Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Qupperneq 14
26 - Laugardagur 26. október 1996 JDagUr-'QIímmn Jlagur-^mtmn
-----------------------------Matargatið--------------
‘Iviatarkrókur
Sigríður Dögg Auðunsdóttir býður lesendum
upp á þríréttaða veislumáltíð fyrir jjóra.
„Ég og kœrastinn minn vorum skiptinemar
í Danmörku í fyrra og þegar við bjuggum þar
vorum við með alls konar tilraunir í matargerð.
Þessi veislumáltíð er afrakstur einnar slíkrar
tilraunar, “ segir Sigríður.
Sigríður er Borgnesingur en er búsett
í Reykjavík þar sem hún stundar nám í
bókmenntafrœði. Hún skorar á skólasystur sína
í nœsta Matarkrók og heitir sú
Kolbrún Þorsteinsdóttir.
Marineraðir sveppir
með parmesan
Forréttur
400 g sveppir
safi úr'/ sítrónu
8-10 msk. ólívuolía
(helst jómfrúarolía)
1 stórt búnt graslaukur
200-300 gferskur parmesan
fers ct rucolasalat eða
innað salat
salt
ní malaður svartur pipar
Ske ið sveppina í þunnar skífur.
Hr.erið saman sítrónusafann,
ólív'uolíuna, saltið, piparinn og
nðurskorinn graslaukinn.
I eggið sveppina á salatið og
hellið kryddleginum yfir. Látið
standa í ísskáp í 20-30 mínútur.
Rétt áður en borið er fram er
parmesanosturinn sneiddur
niður og honum stráð yfir.
Svínalundir m/sól-
þurrkuðum tómötum
Aðalréttur
1 svínalund (ca. 550 g)
10-12 stk. sólþurrkaðir
tómatar
1 búntfersk salvía
(eða 2 tsk. þurrkuð)
1 msk. ólívuolía
tannstönglar
Meðlœti:
2 stórir púrrlaukar (300 g)
2 lítil squash (400 g)
300 g pasta (tagliatelle)
1 msk. ólívuolía
2 dl kjúklingakraftur
1 dl rifinn parmesan
salt og pipar
Þerrið lundina vel, skerið í 12
sneiðar og þrýstið á þær með
lófanum svo þær fletjist út.
Sjóðið sólþurrkuðu tómatana í
vatni í tvær mínútur. Látið leka
af þeim í sigti. Skerið 6 af tóm-
ötunum í helminga og afgang-
inn í teninga. Leggið fyrst 1-2
salvíublöð og svo hálfan tómat
á hverja sneið af svínalundinni.
Festið með tannstöngli. Ef
þurrkuð salvía er notuð, er
henni stráð á hverja kjötsneið.
Skerið púrrulauk og squash í
sneiðar. Sjóðið pastað eftir leið-
beiningum á pakkanum og látið
púrrulaukinn og squashið sjóða
með síðustu tvær mínúturnar.
Hellið vatninu af pastanu og
grænmetinu. Bætið út í sól-
þurrkuðu tómötunum í tening-
unum, olíunni, kjúklingakraft-
inum og parmesanostinum.
Blandið saman, hitið í stutta
stund og kryddið með salti og
pipar.
Hitið olíuna á pönnu og
steikið kjötsneiðarnar við jafn-
an hita í 2 mínútur á tómathlið-
inni og 3 mínútur á hinni.
Setjið dágóðan skammt af
pastanu á hvern disk og raðið
svo kjötsneiðunum ofan á, 3 á
hvern disk. Gott ítalsk rauðvín
er allt að því nauðsynlegt með
þessum rétti.
Hvít súkkulaðimús
Eftirréttur
150 g hvítt súkkulaði
2 egg
1 dl rjómi
fersk jarðaber
Bræðið súkkulaðið yfir vatns-
baði og hrærið eggjarauðunum
saman við einni í einu. Látið
kólna stutta stund. Þeytið
eggjahvíturnar stífar og blandið
varlega saman við súkkulaðið.
Rjóminn er einnig þeyttur og
honum er blandað saman við.
Hellið í íjögur há glös og látið
standa í ísskáp í 1-2 klukku-
stundir.
Borið fram með helling af
ferskum jarðarberjum sem
skorin hafa verið í tvennt.
qlO
#1 Lei
eimilis-
hamið
Mufftns
Ca. 24 stykki
200 g Ljómasmjörlíki
200gsykur
3 egg
Rifið hýði og safi úr 1 sítrónu
250 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
Glassúr:
150 g flórsykur, hrœrður
út með sítrónusafa
Hrærið mjúkt smjörlíkið með
sykrinum létt og ljóst. Hrærið
eggin út í eitt í einu, hrærið vel
á milli. Bætið sítrónusafa og
röspuðu hýði út í hræruna.
