Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Síða 18
18 DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982. gæzluleysið — 1.500.000.000 (eina og hálfa billjón) marka! ” Myntbreyting varð óumflýjanleg. „En i staðinn fyrir að strika út tvö núll eins og við gerðum þá voru strikuð út tólf!” Weimarlýðveldið var að hrynja. Spennan í stjórnmálum var mikil. Átökin stóðu milli vinstri manna, Rot- front, oghægri manna. Hitler vann á, „Þúmrt nógu ha/vfti Mmntknntal tt mö hafa gaman afþesau," sagöi Brynjó/f- ur Bjammson, þmgmr hann gaf mir „Buch dor Umdmr" mftfr Hmina og kanndi mór önnur undurfögur tjóö á knæpum. í Berlín varstiginn villtur hrunadans. Skemmtanalífið blómstraði. Max Rein- hardt og Piscator lyftu þýzku leikhúsi yfir allt, sem áður hafði þekkzt. í tón- leikahöllunum voru frumflutt verk eftir Hindemith, von Webern, Lehar og Strawinsky. Isadora Duncan og Nisi- insky dönsuðu, einnig Argentina, sem nasistar drápu síðar. Og nýjar greinar uxu á meiði skemmtanaiðnaðarins. Kabarettinn varð til, oft háðskur og pólitískur. Kurt Weill var upp á sitt bezta og Marlene Dietrich. „Hún hlýtur að vera áttræð orðin, hvað sem hún segir,” hrekkur upp úr Árna. „Svo þroskuð var hún orðin sem listakona þegar ég kom til Berlínar.” Til þessarar borgar komu allir fræg- ustu listamennirnir — og lika þeir sem vildu verða það. Á veitingahúsinu „Svarta villigeltinum” höfðu þeir setið nokkrum árum áður, Edvard Munch, Strindberg og Vigeland. íslendingarnir stunduðu varla þann stað, en aðrar ámóta villtar bjórkrár. Reyndar ekki sá sem um þær mundir gerði mesta Iukku þar í landi, Pétur Á. Jónsson söngvari. En þeir, sem nú voru við nám í borg- inni. „Ég var dreginn með á allar knæpur, þótt ungur væri,” segir Árni. Og það var ekki allt jafn fallegt sem hann sá. ,,Á einum matstað var grindhoraður maður látinn sitja á palli með stórt spjald um hálsinn, sem á var letrað: „lch bin Hungerkúnstler (þ.e. snilling- ur í listinni að svelta).” Fyrir framan hann sat feitur karl og tróð í sig krás- um. Með fjórar undirhökur og servíettui um háls. Höfuðið nauðrakað nema. smáklessa fremst, skipt í miðju og greidd eins og kambar í báðar áttir að prússneskum sið. Furðulegt! Minnti á hund sem ekki hefur gaman af að naga beinið sitt, fyrr en annar soltinn rakki er kominn að horfa á hann öfundar- augum. . .” JöríUn blómgast ánýírústum miðborgarinnar Sú Berlín sem Árni Kristjánsson og aðrir sem henni kynntust geyma með sér.eins og veizlu í farangrinum er nú horfinn. „Múrinn skiptir nú borginni Berlín,” segir Árni. „Annar helming- urinn átti upphaflega að vera sýningar- gluggi vesturs, fyrir munað og velmeg- un. 1 eystri helmingnum átti siðavendni og strangleiki byltingarinnar að ráða ríkjum. Og þetta skapaði stöðuga spennu. Miðborgin gamla er enn ekki nema auðn og rústir, og verður ekki endur- reist fyrr en Berlin verður sameinuð á ný. Þar voru járnbrautarstöðvarnar tvær, Anhalter og Potzdamer, þaðan sem lestir brunuðu til allra landa álf- unnar, og hjá þeim hótelið Excelsior. Skáldkonan Vicki Baum fékk sér vinnu við símaborðið á þeim glæsistað og notaði sér aðstöðuna til að njósna um gestina.” En efni í sögur um vafasöm viðskipti í ástum eða fjármálum finnast þar eng- in lengur. Helzt væri að grasafræðing- ar gætu leitað fanga á þessum slóðum. Ótal tegundir af villigróðri brjótast alls staðar fram milli ryðgaðra