Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 8
8
DV — HEkGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981.
Lftil Lúsfa, Unnur Berglind Guðmundsdóttir, fjögurra óra, kveikir á lúsíu
kerti í Blómasalnum.
DV-mynd Friðþjófur.
JÓL í BLÓMASAL
Grásleppuhrognin:
„Sölutregðan er
bara tílbúningur"
—segir Guðmundur G. HalldórssonáHúsavík
Þessi uppsláttur um tregðu á sölu
grásleppuhrogna er algjör firra og allt
tal um slíkt hreinasti tilbúningur
manna sem vilja hafa framleiðendurna
að féþúfu,” sagði Guðmundur G.
Halldórsson hrognaútflytjandi á Húsa-
vík í samtali við DV vegna fréttar
blaðsins í gær.
„Það er eins og að berja hausnum
við stein að fá þá menn sem vilja halda
eitthvert heljarmikið bákn hér í
Reykjavík og einoka útflutninginn til
að skilja þróun gengismála undanfarna
mánuði. Þessi útflutningsgrein er sú
eina sem ekki hefur tekið tillit til
hækkunar dollars gagnvart Evrópu-
mynt og því ekki að furða þó til dæmis
aðalviðskiptalönd okkar í Evrópu
hlaupi ekki upp til handa og fóta við að
kaupa af okkur.
Guðmundur kvað það augljóst mál
að þeir menn sem hafa vildu þessa út-
flutningsgrein á sinni hendi bæru ekki
hag framleiðenda fyrir brjósti. Hefðu
þeir jafnvel borið út alls kyns róg og ill-
mæli í þeirra garð og vænt þá sem
tekizt hefði að selja sína vöru á raun-
hæfu verði um alls kyns mútuþægni og
undirlægjuhátt.
-JB.
ÓhappiðíLýbíu:
Lenti á svæði sem
líktist f lugbraut
- sleit raf magnslínu og fór yf ir röralagnir
Fokker-vélin, sem brotlenti í Libýu,
kom niður 15 kílómetra frá flugbraut-
inni. Kom hún niður á svæði sem líktist
malarflugbraut við olíuhreinsunarstöð
í eyðimörkinni.
í lendingunni sleit flugvélin raf-
magnslínu sem verið var að leggja og
fór yfir röralagnir sem ekki höfðu enn
verið teknar í notkun.
Skemmdir á flugvélinni, sem ber
einkennisstafina TF-FLS, reyndust
mun meiri en upphaflega var haldið. Er
flugvélarskrokkurinn mikið skemmdur
fyrir framan væng og álitamál hvort
fjárhagslega sé hagkvæmt að gera við
hana. Þessi vél var áður í eigu Land-
helgisgæzlunnar og hét þá TF-SÝR.
Þrír farþegar voru um borð.
Áhöfnin var tveir menn, flugstjórinn
Þór Sigurbjörnsson og líbýskur
aðstoðarflugmaður. Engan sakaði.
-KMLI.
Flugstjórinn, Þór Sigurbjörnsson.
Mynd: Hörflur.
Aðventukvöld, lúsiukvöld og jóla-
pakkakvöld verða í Blómasal Hótels
Loftleiða i ár sem jafnan á jólaföstu
fyrri ára. Aðventukvöld verður í
Blómasal 6. desember. Ingveldur
Hjaltested syngur við undirleik
Guðna Þ. Guðmundssonar. Þá
verður tízkusýning sem Módelsam-
tökin annast. Blómasalurinn er sér-
staklega skreyttur þannig að jóla-
stemmning ætti að ríkja. Happdrætti
verður og á matseðlinum er ma.
hreindýrasteik.
Lúsíukvöld verður sunnudags-
kvöldið 13. desember. Þá skemmta
nemendur Söngskólans og Módel-
samtökin sýna tízkuföt. íslenzkar
stúlkur syngja lúsiusöngva. Happ-
drætti verður og m.a. rjómalagað
lamb á matseðlinum.
Síðasta hátiðakvöldið fyrir jól
verður síðan jólapakkakvöld 20.
desember. Þar syngur Garðar Cortes
jólalög og jólasálma við undirleik
Jóns Stefánssonar. Happdrætti
verður sem fyrr og tizkusýning. Sér-
stök gjafakynning verður og m.a. á
matseðlinum heilsteikt nautafilé.
