Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 26
26 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981. Messur Guflsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdœmi sunnudaginn 6. des. 1981. Annan sunnudag i aðventu. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Kirkjudagur Árbæjar- safnaðar.Barnasamkom á í safnaðarheimilinu kl. 10.30. Guösþjónusta i Safnaðarheimilinu kl. 2. Frú Ingveidur Hjaltested syngur stólvers. Sérstaklega vænst þátttöku fermingarbarna næsta árs og for- eldra þeirra í messunni. KafFisala og skyndihappdrætti á vegum Kirkjunefndar Kvenfélags Árbæjarsóknar frá kl. 3—6 síðd. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1 kl. 2. Jólafundur safnaðarfélagsins eftir messu. Upplestur: Helga Bachman, leikkona. Litla fiðlusveitin leikur undir stjórn.Sigursveins Magnús- sonar. Kirkjukór Áskirkju syngur. KafFiveitingar. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barna- guösþjónusta kl. 11 árd. Messa kl. 14 í Breiðhoíts- skóla. Sr. Lárus Halldórsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Guösþjónusta kl. 2. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Æskulýösfélag Bústaðasóknar mánudagskvöld kl. 20.30. Félagsstarf aldraðra: Síöasta samverustund fyrir jól miðvikudag kl. 2—5. Sr. ólafur Skúlason, dómprófastur. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma i safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þor- bergur Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Þórir Stephensen. Kl. 2 messa. Sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10. Prestur sr. Lárus Halldórsson. FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Laugard.: Barnasamkoma i Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnud: Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Aöventusamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 20.30. Samkoma á þriðjudagskvöld kl. 20.30 í safn- aöarheimilinu. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2. Fræðslukvöld mánud kl. 20.30. Séra Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriöjud. 8. des. kl. 10.30. Fyrirbænaguösþjónusta. Beöið fyrir sjúkum. Jóla- fundur Kvenfélagsins verður Fimmtudaginn 10. des kl. 20.30. Kolbrún Magnúsdóttir söngkona segir frá Færeyjum og syngur færeysk. lög. Kirkjuskóli barnanna er á laugardaginn kl. 2. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigur- björnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Arngrimur Jónsson. Messa kl. 2. Sr. Tómas Sveinsson. Borgarspitalinn: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Barnasamkoma í Kárs- nesskóla kl. 11 árd. Aöventukvöld í Kópavogskirkju kl. 20.30. Ræðumaöur Tómas Árnason, ráðherra. