Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Page 5
ÍDagur-©itTÍraT
Laugardagur 26. október 1996 -17
M E N N I N
G
O G
LISTIR
Sögur um
líf og dauða
Verðlaunahafi fyrstu Bókmenntaverð-
launa Halldórs Laxness, Skúli Björn
Gunnarsson, segist lengi hafa skrifað
fyrir skújfuna. Verðlaunabókin er þó
fyrsta bók hans sem er gefin út en fyrir
þremur árum vann hann fyrstu verðlaun
í smásagnasamkeppni Dags og Menor.
Góð hvatning
Skúli fær hálfa milljón króna í
verðlaun fyrir bókina, sem er
hæsta peningaupphæð sem
veitt hefur verið fyrir óbirt
handrit hérlendis. Auk þess fær
hann venjuleg höfundarlaun af
bókinni en það er Vaka-Helga-
fell sem gefur bókina út. En
hvaða þýðingu skyldu þessi
verðlaun hafa fyrir Skúla?
„Pau eru að sjálfsögðu
hvatning til að halda áfram.
Þetta segir mér að það sem ég
hef verið að skrifa sé ekki bara
Skúli Björn Gunnarsson hlaut fyrstu Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir smásagnasafn sitt „Lífsklukkan
tifar“. Mynd: BG
etta eru tólf smásögur
sem mynda eina heild,
einskonar árshring, þar
sem þrjár sögur eru fyrir hverja
árstíð," segir Skúli um verð-
launabókina, sem ber heitið
„Lífsklukkan tifar“.
Sumar smásagnanna voru
skrifaðar fyrir nokkrum árum
en aðrar eru nýrri. Skúli segir
allar sögurnar eiga sameigin-
legt að ijalla um líf og dauða í
víðum skilningi en að öðru leyti
séu þær sjálfstæðar sögur. „Þær
gerast bæði hérlendis og er-
lendis, úti í sveit og í borg og
viðfangsefnin eru af ýmsum
toga,“ segir hann.
Skúli er búsettur í Reykjavík
en á rætur að rekja tU Fljótdals-
héraðs. Hann er í framhalds-
námi í íslenskum bókmenntum
við Háskóla íslands og vinnur
auk þess á handritadeild
Landsbókasafnsins. Þó fæstar
smásögur Skúla hafi komið fyr-
ir sjónir almennings fram að
þessu hefur samt ýmislegt eftir
hann birst á prenti, svo sem í
skólablöðum og eins starfaði
hann sem blaðamaður Dags á
Sauðárkróki frá 1989-92.
fyrir skúffuna heldur geti aðrir
líka notið þess að lesa það.“
Skúli viðurkennir að hann
eigi ýmis önnur ritverk í poka-
horninu en þó ekkert sem sé
komið á lokastig. En hvernig
ætli bókmenntaheimurinn líti út
fyrir ungan rithöfund sem er að
byrja að hasla sér völl?
„Ég hef ekki reynt að koma
mér á framfæri fyrir utan þessa
keppni og hef því ekki mikla
reynslu af útgáfuheiminum. En
ég held að það sé ákveðin
gróska í bókmenntunum nú.
Það er ný kynslóð að koma
inn.“ AI
50 handrit bárust
Alls bárust 50 handrit í
samkeppni um Bók-
menntaverðlaun Hall-
dórs Laxness, sem er sam-
keppni um besta handritið að
skáldsögu eða safni smásagna.
Eins og fram kemur á síðunni
var það ungur höfundur, Skúli
Björn Gunnarsson, sem bar sig-
ur úr býtum.
Megintilgangur verðlaun-
anna er að efla íslenskan
sagnaskáldskap og stuðla þann-
ig að endurnýjun íslenskrar frá-
sagnarlistar og er ætlunin að
þau verði veitt árlega. Formað-
ur dómnefndar að þessu sinni
var Pétur Már Ólafsson, bók-
menntafræðingur og útgáfu-
stjóri hjá Vöku-Helgafelli, en
með honum í nefndinni voru
Ástráður Eysteinsson, prófess-
or, og Guðrún Nordal, bók-
menntafræðingur.
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Stóra sviðið
kl. 20.00:
Söngleikurinn Hamingjuránið
eftir Bengt Ahlfors
í kvöld laugard. 26. okt.,
laugard. 2. nóv., fimmtud. 7. nóv.,
sunnud. 10. nóv.
Nanna systir
eftir Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson
Föstud. 1. nóv., laugard. 9. nóv.
fimmtud. 14. nóv., sunnud. 17. nóv.
Þrek og tár
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Fimmtud. 31. okt., 70. sýning
Nokkur sæti laus
sunnud. 3. nóv., föstud. 8. nóv.,
laugard. 16. nóv.