í Blómasalnum er nú kynntur nýr
matseðill. Þar er bryddað upp á
ýmsum nýjungum og verði stillt í hóf.
Fundavika hjá Blöndumönnum
— almennir sveitarf undir og kosningar í sumum hreppum
Mikil fundavika er nú framundan í
þeim fjórum hreppum í Húnaþingi og
Skagafirði sem eiga upprekstur á fyrir-
hugað virkjunarsvæði Blöndu og þar
sem afstaða liggur ekki fyrir enn.
Hreppsnefndir byrjuðu að funda í gær-
kvöld í framhaldi af kynningarfundin-
um á Blönduósi nú í vikunni. Síðan er
gert ráð fyrir almennum sveitarfundum
og að minnsta kosti i Svínavatnshreppi
eru uppi hugmyndir um að kosið verði
I skyndi
Sameining
Keflavíkurog
Njarðvíkur
Vegna forsíðufrétlar Dagblaðsins
og Vísis 3. desember, ,,Njarðvíkingar
höfnuðu samruna við Keflavík”, og
grein um það mál á 2. síðu blaðsins
tel ég mér skylt að leiðrétta fréttina.
Fyrir bæjarstjórnarfundi í Njarðvik,
sem haldinn var I. desember sl., lá
eflirfarandi tillaga:
„í tilefni af viöræöum bæjarráðs
Keflavíkur við bæjarráð Njarövíkur
vegna tillögu sem samþykkt var í
bæjarsljórn Keflavíkur 20. okl. sl.
„um að kjósa sameiginlega fjögurra
manna nefnd til þess að gera hlut-
lausa úttekt á hagkvæmni (kostum og
ókostum) sameiningar bæjarfélag-
anna”, samþyjtkir bæjarstjórn
Njarðvíkur að hún telur ekki tíma-
bært að slík athugun fari fram”.
Tillögu þessa samþykktú allir bæj-
arfulltrúar. Það er því algjörlega
rangt með farið að bæjarstjórn sé
sammála um að sameining sé ótíma-
bær. Það var einfaldlega ekki (il
umræðu heldur var aðeins tekin af-
staða til skipanar nefndar í
ákveðnum tilgangi sem bæjarstjórn
þótti ekki tímabær.
Ingvar Jóhannsson,
bæjarfulltrúi,
Njarðvík.
Ekki ökumaðurínn
í frásögn DV af hörðum bifreiða-
árekstri í Árbæjarhverfi, sem birtist
sl. þriðjudag, láðist að geta þess að
maður sá sem verið var að ná út úr
Lada-bíl á mynd er fréttinni fylgdi
var farþegi en ekki ökumaöur. Far-
þeginn reyndist mjaðmagrindar- og
ökklabrotinn en líöan hans góð eftir
atvikum.
Leiðrétting:
Ekki íslenzkur
texti íbyrjun
Þess misskilnings gætti i frétt und-
irritaðs í blaðinu í gær í frásögn af
fyrirhugaðri myndbandaleigu Laug-
arásbíós að greint var frá því að öll
myndbönd yrðu með íslenzkum
texta: Ætlunin er að svo vérði en
fyrst um sinn verða myndirnar ekki
með íslenzkum texta. Hafa skal það
er sannara reynist og vonandi er að
Laugarásbíó verði ekki fyrir
óþægindum af þessum misskilningi
er myndbandaleigan fer af stað.
-SSv.
DV-bíó
Sólarlandaferðin, sænsk gamanmynd
í litum með íslenzkum texta, verður
sýnd í Dagblaös og Vísisbíói klukkan
13 á morgun í Regnboganum.
Lokasprettur
NEFS-klúbbsins
Eins og við skýrðum frá í gær
liggur það Ijóst fyrir að NEFS-klúbb-
urinn verður ekki starfræktur áfram
og lokadagar hans verða eftir u.þ.b.
tvær vikur. Dagana 16., 17. og 19.
þessa mánaðar er því ætlunin að
reyna að draga fram allt það bezta í
islenzka poppheiminum þannig að
klúbburinn skilji við með reisn. Dag-
ar framundan sem poppunnendur
ættu að geta hlakkað til.
