Dagur - 01.11.2000, Side 13

Dagur - 01.11.2000, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 - 13 ERLENDAR FRÉTTIR Unglingar í Mufakosa, sem er útborg frá Harare, heimta að Mugabe forseti segi afsér. Ostjóm og harðýðgi verða Mugabe að falli Efnahagux Zimbabwe er í rúst og er ölluin kröfum almennings um lífskjarabætur svarað með ofbeldi Því er spáð að næsti harðstjóri til að falla sé Robert Mugabe for- seti Zimbabwe. En það verður ekki íyrr en eftir blóöug átök því ljóst þykir að forsetinn og stjórn hans mun sitja eins lengi og sætt er með aðstoð hersins sem er eins spilltur og vægðarlaus og forsetinn og ríkisstjórnin. Stjórnarandstaðan í þinginu má sín lítils og varast að espa fólk til átaka, en mikils óróleika gætir í Iandinu. 1 næstliðinni viku urðu óspektir í höfuðborginni Harare þar sem efnt var til mótmæla gegn Mugabe og stjórn hans. Þar létu unglingar einkum að sér kveða. En það var ekki fyrr en eftir að mótmælaaðgerðum lauk, að ofbeldil var beitt. Þá'fóru her- menn og lögregla um úthverfin, þar sem fólk býr við sult og seyru, og lúskraði á íbúunum og skaut táragasi inn í hús af handahófi. Ekki berast fréttir af mannfalli eða limlestingum. Efnahagsástandið í Zimbabwe er skelfilegt. Verðbólgan er yfir 60% og atvinnuleysi yfir 50 af hundraði, og fer vaxandi dag frá degi. Skortur á eldsneyti, rándýr stríðsrekstur í Kongó og viðvar- andi lögregluoflteldi gegn íbúum Iandsins eykur óvinsældir Muga- hes jafnt og þétt. En hann lætur sér ekki segjast og herðir tökin eftir því sem óánægjan magnast. I mótmælaaðgerðunum sem efnt var til að mótmæla 30% verðhækkun á brauði, sykri og strætisvagnafargjöldum, var þess krafist að forsetinn segi af sér og og verði farinn fyrir jól. Hinir gætnari menn í hópi andstæðinga forsetans segja, að það sé borin von að svo fari. Mugabe hefur verið líkt við Milosevic fyrrum Júgóslavíufor- seta vegna grimmdar og óbil- girni. En andstæðingar hans segja að samlíkingin sé ekki alls kostar rétt, því Milosevic vissi hvenær hann varð að láta undan og flytja úr forsetahöllinni. En Mugabe er ekki nógu klókur til að skynja að hans tími á valda- stóli er liðinn. Hins vegar telja þeir sem þekkja til mála f Zimbabwe, að forsetinn muni ekki ná að sitja út kjörtímabilið, sem endar árið 2002. Til þess er óánægjan með óstjórn og harðneskju oröin of mikil. John Makumbe, sem er fyrirlesari í stjórnmálafræði, læt- ur hafa eftir sér, að mótmælaað- gerðirnar nú séu fyrsta stigið í óhjákvæmilegu ferli. Næsta stig mun brátt fylgja á eftir með verkföllum og mótmælum vegna versnandi lífskjara og óstjórnar. En verra er að spá um hvenær þriðja stigið hefst en þá verður blóöug uppreisn sem reynt verð- ur að bæla niður með hörku. Mugabe er þegar í þeirri stöðu, að geta ekki látið sjá sig í útlöndum og hætta er á að er- lend ríki dragi úr efnahagslegum stuðningi við spillta og ofbeldis- fulla ríkisstjórn Zimbabwe. - OÓ Fyrstu íbúar geimstöðvariimar famir af stað KAZAKHSTAN - Tveir Rússar og Amer- íkani flugu út í geiminn í gær í átt að Al- þjóðlegu geimstöðinni. Þetta eru braut- ryðjendur á geimslóð sem gæti leitt til tunglsins, Mars eða jafnvel enn lengra. Um horð í þessari 40 metra Iöngu hvítu og appelsínugulu Soyuz TM31 voru fyrstu geimfararnir sem eiga að búa um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Þetta fólk eru Bandaríkjamaðurinn William Shepherd og Rússarnir Yuri Gidzenko og Sergei Krikalyov. I skotstöðinni á jörðu niðri sást í sjónvarpsvélum að þeir félag- ar voru í góðu skapi og tókust í hendur skömmu eftir að geimhylkið sjállt hafði skilið sig frá eldflauginni sem skaut því út í geiminn. Samkvæmt áætlun munu þeir vera komnir um borð í geimstöðina á morgun, fimmtudag. Soyuz flaugin fer í ioftið í gær. Sharon hótar vantrausti JERÚSALEM - Ariel Sharon leið- togi stjórnarandstöðunnar f Israel, hótaði því í gær áð'vetjá ekki stjórn Ehuds Baraks vantrausti kæmi það fram, en með því eru líkur á því taldar hafa minnkað verulega að þessir tveir stjórnmálamenn snúi bökum saman í þjóðstjórn til að takast á við ástandið sem skapast hefur í samskiptum Israels og Palestínumanna. En þrátt fyrir knappa pólitíska stöðu þá gaf Barak það til kynna í gær að hann hefði ekki gefið upp alla von um að ná samkomulagi við Sharon, og hann myndi reyna það til þrautar þrátt fyrir að staðan væri raunar sú þá stundina að með aðstoð smá- flokka á þinginu gæti stjórn hans varist vantrausti án hjálpar Shar- ons. Sharon hins vegar var harður á sínu í viðtali við útvarp hersins eftir að ljóst var að þeir Barak myndu eldd ná saman um sáttmála fý'r- ir þjóðstjórn: „Það sem nú þarf að drífa í er að finna nýja ríkisstjórn sem getur leyst stjórn Baraks af hólmi.