Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 22
22 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981. GARDÍNUKAPPAR Skrautfístar Hurðagerektí Kverkafístar VESTURGÖTU 21 - SÍMI21600 Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða rafmagnsverkfræðing Upplýsingar um menntun óg fyrri störf sendist fyrir 14. desember nk. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík. rt*hérl2*‘^‘s Nú höfum uið opnað uerslun með heimsþekkt hljómtæki ^ sem ekki hafa áðurfengist á íslandi. Nú gefst þértækifæri til að eignast betri tæki sem bera tóninn alla leiðl Við bjóðum þér að líta uið og kynnast þessum frábæru hljómtækjum sem núfástfyrst h c> yIo mrlio Við bjóðum þérJBL hátalara á sérstöku kynningaruerði Skúlagata 61 143 63 Sveitakeppni Flugleiða: Hörð keppni milli sveita Búnaðarbankans og Ríkisspítalanna Sveitakeppni Flugleiða í skák er orðinn fastur liður í skáklífi höfuð- borgarinnar og er það vel. f nóvember koma jafnan 24 skáksveitir hvaðanæva að og tefla allar innbyrðis. Umhugsunartími hvers keppanda er 15 mínútur á skák og gera menn því lítið annað en tefla skák, þá helgi sem keppnin fer fram. Slæmt ferðaveður setti nokkurn svip á mótið nú, þar eð flug lá niðri á timabili. Sveitir frá Vestmannaeyjum og Austurlandi komust ekki á áfangastað og sveitir annars staðar utan af landi komu sumar hverjar of seint. En öll vandamál voru leyst jafnóðum af dugandi stjórnendum, þeim Andra Hrólfssyni og Hálfdáni Hermannssyni, og keppnin hófst á tilteknum tíma, kl. 9.30, laugar- daginn 28. nóvember. f byrjun vakti fádæma velgengni Rikisspítalanna hvað mesta athygli. Lið þeirra skipuðu Sævar Bjarnason, Dan Helgason og Lárus Johnsen. Hver einasta sveit sem mætti þessu einvalaliöi í byrjun fékk sömu útreið, 3:0. Eftir 10 fyrstu umferðirnar höfðu þeir félagar fengið 29 1/2 v. af 30 mögulegum! En i þeirri 11. fengu Ríkisspitalarnir sitt fyrsta og eina tap í allri keppninni, er Lands- bankinn sigraði þá 2—1. Sveit Búnaðarbankans (Jóhann Hjartar- son, Hilmar Karlsson og Guðmundur Halldórsson), sem fylgt hafði forystusveitinni eins og skugginn, minnkaði nú bilið og tók síðan forystuna skömmu síðar. Sú forysta jókst smám saman og þegar Búnaðarbankinn og Rikisspítalar tefldu saman beint í keppninni, virtist Búnaðarbankinn næsta öruggur með 1. sætið. En Sævar og félagar höfðu ekki sagt sitt síðasta og gjörsigruðu Búnaðarbankann. 2 l/2:l/2. Fyrir lokaumferðina var forskot Býnaðar- bankans aðeins 1 vinningur og allt gat gerst. Búnaðarbankinn glímdi nú við Þjóðviljann, en þar var Helgi Ólafsson í broddi fylkingar, eini keppandinn sem ekki hafði tapað skák á mótinu. Ekki átti þó fyrir Helga að liggja fremur en öðrum að sleppa óskaddaður gegnum hreinsun- areldin. Hann lék snemma af sér manni gegn Jóhanni Hjartarsyni, og með því að ná 2 1/2 vinningi gegn Þjóðviljanum, hafði • Búnaðar- bankinn tryggt sér 1. sætið. Röð efstu sveita varð þessi: 1. Búnaöarbankinn 62 v. af 69. 2. Ríkisspítalar 61 1/2. 3. Útvegsbank- inn 53 v. 4. Verkamannabústaðir 51. 5. Búnaðarbankinn, útibú, 46 1/2. 6. Unglingasveit T.R. 45 1/2. 7. Flug-. leiðir 45. 8. Landsbankinn 44 1/2. 9. Þjóðviljinn 40. 