Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ& VtSIR. FIMMTUDAGUR 29. APRlL 1982. 13 ræða það er nauðsynlegt að líta bæði til borgarmála og landsmála. Reynsl- an, sem draga má af tvennum undan- förnum sveitarstjórnarkosningum, bendir ótvírætt til þess að landsmál hafi mjög mikil áhrif á úrslit borgar- stjórnarkosninga í Reykjavík. Þau virðast einnig hafa talsverð áhrif í næstu byggðum við höfuðborgina, sem eru á sameiginlegum vinnumark- aði með henni, en þau áhrif virðast heldur dvína eftir því sem fjær dregur og þó aiveg sérstaklega þegar byggð- irnar minnka og persónulegar vin- sældir fara að vega þyngra. Verði því veruleg sveifla til hægri á höfuðborg- arsvæðinu hljóta menn að taka hana sem nokkurn fyrirboða þess sem koma skal að ári. Auðvitað spila svo borgarmálefni eitthvað þarna inn í. Satt best að segja er ekki auðvelt að koma auga á að borginni hafi verið neitt verr stjórnað nú en undanfarið. Raunar má segja að furðulega litlar breyting- ar hafi orðið á stjórninni við meiri- hlutaskipti og kann það út af fyrir sig að hafa valdið einhverjum vonbrigð- um. Varla hallast þeir þó til Sjálf- stæðisflokksins, en þar kann að ein- hverju leyti að vera að finna skýringu á fylgi kvennaframboðsins. Að vísu hafa núverandi borgaryfirvöld verið býsna seig við að fá upp á móti sér íbúa sumra borgarhverfa vegna reglustikugleði og ungæðisháttar sumra „fræðinga” meirihlutans, og einnig kann Rauðavatnsævintýrið að verða þeim býsna þungur myllusteinn um háls í komandi kosningum. Á móti kemur að ekki verður heldur neinnar sérstakrar hrifningar vart yf- ir lista sjálfstæðismanna, jafnvel ekki meðal þeirra sem segjast þó gall- harðir í að kjósa hann. Því held ég að landsmálin muni hafa meiri áhrif en borgarmálin, ef um hægri sveiflu verður að ræða. Leiðir á „vinstri"-mennsku Mér virðist talsverðrar og vaxandi þreytu gæta meðal fólks á þeirri gervi-vinstrimennsku, sem tröllríður þessu þjóðfélagi. Hinn almenni skatt- greiðandi er orðinn yfir sig þreyttur á öllum þeim fræðingum og speking- um, sem flæða yfir þjóðfélagið. Hann er orðinn þreyttur á öllum af- ætunum, sem hann hefur kostað til náms í áratugi, en snúa aftur, komnir út öllu sambandi við fólkið í landinu og þykjast þess umkomnir að geta með reglustikum og reglugerðum sagt því fólki, sem kostaði menntun þeirra, að éta það sem úti frýs vegna þess að það hafi ekkert vit á málun- um. Þeir sem druslast til að vinna og borga skatta vilja sjá einhvern annan árangur starfa sinna en uppskafn- ingslýð sem ver mestum hluta tíma síns í að snapa uppi styrki hins opin- bera til þess að geta haldið áfram að gera ekki neitt á fullorðinsárum. Þeg- ar þjóðartekjur minnka og lífskjör versna, eins og nú blasir við, er það eðlileg krafa fólks að allir leggist á eitt við að efla framleiðslu. Og fólk hefur einfaldlega ekki trú á því að vinstri flokkarnir muni þess um- komnir að snúa þróuninni við. Til þess eru þeir, að minnsta kosti Alþýðubandalagið, orðnir of sam- tengdir þessu fólki í augum mikils hlutaalþýðufólks. Mig grunar að þarna sé að leita hluta þeirrar pólitísku þreytu, sem kemur fram í hinum fjölmörgu óákveðnu kjósendum, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunarinn- ar. Þeir eiga erfitt með aö kyngja því að snúa sér til Sjálfstæðisflokksins, því að þeir aðhyllast ekki stefnu hans, síst af öllu leiftursóknina marg- umræddu. En þeir hafa heldur ekki fundið neitt það í viðbrögðum hinna svokölluðu vinstri flokka við því ástandi sem öllum er að verða ljóst að bíður