Dagur - 17.10.2000, Síða 21

Dagur - 17.10.2000, Síða 21
Tfc^ur ÞRIDJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 - 21 Akureyri-Norðurland Óðinn tryggði Þór sigur á KR Þórsarar sýndu það gegn ís- landsmeisturum KR um helgina að þeir eru til alls Iíklegir í úr- valsdeildinni í körfuknattleik í vetur. Þór vann Ieikinn 79-78 eftir að KR-ingar höfðu leitt 51- 38 í hálfleik og fátt benti til annars en sigurs heimamanna í KR-heimiIinu, þeir höfðu ör- ugga forystu lengst af en Þórs- arar sóttu í sig veðríð á sama tíma og sóknarleikur KR-inga varð vandræðalegur. Einar Orn Aðalsteinsson jafnaði 76-76 þegar mínúta var eftir, Jón Arn- ór Stefánsson kom KR-ingum yfir 78-76 og í kjölfarið mistókst Þórsurum að jafna. KR-ingar höfðu því sigurinn f hendi sér, en á óskiljanlega klaufalegan hátt misstu þeir boltann. Þórs- arar geystust í sókn og um leið og Ieikklukkan gall skaut Óðinn Ásgeirsson utan við 3ja stiga línuna eftir að hafa fengið bolt- ann frá Sigurði Sigurðarsyni, og boltinn fór ofan í. Þetta var jafnframt í eina skiptið í Ieikn- um sem Þór var yfir. Þór er með 6 stig ásamt þremur öðrum liðum eftir 4 umferðir í 3. sæti deildarinnar. Þeir eru með betri stigamun en Grindavík og Tindastóll en 2ja stiga minni stigamun en Hauk- ar sem eru í 2. sæti. Keflavík er í efsta sætinu með 8 stig. Is- landsmeistarar KR eru í næstneðasta sæti deildarinnar, án stiga. Óðinn Ásgeirsson var tví- mælalaust maður þessa Ieiks auk þess að vera stigahæstur með 23 stig. Clifton Bush er að falla stöðugt betur inn í Ieik liðsins og skoraði 18 stig og þá verður Iiðsheildin um Ieið mjög góð og illviðráðanleg fyrir hvaða lið sem er í úrvalsdeildinni. Einar Örn Aðalsteinsson skor- aði 1 5 stig og þegar hann hrökk betur í gang í síðari hálfleik fór Þórsliðið allt að spila betur og um leið fór að saxast hratt á for- skot KR-inga. Þór Ieikur næst við Njarðvíkinga í Iþróttahöll- inni á Akureyri næsta fimmtu- dag. GG Ódirw Ásgeirsson var tvímælalaust maður þessa leiks auk þess að vera stigahæstur með 23 stig. Stólamir uimu öruggt Tindastóll vann nokkuð örugg- an sigur á IR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, 81-73 (41-29) og sýndu að þeir verða erfiðir heim að sækja í vetur í „Krókó- dílasýkinu“, eins og heimavöll- ur þeirra hefur verið nefndur. Tindastóll hefur fengið rúss- neskan leikmann til liðs við sig, Mikhail Antropov, og hann er betri og betri með hverjum Ieik. Bestur Stólanna var hins vegar Shawn Myers, grimmur bæði í vörn og sókn. Hann var einnig stigahæstur með 31 stig, Antropov með 13 stig og Lárus Dagsson með 11 stig. Eiríkur Önundarson var bestur IR- inga, og einnig stigahæstur með 24 stig, en þeir mættu ofjörlum sínum í þessum Ieik. GG Sund til níu ákvöldin Ákveðið hefur verið að stytta opnunartíma Sundlaugar Akur- eyrar á kvöldin þannig að laug- in verður framvegis aðeins opin til kl 21:00 virka daga. Að öðru leyti er opnunartíminn óbreytt- ur frá því sem verið hefur. Er þetta gert í tengslum við nýtt vaktafyrirkomulag starfsfólks sem mun vinna á þrískiptum vöktum Rússamir „Súrt að tapa svona“ „Mér finnst að gagnrýni á frammistöðu nýja leikmannsins, Cserniavskas, hafi verið mjög óréttmæt. Hann er vaxandi og þetta var besti leikur hans iil þessa", segirAtli HHmarsson, þjálfari KA aðkoma Lið KA-Þórs í úrvalsdeild kvenna í handknattleik sýndi heldur bet- ur klærnar f leik gegn Islands- meisturum ÍBV á laugardag, en lokatölur urðu 21-20 fyrir ÍBV en í hálfleik var staðan 14-11 fyrir ÍBV. KA/Þór tókst að jafna 19-19 en IBV skoraði