Dagur - 17.10.2000, Blaðsíða 11

Dagur - 17.10.2000, Blaðsíða 11
ry^tr ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÚBER 2000 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Daprar Mðar- horfur Clinton reynir að sannfæra Arafat um að hann eigi ekki annars úrkosta en að semja um frið. Leiðtogafimdurinn í Egyptalandi er til þess ætlaður að sýna friðarvilja og vald á allt öðrum stöðum en í Israel og Vestur- bakkanum og Gaza. Clinton Bandaríkjaforseti á ekki eftir að sitja nema tæpa þrjá mánuði í embætti og ekki eru nema þrjár vikur þar til búið verður að kjósa nýjan for- seta risaveldisins. Sól hans er því að renna til viðar og öllum er ljóst að valdaferli hans er að ljúka. Því má ætla að orð hans og gjörðir hafi ekki eins mik- inn slagkraft og áður. En samt er hann leiðtogi öflugasta ríkis heims og völd hans ótvíræð. Greinilegt er að hann ætlaði að ljúka ferli sínum í Hvíta húsinu með því að koma á var- anlegum friði fyrir botni Mið- jarðarhafs og hefur unnið ötul- lega að þvf að að sætta ísraela og Palestínumenn. En friðarferlið er nú runnið út í sandinn og allt er komið í bál og brand og virðist friðar- vilji íbúa „Landsins helga“ vera af skornum skammti og gætir nú óróa um öll Mið-Austur- Iönd. Munu fæstir þora að spá til hvaða ferils það kann að leiða. Miklir leiðtogafundir fara nú fram í Egyptalandi og á að freista þess að komast að ein- hverri jákvæðri niðurstöðu og fá Israela og Palestínumenn til að sættast á einhvers konar samkomulag um að hefja frið- arferli á ný. I gær virtust ekki góðar horfur á að það tækist. Arafat gerir það að úrlitaskil- yrði að fram fari alþjóðleg rannsókn á hverjir beri ábyrgð á óeirðunum og manndrápun- um á Vesturbakkanum og Gaza, sem hófust um s.l. mán- aðamót. Barak forsætisráð- herra segir það ekki koma til greina en býður upp á að Bandaríkjamenn skipi rann- sóknarnefnd og leiði hana. Palestínumenn taka það ekki í mál. Svona er andinn í viðræð- unum, en þeir Arafat og Barak talast ekki við, enda eins gott að þeir tali ekki af sér þar sem stuðningur við frið og sættir er ekki mikill á þeirra heimavíg- stöðvum. Það er heldur vandræðalegt fyrir allt leiðtogabatteríið sem er samankomið í Egyptalandi að láta heiminn verða vitni að því áhrifaleysi, nánast ráðleysi, sem leiðtogarnir hafa á gang mála fyrir botni Miðjarðar- hafs. Þarna eru Kofi Annan framkvæmdastjóri SÞ með sitt lið, Clinton og utanríkisráð- herra hans, Mubarak forseti Egyptalands og Abdullah Jórdaníukóngur og reyna að bera klæði á vopnin, en grjót- kastarar í Hebron og byssuglaðir Israelar gera til- raunir stórmennanna til að ná fram einhvers konar ályktun- um að engu. Sú mikla áhersla sem Clint- on leggur á að Iáta að sér kveða í málefnum Israela og Palestfnumanna er ekki ein- ungis sú, að enda feril sinn með reisn og koma á varanleg- um friði milli þessara þjóða, heldur eru mikilvægar kosn- ingar fyrir dyrum í Bandaríkj- unum. Niðurstaða fundana í Egyptalandi getur haft afger- andi áhrif á forsetakosningarn- ar sem fara fram 7. nóvember n.k. þar sem Clinton styður flokksbróður sinn og varafor- seta, AI Gore, sem nú á undir högg að sækja. Síðan er Hillary Rodham Clinton í framboði til öldunga- deildarinnar í New York fylki. Þar eru Gyðingar fjölmennir og samtök þeirra mjög öflug. Það er því mikið í húfi á heimavelli ekki síður en fyrir botni Miðjarðarhafs, að Bandaríkjaforseta takist að láta líta svo út að friðarferlið komist aftur í gang, að minns- ta kosti fram yfir kosningar. En eins ogt horfir eru litlar líkur á að það takist. Enda má líka velta fyrir sér hvort þeir Barak og Arafat séu nógu valdamiklir og öflugir leiðtogar til að semja um vopnahlé, hvað þá frið. Svo má minna á að Jsrael og Egyptaland eru þau ríki sem njóta langmests fjárstuðnings frá Bandaríkjunum og eru því að vissu leyti skuldbundin til að Ieggja Clinton lið til að halda reisn sinni síðustu vik- urnar á valdastóli. - OÓ Ný stjóm í Júgóslavíu BELGRAD - Vojislav Kostunica nýr forseti Júgóslavíu og stuðningsmenn hans í þinginu lýstu því í gær yfir að þeir myndu sætta sig við að deila völdum í Serbíu með stuðningmönn- um fyrrum forseta, Slobodan Milocevic, þar til búið væri að kjósa í kosningum sem efnt yrði til á næstunni. I samræmi við það var mynduð ný stjórn í landinu. Vuk Draskovic, sem er leiðtogi umbótaflokks á þinginu sagði á blaðamannafundi í þinghús- inu í gær að kosningar yrðu haldnar þann 23. desember. „Eg held að með þessu höfum við náð mjög mikilvægum árangri," sagði Dra- skovic. Sem kunnugt er hafa stuðningsmenn Milosevic enn völdin í þinginu og í ríkisstjórninni