Dagur - 23.12.2000, Síða 4
4 - LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
Dagur'
eða Skralli og Lalli eftir
Aðalstein Bergdal
Sýningar
miðvikud. 27. des. kl. 15.00
Leikarar:
Aðalsteinn Bergdal og
Skúli Gautason
Leikstjóri:
Þráinn Karlsson
TRÚÐABOLIRNIR KOMNIR
skemmtileg gjöf fyrir
börnin
Kortasalan enn
í fullum gangi!
Gleðileg jól
■ r m m mm mm w r
Jolagjofin i ar
fyrir pabba og mömmu,
afa og ömmu
og alla hina.
Gjafakortí leikhúsið.
Lil. ílj júiBhI Irlii.rt .:iíiii71; i
ÐEEieEiaEEE]
LEIKFÉLA6 AKUREYRAR
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
Jólin á skjánum
Jóladagskrá sjónvarps-
stöðvanna er vegleg að
vanda og efnisvalið fjöl-
breytt. Það ættu því allir
að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi, ekki síst
yngstu áhorfendurnir, en
dagskráin á aðfangadag
er nánast tileinkuð þeim.
Aðfangadagur
Ríkissjónvarpið
I Ríkisjónvarpinu munu Asta og
Keli úr Stundinni okkar skemmta
börnunum og kynna barnaefni
fram eftir dcgi. Meðal þess efnis
sem cr í boði cr teiknimyndin
„Síðustu jól jólasveinsins" eða
„SantaYs Last Christmas" og fjall-
ar bún um það þegar allir sofa
\fir sig á verkstæði jólasveinsins
og enn cr eftir að búa til jólagjaf-
irnar.
Eftir aftansöng í Dómkirkjunni
munu stórsöngvararnir þrír Jose
Carreras, Placido Domingo og
Luciano Pavarotti syngja jólalög á
tónleikum í Vínarborg. Þá verður
sýnd breska bíómyndin „Sense
and Sensibility" með Emmu
Thompson, Kate Winslct og
I lugh Grant í aðalhlutverkum.
Stöð 2
Stöð 2 sýnir á aðfangadag banda-
rfsku bíómvndina „Jólaósk
Rikka", þar sem sagt er frá ríkasta
krakka í beimi, Rikka ríka, sem er
skammaður heima hjá sér lyrir að
bafa eyðilagt jólin. Síðar á að-
fangadag verður sýndur íslenskur
jólaþáttur sem ber heitið „Nótt á
jólaheiði" þar sem lylgst er með
skrautlcgri hljómsveit scm villist
úti í sveit á Þorláksmessu.
Síðast ;í dagskrá Stöðvar 2 á að-
fangadag er svo stórmyndin ,A
Passage to India" meö Judv Dav-
is, Victor Banarjee og Peggy
ATiCTuít r aöálhltitvSrkyuij..
Sýn
Á dagskrá Sýnar á aöfangadag
verður sýnt frá heiðurstónleikum
sem baldnir voru á dögunum til
heiðurs leikkonunni Elizabetu
Taylor, en þar vcitti Englands-
drottning Elizabetu viðurkenn-
ingu fyrir framlag hennar til tón-
listar og líknarmála. Þar á eftir
verður sýnt frá árlegum styrktar-
tónleikum stríðshrjáðra barna þar
sem fram koma Pavarotti og vinir
og blanda saman rokki, poppi,
blús og klassískri tónlist á óvið-
jafnanlegan hátt.
SkjárEinn
SkjárEinn sýnir vandaðan barna-
þátt „2001 nótt" á aðfangadag.
Þátturinn er í umsjón Bergþóru
Arnalds og eru hundurinn Draeo
og Talnapúkinn aðstoðarmenn
bennar í þættinum. Þegar hátíð
gengur í garð verður hægt að
fýlgjast með aftansöng í Grafar-
vogskirkju í beinni útsendingu.
Jóladagur
Ríkissjónvarpiö
A jóladag hefst dagskrá Ríkissjón-
varpsins með barnaefni, en það
sem ber hæst á dagskránni er fs-
-L;nsLa__JnákmvTirlin____I Innfrúin
góða og búsið" eftir Guðnýju
Halldórsdóttur. Sagan um ung-
frúna er byggö á smásögu eftir
Halldór Laxnes og með aðalhlut-
verk fara Ragnhildur Gísladóttir,
Tinna Gunnlaugsdóttir og EgiII
Olafsson.
Stöð 2
Islenska sjónvarpsmyndin „Lata
stelpan" sem byggð er á tékk-
neskri barnasögu og segir frá Iötu
stelpunni Grétu er á dagskrá að
morgni jóladags. Eftir sýningu á
íslensku bíómyndinn „Fíaskó"
sem verður á dagskrá eftir kvöld-
mat flytur Sinfóníuhljómsveit Is-
lands verk eftir Jón Leifs.
