Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981.
Ferðamál Ferðamál Ferðamál
Umboðsmaður Samvinnuferða íLondon:
„London er frábær
ferðamannastaður”
—en það er ekki eins gott að búa þar
Margt ber að varast í erlendum stórborgum:
FOfííHST ÞESSI HVERFl
I BANDARÍSKUM BORGUM
„Það hefur orðið geysileg fjölgun
ferðamanna, sem koma með Sam-
vinnuferðum—Landsýn til
London,” sagði Veikko M. Kokkila,
umboðsmaður Samvinnuferða í
London, en hann kom til íslands
ásamt samstarfsmanni sínum nýlega.
„í nóvember og desember eigum
við von á sjö hópum frá Samvinnu-
ferðum, en í hverium hÓD eru 50—60
manns. Árlega koma um tólf
hundruð íslendingar til London á
vegum Samvinnuferða”.
Veikko Kokkila er Finni og er hann
framkvæmdastjóri Scancoming, sem
skipuleggur Lundúnaferðir ýmissa
ferðaskrifstofa á Norðurlöndum, og
á vegum fyrirtækisins koma árlega 30
þúsund ferðamenn til London. Scan-
coming er umboðsaðili ferðaskrif-
stofa í Frakklandi, Bandaríkjunum,
írlandi og á öllum Norðurlöndunum.
Veikko sagði, að Scancoming
skipulegði allar ferðir í Lundúnum
fyrir sína viðskiptaaðila, pantaði og
keypti miða í leikhús, á tónleika,
kvikmyndahús og á knattspyrnuleiki.
„Knattspyrna er nokkuð, sem
menn hreinlega verða að sjá þegar
þeir koma til Englands”, sagði Ann-
eke Dekker, starfsmaður hjá Scan-
coming.
„Fótboltinn er hluti af þjóðarsál
Englendinga. Það að fara á knatt-
spyrnuleiki í Englandi er ekki bara að
horfa á fótbolta — þetta er athöfn!”
Anneke sagði, að Scancoming
hefði alltaf til reiðu miða á heima-
leiki Tottenham og Arsenal, en fyrir-
tækið gæti þó útvegað miða á alla
aðra leiki. Ef miðapantanir bærust
seint, gæti þó þurft að kaupa mióana
á „svörtum markaði”, sem þýddi
meiri útgjöld, en mönnum stæðu
miðarnir til boða. Þess eru dæmi, að
miðaverð hafi komist upp í 85 pund!
„íslendingar hafa áhuga á fleiru en
fótbolta,” sagði Veikko.
„fslendingar sækja mikið leikhús í
London, og telst mér til að 60—70%
allra íslendinga, sem við höfum af-
skipti af, fari í leikhús.”
Anneke og Veikko voru á einu
máli um það, að samskiptin við ís-
lendinga hefðu verið afar ánægjuleg,
án undantekninga. Aðspurð sögðu
þau, að sumir fengju sér kannski
hressilega neðan í því, en þeir væru
aldrei til vandræða.
„Þegar íslendingar fara út, þá
virðast þeir staðráðnir i því að
skemmta sér — og gera það. Þeir eru
kátir og lifandi, skoða mikiö, dansa
mikið og drekka mikið. En það hljót-
Jólaferðir til Kanarí og Miami
Undanfarin ár hefur verið efnt til
hópferða á erlendar baðstrandir um
jólin og hefur þátttaka yfirleitt verið
góð. Hafa margir notað tækifærið til
að flýja svartasta skammdegið og
slappa af í sólinni án þess að tapa of
mörgum dögum frá vinnu.
Hjá Sveini Sæmundssyni, blaða-
fulltrúa Fiugleiða, fengum við þær
upplýsingar aó full vél færi til
Kanaríeyja 17. desember. Hópurinn,
sem telur 164 farþega, kemur heim
aftur þann 7. janúar. Þessi ferð er
farin á vegum Flugleiða, Samvinnu-
ferða, Úrvals og Útsýnar og hefur
eftirspurn verið mikil ehda iöngu
uppselt.
