Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Qupperneq 4
16- Laugardagur 26. október 1996
íDagur-Œmthm
STEFNUR O G STRAUMAR
eða
Helmingur landsmanna telur að
staða kvenna hafi hatnað síðustu 5
ár. Það eru þó einkum karlar sem
halda því fram, ogfrekar yngsta og
elsta fólkið. Þau sem líklegust eru
til að standa í heimilis- og barna-
basli telja litla breytingu hafa orðið
konaP
á. Og mikill meirihluti landsmanna
(77%) telur að konur hafi ekki sömu
atvinnutœkifœri og karlar, þó þœr
œttu að hafa það (98%). En hvað ef
konur réðu meiru við stjórn lands-
mála? Þá vœri landinu betur stjórn-
að segir nœr helmingur, eða 46%>!
Könnun sem Jafnréttisráð kynnti í gær sýn-
ir að landsmenn telja mikinn mun á eig-
inleikum og hæfni kynjanna. Dagur-Tím-
inn hefur skýrt frá því að landsmenn telji flestir
að betra sé að annað hjóna sé heimavinnandi,
og að það sé konan. En fleira kemur í ljós. Kynin
virðast bærilega sátt við sjálf sig því innan við 10
prósent karla og kvenna segjast heldur myndu
vilja fæðast á ný sem hitt kynið. Athyglisvert er
þó að konur sem búa við hæstu fjölskyldutekj-
urnar viidu fremur fæðast sem karlar en aðrar
konur!
Spurt var um nokkur einkenni og hvort þau hæfðu frekar konum eða körlum
Mjög mikil ákveðni - hæfir það konum eða körlum?
Mjög mikil ákveðni einkennir frekar konur en
karla segja 31% landsmanna, en 23% lands-
manna telja karla fremur einkennast af mjög
mikilli ákveðni. 46% prósent telja lítinn mun á. Einn
hópur sker sig úr: Það er einkum yngra fólk, 18-24
ára, sem telur konur ákveðnar umfram karla og er
talsverður munur á því og eldri aldurshópum. Þá
kemur í ljós þegar fólk er greint eftir stjórn-
málaskoðunum að Kvennalistakonur telja sitt kyn
mikiu ákveðnara umfram þá sem fylgja öðrum flokkum
Framsóknarmenn eru þó ekki langt á eftir. Alþýðuflokks-
menn eru líkiegri en aðrir að telja karia ákveðnari en konur.
Mjög mikil þolinmæði - hæíir það körlum eða
konum?
Þolinmæði er hins vegar kvennadyggð. 61%
landsmanna telja sig hafa sannanir fyrir því að
konur séu þolinmóðari en karlar, aðeins 11%
segja karlar og 28% sjá engan mun. Þá eru konur
taldar rólyndari en karlar, þótt ekki sé nema 10 pró-
sentustiga munur.
Mjög mikii tilflnningasemi - hæfir það körlum eða
konum?
Tilfinningasemi - mjög mikil - er talin einkenna
konur miklu fremur en karla. 72% landsmanna
telja konur tilfinningasamari, aðeins 1% karla,
og 27% segja engan mun. Það er frekar yngra fólk
sem er þessarar skoðunar, eftir því sem árin færast
yfir telja menn líklegra að tilfinningasemi einkenni
kynin jafnt.
íælir körlum
remur 1%
Hælir koflum
fremur72%
Mjög skapandi - hæfir það körlum eða konum?
Sköpunargleðin er frekar kvennaeiginleiki en
karla: 31% segja konur meira skapandi en flestir
(61%) eru á því að enginn munur sé á. Að karlar
séu sköpunarríkari segja 8% og er það greinilegur
minnihluti.
Mjög mikil málgefni - hæfir það körlum eða konum?
Hin sítalandi kjaftatífa lifir góðu lífi í vitund þjóð-
arinnar: Málgefni er frekar talin einkenni
kvenna en karla. 40 prósent landsmanna telja
konur málgefnari en karla, 11% segja karlar, en 49%
segja engan mun.
Mjög mikil metnaðargirni - hæfir það körlum eða
konum?
Þveröfugt hlutfall blasir við þegar litið er til
metnaðargirni: 38% telja karla metnaðarfyllri
en konur, 49% að jafnt á sé komið með kynjun-
um og 14% telja konur hafi þennan eiginleika í ríkari
mæli en karlar.
Mjög rnikil greind - hæfir það körlum eða konum?
Landsmenn virðast flestir á því að greindin spyrji
ekki um kynferði, en þó ívið fleiri (14%) sem
vilja eigna hana konum en körlum (5%). Sá
mismunur kemur fram vegna þess að fleiri konur
telja sig greindari en karlar!
Hælir konum
fremur 14%
Mjög mikil umhyggjusemi - hæfir það körlum eða
konum?
Umhyggjusemi er hluti af heimi konunnar. 64%
landsmanna telja konur umhyggjusamari en
karla, og 35% segja engan mun, aðeins eitt
prósent telur karla umhyggjusamara kynið. Aftur
skera Kvennalistakonur sig úr því þær telja sitt kyn
mun umhyggjsamara en stuðningsmenn annnarra
flokka. Meðal þeirra er almennt jafnræði, en Alþýðu-
bandalagsmenn þó fúsari en aðrir að ljá því máls að
þessi eiginleiki passi jafnt við kynin.
Mjög mikið hugrekki - hæfir það körlum eða
konum?
Karlar eru hugrakkari en konur segja 31% pró-
sent, en 55% telja jafnt á með komið, aðeins
14% eigna konum hugrekki fremur en körlum.
Marktækur munur er á því hve unga fólkið telur karla
miklu hugrakkari en konur.
Niðurstaða
Konur eru umhyggjusamari, þolinmóðari, meira skapandi,
greindari (þó litlu muni) og tilfinningasamari en karlar.
Og málgefnari! Karlar eru hugrakkari og metnaðarfyllri, þó ekki
alveg jafn ákveðnir og konur. Þeir hafa meiri tækifæri en þær.
Þetta álit landsmanna á kynjunum kom fram í könnun Gallups
á síðasta ári og var birt á vegum Jafnréttisráðs í vikunni.