Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Síða 1
262. TBL. 71. OG 7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981.
irjálst, úháð dagblað
ijjjjfjpi
sjá bls. 2
Kjallarar
— sjá bls.2-3og4
Svarthöfði
— sjá bls.4
Lesendabréf
-sjábls.6
Dagbók
— sjá bls. 10-11
Innlendar
fréttir
— sjábls. 5,8,9,
12,13,20 og 21
Neytenda-
síður
— sjá bls. 14-15
Erlendar
fréttir
-sjábls. 18-19
Erlendgrein
— sjá bls. 16
Iþróttir
-sjábls. 22-23
Fölk — sjá bls. 24
Menning
— sjábls. 26
IftO—sjábls.38
, •
Utvarp/
■ r
sjonvarp
-sjábls. 38-39
Sameinað og stæira
blað á markaöinn
Dagblaðið og Vísir verða eitt:
Dagblaðið og Vísir hafa sameinazt í eitt stórt dagblað, sem kemur út í dag í
fyrsta sinn. Síðdegis i gær náðist um þetta samkomulag, sem var staðfest af
stjórnum fyrirtækjanna seint í gærkvöldi. Voru í nótt hafðar hraðar hendur við
að hleypa af stokkunum því sameinaða blaði, sem lesendur hafa hér í
höndunum á40 síðum.
í leiðara blaðsins segir, að megin-
markmiðið sé „að starfa óháð
flokkum og flokksbrotum, aðilum
vinnumarkaðsins, öðrum öflugum
valdamiðstöðvum þjóðfélagsins og
öllum stórum og smáum þrýstihóp-
um, sem láta að sér kveða”.
Ðagblaðið og Vísir eiga hvort sinn
helming í tíu milljón króna hluta-
félagi, Frjálsri fjölmiðlun hf., sem
annast útgáfu hins sameinaða blaðs.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri
hins nýja fyrirtækis verður Sveinn R.
Eyjólfsson og framkvæmda- og út-
gáfustjóri Hörður Einarsson.
Ritstjórar „Dagblaðsins & Vísis”
verða Ellert B. Schram og Jónas
Kristjánsson. Aðstoðarritstjóri er
Haukur Helgason, fréttastjóri
Sæmundur Guðvinsson, aðstoðar-
fréttarstjórar Jónas Haraldsson og
Ómar Valdimarsson, tæknistjóri
Jóhannes Reykdal og umsjónar-
maður íþróttafrétta Hallur Simonar-
son. Ritstjórn og starfslið verður
skipuð starfsmönnum siðdegis-
blaðanna tveggja. Starfsemin fer
fram í húsakynnum beggja blaðanna
og verða simarnir 86611 og 27022.
Um þetta sameinaða blað er nánar
fjallað í leiðara þess á bls. 2.
-JKr.
HRESSiR MENN EFTIR SAMEININGU
Kampakátir menn eftir sameiningu síðdegisblaðanna í morgun.
Unnið var af kappi við umbrot og setningu hins nýja blaðs í nótt.
Dagblaðið og Vísir er 40 síður í dag, fjölbreytt að efni. Myndin var
tekin er menn litu íprentsmiðjuna á áttunda tímanum í morgun. Frá
vinstri er Jónas Haraldsson aðstoðarfréttastjóri, Ellert Schram rit-
stjóri, Magnús Ólafsson hönnuður, Sæmundur Guðvinsson frétta-
stjóri, Jónas Kristjánsson ritstjóri og Hilmar Karlsson hönnuður.
DB-mynd Bjarnleifur.