Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Page 16
16 i
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta i Efstasundi 90, þingl. eign Ómars Morthens, fer
fram eftir kröfu Landsbanka íslands og Axels Kristjánssonar hrl., á
eigninni sjálfri miðvikudag 9. desember 1981 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Lokastig 20, þingl. eign Sigurbjörns Friðriks-
sonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik, Landsbanka
íslands og Innheimtustofnunar sveitarfélaga á eigninni sjálfri þriðjudag 8.
desember 1981 kl. 10.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 38., 40. og 42. tbl. Lögbirtingablaðs 1981, á hluta í
Hverfisgötu 108, þingl. eign Sigurvalda Hafsteinssonar, fer fram eftir
kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík og
Landsbanka tslands á eigninni sjálfri miðvikudag 9. desember 1981, kl.
11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 38., 40. og 42. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta í
Austurbrún 2, þingl. eign Óla J. Kristjánssonar o. fl., fer fram eftir kröfu
Veðdeildar Landsbankans, Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Gjald-
heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudag 9. desember 1981 kl.
16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 72., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta i
Skipholti 3, þingl. eign Ernu hf., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í
Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudag 9. desember 1981 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 72., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á Skipholti
33, þingl. eign Tónlistarfélagsins í Reykjavík, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar i Reykjavík og Hákonar H. Kristjónssonar hdl. á eigninni
sjálfri miðvikudag 9. desember 1981 kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Laugavegi 67, þingl. eign Ársæls Guðsteinssonar, fer
fram cftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eigninni sjálfri
miðvikudag 9. desember 1981 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta í Laugavegi 101, þingl. eign Sigríðar B.
Guðmundsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á
eigninni sjálfri, miðvikudag 9. desember 1981 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta í Torfufelli 23, þingl. eign Óskars Hanssonar, fer
fram eftir kröfu Jóns G. Briem hdl. og Veðdeildar Landsbankans á
eigninni sjálfri þriðjudag 8. desember 1981 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Lambastekk 2, þingl. eign Niels Blomsttrberg.fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 8.
desember 1981 kl. 14.45.
Borgarfógetaembættið f Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 38.. 40. og 42. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta í
Kötlufelli 3, þingl. eign Péturs Hallgrimssonar, fer fram eftir kröfu
Veðdeildar Landsb.'nkans og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni
sjálfri þriðjudag 8. desember 1981 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 70., 74. og 77. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á eigninni
Brekkutangi 20, Mosfellshreppi, þingl. eign Péturs Kornelíussonar, fer
fram eftir kröfu Kristins Bjömsson hdl., Landsbanka íslands og Veðdeild-
ar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. desember 1981
kl. 14.30.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Ræður eðlið eða um-
hverfið Irfi okkar?
Joanmtta og Irwnm voni aðskKdar þmgmr þœr voru aðeins sax vlkna gaml-
ar, an h/ttust aftur aftír þrjátíu og þrfú ér. Það kostu/ogasta som kom í IJós
var þó það, að Jaanotta var stöðugt mað vark i mjöðminni sam engin
skýring fannst é. Við laaknisrannsókn kom íijös að irana hafði maðfædd-
an gaila í hœgri nýöðrn, sam hafði áttað vakta henni óþægindum, enhún
Báðir höfðu þeir kvænzt
konum sem bára nafnið
Lindaenskiliðog
kvænztafturkonum
sem eiraiig hétu
samanafni
Mikill og vaxandi áhugi er nú um
allan heim á að rannsaka sameiginleg
einkenni og sláandi samsvörun hjá
eineggja tviburum, sérstaklega þeim
sem aðskildir hafa verið frá fæðingu
eða unga aldri. Virtar visindastofn-
anir eyða miklum tíma og fé I slíkar
rannsóknir, ekki einungis af forvitni,
heldur beinlinis til að fá fram svör
við spumingum eins og þeirri hvað
það sé sem veldur einkennum ein-
staklinga, er þetta allt saman með-
fætt? Hversu miklu veldur umhverfið
og svo framvegis.
