Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Side 7
|Dagur-®tmmn
Laugardagur 24. maí 1997 -19
LIFIÐ I LANDINU
Sr. Torfi Hjaltalín með Möðruvallakirkju I baksýn.
Mynd: GS
Enn á ný er risin upp
deila milli séra Torfa
Stefánssonar Hjalta-
lín og sóknarbarna
hans í Möðruvalla-
sókn. í samtali við
Dag-Tímann segir
Torfi sína hlið mála
og ber sig ekki vel.
Biskup vill hann ekki
nálœgt sér ogfrá
starfsbrœðrum sín-
um, prestunum, finn-
ur hann fyrir nei-
kvœðni í sinn garð.
Torfl segir að það sé ekkert
verið að vinna að lausn
deilumála milli sóknar-
prests og sóknarbarna í Möðru-
vallarsókn þrátt fyrir að biskup
hafi lýst því yfir að verið væri
að vinna að málinu, heldur var
því treyst að hótun um áminn-
ingu, ef sr. Torfi mundi mæta tii
fermingarguðsþjónustu að
Möðruvöllum, mundi virka.
Torfi segir biskup hafa skipað
sér að vera í fríi þennan dag og
hann hafi þáð það að endingu.
Biskup hafi einnig sagt að það
væri engin trúnaðarbrestur á
milii þeirra, og hann verði að
trúa því. í Möðruvallasókn eru
tæplega 300 manns, og segir sr.
Torfi að það séu tvær fjölskyld-
ur sem séu harðar í andstöð-
unni gegn sér, fjöiskyida Bjarna
Guðleifssonar á Möðruvöllum
og ijölskylda Hjördísar Bjarkar
Þorsteinsdóttur að Ytra-
Brekkukoti en aðrar íjölskyldur
fermingarbarna sem fengu
lausn sóknarbanda hafi gert
það til þess að splundra ekki
fermingarbarnahópnum.
Sr. Torfi Hjaltalín var með
messu á hvítasunnudag þar
sem mættu um 40 manns, og
var það einnig fólk frá Akureyri
sem eflaust hefur með þeim
hætti viljað sýna sóknarprestin-
um stuðning sinn. í messunni
var einnig sr. Guðni Þór Ólafs-
son, prófastur að Melstað í Mið-
firði, sem var skipaður sátta-
semjari í deilunni þegar bæði
sr. Birgir Snæbjörnsson, pró-
fastur á Akureyri, og sr. Bolli
Gústavsson, vígslubiskup á Hól-
um, höfðu árangurslaust reynt
að ná sáttum, bæði í deildunni
um ferminguna og eins um
brottvikningarkröfu sókn-
arbarna. Eftir messu bauð sr.
Torfi kirkjugestum til kaffi-
drykkju sem allir þáðu. Organ-
isti hefur verið Birgir Helgason
á Akureyri en kórinn er skipað-
ur 11 karlmönnum, utan sókn-
arinnar.
Kjörprestur neitaði
sáttafundi
Hefur enginn sáttafundur verið
boðaður í deilunni?
„Nei, hvorki með þeim sem
fengu lausn frá sóknarböndum
né kjörprestinum, sr. Huldu
Hrönn Helgadóttur í Hrísey.
Hún vildi ekki mæta, og ég veit
ekki ástæðu þess, hún telur lík-
lega að málið varði hana ekk-
ert. Það er þó boðið í lögum frá
1990 en ég veit ekki til þess að
það hafi neinn reynt að tala um
fyrir henni, svo hún hefur ekki
orðið fyrir neinni pressu í þá
átt,“ sagði sr. Torfi Stefánsson
Hjaltalín.
Heldur þú að þínir andstœð-
ingar í hópi sóknarbarna muni
herða róðurinn gegn þér?
„Ég held að þeir geti það
ekki, þeir hafa engan stuðning
innan sóknarinnar til þess utan
við þennan sex fjölskyldna hóp,
nema ef vera skyldi í fjölmiðl-
um. Ríkissjónvarpið fullyrðir að
allur söfnuðurinn sé á móti mér
og það hafa fleiri fjölmiðlar tek-
ið upp eftir þeim, en það er ein-
faldlega rangt.“
Flestir kollegarnir
andsnúnir
Hvað Jlnnst þínum kollegum í
prestastétt um þessa deilu milli
þín og þinna sóknarbarna?
