Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ& VlSIR. FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982.
Skáli Ferdafélags islands I Langadal. fcr náttúruvernd iatin sitja á hakanum íyrir
ágóðavon?
Náttúruvemd í voða:
„Ferðafélögin
valda ekki
verkefni sínu”
—segir Tryggvi Jakobsson í Landvemd
„Ferðafélag íslands er góð og þjóð-
leg stofnun í huga altnennings, ekki
ósvipað ungmennafélögunum áður
fyrr. En eflaust á FÍ þessa einkunn ekki
skiiið því það er eins og hvert annað
fyrirtæki rekið með gróðasjónarmiði
og fjárfestingar í fullum gangi,” sagði
Tryggvi Jakobsson, stjórnarmaður i
Landvernd, í tilefni af erindi um ferða-
mál og náttúruvernd sem hann flutti á
ráðstefnu Landverndar fyrir
nokkru. f því sagðist hann telja það í
hæsta máta óeðlilegt að ferðafélögin
hefðu bæði framkvæmda- og hús-
bóndavald á hinum friðlýstu svæðum
og hafi það í raun staðið framgangi
nauðsynlegs uppbyggingarstarfs á
sumum fjölsóttum ferðamannastöðum
fyrir þrifum. í samtali við blm. DV
skýrði Tryggvi þessi sjónarmið sin:
„Það var á síðasta áratug að sú
stefna var tekin að afhenda ferða-
félögunum, einna helzt Ferðafélagi
íslands og Ferðafélagj Akureyrar, hús-
bóndavald á friðlýstum svæðum utan
byggðar. Þetta var að mörgu leyti
skiljanleg ráðstöfun því Náttúru-
verndarráð var ófært um að sinna
verndunarverkefni sínu vegna fjár-
skorts. Ferðafélögin björguðu því
miklu á sinum tíma. En nú hefur orðið
mikil eðiisbreyting á ferðamáium á
íslandi. ísland er orðið alþjóðlegt
ferðamannaland og koma hingað tug-
þúsundir ferðamanna á ári hverju frá
öllum löndum.
Árið 1977 kom út skýrsla á vegum
umhverfisnefndar Ferðamálaráðs eftir
Árna Reynisson, þáverandi fram-
kvæmdastjóra Náttúruvemdarráðs, og
Jón E. ísdal frá Ferðafélagi íslands.
Þar kemur fram að alvarlegt hættu-
ástand riki á vinsælum viðkomu-
stöðum ferðamanna vegna átroðnings
og eigi þetta sérstaklega við svæði
umhverfts nokkra skála ferðafélag-
anna. Þessi skýrsla styður það álit mitt
að eftirlits- og gæzlumál á þessum
svæðum verði að taka fastari tökum og
það sé óeðlilegt að ferðafélögin hafi
þau í hendi sér. Ríkisvaldið verður að
einhverju leyti að taka þetta í sínar
hendur.
Ég er hræddur um að landvernd hafi
lent utangarðs í starfsemi ferðafélag-
anna á þessum svæðum og spyrja
mætti hvað FÍ hafi lagt af mörkum til
landverndar. Það vekur t.d. athygli
mina að tekjur af tjaldstæðum í Langa-
dal hafa runnið til FÍ en ekki skóg-
ræktar.
Forsvarsmenn FÍ, sem hefur marga
menn í fullum stöðum, hafa lýst því
yfir að féiagið sé ekki atvinnurekandi
og vilja því ekki hlíta kjarasamningum
ASÍ sem kveða m.a. á að landverðir
eigi rétt á tveggja daga greiðslu fyrir
setu á undirbúningsnámskeiði. Þessu
ákvæði hefur FÍ ekki viljað hlíta og því
í raun lagzt gegn því að þessi námskeið
verði cfld og haldin. Meira að segja
gengu ákveðnir aðilar innan Ferða-
félagsins svo langt síðastliðið sumar að
banna þeim starfsmönnum sem ekki
störfuðu á friðlýstum svæðum og
einnig í Landmannalaugum að nota
starfsheitið landvörður. Húsverðir
skulu þeir heita.
Að mínu áliti væri það eðlilegast að
framkvæmda- og húsbóndavald yrði í
höndum Skógræktar rikisins og
Náttúruverndarráðs. Náttúruverndar-
og ferðamál eru ekki einkamál eins eða
neins heldur málefni sem alla varðar.
Annað er hættulegur hugsunarháttur.”
-Rb.
SNYRTIVOR
ÁRSDMSj82
MEÐ HÆKKANDISÓL OG VORBOÐANN í LOFTI
VILJUM VŒ) MDSINA Á STENDHAL VIKUNA
SEM NÚ FER í HÖND.
Fersk litalína sumarsins,
beint frá París.verður kynnt undir handleiðslu sérfróðra snyrtifræðinga
á öllum útsölustöðum STENDHAL, og síðast en ekki síst
í húsakynnum Modelsamtakanna.
Þar verður hreinlega dekrað við gesti kynningarvikunar.
Og til að bæta gráu ofan á svart
verða Modelsamtökin með sýningar á sumartísku MONDÍ
tvisvar á dag út vikuna.
Allan fatnað muntískuverslunin Urður leggja til.
Kynningin stendur frá 30. april til 7. maí.
í húsakynnum Modelsamtakanna Skólavörðustig 14 2. hæð.
Alla virka daga verður opið frá kl. 2 til 7. Laugardaga frá kl. 11 til 3.
Tískusýning kl. 3 og 5.
EFNAVERKSMIÐJAN
cillo/ hf
S.31733 & 31717
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI.
FYRIR
Steudhal
PARIS
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK:
STELLA, snyrtivöruverslun,
Bankastræti 3, S: 13635
Salon RITZ, snyrtistofa
Laugaveg 66, S: 22460
TOPPTÍSKAN, snyrtivöruverslun
Miðbæjarmarkaðinum, S: 13760
NANA SF, snyrtivöruverslun
Vörðufelli 19, S: 71644
TÍZKUVERZLUNIN
Skólavörðustig 14 2. hæd.
MODELSAMTOKIN
Skólavörðustig 14 2. hasð.
urður
2. hæd.
mJt
KÓPAVOGI:
HRUND, snyrtistofa
Hjallabrekku 2, S: 44088
HAFNARFIRÐI:
Hárgr. Guðrún
Linnetstig 6, S: 51434
KEFLAVÍK:
Þel-hárhúsið,
Tjamargötu 7, S: 92-3990
SELFOSS:
Selfoss apótek
Austurvegi 44, S: 99-1177
AKUREYRI:
AMARO,
Hafnarstræti 99-101, S: 96-22832
ÍSAFIRÐI:
TANIA, snyrtistofa,
Hrannargötu 2 , S: 94-4029
Póstsmdum
Póstscndum
r
I
;r> 'SS&gff VERÐLÆKKUN
ULLAfiP* 0p\Ð.
fimmtudaga kl. 9—18
Vinnuf atabúdin ,östuda9a kl 919
Laugavegi76-Sími 15425 — Hverfisgötu 26 - Sími 28550
OP'Ð-
fimmtudaga kl. 9—18
föstudaga kl. 9—19