Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Síða 14

Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Síða 14
26 - Laugardagur 16. nóvember 1996 Jbtgur-'3Smmn 'lvtatarkrókur Uppskriftir íMatarkrók koma frá Ástu Sig þessa vikuna. „Allt eru þetta auðveldir réttir en þar sem ég er ekki mikið jyrir að liggja yfir pottunum elda ég helst eitthvað sem er fljótlegt og gott, “ segir hún. Ásta er þolfimikennari hjá Veggsport og hjá íþróttafélaginu Fjölnl Maðurinn hennar er Trausti Ómarsson, fótboltakappi og starfsmaður hjá Nóa og Síríusi, og eiga þau eina tveggja ára dóttur. Ásta skorar á mágkonu sína, Sigrúnu Hebu Ómarsdóttur, í nœsta Matarkrók Fljótleg Paella Fyrir 4-6 400 g rœkjur 300 g kjúklingalundir 2 hvítlauksrif 2 tsk. paprikuduft 1 laukur 1 gulrót (skorin í lengjur) 1 sellerístöngull 1 papríka 2 bollar hrísgrjón 1 tsk. túrmerik 1 tsk. rósmarín 2 kjötteningar 1 lítri vatn olífuolía Hitið olífuolíu á pönnu. Hitið hvítlaukinn í 1-2 mínútur og bætið síðan kjötinu út í og steik- ið í 5 mínútur. Kryddið með rósmarín og paprikudufti. Setjið í skál og geymið. Saxið lauk, sellerí, gulrót og papriku. Setjið olífuolíu á pönn- una og steikið í 1 mínútu. Bætið síðan hrísgrjónum útí og krydd- ið með túrmerik. Leysið kjöt- ^Uagur ^uramt teninga upp og hellið 1 líter af vatni á pönnuna. Sjóðið í 20 mínútur. Bætið nú rækjum og kjúklingi út í og steikið áfram í 5 mínútur. Amerísk súkkulaði- kaka m/vanillu- ostakremi Kaka: 150 g smjör (brœtt) 160 g suðusúkkulaði (brœtt) 4 egg 3 dl sykur 2 dl hveiti 1 msk. vanillusykur 4 msk. kakó Krem: 1 pakki vanillubúðingur 300 g rjómaostur Annað: fersk jarðaber Hrærið saman þurrefnum, eggjum og bræddu smjöri. Bæt- ið brædda súkkulaðinu í og setjið í hringlaga form. Bakið við 130° C í 55-60 mínútur. Búið til vanillubúðing eftir leiðbeiningum á pakka. Kælið. Hrærið rjómaostinn vel og bæt- ið búðingnum saman við. Setjið kremið á kökuna og skreytið með ferskum jarðar- berjum. Pastasalat m/túnfiski 3 bollar pastaslaufur 2 dósir túnfiskur í vatni 1 gul paprika 1/2 dós ferskjur 1 lítill laukur salatsósa: Hellmans léttmajones tómatsósa franskt sinnep aromat Sjóðið pastaslaufur eftir leið- beiningum á pakka. Látið kólna. Skerið lauk og papriku smátt og ferskjur í Utla bita. Blandið saman við pastað ásamt túnfiski. Hrærið saman majonesi, tómatsósu, sinnepi og aromati í salatsósu. Berið fram með hvítlauks- brauði. qíD iítei eimilis- homið Öðruvísi marengsbotn 3 eggjahvítur 1 tsk. edik 150gsykur 200 g jarðarber 3 kiwiávextir 3 ferskjur Eggjahvíturnar þeyttar vel stífar. Edikið og helmingur syk- ursins þeytt út í, þeytt í ca. 2 mín. Þá er hinum helmingi syk- ursins blandað varlega saman við með pottasleikjunni. Mar- engsinn settur í stóran sprautu- poka og honum sprautað á smurða plötu með bökunar- pappír á (ca. 30 sm). Bakið við 160“ í ca. 45 mín. eða þar til botninn er þurr. Þessi botn er hafður ferkantaður í laginu. Jarðarberin skorin niður í báta, blönduð með skrældum, niður- skornum kiwiávöxtum og ferskjum. Látið bíða í ca. 30 mín. Vanilluís borinn með. Skúffukaka m/ kókosmjöli 200 g Ljómasmjörlíki 225gsykur 3 eggjarauður 200 g hveiti 40 g kókosmjöl 40gkakó 1 tsk. lyftiduft 2 dl rjómi (kajfirjómi) 3 eggjahvítur Glassúr: Flórsykur, kakó og kókosmjöl hrœrt saman með vatni Smjörlíkið hrært vel og lengi saman við sykurinn, eggjarauð- unum hrært saman við einni í senn. Blandið saman hveiti, kakó, kókosmjöli