„Ég held að þeir séu allílestir
neikvæðir í minn garð, og ég
stend því einn í þessari deilu.
Ég veit ekki hvort ég þoli það til
lengdar, það er ekki skemmti-
legt að vinna í þessu samfélagi
með þessa andstöðu á bakinu.
Ég hef þó ekki einu sinni hug-
leitt, hvað þá meira, að hætta
prestskap á Möðruvöllum. Ég
er alltaf að mennta mig meira
og meira á þessu sviði, nú síð-
„Tvcer
fjólskyldur
harðastar í
andstöðunni
gegn mér“
„Kollegarnir
neikvœðir
íminn garð.“
„Biskup vill
mig ekki
ndlcegt sér. “
ast var ég í doktorsnámi í trú-
fræði í Sviþjóð.
Ég sótti þó í fyrra um starf
fræðslufulltrúa Þjóðkirkjunnar
á Biskupsstofu, sem er starf
sem ég gegndi áður. Ég fékk
það starf ekki, enda held ég að
biskup hafi ekki viljað mig ná-
lægt sér.“
Sr. Torfi er mjög upptekinn
maður þessa dagana, ekki síst
vegna sauðburðar. Ilann er
með 106 ær sem bera á þessu
vori og hefur frjósemi verið
góð, en tvævetlurnar sem eru
að bera núna síðast eru meira
einlembdar en eldri ærnar.
Kuldatíð hefur valdið því að fé
er lengur á húsi, en hlýna tók í
veðri um síðustu helgi. Veður-
guðirnir brosa því við tilver-
unni, þó ekki ríki alls staðar
þíða í mannanna samskiptum.
Trúnaður biskups?
Sr. Guðni Þór Ólafsson, prófast-
ur að Melstað í Húnaþingi, var
beðinn um að reyna að miðla
málum á Möðruvöllum í tengsl-
um við ferminguna, en málið
hafið formlega farið úr hans
höndum með bréfi sem hann
skrifaði biskupi 5. maí sl.
„Tilgangurinn var sá að
fermingarbörnin fengju sína
fermingu án þess að þau yrðu
fyrir mikilli truflun. Ég reyndi
fyrst að fá foreldrana til að
samþykkja að sóknarpresturinn
tæki þátt x athöfninni, en án ár-
angurs, og eftir að sóknarbönd
höfðu verið leyst reyndi ég að
tryggja að þau fengju að nota
kirkjuna. Biskup sendi svo sr.
Torfa bréf þar sem hann átti að
tryggja að kirkjan væri laus
þennan dag, að viðlagðri
áminningu. Fólkið hyggst flest
viðhafda þessari sóknarfeys-
ingu, en hluti af þessu fólki
leysti sóknarbönd til þess að
tryggja að fermingarbörnin
héldu hópinn, en hyggst síðan
óska eftir þjónustu sóknar-
prestsins að nýju.“
Sr. Guðni segist leiða hugann
að því hvað gerist að ári þegar
aftur verði fermt í sókninni,
hvaða prestur verði þá fenginn
til starfsins. Hann sé ekki trú-
aður á að sr. 'l'orfi yfirgefi
Möðruvelli í bráð, erfitt sé fyrir
hann að taka við brauði annars
staðar, ekki sé líklegt að sókn-
arbörn í öðnxm sóknum séu fús
til að kjósa hann sinn sóknar-
prest eftir allt það sem á undan
hefur gengið. Það byggi hann
ekki síst á þeirri staðreynd að
margir sæki nú um hvert það
prestsstarf sem losni innan
Þjóðkirkjunnar.
„Biskup hefur verið inntur
eftir því hvort trúnaður ríkti
milli hans og sr. Torfa, og hann
svaraði því til að svo væri. Þetta
er spurning um hvort prestur-
inn hefur trúnað biskupsins, en
vissulega hlýddi hann hans til-
mælum um að taka sér frí,“
sagði sr. Guðni Þór Ófafsson,
prófaslur. GG
Kærlelkar með presti og nýfæddum lömbum. Myn&.GS