Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Blaðsíða 9
ÍOagur-(EmTmrt
Laugardagur 26. október 1996 - 21
unni er viðhaldið kjörkulda alla
daga enda mikið í húfi. Þar er
afar dýrmætur vörulager
geymdur mánuðum saman án
þess að missa þá eiginleika
fisksins sem framleiðandinn
skilaði frá sér. Heima á íslandi
eru árstíðabundnar sveiflur í
veiðum og vinnslu og því er gott
geymslurými í Frakklandi
nauðsyn. Vertíðarfiskurinn er
þar gott dæmi, hann veiðist frá
mars til maí, - en selst mest á
markaðina síðustu þrjá mánuði
ársins.
Brasilíumenn vilja
Suðurnesjabeljur!
Fram kom þegar hús Nord
Morue var skoðað að markaðir
fyrir saltfisk eru með ýmsu
móti. Hver þjóð virðist hafa
sinn sérstaka smekk. Allt slíkt
ber að virða og óskir viðskipta-
vina verða að rætast. Brasilíu-
menn eru til að mynda hrifnir
af stóru „Suðurnesjabeljunum“
eins og fagmenn í saltfisknum
kalla golþorskana sem þeir fá í
landi í Grindavík, þar sem
stendur höfuðborg saltfisksins í
dag. Slíkir fiskar þurfa mikla
þurrkun í verksmiðjunni, allt að
10 daga, meðan norski fiskur-
inn, lítill og flatur, þarf varla
nema hálfan dag.
Hjá Nord Morue vinna 140
Frakkar að jafnaði en stundum
fieiri. Fyrirtækið er stærsti at-
vinnuveitandinn á svæðinu og
afar velkomið á þessum slóðum
hrikalegs atvinnuleysis.
Verksmiðjan Nord Morue,
Norðurþorskur eins og nafnið
útleggst á íslensku, stækkar nú
úr 9.500 fermetrum í 13.500
fermetra. Er verksmiðjan nú
ein sú allra fullkomnasta sinnar
gerðar í Evrópu, uppfull af
flóknum vinnslubúnaði.
Fjárfesting sem
skilar sér
Birgir Sævar Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Nord Morue,
sagði að hér væri um merk
tímamót að ræða fyrir SÍF og
Nord Morue sem er 100% í eigu
SÍF hf. Hann kvaðst ekki í
nokkrum vafa um að fjárfest-
ingin ætti eftir að borga sig og
styrkja og styðja SÍF hér heima
og á mörkuðum erlendis. Nord
Morue selur um helming fram-
leiðslu sinnar í Frakklandi en
Eftir breytingarnar,
sem stóðu yfir í eitt
ár, er verksmiðjan bú-
in fullkomnasta bún-
aði sem til er, til
frystingar, kælingar,
þurrkunar og pökkun-
ar á fullunnum vör-
um.
flytur auk þess út til um 25
landa og enn fjölgar viðskipta-
löndum með öflugu sölustarfi,
Heildarvelta Nord
Morue var í fyrra 3,6
milljarðar króna, sem
þýðir að það væri í
hópi stærstu fyrir-
tækja íslands ef það
hefði búsetu hér á
landi.
sem menn leggja mikla áherslu
á.
Framleidd eru söltuð flök,
reykt sfld, kavíar og ýmsir til-
búnir réttir. Nýja verksmiðjan
þýðir í raun að framfylgt hefur
verið ítrustu heilbrigðiskröfum
Evrópusambandsins, afköst
aukast um allt að 50%, eða upp
í 15 þúsund tonn á ári. Þá er
stefnt að stóraukinni vöruþróun
og meira úrvali, einkum vöru
sem hefur stuttan líftíma og
seld er í kjörbúðum.
Staðsetning fyrirtækisins á
markaðssvæði Evrópusam-
bandsins eykur möguleika á
sölu kældra afurða og tilbúinna
rétta. Áherslur í starfi Nord
Morue eru því að breytast svo
um munar.