og lyftidufti og hrærið það ásamt ijómanum. Eggjahvíturnar stífþeyttar og blandaðar saman við deigið. Deigið sett í smurt skúffuform (30x20 sm). Kakan bökuð við 200° í ca. 40 mín. Smurð með glassúr þegar hún er köld. Kók- osmjöli stráð yfir hana. Sunnudagsdessertinn 4 stórar perur 2‘A dl vatn 3 msk. sykur 1 tsk. rifið sítrónuhýði Deig: 125 g marsipan 5 msk. sykur 4 egg 25 g saxaðar möndlur Skrælið perurnar, skerið þær til helminga og fjarlægið kjarn- ana. Sjóðið vatn og sykur ásamt sítrónuhýði saman í potti. Látið perurnar þar í, með kúptu hlið- ina upp. Látið þær sjóða í 5-10 mín., eftir hve þroskaðar þær eru. Takið perurnar upp úr vatninu. Deigið: Marsipanið rifið nið- ur og hrærið það fyrst með 1 eggi og svo hinum eggjunum einu í senn, sykrinum og söxuð- um möndlunum hrært út í. Per- unum raðað í eldfast mót, með kúptu hliðina upp, og deig sett yfir. Sett í ofn við 200° í ca. 30 mín. Borið fram volgt, með þeyttum rjóma. ÍHÁDEGINU Kartöfiu- og agúrkusalat 200 g soðnar kartöflur í sneiðum 150 g agúrkur í sneiðum 4-5 svartar olífur Útá: 1 tsk. olía 1 msk. hvítvínsedik 4 msk. appelsínusafi (juice) 'á tsk. sinnep Salt og pipar Kartöflurnar settar á disk, agúrkurnar settar ofan á á diskinn og olífurnar. Hrærið saman sósuna og hellið henni yfir á diskinn, rétt áður en bor- ið er fram. AFMÆLISKAKA FYRIR YNGSTU BÖRNIN Kisukaka 4 egg 4 dlsykur 100 g Ljómasmjörlíki 5 dl hveiti 3 tsk. lyftiduft 3 tsk. vanillusykur 1 dl kakó 2 msk. Nescafé, hrœrt út í smá- vegis vatni 2 dl mjólk Egg og sykur þeytt vel sam- an. Bætið bræddu smjörlíkinu út í, þar næst öllum þurrefnun- um og hrærið deigið vel saman. Deigið sett í 2 form, vel smurð, og bakið við 200° í ca. 30-40 mín. Annar kökubotninn er hafður í búkinn á kisunni, hinn botninn er skorinn í höfuð, eyru og skott. Kakan smurð með bræddu súkkulaði eða hrærðu súkkulaðikremi. Skraut eru lakkríslengjur í veiðihár og „Smarties" eða annað sælgæti í augu, munn og slaufu. Eitthvað fyrir börnin Bananadessert: 4 vel þroskaðir bananar 2'A dl þeyttur rjómi (1 peli) 3 dl jógúrt 2 msk. hunang, sítrónusafi 2 msk. möndluspœnir Bananarnir músaðir með sí- trónusafanum. Hunangi og jóg- úrt hrært saman við. Þá blönd- um við þeyttum rjómanum út í og látum þetta í skál með muld- um möndluspónum stráð yfir. Pylsuspjót: 8 trépinnar 32 kokkteilpylsur 16 sveskjur, steinlausar 1 laukur í bátum Pylsur, sveskjur og laukur sett upp á teininn og penslað með olíu. Steikt í ofni við 225°. Það má líka brúna þetta á pönnu. Sinnep, tómatsósa og brauð haft með. Fylltar, bakaðar kartöfiur Karrý og paprika 4 bakaðar kartöflur 3 msk. sýrður rjómi Karrý og paprika Salt og pipar Skerið lok ofan af kartöfl- unni, skrapið innan úr og látið í skál, hrærið kartöflumaukið saman með karrý, papriku, salti og pipar og fyllið aftur í kartöfluna. Bakið við 225° í 10 mín. Fylling: Skinka 4 bakaðar kartöflur 100 g söxuð skinka 75 g smjör 2 tsk. sinnep Steinselja / sítróna Salt og pipar Hrærið mjúkt smjörið með sinnepi. Bætið steinselju út í og bragðið til með salti og pipar og sítrónusafa. Skerið ofan í kart- öfluna og látið skinkufyllinguna ofan í. Leiðrétting f síðasta Heimjlishorni vant- aði inn í tvær uppskriftir. í Nammi namm gleymdist að geta að í uppskriftinni eiga að vera 100 g súkkulaði og í Form- köku m/súkkulaði og rúsínum eiga að vera 175 g Ljómasmjör- líki. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.