“ Kínverjar staðfesta ekki mannréttindi BEIJING - I gær brugðust kfnversk stjórnvöld vonum manna um að þau myndu staðfesta mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna í þessum mánuði, þegar þau lýstu því yfir að lengri tíma þyrfti til að fara yfir ýmis mál sem tengdust sáttmálanum. Aður hafði verið gef- ið í skyn að fastanefnd kínverska þingsins myndi staðfesta sáttmál- ann um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi á meðan þingnefndin starfaði, en í gær var semsé síðasti dagur reglulegs starfstíma hennar og þá var þessi niðurstaða kynnt. Talsmaður utan- ríkisráðuneytisins sagði fréttamönnum í gær að sáttmálinn hafi vissulega verið ræddur en hins vegar hefði ekki verið talið tímabært að staðfesta hann, en stjórnvöld í Bejing undirrituðu sáttmálann fyr- ir þremur árum og því bíður hann nú staðfestingar áður en hann tek- ur gildi í Kína. ■ FRÁ DEGI MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 306. dagur ársins, 60 dagar eftir. Sólris kl. 9.11, sólarlag kl. 17.10. Þau fæddust 1. nóvem- ber • 1778 Gustav IV Adolf, konungur Sví- þjóðar. • 1798 Benjamin Lee Guinness, írskur bjórbruggari og borgarstjóri í Dyflinni. •1818 James Renwick, bandarískur arki- tekt. • 1902 Nordahl Grieg, norskt ljóðskáld sem féll í seinni heimstyrjöldinni. • 1922 Jón Sigurbjörnsson leikari. • 1923 Victoria dc los Angeles, spænsk sópransöngkona. • 1965 Hrafn Jökulsson rithöfundur. Þetta geröist 1. növem- ber • 1845 hóf’ust veðurathuganir í Stykkis- hólmi, en þar er elsta veðurathugunar- stöð hér á landi. TIL DflGS • 1936 lýsti Benito Mussolini, fasistaleið- toginn á Italíu, því yfir að hið nýja bandalag ítala og Þjóðverja væri eins og öxull milli Berlinar og Rómar. Upp frá því var farið að tala um þessi ríki sem „öxulveldin". • 1952 sprengdu Bandaríkjamenn fyrstu vetnissprengjuna á kóraleyjunni Elugelab í Kyrrahafinu. • 1967 var Almannagjá lokað fyrir bílaum- ferð. • 1984 tók Rajiv Gandhi, sonur Indiru Gandhi, við embætti forsætisráðhcrra á Indlandi, daginn eftir að móðir hans var myrt. • 1993 tók Maastricht-sáttmáli Evrópu- sambandsins gildi. Vísa dagsins I garnlar stnalaslóðir er fallin feikn af snævi, 'Setn flæddi lít til sævar í leysingum ú vorin, og jafnaði tíi harðspora heillur þjóðarævi. Og heppin er sú kynslóð, sem aldrei rekst d sporin. Hiilltlór Hclgason Afmælisbam dagsins Rithöfundurinn og gagnrýnandinn Ed- ward Said er 65 ára í dag. Hann er palestínskur, en búsettur í Bandaríkjun- um, og hefur látið til sín taka í deilun- um endalausu um framtíð Palestínu. Meðal annars hefur hann f blaðagrein- um gagnrýnt harðlega Oslóarsamkomu- lagið svokallaða, scm Palestínumenn og Israelsmenn gerðu með sér og margir telja cina hugsanlega grundvöllinn að friði þar um slóðir. Said er fæddur í Jer- úsalem, en flutti snemma til Bandaríkj- anna þar sem hann nam við virta há- skóla. Að vera valdamikil er eins og að vera dama. Ef þú þarft að segja fólki að þú sért það, þá ertu það ekki. Margaret Thatcher Heilabrot Glorhungruð kanína kom auga á rófna- garð, sem var rammlega girtur. Hún gat rétt svo troðið sér undir girðinguna, en ljóst var að hún æti mikið af rófunum myndi hún fitna það mikið að hún kæmist ekki út aftur. Rófurnar voru auk þess of stórar til þess að hægt væri að troða þeim undir girð inguna. Annað ætilegt var ekki í sjónmáli, þannig að hér var úr vöndu að ráða. Hvern- ig hefði kanínan getað borðað nægju sfoa af rófum án þess að lokast inni í garðinum? Svar við síðustu gátu: Pappírsblað. Veffang dagsins Á netinu er hægt að leika sér að því að búa til myndir af andlitum og laga þau til eða afskræma að vild. Útkoman getur orðið skondin, og þeir sem nenna að dunda sér við slíkt ættu endilega að kíkja á www.facegenerator.com/cgi-bin/generaatt- ori.cfm

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.