okkar í efnahagsmálunum, er þeir geta sætt sig við. Þar blasir fyrst og fremst við alls kyns skæklatog, sem kann að reynast þeim flokkum giftudrjúgt í einhverjum smáplássum úti á landi, en þar hefur engin sú framtíðarstefna verið mörkuð í raun, er fólk hefir trú á að skipti sköpum í þeirri baráttu sem nú blasir við. Og síst af öllu hefir það trú á því að þeir fræðingar og spekingar sem virð- ast nú ráða þróun mála í æ rikari mæli í skjóli værukærra stjómmála- manna, stígi á næstunni niður til dauðlegra skattgreiðenda, svo lengi sem núverandi gervivinstrimennska ræður ríkjum í landinu. Magnús Bjarnfreðsson ^koðanakönnunDVumbor^arsnónlarCosmngan^ D-listinn með meiríhluta þeirra sem taka afstöðu Sjálfstæöisflokkurinn fckh stuöning mikils meirihluu þeirra kjósenda í Reykjavik, sem höf*!u tekiö afstööu til borgarstjómarkosnirganna, í skoöana- kön.iun sem DV gerÖi um siðustu hclgi. En hclmingur kjóscnda i borgtnm er enn óráöinn. Tekiö var 600 manna úrtak kjósenda Helmingur kjósenda óráðinn cnn óákvcönir og 16* svöruöu ekki spurningunni. 31,5* af heildinni kváöust styöja SjálísUeöisflokkinn, 4,8* Alþýðubandalagið, 4,6* listann, 9* Alþýöuflokkinn og 4,9* Framsók nar flok ki nn. SjálfsUcðisflokkurinn fékk 47,4* allar spár vafasamar.S mkvæmt skipt- ingu þeirra sem hafa tckiö afstööu gæti Sjálfstæöisflokkurínn fengiö 14 borgarfulltrúa af 21 h6ldi hann slíku hlutfalli. Alþýðubandalagiö fcngi 2, kvennalistinn 2, Alþýöuflokkur 2 og Framsókn 1. -HH. sé verkalýðsflokkur sem standi vörð um hagsmuni verkalýðsstéttarinnar. Maóistarnir gáfu upp á bátinn allar grundvallarreglur sinar og gengust inn á kjörorð Fylkingarinnar og hafa þá yfirgefið síðasta vígi sitt, sem var algjör andstaða gegn Sovétríkjunum. Baráttusamtökin fyrir stofnun kommúnistafiokks versla ekki með grundvallaratriði og fyrir okkur er baráttan gegn heimsvaldastefnunni og endurskoðunarstefnunni grund- vallaratriði. Þetta þýðir að BSK álítur bæði Sovétríkin og Bandaríkin árásargjörn heimsvaldaríki, sem nú undirbúa glæpsamlega styrjöld gegn mannkyninu með hernaðarbandalög- um sínum, Varsjárbandalaginu og Nató. Þetta þýðir einnig að BSK styður aldrei Alþýðubandalagið, hvorki beint né óbeint, heldur þvert á móti tekur upp baráttu gegn þvi og öllum tálsýnum um hlutverk þess. Al- þýðubandalagið er höfuðpaurinn í aðförinni að verkalýðsstéttinni, sem einna ljósast hefur komið fram nú er það situr í ríkisstjórn. Þetta eru ástæðurnar fyrir því að BSK tekur ekki þátt í skipulagningu Rauðrar verkalýðseiningar í ár. Við hörmum það að sjónarmið Fylkingarinnar, sem lýsir stuðningi við heimsvalda- stefnuna og endurskoðunarstefnuna skuli hafa sigrað í baráttunni um pólitískan grundvöll Rauðrar verka- lýðseiningar. Gegnkreppu, efturhakff og stríði 1. maí 1982 gengur verkalýður heimsins gegn kreppu, afturhaldi og stríði. KREPPA auðvaldsins, offram- leiðsla, lokun verksmiðja og milljónaatvinnuleysi eru afleiðingar þarfa auðvaldsins á hámarksgróða, sem standa í algjörri andstöðu við þarfir samfélagsins. Verkalýðsstéttin ber enga ábyrgð á kreppu auðvalds- ins og svarið við tilraununum til að velta byrðum kreppunnar yfir á herð- ar verkalýðsins er vígorðið. sem hljómar heimshornanna á milli: „LÁTUM AUÐVALDIÐ BORGA!” AFTURHALDIÐ, skeröing lýð- réttinda, kynþáttahatur og fasismi er sú ógn, sem verkalýðsstéttin og vinn- andi alþýða heimsins á við að búa í dag. Afhjúpun kapítalismans i kreppunni neyðir borgarastéttina í æ ríkari mæli að kasta af sér lýðræðis- hulunni. Auðherrarnir neyta og