Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Page 30
30
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1981.
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í byggingu
Sultartangastíflu í samræmi við útboðsgögn 320.
Verkinu er skipt í þrjá sjálfstæða verkhluta og er bjóð-
anda heimilt að bjóða í einn eða fleiri verkhluta. HelsTu
magntöflur áætlast sem hér segir:
Gröftur
og sprengingar
Fyllingar
Mót
Steypa
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík, frá og með 17. desem-
ber 1981 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 500,-
fyrir fyrsta eintak, en kr. 200,- fyrir hvert eintak þar til
viðbótar.
Tilboð skal skilað á skrifstofu Landsvirkjunar fyrir kl.
14:00 föstudaginn 19. febrúar 1982, en sama dag kl.
15:00 verða þau opnuð opinberlega á Hótel Sögu við
Melatorgí Reykjavík.
Reykjavik, 12. desember 1981
Landsvirkjun
Verkhluti Verkhluti Verkhluti
I 11 III
210.000 mJ 732.000 m3 324.000 m3 1.046.000 m3 E E II r- r-
'BáUtmrinn
RENESSANCE
RÓKÓKÓSTÓLAR
MJÖG VÖNDUÐ
BILLJARDBORÐ
Borðin eru 8X4 fet að stærð og eru með marmara-
botni, óvenju vönduð.
Innifalið í verði eru kúlur og kjuðar.
Verð kr. 16.800,-
Gísli Jónsson & Co. hf.
Sundaborg 41. Simi 86644.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Ævisaga rituð af Ray Connolly
einum nánasta viní lenn-Ono hjóna
j FJÖLVAt^jjQTGW |
Samlokurnar
John og Yoko
eftir Ray Connally
Bókaútgáfan Fjölvi hefur gefið út bók
um bítilinn John Lennon og samlíf
hans og Yoko Ono. Heitir bókin
„Samlokurnar.
Samlokurnar lýsir þeim ósköpum,
sem litla japanska konan mátti ganga i
gegnum þegar hún giftist John Lennon.
Almenningur þoidi það ekki, því að
fólk hafði gert sér aðra mynd af
átrúnaðargoði sínu, en sú ímynd
brotnaði nú í spón.
Höfundur bókarinnar er Ray Con-
oliy. Hann útskýrir í bók sinni hvað
það var, sem John sá svo yndislegt við
Yoko Ono. Ást þeirra var afar náin og
djúp og þau gátu ekki nokkra stund'
hvort án annars verið.
Samlokurnar er 190 blaðsíður að
stærð og i henni er ógrynni mynda.
Þýðandi er Steinunn Þorvaldsddóttir.
Prentun annaðist Prentstofa G.
Benediktssonar, en bókband sá Arnar-
berg um.
IMafnabókin
eftir Hermann Pálsson
Hjá Máli og menningu er komin út
Nafnabókin eftir Hermann Pálsson.
Hermann Pálsson tók saman bókina
íslenzk mannanöfn fyrir u.þ.b.
tveimur áratugum og kom hún út i
Reykjavík árið 1960. Sú bók er löngu
uppseld og ófáanleg og Ijóst er að
hugmyndir foreldra um skírnarnöfn
hafa tekið miklum stakkaskiptum á
þessu timabili. Því brá höfundur á það
ráð að velja þessari nýju bók nýtt heiti
og gera hana öðruvísi úr garði en hina
fyrri eins og segir i formála bókarinnar.
Ennfremur segir: „Tilgangur Nafna-
bókarinnar er tvíþættur: annars vegar
að birta handhæga skrá yfir íslenzk
heiti karla og kvenna, svo að þau séu til
tæk foreldrum í skírnarhugleiðingum,.
og á hinn bóginn að veita almenningi
nokkra hugmynd um merkilegan þátt í
íslenzkri menningu.”
Nafnabókin er 105 bls. að stærð,
unnin í Prentsmiðjunni Hólum hf.
Praxis
eftir Fay Weldon
Iðunn hefur gefið út hina frægu skáld-
sögu Fay Weldon, Praxis. Dagný
Kristjánsdóttir þýddi. Sagan var lesin I
útvarpi I sumar sem miðdegissaga og
vakti þá mikla athygli en misjöfn við-
brögð hlustenda.
Fay Weldon er kona á fimmtugs-
aldri, vel kunn sem rithöfundur í Bret-
landi og reyndar víðar. Hún starfaði
fyrst sem blaðamaður, en samdi einnig
fyrir sjónvarp, meðal annars fyrstu
þætti myndaflokksins „Húsbændur
og hjú”. Seinni ár hefur hún snúið sér
að skáldsagnagerð við góðar undir-
tektir. Mestan sigur vann hún þó með
þessari sögu, Praxis, en hún kom út
1978. Bókin hlaut mikið lof gagnrýn-
enda og var þýdd á mörg tungumál.