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLSKIRKJA: Óskastund barnana kl. 11. Söngur, sögur, myndir. Guðsþjónusta kl. 2. Organleikari Kristín ögmundsdóttir. Prestur sr. Sig. Haukur Guðjónsson. Sóknarnefndin. NESKIRKJA: Laugardagur: Samvera aldraðra kl. 3—5. Vísnavinir syngja. Guðbjörn Guðmundsson ies upp. Sunnud.: Barnasamkoma kl. 10.30. Guösþjónusta kl. 2 með þátttöku barna úr sunnudagaskólanum. Aðalsafnaðarfundur eftir guðsþjónustuna. Sr. Frank M. Halldórsson. SELJASÓKN: Kirkjudagur safnaðarins. Barna- guðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 10.30. Barna- guðsþjónusta í ölduselsskóla kl. 10.30. Kl. 14 há- tíðarguðsþjónusta í ölduselsskóla. Sr. Sigurður Pálsson vigsiubiskup predikar. Kórsöngur, altaris- ganga. Kl. 20.30 samkoma í ölduselsskóla. Herra Pétur Sigurgeirsson biskup flytur ávarp. Flutt samlestrardagskrá um Þorvald víðförla. Kórsöngur. Gísli Árnason, formaður sóknamefndar flytur hugleiöingu. Sóknarprestur. SELTJARNARNESSÓKN: Barnasamkoma kl. 11 árd. í Félagsheimilinu. Sr. Frank M. Halldórsson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Guðsþjónusta kl. 2. Organleikari Siguröur Isólfsson. Prestur sr. Kristján Róbertsson. EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl. 2. Sóknarprestur. STOKKSEYRARKIRKJA: Barnamessa kl. 11 árd. Sóknarprestur. Prestar i Reykjavíkurprófastsdæimi halda hádegis- fund i Norræna húsinu nk. mánudag. Fundir Kvenfélag Breiðholts heldur jólafund aö Seljabraut 54 sunnudaginn 6. desember nk. kl. 15. Skemmtiatriði, kaffiveitingar, jólasveinar koma i heimsókn. Eldri ibúar hverfisins 67 ára og eldri eru sérstaklega boðnir á fundinn. Fé- lagskonur mætið stundvíslega og takið fjölskylduna með. Fólagsstofnun stúdenta Kynningarfundur verður haldinn í Félagsstofnun stúdenta kl. 15 laugardaginn 5. des. um mannrétt- indabaráttu í Rómönsku Ameríku. Á fundinn mæta fulltrúar frá mannréttindanefnd El Salvador: Patricio Fuentes, Björn Tunback. Munu þeir félagar kynna í máli og myndum ástand mannréttindamála í E1 Salvador. Umræður að loknum framsögum. Sýnið samstööu með baráttunni fyrir mannréttinda- málum. Kvenfélag > Árbæjarsóknar heldur jólafund i Safnaðarheimilinu mánudaginn 7. desember kl. 20.30. Guðmundur Þorsteinsson flytur hugvekju, mjólkurvörukynning, jólaleikir og söngur. Mætiö vel og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Kvenfélag Laugarnessóknar Jólafundur verður haldinn i fundarsal kirkjunnar, mánudaginn 7. desember kl. 20.00. Gestur fundarins verður sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Munið eftir jólapökkunum. S órnin. Söfnin AÐALSAFN — Sérútlán, sími 27155. Bókakassar lánaðir skipum, heilsuhælum og stofnunum. AÐALSAFN — Lestrarsalur, Þingholtsstræti 27, sími 27029. Opiö alla daga vikunnar kl. 13—19. Lokaö um helgar i maí, júní og ágúst. Lokað júlí- mánuð vegna sumarleyfa. SÓLHEIMASAFN — Sólheimum 27, sími 36814. Opið mánud.-föstud. kl. 9—21, einnig á laugard. sept.-april kl. 13—16. AÐALSAFN: — Útlánsdeild, Þingholtsstræti 29a, sími 27155. Opiö mánud.-föstud. kl. 9—21, einnig á laugard. sept.-april kl. 13—16. SÓLHEIMASAFN — Bókin heim, sími 83780. Símatimi: mánud. og Fimmtud. kl. 10—12. Heims- endingarþjónusta á bókum fyrir fatlaða og aldraða. HLJÓÐBÓKASAFN — Hólmgaröi 34, sími 86922. Opið mánud.-föstud. kl. 10—16. Hljóðbókaþjón- usta fyrir sjónskerta. HOFSVALLASAFN — Hofsvallagötu 16, simi 27640. Opiö mánud.