10. Járnblendifélagið 37. Efstu menn á einstökum borðum urðu þessir: 1. borð Helgi Ólafsson, Þjóðviljinn 20 T/2. Jóhann Hjartarson, Búnaðarbankinn 19 1/2 v. Jóhannes G. Jónsson, Verka- mannabústaðir 19 1/2v. 2. borð Dan Hansson, Ríkisspítalar 21 1/2 v. Hilmar Karlsson, Búnaðar- bankinn 21 v. Jón Þorsteinsson, Verkamannabústaðir 21 v. 3. borð Guðmundur Halldórsson, Búnaðarbankinn 21 1/2 v. Lárus Johnsen, Rikisspítalar 21 v. Hilmar Viggósson, Landsbankinn 18 l/2v. Skák Jóhann Örn Sigurjónsson fsland : England tefla saman í Telex-heimsmeistarakeppninni. Hér er um útsláttarkeppni að ræða, og standa eftir átta lið, Pólland, Svíþjóð, Skotland, Finnland, Sovét- ríkin og A-Þýskaland, auk okkar og Englendinga. Englendingar unnu fsraela örugglega, eftir að 5 skákir af 8 höfðu farið í dóm. Telexskák- keppni er mjög þung í vöfum, og flestar skákirnar hjá Englendingum og ísraelum fóru í dóm eftir 8—9 klukkustunda streð og höfðu þá einungis verið leiknir 26 leikir. íslendingar geta því búist við mara- þonviðureign, svo og því að mæta Dreka-afbrigðinu i Sikileyjar- leiknum, séleikiö 1. e4. Englendingar eru manna fróðastir um þessa byrjun, eins og Murey, fyrrum aðstoðarmaður Kortsnojs 1 heims- meistaraeinvigjunum fékk að reyna í Telex-keppninni gegn Englandi. Murey taldi sig hafa fundið endurbót á hvit gegn Drekanum, en and- stæðingurinn var vel með á nótunum og vopnin snerust fljótlega í höndum ísraelsmannsins. Hvitur: V. Murey, ísrael. Svartur: J. Mestel, England. Sikiieyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 (Mestel hefur sjálfur brugðið fyrir sig 6. g3 með góðum árangri.) 6. . . . Bg7 (Ekki 6. . . . Rg4? vegna 7. Bb5 + og hvitur vinnur.). 7. f3 0—0 8. Bc4 Bd7 9. Dd2 Rc6 10. 0—0—0 Hc8 11. Bb3 Re5 12. h4h5 (Englendingarnir Miles og Mestel þykja mestu sér- fræðingarnir i þessu afbrigði. Murey sýnir því hugrekki er hann stingur höfðinu í gin breska ljónsins.) 13. Bg5 Hc5 14. g4 hxg4 15. f4 Rc4 16. De2 b5 17. e5 dxe5 18. Rdxb5 Rxb2! 19. Kxb2 Da5 20. Hxd7 Rxd7 21. Bxe7 Hxc3! 22. Rxc3 exf4 (Sama staða kom upp í skákinni Westerinen: MestelEsbjerg 1979. Þar lék hvítur 23. Dc4 og tapaði. Nú kemur endurbót Mureys, eða allaveganna það sem átti að vera endurbót.) 23. Dd3 He8 24. Hel Re5 25. Hxe5 Dxe5 26. Bd6 Dxc3 + 27. Dxc3 Bxc3 + 28. Kxc3 28. g3! (Biskupaparið er gagnslaust i baráttunni við hin hraðfara fripeð svarts.) 29. Bd5 Hd8 30. Bxf4 Hxd5 31. Bxg3 f5 32. a4 Kf7 33. Bf2 a6 34. Be3 He5 35. Bg5 He4 og hvítur gafst upp. Jóhann Örn Sigurjónsson. Bridge Bridgefólag Breiöholts Síðastliðinn þriðjudag lauk barómetemum, sem staðið hefur yfir hjá félaginu, með sigri Rafns Kristjáns- sonar og Þorsteins Kristjánssonar. Sigruðu þeir með nokkrum yfirburð- um, hlutu 201 stig, en næstir urðu: st|s 2. Áml Guðmundss.-Margrél Hrðard. 127 3. Óskar Þrklnss.-Krlsfinn Helgas. 105 4. Björgvin Vfglundss.-Páll Bergss. 71 5. Axel Láruss.-Leifur Karlss. 46 6. Þórarinn Ámas.-Gísli Viglundss. 43 Næstkomandi þriðjudag verður spil- aður eins kvölds tvímenningur en þriðjud. 