Praxis er I 25 köflum, 236 blaðsíður
að stærð.
Kvennagullið í
grútar-
bræðslunni
/
eftir William Heinesen
Kvennagullið i grútarbræðslunni heitir
smásagnasafnið efiir William Heine-
sen sem kemur út hjá Máli og menn-
ingu I ár í þýðingu Þorgeirs Þorgeirs-
sonar, rithöfundar. Kvennagullið í
grútarbræðslunni er fimmta verk
Heinesens sem kemur út hjá Máli og
menningu í þýðingu Þorgeirs Þorgeirs-
sonar, en áður eru komnar bækurnar:
Turninn á heimsenda 1977, Fjandinn
hleypur í Gamalíel 1978, í morgun-
kulinu 1979og Þaðáaðdansa 1980.
Textinn á bókarkápu er tekinn úr
sögu þeirri sem bókin hefur fengið nafn
af:
Möltubúinn var dáinn fimm árum
áður en ég fæddist og ég kynntist
honum ekki fyrr en hann var orðinn
draugur. Þegar grútarbræðslan stóð
dimm og kulnuð á tunglskinsbjörtum
vetarkvöldum úti á hrjóstrugum tang-
anum mátti sjá glóra I fésið á honum
bakvið gluggaboru efst á þeim
veggnum sem uppí landið sneri. Væri
heppnin með gat maður lika heyrt hann
syngja og spila undir á gítar. . . Sagan
um þennan dularfulla, útlenda flagara
eins og hann birtist í þjóðsögum og
samtimaheimildum er lengsta saga
bókarinnar sem auk þess hefur að
geyma nokkrar aðrar af þekktustu
smásögum þessa færeyska meistara:
Tunglskin yfir Hóreb, Hnífinn, Dódu,
Dansarakvæðið um Tví-Símon og
Keldu-Köllu o.fl.
Myndirnar í bókinni og káputeikning
eru eftir Zacharias Heinesen, son
skáldsins.
Kvennagullið i Grútarbræðslunni er
256 bls. að stærð, prentuð og bundin í
Prentsmiðjunni Hólum hf.
Merkisdagar á
mannsævinni
eftir Árna Björnsson
Bókaforlagið Saga hefur gefið út
bókina Merkisdagar á mannsævinni
eftir Árna Björnsson.
Bókin fjallar á léttan og lifandi hátt
um þær fjölmörgu venjur og siðáreglur
sem tengzt hafa æviferli fólks hér á
landi gegnum aldirnar. Greint er frá
margskonar þjóðtrú og siðum sem
hafðir voru um hönd á helztu tímamót-
um ævinnar, allt frá getnaði, fæðingu
og skírn til fermingar, trúlofunar,
brúðkaups og loks útfarar og erfis-
drykkju.
vy
Gamlá! vcnjttr
sióattMjÍm í«j s,74jiilr
Flestir kannast við fyrri bók Árna
Björnssonar, Sögu daganna, sem
kom út fyrir fjórum árum. Sú bók seld-
ist fljótt upp, en er nú fáanleg í nýrri
útgáfu. Oft hefur verið vitnað í Sögu
daganna á tyllidögum og er hún nota-
drjúgt uppsláttarrit á mörgum islenzk-
um heimilum. Eflaust á Merkisdagar á
mannsævinni ekki siður eftir að verða
mörgum forvitnilegt lestrarefni, þvi
margir af þjóðsiðum okkar eiga sér
skemmtilega sögu. Sumir þessara siða
eru enn við lýði — en margir eru
horfnir.
Bókin Merkisdagar á mannsævinni
er 159 blaðsiður. Auglýsingastofan hf.
sá um útlit hennar, en prentun fór fram
hjá Prentstofu Guðmundar
Benediktssonar.
Þulur
eftir Theódóru Thoroddsen
Þulur Theódóru Thoroddsen sem lengi
hafa verið ófáanlegar eru nú komnar út
í 5. útgáfu hjá Máli og menningu.
Þulur Theódóru þekkja allir sem
komnir eru til vits og ára og nú gefst
ungum lesendum kostur á að kynnast
þessum perlum. Óþarft er að minna á
þulur eins og „Tunglið, tunglið taktu
mig” og „Fuglinn I fjörunni”, en alls
eru tólf þulur I bókinni. Myndirnar við
þulurnar hafa þeir gert Guðmundur
Thorsteinsson (Muggur) og Sigurður
Thoroddsen.
Bókin er 24 blaðsíður, prentun
annaðist Formprent. hf.
Hreinsum landiö — sköpum verömœti STÁLFÉLAGIÐ S.16565