-föstud. kl. 16—19. Lokað i júlímánuði vegna sumarleyfa. BÚSTAÐASAFN — Bústaðakirkju, sími 36270. Opið mánud.-föstud. kl. 9—21, einnig á laugard. sept.-apríl kl. 13—16. BÚSTAÐASAFN — Bókabílar, sími 36270, Viö- komustaöir víðs vegar um borgina. BÓKASAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3—5, s. 41577. Opiö mán.-föst. kl. 11—21, laugard. (okt.- apr.) kl. 14—17. Sögustundir fyrir börn, 3—6 ára, föstud. kl. 10—11. Ameríska bókasaf nið er opiðfrá kl. 11.30 til'l7.30 alla virka daga. Ferðalög Ferðafélag íslands Dagsferð sunnudaginn 6. des. kl. 11: Gengið á Skálafell (774 m) viö Esju. Gönguleiðin á Skálafell er frekar auðveld og fær öllum, sem eru vel útbúnir. Fararstjóri: Þorsteinn Bjarnar, Verð kr. 50.- Farið frá Umferðamiðstöðinni austanmegin. Farmiðar við bll. Listasöfn Keramiksýning á Hulduhólum Steinunn Marteinsdóttir sýnir keramik á verkstæði sínu, Hulduhólum i Mosfellsveit. Hún er opin laug- ardaginn 5. desember frá kl. 14—19 og sunnudaginn 6. desember kl. 14—22. Sýning á bókasafninu, ísafirði Laugardaginn 5. desember nk. verður opnuð í bóka- safninu ÍsaFiröi, sýning á litljósmyndum eftir Jón Hermannsson. Sýningin nefnist ,,Myndir frá Horn- ,ströndum” ög verða þar sýndar um 50 stækkaðar lit« Ijósmyndir sem Jón hefur tekið á Homströndum tvö síðastliöin sumur. Jón hefur sjálfur stækkað myndirnar og sett upp. Sýningin verður opnuð laugardag 5. desember og stendur yFir til sunnudags 13. desember sem verður síöasti sýningardagur. Myndirnar eru flestar til sölu. Tónlist Musica Nova á Kjarvalsstöðum N.k. mártudag (7. des.) kl. 20.30 mun Musica Nova gangast fyrir tónleikum að Kjarvalsstöðum. Á efnisskránni eru 5 verk: 1) Nýtt tónverk, „Mansöngvar-Kantata nr. 4” eftir Jónas Tómasson sem hann hefur samið fyrir Háskólakórinn aö tilhiutan Musica Nova. Þetta er litríkt verk og viöamikiö, samið við 12 kvæði Hannesar Péturssonar. 4 hljóöfæraleikarar taka þátt i flutningi verksins auk kórsins. Stjórnandi er Hjálmar Ragnarsson. 2) Nýtt tónverk eftir norska tónskáldið Lasse Thoresen: „Interplay” fyrir flautu og píanó. Þetta verk er samið fyrir Manuelu Wiesler sem mun frumflytja það á tónleikunum ásamt Þor- keli Sigurbjörnssyni. 3) „Variations III” eftir John Cage (1963). Flytj- andi: óskar Ingólfsson”. 4) Variations IV” eftir John Cage (1963) Flytjandi: Snorri S. Birgisson. 5) „GIopplop” (hljóðverk fyrir kór) eftir Magnús Guðlaugsson. Aö auki verða kynnt nokkur verk Magnúsar Guðlaugssonar m.a. fyrir video. Flytjendur auk þeirra sem fyrr er frá greint eru: Nora Kornblueh og Michael Shelton. Kór Víðistaðasóknar (Haf narfjaröarkirkju Sunnudaginn 6. des. kl. 20.30 verða tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju. Þar flytja þau Pavel Smid og Violeta Mintcheva Smidova, orgeltónlist eftir Widor, Kanöcek og Franch. Kór Víðistaðasóknar flytur Eðhmische Mirtenmesse (Tékkneska jólamessu) eftir Jakob Jan Ryba, ásamt einsöngvurunum Guðrúnu Tómas- dóttur, Rut Magnússon, Friöbirni G. Jónssyni og Halldóri