tvö næstu mörk en KA/Þór átti svo síðasta markið. Eyrún Gígja Káradóttir var best leikmanna KA/Þórs, skoraði 6 mörk og var sívinnandi íyrir liðið. Ásdís Sigurðardóttir gerði 5 mörk og Elsa Birgisdóttir 4 mörk. Sig- urhjörg Hjartardótdr varði 15 skot í markinu og hefur byrjað þetta leiktímabil mjög vel. „Við eigum von á tveimur rúss- neskum Ieikmönnum til landsins á miðvikudag. Við munum sjá á æfíngu á fimmtudag hvort þær standa undir væntingum og þá hvort skrifað verður undir samn- ing við þær en það hefur fengist atvinnuleyfí fyrir þær. Eg mundi álíta það yfírgnæfandi líkur að af því verði og þá spila þær gegn Val á laugardaginn. Leikur liðsins hefur verið stigvaxandi og stelp- umar eru að finna að þær geta al- veg staðið upp í hárinu á bestu liðunum. Okkar langaði að ná í 2 stig áður en Rússamir kæmu, en vorum ansi nálægt því, en það fór mikið púður í að jafna leikinn. Tiltrúin á eigin getu var til staðar og gaman að sjá að þær vom svekktar að tapa leiknum, en oft hafa þær búist við að tapa og þan- nig sætt sig við tap,“ segir Hlynur Jóhannsson, þjálfari KÁ/Þórs. GG Leikur KA gegn Fram á föstudag var æsispennandi, var tvíframlengdur og loks fengust úrslit með „gullmarki“ Framarans Gunnars Bergs Viktorssonar í bráðabana. KA hafði yfirhöndina allan leik- inn og virtist eiga sigurinn vís- an, en botninn datt úr leik þeir- ra, Fram komst yfir, en Heimir Árnason jafnaði 22-22, og tryg- gði KA framlengingu. Eftir framlengingu var enn jafnt, 23- 23, svo enn var framlengt og enn var jafnt, 27-27. Fram vann hlutkestið, byrjaði með boltann og tókst að skora sigurmark leiksins, 28-27. „Maður þarf að venjast því að leikir klárist með þessum hætti, en þetta er mjög skemmtilegt fyrir áhorfendur og eykur at- hyglina á handboltaíþróttinni, sérstaklega hjá hlutlausum áhorfendum. En það er mjög súrt að tapa svona, sérstaklega í bráðabana, því þú færð ekki tækifæri til að svara fyrir þig. Með því að vinna hlutkestið ertu í mjög góðum málum vegna þess að um 50% af sókn- unum nýtist, og ef þú missir t.d. mann út af f þessari stöðu ertu fyrirfram dauðadæmdur. Það er sanngjarnara að sleppa þessum bráðabana og vera með 5 vfta- köst á lið.“ - Átti að dæma leiktöf á Fram í bráðabananum? (Liðið var með boltann í rúma mínútu) Dómarar túlka þessa handa- uppréttingu, sem táknar að leik- töf sé að verða, mjög misjafn- Iega. Það er mjög mismunandi hvenær þeir dæma svo leiktöf. Hendin var ekki komin upp þarna þrátt fyrir að ekkert væri að gerast hjá Fram. Hendin var áður uppi allan leikinn, en aldrei dæmd leiktöf. Þeir náðu fimm fríköstum í röð þegar þeir voru að stilla upp fyrir Gunnar Berg, en við komumst alltaf á milli og stoppuðum hann. Það er Ieiktöf þegar menn eru bara að reyna að fá fríkast en ekki að fara upp í skot. Annars var KA- Iiðið að leika þokkalega vel, fín barátta og markvarslan var góð, Hörður varði 21 skot, sem var mjög ánægjulegt en það hefur vantað svolítið upp á það í fyrstu leikjunum. Mér finnst að gagnrýni á frammistöðu nýja leikmannsins, Cserniavskas, hafi verið mjög óréttmæt vegna þess að hann kemur til okkar aðeins tveimur dögum fyrir fyrs- ta leik og þarf að axla ábyrgð og komast inn í kerfi sem aðrir hafa verið að æfa í marga mán- uði. Hann er vaxandi og þetta var besti leikur hans til þessa. Hann skoraði 5 mörk, var að búa til mörk í kringum sig og stendur vörnina mjög vel. Því fer fjarri að KA hafi þarna verið að kaupa köttinn í sekknum,“ segir Atli Hilmarsson, þjálfari KA. GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.