Hér á eftir verða rakin nokkur
dæmi um tvíbura sem hafa verið
rannsakaðir, bæði líkamlega og með
tilliti til lífsferils þeirra. Fyrstir eru
bræðurnir Jim Lewis og Jim
Springer.
Þeir fæddust 19. ágúst 1939, en
þeim var strax komið í fóstur
hvorum á sínu heimilinu. Báðum var
gefið nafnið Jim. í heil fjörutiu ár
lifðu þeir hvor sinni tilveru, án þess
að hittast og það var ekki fyrr en
Lewis, sem vitað hafði um tilvist
bróður sfns frá sex árá aldri, fór á
stúfana og hafði upp á honum að þeir
hittust.
Ótrú/ega margt
sameiginlegt
„Um leið og við hittumst fundum
við fyrir óumræðilega nánum tengsl-
um”, segir Lewis og það var ekki
orðum aukið. Þegar farið var að bera
saman lif Jieirra tveggja, voru ótrú-
lega margir hlutir sem þeir áttu sam-
eiginlega. Báðir höfðu kvænst
konum sem báru nafnið Linda, en
skilið og kvænst aftur konum sem
einnig hétu sama nafni, Betty. Lewis
skírði frumburð sinn James Alan, en
Springer nefndi sinn son James
Allan. Báðir höfðu I æsku átt hund
sem þeir kölluðu Toy. Þá höfðu þeir
báðir unnið i lögreglunni, starfað hjá
McDonalds hamborgarakeðjunni og
unnið sem afgreiðslumenn á bensín-
stöðvum. Sumarleyfum sínum eyddu
þeir á sömu baðströndinni á Florida
og báðir naga neglurnar upp i kviku.
Og áfram í sama dúr. Þeir keðju-
reykja báðir sömu sígarettutegund-
ina, smíða húsgögn í fristundum,
þyngdust um 5 kíló er þeir komust á
táningaaldurinn og báðir áttu stjúp-
bróður með nafninu Larry. Stærð-
fræði var þeirra uppáhaldsfag í skóla
og málfar þeirra er sláandi likt. Þeir
hafa báðir fengið hjartaslag tvisvar
og hafa tilhneigingu til höfuðkvala.
ÓsýnHegur
híekkur?
Tilfelli þessara tviburabræðra
reyndist hásakólanum í Minnesota
falinn fjársjóður. Sálfræðingurinn
hafði aUrei funtUO fyrirþví.
Tom Bouchard, sem stundað hafði
rannsóknir á tviburum um tíu ára
skeið, fór nú á stúfana ti) að hafa upp
á fleiri tilfellum þar sem tvíburar
höfðu verið aðskildir frá fæðingu eða
þar um bil. Og þegar liggja fyrir
viðtöl og rannsóknir á sextán tví-
burum.
í öllum tilfeUum eru „tilviljan-
irnar” með ólíkindum. En eiga þær
sér einhverja eðUlega skýringu? Eða
er einhver ósýnilegur hlekkur mUli
eineggja tvíbura, sálfræðilegur eða
jafnvel einhverjir dulrænir straumar
sem enginn fær skýrt? Við þessu eru
engin svör ennþá, en við skulum líta á
fleiri dæmi.
Barbara og Daphne fæddust I
London 1939 og var strax komið í
fóstur hvorri á sínu heimilinu. Þær
hittust ekki aftur fyrr en árið 1980 og
sameiginleg einkenni Jjeirra eru lygi-
lega mörg. Til dæmis notuðu þær
sama háralitinn til að fela gráu hárin.
Þær eiga sömu uppáhaldsrithöfund-
ana og báðar kynntust þær eigin-
mönnum sínum á sveitaballi 16 ára
gamlar. Þær giftu sig á sama aldri,
að haustlagi og unnu báðar hjá því
opinbera, sem og eiginmenn Jjeirra
beggja. Þær misstu báðar fóstur
við fyrsta barn, en eignuðust siðan
tvo syni og eina dóttur. Báðar lögðu
fæð á stærðfræði í skóla, en eiga
sjúklegan dansáhuga sameiginlegan.