Vilhelmssyni. Undirleikari er Pavel Smid. Stjórnandi er Kristín Jóhannesdóttir. Aðgöngumiðar við innganginn. Ágóði rennur i orgelsjóð Víöistaðakirkju. Tónleikar Kór Kenaraháskóla íslands mun halda tvenna tónleika á næstunni. Eru það fyrstu opinberu tónleikar kórsins. Fyrri tónleikarnir verða í Ytri- Njarðvíkurkirkju sunnudaginn 6. desember kl. 16 og hinir síðari i Háteigskirkju þriðjudaginn 8. desember kl. 20.30. Á efnisskránni eru jólalög frá ýmsum Iöndum, m.a. eftir Jan Pieters Sweelinch, Bach, Mozart, Dietrich Buxtehude, Britten o. fl. Stjórnandi kósins er Herdis H. Oddsdóttir. Þeta er 3. starfsár kósins. Basarar Kvennadeild Rangæingafélagsins verður með kökubasar og flóamarkað að Hallveig- arstöðum til styrktar Kór Rangæingafélagsins 6. desemberkl. 14.SljóYnin. Bazar óháða safn- aðarins í Kirkjubæ Kvenfélag óháða safnaöarins heldur bazar i Kirkjubæ laugardaginn 7. dsember kl. 14.00. Félags- konur og velunnarar safnaðarins, góðfúslega komið gjöfum í Kirkjubæ föstudaginn 6. desember kl. 17— 20oglaugardag7. desember frá kl. 10—12. Basar Sjálfsbjargar í Reykjavík verður haldinn í Lindarbæ nk. laugar- dag 5. desember kl. 14.00. Tekið á móti basar- munum á skrifstofunni, Hátúni 12 fram til föstu- dags. Átthagafélag Stranda- manna (Reykjavlk heldur kökubasar aö Hallveigarstöðum laugar- daginn 5. desember kl. 14 til ágóða fyrir sumarhús félagsins. Jólabasar í Ytri-Njarðvfk Systrafélag Ytri-Njarðvíkurkirkju heldur jólabasar nk. laugardag 5. des. kl. 15 í safnaðarsal kirkjunnar. Félagskonur hafa haft einn til tvo vinnufundi í viku i vetur og búið til aðventukransa, borð- og veggskreytingar, óróa, málað keramik og fleira. Þá veröur á boöstólum kaffi og með því, í fund- arsal. En það koma fleiri við sögu. Kór Tónlistar- skólans undir stjórn Gróu Hreinsdóttur, syngur í kirkjunni kl. 15.30 og kl. 16 og er kirkjan öllum opin á meðan. Svo er lika búist við skemmtilegri uppákomu áður en basarinn hefst. Það mun veita öllum mikla gleði aö koma i kirkjuna á laugardaginn og eiga þar góða stund um leið og kirkjunni er veittur stuðningur. Einstæðir f oreldrar með jólabasar Jólabasar félagsins verður í Fáksheimilinu laugar- daginn 5. des. og hefst kl. 14. Margt góðra muna. Sunnudaginn 6. des. verður jólafundur félagsins i Súlnasal Hótcl Sögu og hefst kl. 3 e.h. Til skemmtunar veröur upplestur, sýnt jólaföndur, hressir jólasveinar koma i heimsókn og fl. Happdrætti með góöum vinningum. Basar og skemmtinefnd. a íþróttir LAUGARDAGUR: Körfuknattleikur: íþróttaskemman Akureyri kl. 15, 2. deild, KFÍ-Þór og síðan Hörður-Tindastóll. Hagaskóli kl. 14, Úrvalsdeild, Fram-Valur. Hellisandur kl. 14, 2. deild.Vikingur-Breiðablik. Blak: Selfoss kl. 14. 2. deild. UMF Samhygð-Þróttur Nesk. Handknattleikur: Laugardalshöll kl. 15.30. 3. deild, Ögri-Selfoss og siðan Ármann-Dalvík. SUNNUDAGUR: Körfuknattleikur: íþróttaskemman Akureyri kl. 13. 