Blandið saman hveiti og lyfti-
dufti og hrærið því í deigið.
Deigið er svo sett í 24 pappírs-
form. Kökurnar bakaðar við
200° í ca. 20 mín. Flórsykur og
sítrónusafi hrært vel saman í
jafna sykurbráð og smurt yfir
kökurnar þegar þær eru orðnar
kaldar. Skreyttar með smávegis
sítrónuhýðisraspi. Alveg „Ljóm-
andi“ góðar.
SUNNUDAGSKAKAN:
Brún rúlluterta
3 egg + 1 eggjahvíta
125 g sykur (l'/ dl)
50 g kartöflumjöl
2 msk. kakó
1 tsk. lyftiduft
Krem:
100 g smjör
75 g Jlórsykur
1 eggjarauða
1 tsk. vanillusykur
Þeytið egg, eggjahvítu og sykur
saman í þykka eggjafroðu. Sigt-
ið hveiti, kakó og lyftiduft sam-
an og blandið því varlega út í.
Deigið sett í pappírsklædda ofn-
skúffu og bakað við 200° í ca. 7
mín. Kökunni hvolft á sykur-
stráðan pappír og pappírinn
Qarlægður af botni kökunnar.
Kremið er hrært saman; mjúku
smjörinu, fiórsykrinum, eggja-
rauðunni og vanillusykri hrært
vel í jafnt krem, sem svo er
smurt yfir kökubotninn sem er
næstum kaldur. Kökunni rúllað
saman, henni pakkað inn í bök-
unarpappírinn og látin bíða
með samskeytin niður.
Pönnusteikt
rauðspretta
í kornflögum með Ljómasoðnum
lauk. Fyrir okkur sem finnst
fiskur svo undurgóður
3-4 rauðsprettuflök
1 bolli kornflögur
(cornflakes)
2 egg
2-3 laukar
Hveiti og salt
100 g Ljómasmjörlíki
Sítrónusneiðar
Hreinsið flökin, öll bein íjar-
lægð. Eggin slegin sundur með
gafíli á diski. Kornflögurnar eru
muldar, kryddaðar með salti.
Flökunum velt upp úr hveiti, þá
eggjahrærunni og síðan muld-
um kornflögunum. Flökin steikt
upp úr Ljómasmjörlíki á vel
heitri pönnu á báðum hliðum.
Berið fram með kartöflum,
sítrónusneiðum eða bátum og
svo auðvitað mjúkum, Ljóma-
soðnum lauk.
Ljómasoðinn laukur:
Ljómasmjörlíki er sett í lítinn
pott, látið krauma og bætið þá
sneiddum lauknum saman við
og sjóðið í ca. 5 mín. eða þar til
hann er orðinn vel mjúkur. Al-
gjört sælgæti.
Núggatís
200g mjúkt núggat
4 eggjarauður
'/1 þeyttur rjómi
Núggatið brætt yfir vatnsbaði.
Eggjarauðurnar hrærðar í ein í
einu. Rjóminn þeyttur og bland-
aður saman við núggat/eggja-
hræruna. Þetta er svo sett í
form, t.d. hringform, og sett í
frystinn ca. 3-4 tíma. ísinn sett-
ur á fat og nýir eða góðir niður-
soðnir ávextir settir utan við
ísinn á fatinu.
Fingraœfingar
Ef þú ert með stífa fingur eða
kaldar hendur, þá er gott að
gera smá æfingar nokkrum
sinnum á dag. Þrýstið t.d. fing-
urgómunum saman, losið um
þá og aftur saman. Sperrið
fingurna sundur og saman
nokkrum sinnum. Kreppið
hnefana, réttið úr þeim og
kreppið aftur nokkrum sinnum.
Spihð á píanó út í loftið. AUt
þetta gerir höndunum svo gott
og svo er þetta svo fyrirhafnar-
laust, hægt að gera þessar æf-
ingar hvenær sem er og hvar
sem er.
1. Smyrjið smávegis sinn-
epi yfir svínasteikina að
lokinni brúnun. HeUið svo
aðeins rjóma yfir. Þetta
gerir mjög gott bragð.
2. Smávegis kartöflumjöl
saman við marmelaði, sem
á að nota í fyllingu (t.d. í
gerdeig), varnar því að það
renni úr meðan bakað er.
3. Þegar matarlím hefur
legið í köldu vatni í ca. 5
mín. tekur engan tíma að
bræða það í örbylgjuofni.
5. Það er mjög gott að nota
safa úr sítrónu í staðinn
fyrir edik, þegar soðið er
rauðkál.