Dagur - 03.11.2000, Qupperneq 10
10- FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
ERLENDAR FRÉTTIR
Al Gore.
George W. Bush.
Hvemig stjóm fá Banda-
ríkj amenn?
Á MSNBC fréttavefniun hafa menn leiMó sér að því að bera
saman hvemig stjóm Bandaríkj ameim fá eftir því hvom
frambjóðandann, A1 Gore eða George Bush þeir velja. Hér
að neðan em tilfærð nokkur atriði úr þeirri athugum.
Stjóm Gore
Ef ÁI Gore yrði kosinn má búast við að
nokkur þessara atriða yrðu einkennandi á
hans óskalista:
Fyrsta iimlenda lagasetningm:
Endurskoðun laga um fjármögnun kosn-
ingabaráttu.
Vamannál:
Ríkisstjórn með Gore í forsetastóli myndi
auka útgjöld til hermála um 100 milljarða
á 10 árum, en einungis styðja takmarkað
geimvarnarkerfi. Gore myndi endurflytja
samninginn um Allsherjarbann við kjarn-
orkuvopnatilraunum í öldungadeild þing-
isins. Og í framhaldinu myndi hann koma
með lög um að heimila hommum og lesb-
íum að starfa með opinberum hætti í
hernum. Þar með væri hann að aðgreina
sig frá fyrrum forseta Bill Clinton.
RíJkisfjármal:
Gore mun stefna að því að halda fjárlög-
um hallalausum á hverju ári nema ef um
neyðartilfelli væri að ræða. Hann myndí
síðan vilja greiða upp helstu skuldir ríkis-
ins fyrir árið 2012.
Menntamál:
Rfkisstuddir forskólar og auknar kröfur til
kennara væru meðal þess sem Gore
myndi leggja áherslu á sem forsti. Jafn-
framt gæfi hann góðum kennurum sem
flyttu sig yfir í fátækari skóla í dreifbýli
möguleika á að hækka í launum um
5.000 dollara á ári. Hann myndi styðja
skattafrádrátt vegna sparnaðar fólks fyrir
skólagöngu og hann myndi setja 8 millj-
arða dollara í byggingu á skólum. Hann
myndi loka skólum sem ekki standast lág-
marks kröfur um árangur og enduropna
þá síðan eftir endurskipulagningu og und-
ir forustu nýrra manna.
Orku- og umhverfismál:
Gore vill gefa mönnum allt að 2.000 doll-
ara skattaafslátt ef þeir koma sér upp nýj-
um orkusparandi heimilum; hann vill
gefa mönnum 1.000 dollara afslátt fyrir
að breyta núverandi íbúðarhúsnæði með
tilliti til orkusparnaðar og ef fólk kaupir
nýjar kynslóðir bíla sem spara eldsneyti.
Byssueign:
Gore myndi styðja það að skylt yrði að
bera sérstakt skotvopnaleyfi á sér með
mynd ef menn ætla að kaupa byssu.
Heilbrigðisþj ónusta:
Gore myndi vilja setja 250 milljarða doll-
ara í að auka lyQaniðurgreiðsIur í gegnum
almannatryggingakerfið og tryggja að
sjúkrasamlagstrygging væri ókeypis fyrir
fátæka gamlingja og að aðeins yrði um að
ræða kostnaðarþátttöku hjá öðrum eldri
borgurum.
Skattar:
Gore hefur uppi áform um að á næstu 10
árum verði veittur skattaafsláttur fyrir um
500 milljarða dollara sem m.a. hjálpi fólki
að borga skólagjöld, heilsutryggingar og
lífeyristryggingar og ýmsa félagslega þjón-
ustu. Hann myndi líka styðja það að
hækka skatta á stórfyrirtæki, ekki síst tó-
baksfyrirtæki og fjármálafyrirtæki um allt
að 130 milljarða dala.
Stjóm Bush
Ef Bush yrði kosin forseti má búast við að
þessi mál yrðu ofarlega á hans óskalista:
Fyrsta innlenda lðggjöfln:
Bush mundi setja í forgangsröð að koma
menntamálapakka sínum fram.
Vamarmál:
Sem forseti myndi Bush leggja milda
áherslu á að búa til öflugt geimvarnar-
kerfi. Hann myndi beita sér fyrir verulegri
launahækkun til hermanna og setja í það
einn milljarð á ári á næstu fimm árum
þannig að árstekjur hermanns gætu auk-
ist um 750 dollara á ári fyrsta árið.
Menntamál: Sem forseti myndi Bush leg-
gja til að bætt yrði við 5 milljörðum doll-
ara til að eyða ólæsi og svo öðrum 8 millj-
örðum til að veita styrki til háskólanáms á
næstu fimm árum. Hann myndi láta fylk-
in gjalda þess eða njóta í formi fjárstuðn-
ings hvort skólar þeirra væru að standa sig
vel eða illa í samanburði við heiidina.
Jafnframt myndi hann víkka út og auka
árangursmælingar hjá nemendum með
því að fjölga prófum. Afsláttarmiðar fyrir
fátækari nemendur sem vilja komast í
einkaskóla yrðu gefnir út til þeirra sem
ekki ná árangri í almenna skólakerfinu.
Bush myndi leyfa fólki að leggja fyrir
5.000 dollara á ári sem yrðu utan skatts
svo framarlega sem þessir peningar yrðu
eyrnamerktir skólagöngu barna þeirra á
hvaða aldri sem börnin eru.
Orku- og umhverfismál:
Ríkisstjórn Bush mundi setja aukinn kraft
í leit að innlendum orkugjöfum, olíu og
gasi. Náttúruparadfsir í Alaska myndu
ekki vera undanskildar í slíkri leit. Nátt-
úrulegt gas myndi verða notað í auknum
mæli og í umhverfisverndarskyni myndi
Bush skera niður skatt á söluhagnaði um
helming ef landareign er seld til náttúru-
verndar.
Byssueign:
Bush myndi styðja frumvarp þar sem sett
væru fram ákvæði um að barnaöryggis-
læsing yrði að fylgja með byssum sem
seldar eru.
Heilbrigðismál:
Bush myndi gefa lágtekjufólki 2.000 doll-
ara skattafrádrátt ef það keypti sér sjúkra-
tryggingu. Hann myndi reyna að víkka út
möguleika á sjúkratengdum sparireikn-
ingum og útbúa áætlun sem kostaði ríkið
158 milljarða dollara sem færu í að niður-
greiða lyfseðilskyld lyf fýrir fátæka og
eldri borgara og greiða niður lyf sem ekki
eru lyfseðilskyld fyrir eldri borgara.
Skattar:
I forsetastóli myndi Bush beita sér fyrir
skattalækkun samkýæmt áætlun sem tal-
in er kosta um 1,3 billjarð á 10 árum.
Samkvæmt áætluninni yrði lægsta skatt-
þrepið 10% en það hæsta 33%. Bush
myndi tvöfalda barnafrádráttinn þannig
að hann yrði 1.000 dollarar með hverju
barni. Han myndir Ieggjast gegn allri
hækkun skatta á einstaldinga og fyrirtæki
og hann myndi beita sér fyrir afnámi
erfðaskatts.