teinanna. Hann er hið nýja líf.” „Að kvöldi þess 30. janúar vorum við á tónleikum í sal, þar sem nú er Gorki-teater í Austur-Berlín. Vilhelm Kepmpff, píanóleikarinn frábæri, lék Bach (Goldberg-tilbrigðin) af snilld. En þegar á leið fór að heyrast undar- legt hark að utan og ljóst að ekki var allt með felldu. Að tónleikunum lokn- um, þegar við komum út, var mikill mannfjöldi á strætunum. Þvagan af fólkinu byltist eftir götunni eins og stórfljót. Kyndlar slógu annarlegri birtu á þessa sýn. Lúðrasveitir léku her- göngulög og óp og öskur glumdu við. Þessi lifandi elfur barst í átt að kanslarahöllinni. Á uppljómuðum svölum stóð Hindenberg og Hitler við hlið hans. Hindenberg var fjörgamall orðinn og veitti nú Hitler kanslaraemb- ættið. Daginn eftir voru allir i húsinu komnir með hakakrossinn og SS-menn gengu alls staðar með götulögreglunni. Óp og vein, handtökur og morð urðu daglegt brauð. Eftirleikinn þarf ekki að rekja. Sumarið eftir voru Árni og Anna á Akureyri. „17. júní var úfinn og yggld- ur því norðanhregg var og hríð. En maður sem kom til bæjarins þann dag með skipi bar boð frá Ragnari í Smára og Páli ísólfssyni hvort ég vildi koma suður næsta haust og verða kennari við nýstofnaðan tónlistarskóla, þar sem Páll ísólfsson var skólastjóri.” Þar með var hans Iifsbraut ráðin. Ásamt kennslunni bar honum skylda til að halda einleikstónleika á vetri hverjum og auk þess að spila ásamt öðrum kennurum í útvarpið tuttugu sinnum á vetri. Bein útsendin, því að tæknin leyfði ekki annað. Þetta gekk í mörg ár, framyfir seinna stríð. Mest spilaði hann með Birni Ólafssyni fiðluleikara og Edelstein cellóleikara. Farandsnillingar ofurseldir agentum „Þið hefur aldrei Iangað til að leita frægðar með erlendum þjóðum?” „Það hefur ekki þýðingu með viður- kenningu, hvort hún fæst eða ekki, ef maður er sjálfum sér trúr,” svarar Árni. „Ég hef setið hér heima og reynt að gera til gagns það sem ég gat. Það er ekki heldur víst að ég hafi misst af neinu. Þessi útlendu stórnöfn þurfa sífellt að ferðast milli borga og spila fyrir nýja og nýja áhorfendur. Þeir verða eins konar farandsnillingar. Oft ofurseldir agentum sem nota þá, græða á þeim og senda þá hvert sem þeim sýn- ist. Sjálfir fá þeir litlu að ráða. Einu sinni ætlaði Gieseking að koma hingað en varð þá að fara til A'nkara, því að agentinn hans heimtaði það. Hann var leiður yfir því.” Rétt er að skjóta því inn hér, að ófáir eru þeir orðnir, farandsnillingarnir, sem til íslands hafa komið, og Árni verið fenginn til að leika undir hjá þeim, stundum með næsta litlum fyrir- vara. „Hræðilegasta reynsla mín af því tagi var þegar Adolf Busch kom hingað í fyrsta sinn I striðslok. Hann kom með skipi á hádegi á sunnudegi, lét mig fá þrjú prógröm til að spila á einni viku og það fyrsta átti að vera tilbúið á þriðju- dag. Ég kannaðist við eitt lag af þessu, enda gekk það bezt. Hreint botna ég ekkert I hvernig þetta tókst, mér fannst segir Árni, þegar heimsfrægðin berst aftur í tal. „Nei, það er betra að spila þegar maður hefur löngun til þess. ' Hugsaðu þér prest, sem ferðaðist milli kirkna og flytti alltaf sömu ræðuna. Verkin geta orðið steingerv- ingar og sumir tónlistarmennirnir finna upp á nýjum og nýjum tæknibrögðum sér til afþreyingar.” Ogaf því talið hefur borizt að prest- um man hann eftir Kaj Munk, sem þjónað söfnuði í smábænum Vedersö á Jótlandi og