Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Qupperneq 19
Ptgur-mtnttmt
Laugardagur 26. október 1996 - 31
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
Todmobile
snýr aftur
Bubbi markar á nokkurn hátt bæði upphaf og endi með nýju plötunni,
Allar áttir.
Upphaf
og endir
hjá
Eitt sinn varð einhverjum
ágætum manni að orði:
Það sem í heiminum
hendir/hefur þau einkenni
að/þar eru upphaf og endir/allt-
af á sínum stað. Koma þessar
hendingar upp í hugann nú
þegar „poppkóngurinn“ okkar,
Bubbi Morthens, er að senda
frá sér enn eina plötuna, Allar
áttir. Platan, sem nánar til-
greint kom út á fimmtudeginum
í síðustu viku, er nefnilega eins
og nafnið gefur til kynna ein-
hvers konar uppgjör við flest
það sem Bubbi hefur verið að
fást við á sínum sextán ára út-
gáfuferli, en virkar jafnframt
líka sem visst upphaf, að kapp-
inn Bubbi sé aftur kominn á
byrjtmarreit í gh'mu sinni við
listagyðjuna. Sú staðreynd að
hann gerist hægt og bítandi
meira ljóðrænni í textagerðinni
og að háleit yrkisefni, eins og
hreinskiptin trúarjátning á Guð
og son hans Jesú Krist, eru á
ferðinni nú, marka e.t.v. best
hið nýja upphaf, en hvað tón-
listarhliðina snertir er hins veg-
ar ekki nein merki að finna
nema hvað „endinn“, uppgjörið
við fortíðina snertir. Má kannski
segja að þar sé þó samt um
breytingu að ræða, því lengst af
hefur Bubbi farið úr einni tón-
Ustarstefnunni í aðra á milU
platna sinna og komist vel upp
með það vegna sinna sérstæðu
einkenna.
En burtséð frá öUum pæUng-
um um upphaf og og endi, þá
virðist Bubba enn einu sinni
hafa tekist að laða fram laga-
smíðar, sem auðveldlega festast
í minni fólks. EðU málsins sam-
kvæmt og að fyrrgreindu, eru
þær ekki beint frumlegar flest-
ar hverjar eða stór framlög til
tónhstarsögunnar, en hafa samt
ennþá neistann, sem löngum
hefur gætt lög hans og átt hefur
ekki hvað sístan þátt í að gera
hann að vinsælasta tónlistar-
manni landsins. Lögin sem
hvað mest hafa verið spiluð að
undanförnu í útvarpi, trúaróð-
urinn á reggaenótunum, Sá
sem gaf þér ljósið og Ég elska
bækur, eru ágæt dæmi um þetta
og það eru líka, AUa daga, Með
vindinum kemur kvíðinn og
Hverjum geturðu treyst? Ann-
ars verður fólk eins og venju-
lega þegar Bubbi á í hlut að
fella sjálft sinn dóm. Það er
hins vegar á hreinu að Bubbi er
ekki dauður úr öllum æðum og
mun áreiðanlega halda ótrauð-
ur áfram troðnar sem ótroðnar
slóðir í framtíðinni.
Eins og allir unglingar höf-
uðborgarsvæðisins vita og
ef til vill margir fleiri líka
hefur útvarpsstöðin X-ið FM
97,7 verið leiðandi í að kynna
og spila allt það nýjasta og
framsæknasta í tónlistinni og
þá einkum og sér í lagi hvað
varðar danstónlistina í öllu sínu
margslungna og mikla veldi.
Einn af grónari og vinsælli þátt-
um stöðvarinnar er Partyzone,
sem ávallt er á dagskrá á laug-
ardagskvöldum og hefst klukk-
an 19:00. Ei þar jafnan spiluð
nýjasta og ferskasta danstón-
Iárslok 1993 voru margir ís-
lenskir tónlistarunnendur
nokkuð svo daprir er ljóst
var að ein allra besta og fram-
sæknasta hljómsveit landsins,
Todmobile, ætlaði í það minnsta
að leggja niður störf um
óákveðinn tíma. Hafði Tod-
mobile þá á sínum fimm ára
ferli skapað sér sjaldgæfa stöðu
í íslensku popplífi, að geta nær
eingöngu komið fram á tónleik-
um í orðsins fyllstu merkingu,
sem þar af leiðandi voru hinir
tilþrifamestu og meiriháttar
upplifun hverjum þeim er sáu
og heyrðu. Þau Eyþór Arnalds
söngvari og sellóleikari, Þor-
valdur Bjarni Þorvaldsson, gít-
arleikari og söngvari með
meiru og Andrea Gylfadóttir
söngkona, sem allan þennan
túna voru kjarninn í hljómsveit-
inni, skildu því eftir sig skarð
og hefur það, merkilegt nokk,
aldrei almennilega verið fyllt
þau þrjú ár sem nú eru liðin frá
því þau sögðu bless. Reyndar
fóru þau ekki langt, Andrea og
Þorvaldur komu áfram fram
undir nafninu Tweety og Eyþór
var (og er enn) annar parturinn
af Bong ásamt elsku sinni Mó-
eiði Júmusdóttur, en það var
bara ekki það sama. Það hlýtur
því að teljast fagnaðarefni fyrir
marga, að nú í vetrarbyrjun er
Todmobile að snúa aftur og það
með miklum látum. Ný plata,
Perlur og svín, mun koma út
annan mánudag og í kjölfarið
mun tónleikaferð, glæst sem
aldrei fyrr, hefjast á Isafirði 10.