Sýn
„Jingle All the Way“ með Arnold
Schwarzenegger í aðalhlutverki er
á dagskrá Sýnar í eftirmiðdaginn.
SjárEinn
Silfur Egils verður í jólaskapi á
jóladag.
Annar jóladagur
Ríldssjónvarpið
Ríkissjónvai-pið sýnir fjölskyldu-
myndina „Ólíkir frumskógar" og
segir þar frá kaupsýslumanni í
NewYork sem bittir son sinn sem
alinn var upp hjá indjánum í Ama-
son-frumskóginu m. Spænska
myndin „Todo sobre mi madre"
eða ,AHt um móður mína" í leik-
stjórn Pedro Almodóvar verður á
dagskrá um kvöldið.
Stöð 2
Strákarnir á Borginni, Bergþór
Pálsson og Helgi Björnsson koma
fram í skemmtiþætti, þar sem
andi jólanna mun svífa \fir vötn-
um. Strax þar á eftir verður sýnd
bíómvndin „Notting Hill" með
þeim Juliu Roberts og Hugh Gr-
ant í aðalhlutverkum.
Sýn
Hópur íslenskra stangaveiði-
manna láta drauma sína rætast í
þætti sem ber heitið „Lax í
Kanada".
SkjárEinn
Björn og félagar sýna brot af því
besta úr þáttunum á liðnu ári.
Jólabíómyndirnar
Kvikmyndahúsin
frumsýna jólamyndir
sínar á annan í jólum,
barnamyndir, grín- og
spennumyndir. Allir
ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi.
Saving Grace og Ikingut
Saving Grace er jólamynd Há-
skólabíós. Hin virta breska
leikkona Brenda Blethyn fer
með aðalhlutverkið og leikur
nær gjaldþrota ekkju sem
ákveður að bjarga fjárhagnum
með því að hefja rækt á kanna-
bisplöntum. Blethyn hefur
fengið mjög góða dóma fyrir
leik sinn í myndinni sem þykir
sérlega skemmtileg.
Einnig verður frumsýnd í
Háskólabíói ný íslensk barna-
mvnd, Ikingut, í leikstjórn
Gísla Snæs Erlingssonar. Þar
segir frá undarlegri veru sem
rekur á ísjaka að ströndum af-
skekkts byggöarlags á Islandi.
Þorpsbúar trúa því að ill öfl
hafi sent hann til landsins en
þegar drengurinn Bóas vingast
við hinn ókunna gest reynist
hann færa fólkinu blessun,
gleði og björg í bú. Með aðal-
hlutverk fara Hjalti Rúnar
Jónsson, Hans Tittus Nakinge,
Pálmi Gestsson og Elva Ósk
Ólafsdóttir. Ikingut er frum-
sýnd á annan í jólum kl. 16.00
Pokémon og Bruce Willis
Jólamyndir Sambíóanna eru
þrjár, Pokémon 2, Unbreakea-
ble og hin spánska Abre los
Ojos (open your eyes).
Pokémon 2 mun eflaust
gleðja hina fjölmörgu aðdáend-
ur þessara þekktu fígúra, ekki
síst þar sem myndin fær Iof-
samlega dóma erlendis og þykir
enn betri en sú fyrri.
Bruce Willis leikur aðalhlut-
verkið í bandarísku myndinni
Unbreakeable, ásamt Samuel
L. Jackson. David Dunn (Willi)
lifir af bílslys og lestarslys án
þess að á honum sjáist svo
mikið sem skráma en Elijah
Price (Jackson) fæddist brotinn
bæði á höndum og fótum og
hefur gengið undir gælunafn-
inu Herra Brothættur. Myndin
er í anda The Sixth Sense.
Abre los Ojos segir frá Cesari
sem er töfrandi, rfkur og ótrú-
lega myndarlegur. Allt virðist
ganga honum í haginn en ást-
arllækjur og uppgjör breyta lífi
Cesars svo um munar eða lifir
hann kannski í draumi - eða er
hann vitskertur? Með helstu
hlutverk fara: Eduardo
Noriega, Fele Martinez, Najwa
Nimry og Penelope Cruz og
leikstjóri er Alejandro Amena-
bar.
Little Nicky
Little Nicky er jólamynd Regn-
bogans, Stjörnubíós og Laugar-
ásbíós. Hún fjallar um Satan
sem tók við helvíti af föður sín-
um Lucifer fyrir um tíu þúsund
árum, er orðinn þreyttur og
Iangar að setjast í helgan stein.
Hann telur engan af sonum
sínum þremur vera nógu
þroskaðan til að taka við af sér.
Tveir bræðranna stinga af úr
helvíti og fara til jarðarinnar og
það kemur í hlut yngsta bróð-
urins Nicky sem leikin er af
Adam Sandler að fara á eftir
þeim og tigsa þá heim. Þetta er
fullorðinsmynd og er hún ekki
talin við hæfi barna yngri en
10 ára.