2. deild. Hörður- KFÍ. Hagaskóli kl. 14, 2. deild, Bræöur-Akranes. Njarðvik kl. 14, 1. deild karla, Grindavík-Haukar. Strax á eftir 1. deild kvenna. Njarðvík-ÍR. Blak: Hagaskóli kl. 19, 1. deild karla, Víkingur-Þróttur. Strax á eftir 1. deild kvenna. Þróttur-Breiðablik. Hundknuttleikur: Laugardalshöll kl. 14, 2. deild karla. IR-Breiöablik. Seltjarnarnes kl. 14, 3. deild. Grótta-Skallagrimur. Badminton: Seltjamarnes, A-flokksmót Gróttu. Akranes: Bikarmót Iá. Opið ungliijgamót. Júdó: Kennaraháskólinn kl. 14. Reykjavíkurmótið. Leiklist Síðustu sýningar á Hótel paradfs Nú um helgina eru siöustu sýningar Þjóðleikhússins fyrir jól og verða þá jafnframt allra síðustu sýningar hússins á franska gamanleiknum Hótel Paradís, eftir Georges Feydeau. Næst síðasta sýning verksins verður föstudaginn 4. desember og síðasta sýning sunnudaginn 6. desember. Svo sem kunnugt er þýddi Sigurður Pálsson leikritið úr frönsku leikmynd og búninga gerði Robin Don frá Bretlandi, Kristinn Daníelsson sá um lýsinguna og Benedikt Arnason er leikstjóri. I helstu hlutverkunum í þessu fjölmenna leikriti eru Róbert Amfinnsson, Sigriöur Þorvaldsdóttir, Bessi Bjarnason, Þóra Friðriksdóttir, Árni Tryggvason, Randver Þorláksson og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir. Um leið og hin mikla leikmynd „Hótelsins” hverfur af sviðinu, verður farið aö koma fyrir leik- myndinni fyrir næstu frumsýningu leikhússins, sem verður á annan dag jóla. Verður þá frumsýnd leikgeröin af Húsi skáldsins eftir Halldór Laxness, sem Sveinn Einarsson hefur útbúiö og verður í leikstjórn Eyvindar Erlendssonar. Æfingar á Húsi skáldsins hafa staðiö yfir frá því i október. Fleira er framundan i Þjóöleikhúsinu um hátiðarnar, þvi milli jóla og nýárs veröur frumsýnt barnaleikritið Gosi sem Brynja Benediktsdóttir sviðsetur og loks verður á þrettándanum rumsýning á Litla sviðinu á ungversku leikriti eftir István örkney og heitir það Kisuleikur. Leikstjóri er Benedikt Árnason. Happdrætti Samband ungra framsóknarmanna Dregiö hefur verið í jólahappdrætti sambands ungra framsóknarmanna. 1. desember var vinningsnúm- erið 4498, 2. desember 1983, 3. desember 1647, 4. desember 3933. Tilkynningar Finnlandsvinafélagifl Sunnudaginn 6. desember, kl. 20.30 mun Finnlands- vinafélagið Suomi efna til fullveldishátíðar á þjóð- hátíða legi Finna í Norræna húsinu. Að venju er dagskrá hátiðarinnar fjölbreytt. Sveinn Einarsson, þjóðleikhússtjóri, mun flytja ræðu, fimm manna hópur finnskra og sænskra lista- manna („Sá sjunger Finland”) leikur og syngur nokkur lög, og les Ijóð eftir finnska listamenn, skólahljómsveit Kópavogs mun leika nokkur lög, auk þess sem Tapani Bortherus, sendifulltrúi frá flnnska sendiráöinu í Osló, mun flytja ávarp. Aö iokinni dagskrá verður borinn fram flnnskur réttur (Karjalan Piirakka) i veitingasal hússins. Félagar eru hvattir til aö fjölmenna og taka með sér gesti. Apótekið Keflavlk opiö virka daga frá kl. 9—19, en helgardaga og aöra fridaga kl. 10—12. Foraeti Islands, Vigdfs Finnbogadóttir gerist verndari fþrótta- sambands íslands Sú hefð hefur verið 1 meira en hálfa öld að þjóðhöföingjar íslands hafa gerzt verndarar íþróttasambands íslands. Nú