vildi ekki þaðan hverfa. „Hér hefur Guð sett mig og hér vil ég vera,” sagði hann. Nasistar drápu hann, en ekki fyrr en rödd hans hafði borizt um öll Norðurlönd. Þá er bezt að spyrja næst hvað sé galdurinn við að vera góður kennari. „Hvaða ráð viltu gefa ungum hljóðfæraleikurum?” Árni brosir. „Það er erfitt, þótt sagt sé auðveldara að kenna öðrum en sjálf- um sér. Og það er ekki hægt að gefa allsherj- arformúlu. Væri mögulegt að kenna eftir kerfi þyrfti nemandinn að breytast í tölvu, vél, sem mötuð væri. . . Nei, kennarinn verður í hverju tilviki að finna hvað nemandinn þarf, setja sig i hans spor, þá verður það lifandi orðsem milli fer.” Svo segist hann halda að hann eigi nemendum sínum meira að þakka en þeir sér. „Ég lærði af að þurfa að útskýra fyr- ir þeim.Tónskáldið ArnoldSchönberg, frumkvöðull nútímatónlistar, skrifaði framan á kennslubók sína í hljómlistar- fræði: „Dieses Buch habe ich von meinen Schíllern gelernt (Þessa bók hef ég lært af nemendum mínum).” — Það er alveg satt, ímynda ég mér. — Það sem svaf í Schönberg vaknaði þegar hann þurfti að upplýsa nemendur sína. — Stundum koma nemendur til mín og segja: Einu sinni skrifaðirðu í nót- urnar mínar setningu sem ég hef sett á mig. — Hvað var það? spyr ég. Festina lente. Það er latína, kannski er það áhrifaríkt að skrifa eitt- hvað dularfullt. Þetta þýðir: Flýttu þér hægt. Ég fer eftir því sjálfur. Það er nefnilega alveg rétt sem Sören Kierkagárd sagði: Maðurinn lifir lífinu áfram, enskilurþaðafturá bak. Og með aldrinum verður maður bæði vitlausari og vísari. Maður þarf ekki eins mikið að sýnast og sér þá hvers konar blekking þetta hefur verið sem maður hefur verið að keppa að. En tónlistin hefur ævinlega verið mér allt og eitt. Hún er lífið í æðra veldi. Ég leitaði hennar eins og blómið snýr sér að ljósinu.” Svo segir Árni, næstum afsakandi: „Ég er sjálfsagt fjarska rómantískur í mér. Eins og Brynjólfur Bjarnason sagði eftir að hafa kennt mér undurfag- urt kvæði Nietzsches á knæpu í Berlín („O, Mensch, gib acht”) og gaf mér „Buch der Lieder” eftir Heine. „Þú ert nógu helviti sentimental til að hafa gaman af þessu.” ,,Attu þér nokkur einkunnarorð?” „Já, segir Árni. „Logaðu! Lýstu!” ihh ^Nmi^jukaltí VIDEORESTAURANT Smiðjuvegi 14D — Kópavogi — Sími 72177 t *ö ^ Opið frá kl. 23.00 til kl. 04.00 y sunnudaga—fimmtudaga ogfrákl. 23.00 tilkl. 05.00 föstudaga og laugardaga. Sendum cinnig heim mat cf óskað cr. smi^jukalll VIDEORESTAURANT Smiðjuvegi 14D — Kópavogi — Sími 72177. &e<fi SUÐURNESJ AKON UR ATHUGIÐ LÍKAMSÞJÁLFUN - LEIKFIMI Nýtt 5 vikna leikfiminámskeið hefst annan marz í íþróttahúsi Njarðvíkur. Dag-og kvöldtímar tvisvar í viku. Styrkjandi og liðkandi œfingar fyrir konur á öllum aldri. Upplýsingar og innritun í síma 6062 BIRNA MAGNÚSDÓTTIR HÚSAVlK Garðyrkjumaður Húsavíkurkaupstaður óskar eftir að ráða garðyrkjumann sem fyrst. Um er að ræða starf allt árið þ.e.,fullt ársstarf. Umsóknir er tilgreini m.a. aldur, menntun og fyrri störf, skulu hafa borizt undirrituðum eigi síðar en 15. marz nk. Nánari upplýsingar veitir undirritaður. Bæjarstjórinn Húsavík. Tilkynning til tungumálakennara Námskeið og fyrirlestur Henrik Jul-Hansens um notkun kvikmynda í kennslu, sem verða átti í Norræna húsinu nú um helgina, flyzt til 20. og 21. marz nk. Félag dönskukennara Norræna húsið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.