Til marks um umfang rekst-
ursins má segja frá því að
heildarvelta Nord Morue var í
fyrra 3,6 milljarðar króna, sem
þýðir að það væri í hópi stærstu
fyrirtækja íslands ef það hefði
búsetu hér á landi. Reiknað er
með 50% veltuaukningu í ár.
Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra hitti hinn franska
starfsbróður sinn að máli í
kvöldverðarboði sem Nord
Morue bauð til í Giscours-kast-
ala. Þangað kom Didier Quentin
sjávarútvegsráðherra fljúgandi
á þyrlu yfir Garonnefljótið. Þá
hitti Þorsteinn forsætisráðherra
Frakka, Alain Juppé, sem
einnig er borgarstjóri Bordea-
ux.
Quentin sagði í samtali við
blaðamenn að því væri ekki fyr-
ir að synja að franskir útgerð-
armenn hugsuðu nokkrir til
Reykjaneshryggsins, íslensku
smugunnar. Það hefði hann
heyrt á nokkrum útgerðar-
mönnum þann sama dag.
Franski flotinn er hins vegar
ekki stór eða öflugur miðað við
nágrannana í suðri, Spánverja,
en fiskimiðin við Frakkland eru
nánast fisklaus að sagt er, og
Evrópumenn leita víða fyrir sér
um afla. -JBP
v.. r
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Birgir Sævar Jóhannsson
framkvæmdastjóri Nord Morue - klæddir samkvæmt kröfum Evrópu-
bandalagsins, og tilbúnir að hefja skoðunarferð um fyrirtækið.
Bygging Nord Morue í Jonzac í Frakklandi á hátíðisdaginn.
/
íBíátna- ag
gjafavmua&tðCun
X
Til sölu er blóma- og gjafavöruverslun
á Akureyri.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni og í síma 462 7297.
Kjarni ehf.
Tryggvabraut 1, AJkureyri.
HEILBRIGðlS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁðUNEYTIð
Skrifstofustjóri
Staða skrifstofustjóra áætlana- og þróunarskrif-
stofu er laus til umsóknar.
Um er að ræða nýja skrifstofu sem ætlað er að vinna
að framtíðarþróun og skipulagningu á sviði heilbrigðis-
og velferðarmála. Umsækjendi skal hafa haskóla-
menntun og reynslu í stjórnsýsiu og þróunar- og áætl-
anagerð á sviði heilbrigðismála. Staðan veitist sem
fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Kjör eru sam-
kvæmt ákvörðun kjaranefndar. Umsóknir ásamt upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf sendist heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu, Laugasvegi 116, 150
Reykjavík, eigi síðar en 15. nóvember nk. Öllum um-
sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið eru
veittar í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í
síma 560 9700.
Reykjavík, 17. október 1996.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
A^u\eg»r
Vikuveisla
i á Kanarí
frá kr. 39*932
19. nóvember
Aðeino g
Z2nin>oȒ
Kanaríferðir Heimsferða hafa
fengið ótrúlegar undirtektir
í vetur og nú bjóðum við
spennandi vikuferðir þann
19. nóvember þar sem hægt er að skjótast í sólina í
nokkra daga og njóta alls hins besta sem Kanarí hefur að bjóða
á hreint ótrúlegum kjörum. Nú bjóðum við
viðbótaríbúðir á Paraiso
Maspalomas, einum
vinsælasta gististað okkar.
Allar íbúðir eru með
eldhúsi, baði, stofu, einu
svefnherbergi og svölum.
Verðfrá kr.
39.932
Vikuferð til Kanarí 19. nóv.
Hjón með 2 böm, Paraiso.
Verð frá kr.
45.960
Vikuferð til Kanarí 19. nóv., 2 < íbúð.
Flug, gisting, ferðir til ogfráflugvelli,
islensk fararstjóm.
r
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð,
sími 562 4600
Hvenær er laust?
19. nóv., 20 sæti
26. nóv., laus sæti
17. des., uppselt
24. des., 15. sæti
31. des., laus sæti
7. jan., síðustu sætin
14. jan., laus sæti
4. febr., 8 sæti laus
llfebr., 11 sætilaus
25. febr., 21 sæti laus
4. mars, 23 sæti laus