-SSv.
Flugleiðirhefja
Gautaborgarflug
ánýnæstavor
Flugleiðir munu hefja flug á ný til
Gautaborgar í vor. Þegar sumaráætl-
un kemst í gagniö verða flognar tvær
ferðir á viku til Gautaborgar, á
fimmtudögum og sunnudögum.
Fyrsta ferðin verður í apríl.
Mikill fjöldi íslendinga býr í
Suður-Svíþjóð og auðveldar beint
flug þeim samband við fööurlandið.
Þá flýgur vaxandi fjöldi farþega frá
Svíþjóð til íslands og þaðan áfram til
Bandarikjanna með N-Atlantshafs-
flugi Flugleiða.
um afstöðu manna.
Upplýsingum um svokallaðan virkj-
unarkost 1 í Blöndu, sem ríkisstjórnin
mælir með sem næstu stórvirkjun,
verður nú dreift til allra íbúa þeirra
hreppa sem eiga beinan hlut að máli
varðandi landnýtingu á afréttinum. En
eins og áður hefur komið fram hafa
einungis tvær hreppsnefndir af sex alls
tekið ákveðna afstöðu og þá með
þessum kosti.
Samkvæmt reglum þarf að boða al-
menna sveitarfundi með viku fyrirvara
og verða þeir þá haldnir í lok næstu
viku eða um aðra helgi. Þá fyrst fer af-
staðan að skýrast að marki en skoðanir
eru mjög skiptar í þessum fjórum
hreppum þar sem enn er eftir að taka
ákvörðun.
Á fundinum á Blönduósi nú í vik-
unni, þar sem viðræðunefnd rikisins
kynnti samninganefnd heimamanna af-
stöðu ríkisstjórnarinnar, varð sam-
komulag um að stefna að því að af-
staða heimamanna lægi fyrir 16.
desember. Én ríkisstjórnin keppir að
þvi að Alþingi fái málið til lokaaf-
greiðslu fyrir jólaleyfi sem hefst, ef
áætlanir standast, 18. desember.
Þannig er Alþingi ætlaður einn dagur
eftir að heimamenn taka ákvörðun.
-HERB.
Skagf irðingar þyrpast á Útlagann:
Símstöðin var
rauðgióandi!
,,Það er kannski orðum aukið að
símstöðin hafi farið yfirum en hitt er
satt að álagið var geysilega mikið,”
sagði Guðmundur Valdimarsson bíó-
stjóri á Sauðárkróki í samtali við DV.
Heyrzt hefur að þegar kvikmyndin
Útlaginn var sýnd fyrsta kvöldið á
Sauðárkróki hafi álagið úr sveitunum
verið svo mikið að símstöðin annaði
ekki.
„Ég hef tekið eftir því að þegar
íslenzku myndirnar hafa verið sýndar
hér kemur fólkið úr sveitunum í bíó,
sem það annars gerir aldrei, og sumir
koma langt að,” sagði Guðmundur.
,,Til þess að við þurfum ekki að reka
það fólk burtu, þegar það er komið á
staðinn, tökum við niður pantanir.
Ég er mjög ánægður með þá aðsókn
sem myndin hefur fengið hér. Annað
kvöldið sem myndin var sýnd þurfti ég
að vísa mörgum frá en sýningar áttu
aðeins að vera tvö kvöld. Ég hef því
ákveðið þriðju sýningu,” sagði Guð-
mundur Valdimarsson bíóstjóri á
Sauðárkróki. -ELA.
Nei takk ...
ég er á brlnum
UX
IFEROAR
Dalvík:
Brunaliðið fær hús
tilað kveikja í
Bæjarstjórn Dalvíkur hefur heimilað
slökkviliði staðarins að nota húseignina
að Grundargötu ,9 til æfinga. Húisð er
gamalt íbúðarhús sem dæmt hefur
verið úr leik. Ekki hefur orðið úr því
enn að brunaliðsmenn leggi eld að hús-
inu sem slökkviliðsmenn geta síðan æft
sig við að slökkva. Að sögn Valdimars
Bragasonar, bæjarstjóra á Dalvík, er
beðið eftir hentugu veðri þannig að
næstu hús verði ekki í verulegri hættu.
/AL nrpvri.