Þá mun 70 manna hópur fara héð-
an til Miami þann 19. desember með
flugi um New York. Heim verður
komið 10. janúar. Einnig er vitað um
þó nokkra sem ætla að eyða jólunum
á skíðastöðum i Sviss og Austurríki,
auk þess sem ýmsir einstaklingar fara
í styttri eða lengri utanlandsferðir á
þessum árstíma.
-SG
Af og til fréttist um saklausa ferða-
menn sem verða fórnardýr ræningja
vestur í henni Ameríku og á dögun-
um var því slegið upp sem forsíðu-
frétt í Tímanum að íslendingur hefði
verið rændur fiðlu sinni.á götu í New
York. Þetta hefur ekki þótt stór frétt
þar í borg þvi á síðasta ári bárust lög-
reglunni i New York tilkynningar um
liðlega 100 þúsund rán og þjófnaði
og reiknar með að álíka fjöldi þjófn-
aða hafi ekki verið kærður.
Óttinn við að verða rændur ellegar
myrtur hefur hrætt ýmsa frá Amer-
íkuferðum. Hvað morðunum við-
kemur má geta þess að 1821 morð var
framið í New York á siðasta ári. {
tveimur þriðja tilfella var um það að
ræða að morðinginn og fórnarlambið
þekktust. Það ár sóttu 17 milljónir
ferðamanna borgina heim, þar af um
2,5 milljónir Evrópubúa. Tölfræði-
lega séð er því sáralitil hætta á að
hann Jón í Breiðholtinu verði drep-
inn þótt hann bregði sér til New
York. Hins vegar þarf hann að sýna
vissa aðgát þar sem í öðrum borgum.
í stórborgum Bandaríkjanna sem ís-
lendingar ferðast helst til eru hverfi
sem ber að varast. Lítum aðeins nán-
ar á málið.
New York
Ef við tökum New York fyrst þá
er það auðvitað sjálfsagt að halda
þeirri almennu reglu að veifa ekki
seðlum úti á götu, nota ferðatékka
sem mest og láta hótelið geyma verð-
mæti í geymsluhólfi. Verði fólk fyrir
ógnunum ræningja þá er ekki um
annað að ræða en láta lausafé af
hendi og ekki sýna mótspyrnu. Lífið
er dýrmætara en nokkrir dollarar eða
armbandsúr.
Þau hverfi í New York sem eru
hættuleg ferðamönnum á öllum tím-
um sólarhrings eru neðsti hluti Man-
hattan að austanverðu, austur af
First Avenue og suður af 12. stræti.
Harlem, norður áf Central Park og
milli 125. og 156. strætis, Suður-
Bronx og Bedford-Stuyvesant hverf-
ið. Central Park er hættulegur staður
að nóttu en fyrir norðan 100. stræd
þarf einnig að gæta fyllstu varúðar
að degi til.
Þá ber ferðalöngum að fara með
gát um Chinatown, Bowery, norð-
vestur Brooklyn og svæðið milli 38.
og 48. strætis, vestur af Brodway. Af
úthverfum eru glæpir tiðastir í
Queens, en síðan koma Bronx og
Brooklyn. Dragið hringi um ofan-
greinda staði á kortið og farið aldrei
um þá fyrstnefndu.
Miami
Sérfræðingar ráðleggja ferðafólki
sem heimsækir Miami að forðast
norðvesturhluta staðarins. Þar, nán-
ar tiltekið í Liberty City, hafi verið
nokkuð um kynþáttaóeirðir. Hins
vegar þurfi lítt að óttast á öðrum
stöðum en gæta þess að læsa alltaf
herbergjum sínum vel þvi hnupl ku
vera vinsæl íþrótt.