nýlega hefur Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, gerzt verndari Iþróttasambandsins. I tilefni þessa heimsótti framkvæmdastjórn ÍSÍ forseta Islands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, að Bessa- stööum, og viö þetta tækifæri afhenti Sveinn a mcuiyiKjMuui iujuu icmiuui tiu oinnneint tæklfæri eru frá vinstri: Alfreö Þorsteinsson, Jón Ármann Héðinsson, Hermann Guðmundsson, Sveinn Bjömsson, Vigdis Finnbogadóttir, forsetl íslands, BJöm VUmundarson, Gisli Halldórsson, Hannes Þ. SigurOsson, Þórflur Þorkelsson. Björnsson, forseti ÍSÍ, forseta Islands áletraðan veggskjöld ÍSÍ. Áður hafa verið verndarar ÍSÍ. Árin 1919—1944 Kristján X, konungur íslands og Danmerkur. Árin 1948—1952 Sveinn Björnsson, forseti Islands. Árin 1952—1968 Ásgeir Ásgeirsson, forseti Islands. Árin 196i>—1980 Kristján Eldjárn, forseti íslands. Jólamerki skðta Jólamerki Bandalags islenskra skáta er nú að koma út í 25. skipti. Það var árið 1957 að Bandalagið hóf útgáfu á jólamerki og var fyrsta merkið með mynd af Baden-Powell, stofnanda skátahreyfingarinnar, en hann hefði orðið 100 ára það áriö. Að þessu sinni tengjast myndirnar á merkjunum ári fatlaðra og skátastarfi fatlaðra. Ennþá er hægt að verða sér úti um arkir fyrri ára og er þeim sem áhuga hafa á því bent á að snúa sér til skrifstofu Bandalagsins, Neshaga 3, 2. hæð (íþróttahús Hagaskóla), auk þess sem skátafélög um allt land selja merkin i ár. Afmæli Diiiyu*uurgarar Á horni Vitastígs og Bergþórugötu hefur verið opnaður nýr og vistlegur hamborgarastaður undir nafninu Bingó-borgarar. Eins og nafnið ber með sér er aöaláherzla lögð á hamborgara og annað þeim tilheyrandi. Þá eru einnig á boðstólum heitar samlokur, is, „shake” o. Staðurinn er nú opinn alla virka daga frá kl. 9—7 og um helgar frá kl. 12—7. Innréttingar og hönnun annaðist Hlöðver Páls- son, húsgagna- og húsasmíðameistari. Eigendur Bingó-borgara eru hjónin Bjarni Ingólfssonog Þórunn Kristjónsdóttir. Eigendur Bingó-borgara ásamt tveimur starfs- stúlkum. Akraborg Brottfarartími alla daga vikunnar: Frá Reykjavik kl. 10.00 13,00,16.00. og 19.00. Frá Akranesi kl. 8.30,11.30,14.30 og 17.00. Snyrtntofan Katrfn 2. des. var opnuð ný snyrtristofa, snyrtistofan Katrín, aö Laugavegi 24, Reykjavik, II. hæð í húsnæöi hársnyrtistofunnar Papillu. Snyrstistofan Katrin býður upp á andlitsböð, handsnyrtingu, fót- snyrtingu, plokkun, litun og andlitsförðun (Make- up). Eigandi snyrtistofunnar er Katrin Karlsdóttir, snyrtifræðingur. 70 ára verður á morgun, laugardaginn 5. dcs., Sigfús Valdimarsson sjó- mannatrúboði, Pólgötu 6, ísafirði, Kona hans er Guðbjörg Þorsteinsdót- tir. Hann er fæddur að Eyjólfsstöðum i Vatnsdal i Húnavatnssýslu en ólst upp á Blönduósi. Hann fluttist til ísafjarðar 1946 eftir að hafa verið sjómaður í Vestmannaeyjum í áratug. Eftir kom- una til ísafjarðar hóf hann að starfa með hvítasunnumönnum. Hann er löngu orðinn þekktur meðal sjómanna fjölmargra þjóða fyrir trúboðsstarf sitt meðal þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.