Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1981, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1981. „Ég minnti hana mest á..." Konur og karlar. Að skilja er að deyja svolítið, þú veist það lady. En það verður að taka því með stærð. Ég er tvískilinn. Já, já, Margrét var lady önnur. Sú fyrsta hét Guðrún Bjarna- dóttir, hún er meinatæknir, ég sá hana fyrst í stássstofunni hjá Dóra skipper á ísafirði á sjómannadaginn. Þá var ég nýbúinn að missa Líf og list og hafði farið vestur til að sleikja sárin hjá frændfólki mínu í Vigur. Ég þarf allt- af að komast burt til að sleikja sár, það er eins og dýrin gera. Hún sagði að ég hefði minnt sig á hest þá. Svo sá ég hana næst í Skagafirði, þá var ég á miklum hesti sem Marka-Leifi átti og ölvaður af landa og þóttist eiga mikið undir mér og reið að henni — að forn- um sið og ég held að ég hafi þrifið til hennar, að fornum sið! En það varð ekkert úr þessu þá, nei, ekki fyrr en ’54, þá hitti ég hana. Hún er afskaplega bókmenntasinnuð, kunni utan að úr Einari Ben, það uppgötvaði ég. Hún bauð mér upp á te og ég hélt hún hefði sagst eiga heima á Bræðraborgarstíg en það var þá Barónsstígur en það tók mig 2 tíma og hyggjuvitið eitt saman að skilja það og náði fundum hennar, að sjálfsögðu. En við skildum á 19. júlí ’58, nótt hinna löngu hnífa. Þá var égfarinnað skrifa í íhaldsblöð. Hún er 8 árum eldri en ég. Hún sagði já, að ég hefði minnt sig á eineygðan erfiðan hest sem hún hafði þekkt. Svo hafði hún mynd af mér 10 ára gömlum í matrósafötum á borðinu meðan við vorum gift. Hefurðu oft þurft að fara burt og sleikja sárin, eins og þú varst að gera í Vigur. Já. Eg er hef stundum verið hálf- gerður lifsklaufi, látið stjórnast of mik- ið af tilfinningunum. Það er eitt af því nýja hjá mér núna, að balancera það. Maður skaðar aðra með því að sýna til- verunni ekki virðingu. Einu sinni spurði ég Jóhann Hannesson fyrrum skólameistara, hvað hann legði áherslu á í skólauppeldi og hann sagðist leitast við að innprenta virðingu fyrir tilver- unni. Svo þarf að hafa hugsjón, það er gott að vera háður hugsjón lady. En til- finningar gera mann svo viðkvæman. Og það má ekki versla með þær. Alkohólismi er flótti frá mótbárum Varstu alki? Það er alltaf afstætt hver er alkohólisti. Ég var aldrei einn af þeim sem lá í því, ég gat vaknað alhress og haldið áfram að lifa lífinu. Kvöld eftir kvöld var hægt að sitja yfir rauðvínsglasi án þess að það gerði mikið til. Það eru held ég til 27 skilgreiningar á alkohólisma. En nei, ég veit það ekki. Það er satt að alkohólismi er flótti, viðbrögð gegn mótbárum. Og ég á 17 mánaða afmæli, ég sagði þér það. Ég er að læra lífið upp á nýtt, fer á fundi hjá AA-samtök- unum, það eru stórkostlegir fundir. Og reyni að læra. Vera positífur. Kannski drakk ég eins og Amerikani, þú veist að þeir drekka kvöld eftir kvöld en þykjast samt ekki vera alkar. Ertu að gera það sem þú hélst að þú myndir gera? Einu sinni vorum við lát- in skrifa ritgerð í skólanum, titillinn var. Hvað verður eftir 15 ár? Ég ætlaði að gerast æsifréttamaður hjá Chicago Herald Tribune og mála og þess háttar. Þetta fór svona í þann dúr. Fórstu að mála til að herma eftir stóra bróður? örlygi? Nei nei. Ég var alltaf að teikna og mála. En ég ætlaði að vera rithöfundur. Ég var blaðamaður. Sko, eftir skólann fór ég til Englands að ráð um pabba, til Nottingham, þar var líka Thor Vilhjálmsson en okkur kom aldr- ei vel saman. Ég fór að lesa ensku og bókmenntir, þá var maður ungur ha, ég treysti mér ekki yfir þröskuld, rétt sloppinn frá Sigga gráa og frú Hall- dóru. Þegar ég kom heim var ég á Tím- anum fyrst, Eysteinn réð mig. Svo hætti ég og tók fíluna og kenndi í franska líkhúsinu sem var Gaggó Lind. En þá var ég búinn að kynnast Gunnari Bergmann og okkur dreymdi um að gefa út magasin, listmagasin. Ragnar í Smára lánaði okkur prentsmiðjuna. Líf og list hét það. En svo misstist það út úr höndunum. Eftir það fór ég norður einhvern tím- ann, já ég var þar ’54—’60, kenndi ensku, íslensku, dönsku og teikningu. Ég flæmdist frá Akureyri, sagði ég þér ekki frá því. Það var út af Jóni Mar- geirssyni. Hann kenndi dönsku og var uppnæmur fyrir smábekkingum. Ég var reglusamur fyrir norðan, fór á skíði og spilaði bridge og bjó í rólegheitum. Hinir kennararnir komu stundum til mín á kvöldin til að fá sér hressingu og voru að skemmta sér. Einu sinni höfð- .21 um við bekkingar uppi við Jón, þeir fóru