Los Angeles
Glæpir hafa aukist mikið í Los
Angeles á allra síðustu árum. Þar
svífast krimmarnir einskis í skugga-
hverfunum. Má nefna sem dæmi sög-
/ New Yofk hafa sjáffboða/iðasveitir irerið starfandi undanfarin tvö ér,
„Guardian Angels", við neðanjarðarbrautimar. Þessir sjátfboðaiiðar em
bæði biakkir og hvrtir og berja ótæpilega á ræningjalýð sem hefur mjög
herjað á farþega iestanna.
una um tvo Fransmenn sem komu til
borgarinnar i fyrsta sinn. Þeir fóru í
kvöldgöngu og voru þá stöðvaðir af
tveimur ungum mönnum. Án orða
dró annar upp byssu úr pússi sínu og
skaut annan Frakkann til bana.
Hinn krimminn sneri sér að Frakk-
anum sem eftir lifði og sagði rólega:
„Ef þú lætur okkur ekki hafa alla
peningana þína fer eins fyrir þér”.
Atburður þessi skeði í hverfinu
Watts, illræmdu gettói, þar sem eng-
inn utanaðkomandi ætti að drepa
niður fæti. Annaðhvort hafa Frakk-
arnir ekki verið varaðir við eða þeir
hafa ekki sinnt neinum aðvörunum.
Auk þessa hverfis er svæðið austur af
miðborginni mjög hættulegt ókunn-
um sem og MacArthur garðurinn.
Washington D.C.
í Washington eru 80% íbúanna
blakkir. Glæpir eru tíðastir í slömm-
um blakkra í suður- og austurhluta
borgarinnar. í norður- og vesturhlut-
um borgarinnar er ástandið allt ann-
að og betra, til dæmis í Rosslyn og
Crystal City. Lögreglan segir vasa-
þjófa aðgangsharða á Capitol Hill
svæðinu og varast beri að fara niður
fyrir 14. stræti sem er Brodway þeirra
í Washington. Á horni 14. strætis og
U strætis halda eiturlyfjasalarnir sig
og ekki óalgengt að það slái í brýnu
og byssur þá gjarnan brúkaðar.
Þetta látum við nægja um nokkrar
stórborgir í Ameríkunni og hættuleg-
ustu staði þeirra. Sniðgangið-skugga-
hverfin og njódð ferðarinnar.
-SG
Umsjón: Sæmundur Guðvinsson
Veikko M. Kokkila, framk væmdastjóri Scancoming, Anneke Dekker,
samsterfsmaður hans og Bysteinn Holgason framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar.
(Vísismynd: GVA)
ast aldrei nein vandræði af þeim. Ég
kann sérlega vel við íslendinga,”
sagði Anneke.
Veikko sagði, að Íslendingar virt-
ust yfirleitt hafa næg fjárráð 1
London. Þó kæmi fyrir, að einhver
yrði peningalaus, og þá hefði Scan-
coming oft hlaupið undir bagga og
lánað þeim peninga. Þessir peningar
hefðu án undantekninga verið endur-
greiddir og það oftast innan viku.
,,Ef fslendingar eiga í hlut erum
við hættir að láta einhvern ganga 1
ábyrgð fyrir þá. Undirskrift eða
jafnvel munnlegt loforð þeirra nægja
okkur nú orðið.”
Veikko hefur búið i London í átta
ár og hann sagði, að London hefði
bæði kosti og galla stórborgar.
„Fyrir ferðamenn er London stór-
kostleg. Þar er ótalmargt að sjá og
skoða — iðinn ferðamaður gæti verið
heilt ár í London án þess að ná því að
sjá alla athyglisverða staði og sýning-
ar. En það er ekki eins yndislegt að
búa þar.
í Englandi er mikil kreppa og at-
vinnuleysi og það kemur niður á íbú-
unum, ekki ferðamönnunum.”
Veikko og Anneke dvöldu í tæpa
viku hér á landi. Þau fóru í skoðun-
arferðir — sáu meðal annars Geysi
gjósa — og þau hrifust mikið af feg-
urð landsins. En mest hrifust þau af
íslendingum.
„islendingar eru ákaflega elskuleg-
ir og það er gott að kynnast þeim.
Við eigum örugglega efdr að koma
aftur,” sagði Anneke Dekker.
-ATA