Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Qupperneq 26
flTín ffl'Vi'n "iV
26
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1981.
Canon
JÓLAGJÖFIN SEM
„REIKNAÐ ER
ÚRVAL
VASATÖLVA
FYRIR
OG SKÓLA
ÚRVALAF
SMÁTÖLVUM
MEÐ
PRENTUN
SALA, ÁBYRGÐ OG ÞJÓNUSTA
Skrifrélin hf
oö
SUÐURLANDSBRAUT 12. SÍMAR 85277 OG 85275.
<g>HITACHI
0HITACHI
MONO
ferðatæki
með kassettu
Verðkr. 1.150.-
Vilberg& Þorsteinnl
Laugavegi 80 símar10259-126221
Hagstætt verö. Greiðslukjör.
SENDUMGEGN PÓSTKRÖFU
VALHÚSGÖGN
ÁRMÚLI 4 SÍMI82275
íþróttir
íþrótt
íþróttir
Swansea tokst ekki
að komast á toppinn
—tapaði fyrir Not tingham Forest á heimavelli á laugardag.
i Aðeins fimm leikir voru háðir i
ensku deildakeppninni á laugardag,
fjórir I bikarkeppninni, vegna vetrar-
hörku á Bretlandseyjum. Snjókoma og
frost, versta veður þar i manna minn-
um. Hægt var að leika í Swansea og þar
hafði heimaiiðið tækifæri til að ná for-
ustu á ný i 1. deild. En það fór á aðra
leið. Nottingham Forest beinlínis stal
þar stigum, sigraði 1—2, og það er
fyrsti tapleikur Swansea á heimavelli i
1. deild.
Swansea var miklu betra liðið allan
fyrri háifleikinn og náði forustu á 34.
mín með marki Robbie James eftir
hornspyrnu Leighton James. Peter
Shilton hafði nóg að gera f marki For-
est. Varði oft mjög vel og einnig í þeim
síðari. Völlurinn mjög erfiður og leik-
urinn hófst átta min. of seint, þar sem
leikmenn Forest lentu í erfiðleikum á
ieiðinni tii Swansea.
Lokakaflann fór Nottingham-liðið
að koma aðeins meira inn í myndina.
Á 78. mín. fékk Forest horn, sem John
Robertson tók. Gaf vel fyrir markið og
Willie Young, sem keyptur var frá
Arsenal í síðustu viku, skallaði í mark.
Glæsibyrjun hjá honum með sinu nýja
liði. Og ekki nóg með það. Á lokamín-
útu leiksins gaf Robertson aftur fyrir
mark Swansea. Bakvörðurinn Neil
Robinson handiék knöttinn. Furðuleg
mistök, engin hætta. Vítaspyrna og úr
henni skoraði Robertson. Liðin voru
þannig skipuð. Swansea. Davies,
Robinson, Marucik, Irwin, Thompson,
Rajkovic, Mahoney, Robbie James,
Latchford, Curtis og Leighton James.
Forest. Shilton, Anderson, Needham,
Young, Gunn, Gray, Proctor, Rober,
Robertson, Fashanu og Wallace.
Úrslit á laugardag.
1. deild
Coventry—Man. City 0—1
Leeds—Tottenham 0—0
Swansea—Nottm. Forest 1—2
2. deild
Leicester—Watford 1—1
QPR—Barnsley 1—0
Nokkrir leikir voru í 2. umferð FA-
bikarkeppninnar. Úrslit. Chesterfield—Huddersfield 0—1
Doncaster—Penrith 3—0
Dorchester—Bournemouth 1—1
York—Altrincham 0—0
Þrátt fyrir kuldann og frostið voru
áhorfendur í Swansea um 20 þúsund.
Stillilogn. Gífurleg vonbrigði. Curtis
átti skot i stöng áður en Forest jafnaði
og eftir að Young jafnaði komst Latch-
ford frír að marki Forest. Peter Shilton
varði afar slakt skot Latchford.
Þá hlaut Man. City mikii heppnisstig
í Coventry. Dennis Tueart skoraði eina
mark leiksins með skalla á 8. mín.
Áttunda mark hans í síðustu átta leikj-
unum og City hefur unnið fimm af sex
síðustu leikjunum. En mark Tueart var
raunverulega það eina, sem Man.City
sýndi í leiknum. Coventry mikiu betra
liðið. Sótti mjög en framherjarnir fóru
illa með tækifærin, einkum Thomp-
son. Tottenham var betra liðið 1 Leeds
og Ray Clemence hafði lítið sem ekkert
að gera í marki Lundúnaliðsins.
í 2. deild skoraði Mike Flanagan
sigurmark QPR á Barnsley á 72.
min.Mjög erfitt var að leika á gervi-
grasinu vegna hálku. Gary Lineker
skoraði fyrir Leicester á 44. mín. en
Ross Jenkins jafnaði á 44. min. Wat-
ford mun betra iiðið, einkum í síðari
hálfleik. Eddie Kelly, sem eitt sinn lék
með Arsenal, var i liði Leicester á ný í
fyrsta sinn í 18 mánuði.