Ath. Takmarkaður sýningafjöldi
Kardemommubærinn
eftir Thorbjörn Egner
Á morgunsunnud. 27. okt. kl. 14.
Örfá sæti laus
Sunnud. 3. nóv. kl. 14.
Nokkur sæti laus.
Sunnud. 10. nóv. kl. 14.
Sunnud. 17. nóv.kl. 14.
Ath. takmarkaður sýningafjöldi.
Smíðaverkstæðið
kl. 20.30
Leitt hún skyldi vera skækja
eftir John Ford
Á morgun sunnud. 27. okt,- Uppselt.
Föstud. 1. nóv. - Uppselt.
Miðvikud. 6. nóv. - Uppselt.
Laugard. 9. nóv. - Uppselt.
Fímmtud. 14. nóv.
Athygli er vakin á að sýningin er ekki
við hæfi barna. - Ekki er hægt að
hleypa gestum inn í salinn eftir að
sýning hefst.
Litla sviðið
kl. 20.30:
í hvítu myrkri
eftir Karl Ágúst Úlfsson
i kvöld laugard. 26. okt. Uppselt.
Fimmtud. 31. okt. Uppselt.
Laugard. 2. nóv. Uppselt.
Sunnud. 3. nóv. Uppselt.
Fimmtud. 7. nóv. Uppselt.
Föstud. 8. nóv. Uppselt.
Föstud. 15. nóv. Uppselt.
Laugard. 16. nóv. Uppselt.
Fimmtud. 21. nóv.
Athugiö aö ekki er hægt aö hleypa
gestum inn í sallnn eftir að sýning
hefst.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
mánud. 28. okt. kl. 21.00:
Tónlist í nútímanum.
„Skammdegi" eftir Kjartan Ólafsson
Frumflutningur óvanalegs raftónverks með jass og
rokkívafi. Einnig verða flutt verk eftir Krzysztof
Penderecki og John Frandsen. Flytjendur: Pétur
Jónasson klasstskur gítarteikari, Kjartan Ólafsson
nútímatónskáld. Hilmar Jensson jassgítarleikari,
Matthias Hemstock jass og rokk trommuleikari,
Einar Kristján Einarsson gítarleikari og
Camerarctica.
★ ★ ★
Miðasalan er opin mánud. og
þriðjud. kl. 13.00-18.00, miðvikud.-
sunnud. kl. 13.00-20.00 og til 20.30
þegar sýningar eru á þeim tíma. -
Einnig er tekið á móti símapöntunum frá
kl. 10.00 virka daga. - Sími 551 1200.
§igrún
Astrós
Sýning laugard. 26. okt. kl. 20.30.
Sýning laugard. 2. nóv. kl. 20.30.
Dýrin í
Hálsaskógi
eftir Thorbjarn Egner
Sýningar:
Laugard. 26. okt. kl. 14.00 - Uppselt
Sunnud. 27. okt. kl. 14.00 - Uppselt
Sunnud. 27. okt. kl. 17.00
ÞriSjud. 29. okt. kl. 15.00 - Uppselt
Fimmtud. 31. okt. kl. 15.00
Laugard. 2. nóv. kl. 14.00
Sunnud. 3. nóv. kl. 14.00
MuniS kortasöluna okkar
Simi 462 1400
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miðasölu: 462 1400.
- besti tími dagsins!
MENNTAMÁLARÁðUNEYTlð
Styrkir til háskóla-
náms í Danmörku,
Finnlandi og Noregi
Stjórnvöld í Danmörku, Finnlandi og Noregi bjóða fram
eftirtalda styrki handa ísiendingum til háskólanáms í
þessum löndum námsárið 1997-98. Styrkirnir eru ætl-
aðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskóla-
námi og eru miðaðir við 8-9 mánaða námsdvöl en til
greina kemur að skipta þeim ef henta þykir:
Til náms í Danmörku eru boðnir fram fjórir styrkir.
Styrkfjárhæðin er 4.260 d.kr. á mánuði.
Til náms í Finnlandi er boðinn fram einn styrkur til há-
skólanáms eða rannsóknarstarfa. Styrkfjárhæðin er
4.000 finnsk mörk á mánuði.
Til náms í Noregi er einnig boðinn fram einn styrkur.
Styrkfjáræðin er 6.000 n.kr. á mánuði og skulu um-
sækjendur að öðru jöfnu vera yngri en 35 ára.
Umsóknum um styrkina, ásamt staðfestum afritum
prófskírteina og meðmælum, skulu sendar til mennta-
málaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
15. desember nk.
Sérstök eyðublöð og nánari upplýsingar fást í ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið, 24. október 1996.