku við búinu. Auðunn
sagði að fýrir hálfum mánuði
hefði tryggingafélagið haft sam-
band en vegna tímaskorts ákvað
bóndinn að fresta því að ganga
frá hnútunum í því. Það stóð til
á næstu dögum að ganga endan-
Iega frá tryggingamálunum. -BÞ