Staðan í 1. deiid er nú þannig:
Manc. Utd. 18 9 5 4 28- -15 32
Ipswich 16 10 2 4 28- -19 32
Southampt. 18 9 3 6 32- -27 30
Swansea 18 9 3 6 28- -27 30
Tottenham 17 9 2 6 26- -19 29
Nottm. For. 18 8 5 5 23- -23 29
Manc. City 17 8 4 5 22- -17 28
Brighton 18 6 9 3 24—18 27
Arsenal 16 8 3 5 15- -12 27
West Ham. 16 6 8 2 33- -22 26
Liverpool 16 6 6 4 23- -16 24
Coventry 18 6 4 8 27- -27 22
Everton 17 6 4 7 22- -23 22
WBA 17 5 6 6 21- -19 21
Stoke 18 6 2 10 23- -28 20
Leeds 18 5 5 8 18- -32 20
Aston Villa 16 4 7 5 21- -19 19
Wolves 17 5 4 8 11- -23 19
Birmingham. 16 4 6 6 23- -23 18
Notts. Co. 17 4 5 8 24- -31 17
Middlesbro. 18 2 6 10 16- -30 12
Sunderland 18 2 5 11 13- -31 11
-hsim.
Dregið í FA-bikamum enska:
Bikarmeistarar Tott-
enham gegn Arsenal!
Á iaugardag var dregið til 3.
umferðar ensku bikarkeppninnar i
knattspyrnu og fór athöfnin fram í
brezka útvarpshúsinu í Lundúnum. í
fyrsta skipti sem slikt á sér stað og
drættinum auðvitað útvarpað beint. í
þessari umferð hefja liðin úr 1. og 2.
deild keppni. 64 kúlur númeraðar og
fyrst kom upp nr. 52, Carlisle eða
Bishop Auckland og siðan 54,
Huddersfield. Þannig var haldið áfram
þar til kúlurnar voru á þrotum.
Það verða stórleikir í umferðinni.
Bikarmeistarar Tottenham leika á
heimavelii gegn nágrönnum sínum í
norðurbæ Lundúnaborgar, Arsenal.
Swansea fær Liverpool í heimsókn,
Birmingham, Ipswich, Notts County,
Aston Villa, og Watford, liðið hans
Elton John, fær efsta liðið í 1. deild,
Man. Utd. Niðurstaðan varð annars
þessi:
Carlisle eða Bishop Auckland-
Huddersfield
Leicester-Southampton
Barnsley-Kettering eða Blackpool
Enfield eða Wimbledon-C. Palace
Peterbro eða WalsaU-Bristol City eða
Northampton
Barnet eða Wycombe-Brighton
WBA-Blackburn
West Ham-Everton
Stoke-Norwich
Coventry-Sheff. Wed.
Chelsea-Hull eða Hartlepool
Doncaster-Cambridge
Swansea-Liverpool
Watford-Man. Utd.
Luton-Swindon eða Sutton
Rotherham-Sunderland
Newcastle-Brentford eða Colchester
Shrewsbury-Port Vale eða Stockport
Notts Col-Aston Villa
Wolves-Leeds
Orient-Charlton
Bolton-Derby
Bury eða Burnley-York eða Altrincham
T ottenham-Arsenal
Bandaríkjamaðurinn Phil Mahre tók
örugga forustu i heimsbikarkeppninni
á skíðum um helgina. Hlaut hann 25
aukastig fyrir sameiginlegan árangur í
svigkeppninni í Madonna á miðviku-
daginn og i bruninu i Val Gardena i
gær. Hann varð i 1. sæti í svigkeppn-
inni en aftur á móti í 30. sæti í bruninu.
Sigurvegari í brunkeppninni varð Er-
win Resch frá Austurriki en sá sem stal
senunni í gær var hinn pólskættaði
Breti, Konrad Bartelski, sem varð i 2.
sæti. Þetta er 7. árið hans í heimsbik-
Dagenham eða Millwall-Grimsby
QPR-Middlesbro
Gillingham eða Barking-Oldham
Birmingham-Ipswich
Man. City-Cardiff
Dorchester eða Bournemouth-Alders-
hot eða Oxford
Crewe eða Scunthorpe-Hereford eða
Fulham
Nottm. Forest-Wrexham
arnum og þar hefur hann oftast verið í
lakasta hópnum — meðal annars i 61.
sæti í bruninu i Val d’Isere helgi þar á
undan.
Staða hjá þeim efstu í heimsbikar-
keppni karla I alpagreinum eftir brunið í gær er nú þessi:
Phil Mahre, Bandar. 95
Andreas Wenzel, Lichtenst. 46
Ingcmar Stenmark, Sviþjóð 35
Frans Klammer, Austurr. 34 -klp-
Leikirnir verða háðir 2. janúar
1982. -hsim.
BRETINN SLÓ í
GEGN í BRUNINU
AA og SÁÁ bænin
Hinar biðjandi hendur
sem háismen með
æðrule ysisbæninni.
Fæst aðeins hjá
Jón og Óskar
Laugavegi 70. Sími24910