Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981.
Þórshaf narbúar fá nýja togarann í mars:
Reyna að slá
lán fyrir
veiðarfærum
„Það er ómögulegt að segja til um
það hvað grundvöllurinn er góður
fyrir þessum togara en þetta er mjög
hagstætt verð sem við þurfum að
borga fyrir hann,” sagði Jóhann
Jónsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Þórshafnar, en eins
og flestum mun kunnugt hefur Út-
gerðarfélag Norður-Þingeyinga fest
kaup á nýjum 500 tonna skuttogara,
sem smíðaður er í Noregi og afhentur
verður i mars næstkomandi. -
,,Það eru Byggðasjóður og Rikis-
ábyrgðarsjóður sem sjá um lána-
greiðslur til þessara kaupa en
endanlegt verð togarans er á núgild-
andi gengi um 40 milljónir króna.
Við vorum á dögunum í Reykja-
vík þar sem við ræddum við for-
ráðamenn Landsbankans um lán til
kaupa á veiðarfærum og kössum og
það er von okkar að við fáum fyrir-
greiðslu hjá þeim til að togarinn
komist út til veiða á tilsettum tíma,”
sagði Jóhann.
„Það er brýn nauðsyn á því að
togari sé hér til staðar því auk þess
að skapa atvinnumöguleika þá teljum
við að nægur fiskur sé hérna skammt
undan landi . Það er gert ráð fyrir því
að á togaranum verði um 15 til 16
manns aðjafnaði,” sagði Jóhann.
-SER.
Vekja athygli á þjónustuhlutverki bókaverslana:
Líma skiptibóka-
merki á nýjar bækur
„Bókaverslanir eru sérverslanir sem bækur með límmiða sem á stendur
veita alhliða þjónustu við bókakaup- merki félagsins og „Skiptibók — má
endur og á þessum viljum við vekja at- skipta 1 bókaverslunum”.
hygli,” sagði Jónas Eggertsson bóksali Bóksalar tóku upp þessar merkingar
og formaður Félags íslenskra bóka- nú á mánudaginn. Bækur með slikum
verslana í tilefni af því að bóksalar í merkjum geta gengið í skiptum í öllum
þessu félagi merkja nú allar nýjar verslunum innan bókaverslanafélagsins
REYKING Á KJÖTI OG LAXI
Móttaka byrjuð fyrir einstaklinga og
KJÖT OG
SMIÐJUVEGI D-24,
SÍMI 78820.
ÁLEGG
fyrirtæki.
og einnig sinna bóksalar í þessum versl-
unum öllum kvörtunum vegna galla á
þessum merktu bókum.
Líklegt er að þessi nýbreytni félags-
bundinna bóksala hafi einhver áhrif á
bókakaup nú fyrir jólin þar sem merk-
ingar bókanna einangra verulega
ómerktar bækur í skilum og skiptum,
til dæmis frá verslunum bókaforlaga
og frá farandsölum. Þá má nefna að
bókadeild Hagkaups er ekki í bóka-
verslanafélaginu og ekki heldur bóka-
deildir kaupfélaga víða um land.
Um þessar mundir eru að ganga í
gildi nýjar reglur um stofnun bóka-
verslana þar sem aðalbreytingarnar eru
að ekki verða lengur takmarkanir á
fjölda slíkra verslana í þéttbýli og að
verslanir forlaganna verða lagðar niður
ánæstuárum. -HERB.
3ja ára ábyrgð
Mikið úrval af veggeiningum í mahoní, beyki, eik og furu
r
HUSCAGNA
HOLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK ESSSSSS SÍMAR: 91-81199 - 81410
og hundurinn fylgist vel með
Hér er ekkert fúsk leyfilegt
því að rétt handtök séu notuð,
Níu þingmenn Framsóknarflokksins vilja:
Alþjóðleg frið-
arráöstefna
verði haldin
á íslandi
—sem krefjistafvopnunará Nordur-
A tlantshafi þar sem geigvænlegur
kjarnorkuvígbúnaður fer nú fram
Alþjóðleg „friðar”-ráðstefna á
Islandi, haldin fyrir forgöngu ríkis-
stjórnar Islands og fjalli um afvopnun
á Norður-Atlantshafi, er inntak þings-
ályktunartillögu sem níu þingmenn
Framsóknarflokksins lögðu fram á Al-
þingi í gær og er Guðmundur G.
Þórarinsson fyrsti flutningsmaður.
Telja flutningsmenn nauðsyn á að
kynna viðhorf íslendinga til hins geig-
vænlega kjarnorkuvígbúnaðar, sem nú
fer fram í hafinu kringum ísland, og þá
aðstöðu íslendinga að þeir telja tilveru
þjóðar sinnar ógnað með þeirri stefnu
sem þessi mál hafa verið og eru að
taka.
Til ráðstefnunnar á, samkvæmt
tillögunni, að boða fulltrúa þeirra
þjóða sem ráða yfir kjarnorkuvopnum
og þeirra ríkja sem liggja að N-Atlants-
hafi auk fulltrúa Heimsfriðarráðsins.
Þeim á að kynna þau sjónarmið að
íslendingar geti ekki við það unað að
kjarnorkuveldin tryggi eigin hag með
því að fjölga kafbátum búnum kjarn-
orkuvopnum í hafinu við ísland.
Löng greinargerð fylgir tillögunni,
þar sem vikið er m.a. að því að fólk um
allan heim hugleiði nú þá hættu sem
mannkyninu stafar af helvopnum
kjarnorkunnar. Friðarhreyfingar hafi
viða verið stofnsettar og á Norðurlönd-
um snúist umræðan um kjarnorku-
vopnalaust svæði. Sum ríki Bandaríkj-
anna snúist nú öndverð gegn staðsetn-
ingu nýrra kjarnorkuvopna á sínu landi
vegna þess að vopnin sjálf séu skot-
mörk í kjarnorkustríði.
öll umræðan í Evrópu, Bandaríkj-
unum og um kjarnorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum ýti undir að
stórlega verði fjölgað kafbátum
búnum kjarnorkuvopnum í Atlants-
hafi, væntanlega kringum ísland.
Strand sovézka kafbátsins við Svíþjóð
hefur vakið fólk til umhugsunar um að
sennilega eru íslendingar umkringdir
kjarnorkuvopnum í miklu ríkara mæli
en menn óraði fyrir.
Fyrir dyrum sé því ný landhelgisbar-
átta. Á málþingi þjóðanna verði íslend-
ingar að kveðja sér hljóðs og krefjast
öryggis fyrir þjóð sína.
ErfingjarEinars
Ben.gegn Bragahf.:
Málinu
frestað
Máli þvf sem erfingjar Einars
Benediktssonar höföuðu gegn
bókaútgáfunni Braga hf., vegna
meintrar undirskriftafölsunar á
gjafabréfum og fleira, hefur verið
frestað til 15. desember.
Það var lögmaður stefnda sem
óskaðieftir frestiþessum til frek-
ari gagnaöflunar.
—JB
iUt
8»ÍM Í i
t I « * *
l.iié44*íjtáiií UU