með teppi yfir sér um miðja nótt og stundu nafnið hans fyrir utan glugg- ann. Ég átti að vera höfuðpaurinn í þessu, var sviptur kjóli og kalli i viku og settur í stofufangelsi lady, í stofu- fangelsi og það þoldi ég ekki, ég söðl- aði minn hest og keyrði suður um há- vetur eins og skrattinn væri í bensíninu. Þá var búið að halda kennarafund og fara fram á afsökunarbeiðni og mikið hvíslast á. Eftir það kom ég ekki til Akureyrar í langan tíma og ekki í skólann, ekki fyrr en löngu seinna að ég kom norður og Steindór frá Hlöðum bauð mér sérstak- lega að koma í skólann. Það þótti mér 'mikið vænt um og gaf skólanum mynd, sem heitir ,,Á ferðum lsland”. Ég gleymdi að spyrja þig hvort þú j værir góður málari. Maður er aldrei ánægður með sig. En ég lærðihjáeinum best menntaða ; myndlistarmanni okkar, Gunnari S. Magnússyni sem lærði í Osló og er stór- kostlega menntaður þótt hann máli j ekki mikið sjálfur. Og kannski ef Svíar i vilja sýna myndirnar mínar i þriðja | besta galleríi sínu eins og þeir hafa gert, ; þá er ekki hægt að kvarta. Og Kanarn- |. ir, Kanarnir sýna mig. Ég er ánægður í með mig þegar ég finn að ég vinn vel og ; af ábyrgð. Það er ábyrgðarhluti að i mála, alveg eins og það fylgir því ; ábyrgð að vera blaðamaður, sem reynir \ að skrifa litererar greinar — eða rithöf- undur. Nú er ég að fara að skrifa, ég lofaði að skrifa um bókina hennar 'Guðmundu Eliasdóttur, ég þekki hana svo vel og vil vanda mig. Ég ætlaði að fara austur, ég þarf að komast í hlut- laust umhverfi til að skrifa, já blessuð það gerði ég stundum í gamla daga ef ég þurfti að skrifa eitthvað gífurlega hugverklegt, leigði mér stundum her- bergi á hóteli. • Já, það er fólk fyrir austan sem vill hafa mig, þótt kyn sé — já. það er gott -og blessað þótt kyn sé skrifaðu það. Lady Kristín.... ég endurheimti hana eftir 19- skilnaðinn, var ég búinn að segja þér frá því. Lady Kristín, hún er dóttir eins síðasta lénsherrans á íslandi og komin af Klaní. Þeir ættmenn henn- ar eru framsæknir og hafa innri metn- að. Aldrei gæti ég fallið fyrir al-norð- lenskri konu. Að sjálfsögðu er munur eftir lands- hlutum á fólki, hvernig spyr ladyin! Sr. Eiríkur vinur minn á Þingvöllum segir að það sé sami munur á Norðiending- um og Sunnlendingum og var á Sturl- ungum og Haukdælum. , Búið te. Degi hallar. Steingrímur ætlar að taka rútuna austur og þarf að skrifa miða handa strákunum svo þeir viti um hann. Hann þarf líka að ganga frá, í eldhúsinu svo þeir komi ekki heim í draslið þar. Góðir strákar, við erum að fara til London, ég hlakka mikið til að sýna þeim Breta. Ég fékk styrk frá menntamálaráðuneyti til að fara á söfnin og skoða sýningar og strákarnir eiga að verða lífverðir mínir í heims- borginni, passa að ég falli ekki fyrir bjórnum. Svo löbbum við út á Búlevarðinn til að hringja á bíl úr sjoppunni. Stein- grímur kaupir handa mér suðusúkku- laði og hnetur handa sjálfum sér í nesti. Hann ætlar að taka Hellu rútuna, sem er „svo djöfull fín, með videoi og hvað eina. Veistu það, að ég sé það á svipn- um á kerlingunum í Breiðholtinu þegar eitthvað krassandi hefur verið í videoinu kvöldið áður — veistu hvað ég meina! Video er fínt maður, ég horfi mikið á. Ég sé t.d fullt af myndum sem ég missti af þegar ég var á Stokkseyri. En svipurinn á kellunum!” Við verðum samferða í leigubílnum, hann stekkur út neðst í Ártúnsbrekku til að veifa niður rútuna með ritvélina undir hendinni og bakpoka í hinni. í leðurfrakka með alpahúfu. Hann ætlar ekki að vera lengi í burtu því hann á að sjá um að ryksuga stigaganginn næstu viku. „Steingleymdi því og þær refsa mér með því að láta mig ryksuga næstu vikurnar. Ég geri það með glöðu geði og með sigurbros á vör. Svo fá þær samviskubit af að vera svona harðar við mig og lijálpa mér kannski við þvott inn í staðinn, það er þessi gífur- lega fína tölvustýrða þvottavél hjá okk- ur. Og gleymdu ekki að segja að mér þyki gott að búa í þessari blokk, jafn- vel þó erkiíhaldið sem alltaf er að reyna að vera kommi, hann Jón Múli búi fyr- ir neðan mig.” Svo hverfur Steingrímur. Ég þarf að drífa mig í að skila viðtali sem fyrst, áður en hann hverfur enn lengra. Og spyrji mig einhver hvernig það var að skrifa þetta, þá mun ég segja að það hafi verið eins og að raða púsluspili á þrjúbíói en að ég hafi haft alveg gífur- lega gaman af þvi. Þó ég hafi kannski jaldrei fundið alveg öll stykkin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.