15. des. verður spilað rúbertu- bridge, og eru peningaverðlaun í boði og verður það jafnframt síðasta spila- kvöld fyrir jól. Spilað er í húsi Kjöts og fisks, Seljabraut 54, kl. 19.30 og er allt spilafólk velkomið meðan húsrými leyfir. Keppnisstjóri er sem fyrr Hermann Lárusson. Bridgefólag Suðurnesja Laugardaginn 22. nóvember kom Bridgefélag Selfoss i heimsókn til Bridgefélags Suðurnesja. Spilað var á sex borðum og urðu úrslit þau að Bridgefélag Suðurnesja vann á 4 borð- um, en Selfyssingar á tveimur. Saman- lögð stigatala Bridgefélags Suðumesja var 69 stig, gegn 51 stigi Bridgefélags Selfoss. Þriðjudaginn 1. des. lauk JGP-mót- inu með þátttöku aðeins átta sveita. Söknuðu menn bæði Grindvíkinga og Vogamanna, en vonandi er að þeir sjái sér fært að taka þátt í mótinu eftir ár. í byrjun mótsins tók sveit Gísla Torfasonar afgerandi forystu sem þeir juku allt til loka mótsins. í sveit með Gisla spiluðu Karl Hermannsson, Jó- hannes Sigurðsson, Einar Jónsson, Al- freð G. Alfreðsson og Logi Þormóðs- son. Sveit Gisla sigraði með 131 stigi, i öðru sæti var sveit Stefáns S. Jónsson- ar með 83 stig, í þriðja sæti sveit Haraldar Brynjólfssonar með 79 stig. Þriðjudaginn 8. des fer fram verð- launaafhending fyrir afrek á síðasta keppnistímabili, veturinn 1980—1981. Eftir afhendingu veröur spilakvöld með nýju formi, A la Caribean Sea, sem Alfreð G. Alfreðsson stjórnar. Þriðjudaginn 15. des. fer fram tvenndarkeppni og er ætlast til að fé- lagar útvegi sér spilafélaga sem ekkl spila reglulega með félaginu. Bridgefólag Breiðfirðinga Sveitakeppni stendur yfir með þátt- töku 20 sveita. 2 leiki spilaðir á kvöldi. (Jrslit eftir 12umferðir: stig 1. HansNielsen 187 2. Kristján Ólafsson 177 3. Ingibjörg Halldórsd. 166 4. Krístin Þórflardóttir 166 5. Ells R. Helgason 156 6. Erla Eyjólfsdóttir 142 7. Magnús Halldórsson 139 8. Ólafur Ingimundarson 137 9. Magnús Björnsson 127 10. Sigríður Pálsdóttir 121 Næst verður spilaö fímmtudaginn lO.des. kl. 7.30 í Hreyfilshúsinu. Bridgefólag Hafnarfjarðar. Síðastliðinn mánudag lauk rúbertu- keppninni. Spilaðar voru tíu umferðir eftir Monrad-kerfi. Sigurvegarar urðu gamalreyndir rúbertukappar, þeir Sæv- ar Magnússon og Hörður Þórarinsson. Staða og stig efstu manna: stig 1. Sœvar Magnóss.-Hörður Þórarinss. 46 2. Böðvar Magnúss.-Stigur Herlufss. 31 3. Árnl M. Björnss.-Helmlr Tryggvas. 30 4. Ólafur Valgelrss.-Lárus Hermanns. 17 5. Jón Sigurðss.-Sævaldur Jónss. 15 6. Kristófer Magnúss.-Björn Eysteinss. 12 Næstkomandi mánudag verður spil- að við Bridgefélag kvenna. Spila- mennska fer fram í Domus Medica og hefst stundvíslega klukkan hálfátta. Fró Bridgedeild Barð- strendingafólagsins Mánudaginn 30. nóvember lauk hraðsveitakeppni félagsins (5 kvöld, 11 sveitir). Sigurvegari var sveit Sigurðar Kristjánssonar. í sveit Sigurðar voru auk hans Hermann Ólafsson, Gísli Benjamínsson og Jóhannes Sigvalda- son. Staða 6 efstu sveita: Stig 1. Sigurður Kristjánsson 2880 2. Ágústa Jónsdóttir 2824 3. Gunnlaugur Þorsteinsson . 2813 4. Viflar Guðmundsson 2790 5. Ragnar Þorsteinsson 2784 |6. Haukur Zophaníusson 2714 Mánudaginn 7. desember hefst jólatvimenningur (2ja kvölda). Spilað er í Domus Medica og hefst keppnin kl. 19.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.