í Serbíu, en Serbía er langmikilvægasti grunnur valda f sambandsríki Júgóslavíu. I gær var ekki hægt að fá í hverju samkomulagið um valdaskiptinguna fólst í einstökum atriðinum en það hefur verið meginágreiningsefnið hvernig og hvaða valdapósta hver á að hafa á því umbreytingatímabili sem framundan er til kosninganna. Vojisiav Kostunica Skipulagt glæpaverk ADEN - Stjórnvölof í - StjórnvöL Jemen sögðu í gær að sprengjuárásin á bandaríska herskipið Cole þar sem 17 bandarískir hermenn létu lífið, hafi verið vel undirbúinn glæp- ur. Samkvæmt opin- beru útvarpsstöðinni Saba hefur forseti Jemen, Ali Abdullah Saleh, tilkynnt Tommy Franks æðsta yfirmanni Banda- ríkjahers á þessum slóðum að fyrstu nið- urstöður úr rannsókn öryggislögreglunnar og ýmis mikilvæg sönn- unargögn bendi eindregið til þess að hér hafi verið um skipulagt glæpaverk að ræða. Fréttastofan hefur það eftir forsetanum að hann hafi látið í ljós harm sinn, fordæmingu og skömm á þessum verknaði sem beinlínis hafi átt að spilla fyrir samskiptum Jemen og Bandaríkjanna. Skemmdirnar á herskipinu Cole Skammaði konu sina - en velti sjálfur og dó BERLIN - Drukkinn maður lést undir stýri á fjölskyldubíl sínum eftir að hann hafði gagnrýnt ökulag konu sinnar svo harkalega að hún ákvað að fara út úr bílnum, að þvf er fram kemur í blaðinu Berliner Kurier í Þýskalandi í gær. Blaðið sagði að þrítugur karl- maður hefði velt bíl sínum eftir að hafa ekið á ofsahraða og reynt að beygja. Maðurinn hafði átt í rifrildi skömmu áður. Hann dó samstundis. Eiginkona mannsins hafði farið út úr bílnum með þrjú börn þeirra hjóna eftir að þau höfðu lent í rifrildinu. Fólkið var af rússnesku bergi brotið, innflytjendur í Þýskalandi, og hugð- ust heimsækja ættingja skammt frá Berlín H FRÁ DEGI T ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 291. dagur ársins, 75 dagar eftir. Sólris kl. 8.24, sólarlag kl. 18.00. Þau fæddust 17. október • 1760 Henri de Saint-Simon, franskur félags- fræðingur og upphafsmaður kristilegs sósíal- isma. • 1883 A.S. Neill, breskur skólamaður, stofn- andi Summerhill-skólans þar sem börnin nutu nánast óhefts frelsis í skólanum. • 1900 Jean Arthur, bandarísk leikkona. • 1912 Jóhannes Páll páfi fyrsti, sem sat að- eins 34 daga á páfastól árið 1978. • 1915 Alfred Hauge, norskur rithöfundur. •1915 Arthur Milíer, bandarískur rithöfund- ur. •1918 Rita Hayworth, bandarísk leikkona • 1920 Montgomery Clift, bandarískur Ieikari. • 1952 Broddi Broddason fréttamaður. Þettagerdist 17. október • 1755 hófst Kötlugos sem stóð fram í fehrú- ar og fylgdi því gífurlcgt öskufall og jökul- lilaup. EL DAGS • 1973 hittust leiðtogar olíuframleiðsluland- anna í OPEC og samþykktu olíusölubann á öll þau ríki sem studdu Israel íYom Kippur stríð- inu. Efnahagskreppa fylgdi í kjölfarið á Vestur- löndum. • 1961 myrti lögreglan í París meira en 200 al- sírska mótmælendur, en alsírsk hryðjuverka- samtök höfðu þá myrt meira en 30 franska lögreglumenn. Yfirmaður lögreglunnar var Maurice Papon, sá hinn sami og hafði aðstoð- að nasista í stríðinu við að flytja gyðinga í út- rýmingarbúðir. • 1989 varð mikill jarðskjálfti í Kaliforníu, sem mældist 7,1 á Richterkvarða. Tugir manna fór- ust, þúsundir slösuðust og meira en 10.000 byggingar skemmdust. Vísa dagsins I eldi sxnðna engin húr, isinn logar vatna, eitur er gott i öll þati sár, sem eigafljótt að hatna. Öfugmælavísa eignuð Bjama Jónssyni Borgfirðingaskáldi. Afmælisbam dagsins Bandaríska leikskáldið ArthurMiller er 85 ára í dag, fæddur í New York borg þann 17. októher árið 1915. „Sölumaður deyr“ er þekktasta leikverk hans, skrifað árið 1949 og íyrst kvikmyndað árið 1952. Það telst nú til klassískra verka í leikhúsum. Miller hefur auk leikrita skrifað skáldsög- ur, kvikmyndahandrit og ferðalýsingar. Miller er þó ekki síður þekktur fyrir hjóna- band sitt með Marilyn Monroe, en hún lék m.a. aðalhlutverkið í kvilunyndinni Misfits sem gerð var eftir handriti hans. Skerðu aldrei á hnúta sem þú getur leyst. Joseph Joubert Heilabrot Gunna gaf Jónu jafnmargar krónur og Jóna átti fyrir. Jóna gaf síðan Gunnu til baka jafnmikið og Gunna átti eftir. Gunna gaf sfðan Jónu til baka jafnmikið og Jóna átti eftir, en þá átti Gunna ekk- ert eftir en Jóna átti 800 krónur. Hve mikið áttu þær hvor um sig áður en þessar peningatilfærslur hófust? Lausn á síðustu gátu: Laukur Veffang dagsins Nemendur í fornmáladeild MA segjast vera fyrstir með fréttirnar á vef sínum, svonefndar fornfréttir, sem væntanlega eru sígildar: www.ma.is/nem/fornfrettir

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.