Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Side 1
Verið m £rj?± viðbúin mvfoi vinnmgi! /mmí Jlagur-^ímítm Verið 014 viðbúin ms&n vinnmgi!
Góða helgi - gleðilegan vetur!
Laugardagur 26. október 1996 - 79. og 80. árgangur - 205. tölublað
MAÐUR
VIK'
UNNAR
Mynd: Pjetur
Mynd: GS
„BRÁÐUM KOMA
BLESSUÐ lÓLIN"
Jón Magnússon, fuglaáhugamaður
á Akureyri, er nýkominn af
rjúpnaveiðum í Þingeyjarsýslu,
en eins og sönn skytta vill hann
ekki tilgreina nákvœmlega hvaðan.
Þeir fóru ]mr saman félagarnir og
skutu 38 rjúpur yfir daginn.
Lögreglan var í eftirlitsför á
svœðinu og hrósaði þeim fyrir að
vera með alla pappíra og leyfi
í lagi, fyrsti bíllinn sem þeir
stöðvuðu sem þannig var
ástatt um
Hér á Norðurlandi eystra er mjög
sterk hefð fyrir rjúpnaveiðum,
þetta er sjúkdómur hjá mörgum
og að taka byssu af Þingeyingi er eins og
að taka af honum einhvern útlim. Menn
ólust upp við þetta og fengu að prufa og
þetta er partur af haustinu að fara til
rjúpna.“
Jón byrjaði barnungur að skjóta og
var kominn með byssuleyfi 16 ára gam-
all enda Þingeyingur. „Sem unglingur
veiddi ég ágætlega en síðan hefur mín
veiðimennska þróast yfir í fúglaskoðun
og merkingar. Eini fuglinn sem ég skýt
er rjúpan. Jú, stundum togast þetta
tvennt á og ég skaut t.d. gæs áður fyrr.
Nú eru merkinga- og friðunarsjónarmið-
in sterkari hjá mér en ég verð að fara til
rjúpna til að redda jólasteikinni. - En þá
er ég líka orðinn saddur.“ Jón segist
einu sinni hafa sleppt því að fara til
rjúpna og það geri hann aldrei aftur því
engin fundust honum þá jóhn.
Fuglaáhugi Jóns felst aðallega í merk-
ingum fugla og að fylgjast með þeim.
„Veiðiskapurinn fór yfir í þetta, ég
merkti t.d. sanderlu sem náðist í Mið-
Afríku, það var á við marga góða
rjúpnatúra. En ég rígheld engu að síður
í þessa hefð að ná mér í rjúpur í jóla-
matinn og hætti því ekki fyrr en ég verð
tannlaus og blindur."
Hefurðu skoðað rjúpuna sem fugla-
áhugamaður?
„Nei, ég hef látið aðra rnn hana, hef
meira verið í vaðfuglunum og álftinni.
Við merktum 180 álftir inn verslunar-
mannahelgina, sem er toppurinn og eins
og að veiða stóra laxinn og sleppa hon-
um í ofanálag. Annars virðast veiðar
ekki skipta miklu máli fyrir rjúpuna. Það
er talið að um 10% stofnsins sé veiddur.
Fuglinn verður ekki nema svona fimm
ára og það eru mikil afföll af ungunum,
allt upp í 80%, og af fullorðnum fugli eru
afföllin jafnvel 50% á ári. Ég tel því að
við ættum jafnvel að byrja að veiða fyrr
á haustin, áður en náttúran hreinsar úr,
þó ég sé ekki hlynntur því að toppnýta
kjötið í stofninum.“
Hefurðu lent í ævintýrum?
„Ekki er það nú mikið en ég hef lent í
því að ganga allan daginn án þess að sjá
kvikindi, koma síðan uppgefinn heim og
sjá þá rjúpu sitja við tröppurnar hjá
mér. Ég heilsa henni nú bara. En auðvit-
að hefur maður lent í misjöfnum veðrum
og þá er bara að vera með rétta búnað-
inn og áttaviti er skilyrði.“
Eldar þú jólasteikina?
„Nú eru merkingar- og friðunar-
sjónarmiðin sterkari hjá mér
en ég verð aðfara til íjúpna til að
redda jólasteikinnt - En þá er
ég líka orðinn saddur. “
„Ekki að öllu leyti, ég undirbý hana
en síðan tekur konan við og fullkomnar
verkið. Það er skilyrði að nota svínaflesk
eða „spekka“ rjúpuna eins og maður
segir á vondu máli. Síðan sýður maður
hana í einn og hálfan tíma að minnsta
kosti og sumir velta henni upp úr sykri.
Sósan er líka lykilatriði og þar gera rifs-
berjahlaup, rjómi og sveskjur gæfumun-
inn. Eitt er það líka sem er afskaplega
gott og það er soðið af rjúpunni, vel kælt
og síað er það hinn besti drykkur.“ mgh
Hallelúja! Hósanna! Kom ekki í
ljós þegar hann hætti að hann
var hvers manns yndi? Jón
Baldvin Hannibalsson er maður vik-
unnar. Baðar sig í lofi og prís, vitnar í
Prédikarann með vitringssvip, kumr-
ar af ánægju og útnefnir erfðaprins
(kingmaker, kingmaker!) og glottir
við margnotaðan jaxl þegar lokaskoti
er fírað á Davíð og drengina sjö. Tek-
ur slátur í sjónvarpi. Engar tignar-
stöður framundan. „Bara þetta venju-
lega streð ef einhver vill mig,“ segir
hann í dýrasta atvinnuauglýsinga-
dálki landsins: Ljósvakafréttum. Sam-
stundis kvikna eldar í stofnunum
auðs og valda: Sendiherra! Hann ætl-
ar til Washington, hann ætlar til New
York, hann heldur við Gro Harlem
Brundtland! Er bankastjóri dáinn?
Maður vikunnar fær engin eftír-
mæli því hann er fráleitt farinn. Bara
hundleiður á ijáraukavesenislögum
og aukalandbúnaðarsukkfrumvarps-
drögum. Nennir ekki að rífast lengur.
Nennir ekki að koma vitinu fyrir vit-
leysinga. Hættur, en ekki búinn. Eng-
inn trúir því að síðasti ásinn hafi ver-
ið dreginn fram úr erminni. Gó
Djonní, gó Djonní - Djonní bí gúd!