Og báðar eru með eindæmum hlátur-
mildar, enda fengu þær fljótlega
viðumefnið „flissandi tvíburarnir”,
er þær komu til rannsóknar í Minne-
sota.
Deyje
samdœgurs
Þessar systur ólust upp í mjög
ólíku umhverfi og við ólíkar
aðstæður. Hugsunarháttur þeirra er
þó mjög svipaöur og engan mun að
finna á málfari. Líkamlega em þær
mjög ájrekkar, nema hvað önnur er
ívið léttari, en báðar berjast við
hjartatruflun og heilalínurit þeirra
reyndist svo til eins.
Og rúsínan í pylsuendanum reynd-
ist svo lokaspurningin við rannsókn-
ina í Minnesota. Þá spurði prófessor
Bouchard þær hvora I slnu lagi, hvað
þær vildu helst verða og báðar
bjuggu til sama svarið: Óperusöng-
konur. Það var mjög langt frá sann-
leikanum, þvi báðar eru vita lag-
lausar.
Dæmi af þessu tagi mætti lengi
rekja. Oft höfum við heyrt um
tvíbura sem deyja svo til
samdægurs I sinu heimshorninu hvor
Dorothy og Marjorie voru tvibura-
systur sem verið höfðu óaðskiljan-
legar i æsku. í apríl 1961 dó Dorothy
með sviplegum hætti vegna of stórrar
svefntöfluinntöku, sem álitið var að
hefði verið ■ slys. Aðeins örfáum
klukkustundum síðar barst skeyti frá
Suður-Afríku sem tilkynnti lát systur
hennar, Marjorie. Jim og Arthur
Mowforth, voru sérlega samrýndir í
uppvextinum og höfðu báðir starfað
fyrir herinn alla sína tíð. Þeir náðu 66
ára aldri, en önduðust sama daginn í
apríl 1975ogbáðirafhjartaslagi.
Keith og Kenneth Main voru
aðeins smástrákar þegar sá fyrr-
nefndi þurfti að gangast undir hjarta-
uppskurð. Kenneth var heima á
meðan, en nákvæmlega á sömu
stundu og bróðir hans var skorin
upp, engdist hann sundur og saman
af kvölum í brjóstholinu. Og það
sama gerðist nokkrum dögum siðar
þegar saumurinn var tekinn úr þeim
sem skorinn var.
Ótrúlega
sterk tengs/
Slfk tilfelli, þegar tvíburarnir alast
upp saman hafa oft verið rakin að
miklu leyti til umhverfisins. Þegar
foreldrar standa allt í einu frammi
fyrir því að eiga tvö börn í staðinn
fyrir eitt, verður fyrirhöfnin meiri,
áhyggjurnar og allt sem því fylgir
tvöfaldast. Þess vegna leita þessir
einstaklingar ósjálfrátt meira sam-
neytis og liðsinnis hvor hjá öðrum.
Tengslin sem skapast eru ótrúlega
sterk.
En að því er varðar hina, sem
aldrei hafa hist, en eiga þó svo ótrú-
lega mikið sameiginlegt, þá leiðir það
sterkar líkur að þvi, að meðfæddir
eiginleikar stjórni meira í lífi okkar
en áður var álitið. Sé það rétt reynist
áhrifamáttur mannsins sjálfs á líf sitt
og tilveru ekki sá sem við viljum sjálf
telja. Umhverfið sem við ölumst upp
í og kringumstæðurnar sem við búum
við, hefur því minna að segja en al-
mennt hefur verið viðurkennt.
Frekari rannsóknir bíða framtíðar-
innar og vafalaust er fleira sem á
eftir að koma á óvart. Varhugavert
er þó aðalhæfanokkuð, en óneitanlea
hrista niðurstöður sent þegar eru
fengnar, nokkuð upp i viðteknum
skoðunum samtimans.
(Þýtt og endursagt-JB)
Jkn Lavris og Jkn Springer h/ttust mftur eftír 39 éra aðskMnaO. Þé kom i
fós að aaktnl konur þekrm béru sama nrnfn og þeð sem meka var. Þter
fyrri hðfðu gert þeð Ska.