nóvember. Nýr söngvari, Vil-
hjálmur Goði, hefur bæst í hóp-
inn í stað Eyþórs, en aðrir sem
koma við sögu sem hjálpar-
kokkar eru gamlir kunningjar
frá fyrri ferðum Todmobile,
þeir Matthías Hemstock tromm-
ari, Eiður Arnarsson bassaleik-
ari og Kjartan Valdimarsson
hljómborðsleikari. Verður nán-
ar greint frá piötunni og tón-
leikunum, sem a.m.k. verða 14
víðs vegar um landið, síðar.
Todmobile, Andrea Gylfa og Þorvaldur Bjarni, geysast nú aftur fram á
sjónarsviðið með nýrri plötu, þar sem bæði nýir og gamlir félagar koma
við sögu.
„Síðkvölds-
sýning" frá
Stripshow
Nú eftir helgina, á mánu-
daginn, kemur út fyrsta
plata rokksveitarinnar
Stripshow frá Reykjavík. Strips-
how hefur hingað til verið
þekkt fyrir skemmtilega og
íburðarmikla sviðsframkomu,
þar sem ýmsu er tjaldað til
þannig að úr verður einskonar
tónleikaskrautsýning. Nafn nýju
plötunnar er líka í samræmi við
það, Late Nite Cult Show, „Síð-
kvöldsstórsýning" og inniheldur
hún 14 lög. Mynda lögin saman
eina sögu, þannig að um svo-
kallaða „Concept" plötu er um
að ræða. Hafa Stripshow í þeim
efnum, sem og með tónleikum
sínum, sér til fyrirmyndar rokk-
stjörnur á borð við Alice Cooper
og David Bowie. Til að fylgja
plötunni svo eftir, heldur Stips-
how útgáfutónleika miðviku-
dagskvöldið 6. nóvember í Loft-
kastalanum í Reykjavík.
iiMÁi.tJi i iMuámikkim\k i kiáíáiái *, ..uiut u
IT
listin á hverjum tíma og hvergi
slegið af í veisluhaldinu. í
kringum þáttinn hefur svo
myndast plötuútgáfa, þar sem
brot af því besta sem boðið hef-
ur verið upp á af íslensku tagi
er að finna. Þriðja platan í
þessum flokki, sem kallast ein-
faldlega Partyzone 96, er nú
nýkomin út og inniheldur 14
lög. Voru það „Snúðarnir" Grét-
ar og Frímann sem sáu um að
hljóðblanda herlegheitin og er
þar sannkölluð dansveisla á
ferðinni.
3 P P Úii i , iA J .. i M, I.I..I ií, 1 , . i 111 i ii. á ilii 11 i . . i kA i i i A .1 i A
? "ipri n’n 'wvv r wrv 'i'vvvvw'w9r
i Dúettinn gríðarvinsæh,
Pet Shop Boys, hefur í
seinni tíð látið sér nægja
að senda frá sér eina og
eina smáskífu og voru þar
til nú í haust, þrjú ár liðin
frá því síðasta plata, Very,
Pet Shop Boys eru nú með sína
sjöttu plötu í útgáfu.
kom út. Nýja platan,
Bilogual, er hins vegar að
koma frá félögunum
tveimur, Neil Tennant og
Chris Love og er sú sjötta í
röðinni.
> Þrátt fyrir að Seattlestór-
sveitin Pearl Jam hafi enn
eina ferðina farið beint á
toppinn í Bandaríkjunum
með nýju plötuna sína, No
Code, þá eiga Eddie
Vedder og félagar ekki sjö
dagana sæla nú um stund-
ir. Allt hefur nefnilega
gengið á afturfótunum
með tónleikaferð í kjölfar
plötuútgáfunnar og gæti
svo jafnvel farið að henni
yrði frestað. Vandræði
með dreifingu á miðum
hefur spilað stóra rullu og
svo nú síðast ólæti á ein-
um tónleikanna sem
haldnir voru í Conneticut-
ríki.
• Ekkert virðist nú ætla að
verða af því að ballöðu-
rokkararnir í Van Halen
komi fram að nýju í sinni
upprunalegu mynd með
söngvarann David Lee
Roth í fararbroddi, eins og
fregnir fyrir nokkru gáfu
til kynna. Mun það ekki
hafa verið vilji Roths að
um slíkan „uppblásinn
fréttaflutning“ yrði að
ræða, heldur yrði þetta
aðeins, eins og í upphafi
var ákveðið, gömul kynni
endurnýjuð með því að
taka upp tvö ný lög saman
á safnplötu, sem nú er að
kom út eftir helgina.