munu neyta ailra bragða tii að við- halda alræði sinu, þar á meðal að byggja upp og styrkja fasíska ógnar- hópa, sem er beitt gegn lituðu fólki og kommúnistum. Þess vegna ber vígorðið „GEGN KYNÞÁTTA- HATRI OG FASISMA” hátt i kröfugöngu á 1. maí í ár. STRÍÐ, uppskipting markaðanna, hráefnalindanna með vopnavaldi og eyðing vinnuafls og framleiðslutækja er eina leiðin, sem auðvaldið sér út úr kreppunni. Risaveidin, forystuðfl heimsvaldablokkanna tveggja standa grá fyrir járnum og bíða hent- ugs tækifæris til að veita óvininum fyrsta höggið. Mótmæli milljóna manna hafa sett skrekk i herbúðir heimsvaldasinnanna og þeir neyta allra bragða til að afvegaleiða friðar- hreyfinguna. Aðeins herská barátta gegn þeim, sem undirbúa stríðið, að- eins barátta, sem stefnir að því að kollvarpa heimsvaldastefnunni getur komið í veg fyrir Þriðju heimsstyrj- öldina. Þess vegna er vígorðið „STRÍÐ GEGN STRÍÐINU” og „GEGN NATO OG VARSJÁR- BANDALAGINU” áberandi á 1. maííár. Þorleif ur Gunnlaugsson BYLTINGIN, valdataka verka- lýðsins og stofnun sósíaiskra alþýðu- lýðvelda, er í dag verkefni tekið til lausnar. Efnahagsleg og pólitísk kreppa auðvaldsins hefur náð því stigi að hlutlæg skilyrði fyrir bylting- unni eru nú fyrir hendi í flestum kapí- talískum löndum og eru að skapast í öðrum. Þess vegnaer rauði þráðurinn í aðgerðum byltingaisinna í öllum iöndum á 1. maí herópið: „NiÐUR MEÐ KAPÍTALISMANN — LIFI SÓSÍALISMINN”. KOMMÚNISTAFLOKKUR ÍS- LANDS, eini flokkurinn, sem túlkað hefur raunverulegar þarfir og hags- muni íslensks verkalýðs og vinnandi alþýðu var lagður niður af stéttsvik- urunum 1938. Það er dagskipun ís- lenskra byltingarsinna að endurreisa kommúnistaflokkinn. Þetta verkefni hafa Baráttusamtökin fyrir stofnun kommúnistafiokks tekið að sér og iagt ótrauð á þá braut að safna sam- an íslenskum marx-lenínistum til stofnunar fiokksins jafnframt því, sem þau hafa rækt verkefni hans eftir mætti. Kommúnistaflokkur íslands verður endurreistur í lok desember 1982. Rauður 1. maí verður að þessu sinni innifundur á Hótel Heklu kl. 4.00. Þar verða viðhorf og markmið BSK rakin. Menningardagskrá verð- ur fléttað inn í á baráttudegi verka- lýðsins. Baráttusinnar og marx-lenín- istar komið á fundinn. öreigar í öll- um löndum sameinist! Niður með kapítalismann — lifi sósíalisminn. Þorleifur Gunnlaugsson. benti á að tvöfalda mætti Fríkirkju- veg og Sóleyjargötu og sagði um það: . . . „en varla eru það margir sem myndu mæla með þeirri lausn.” Mér hreinlega blöskraði sú vanþekking sem kom fram í þessari einu setningu. Staðreyndin er nefnilega sú að þeir eru margir sem sjá ekkert annað en einmitt þessa lausn og hún liggur á borðinu ef bílageymsluhúsið verður reistað óbreyttu. Og þó ég, Kjartan Stefánsson, Þórarinn Hjaltason og fleiri afneiti þessari lausn, þá er svo langt í frá að Sjálfstæðisflokkurinn geri það. Og það er ekki lengra síðan en í morgun (mánudaginn 26. apríl) að Davíð Oddsson, borgarstjóraefni Sjálf- stæðisflokksins, lýsti því yfir í út- varpi að eitt fjögurra meginstefnu- mála íhaldsins í þessum kosningum væri bygging þessa umrædda bíla- geymsluhúss! Og því vildi ég í grein minni 6. apríl vekja athygli á að þess- ar hugmyndir eru langt frá því að vera svo dauðar sem Þórarinn Hjaltason hélt. Kosningarnar 22. maí snúast nefnilega um það hversu margir Reykvíkingar mæla með lausnum íhaldsins í málefnum gamla bæjarins. Afglöpin í skipuiagsmáium En nóg um það. Af hverju hefur þá ekki vinstri meirihlutinn breytt ákvörðunum Sjálfstæðisflokksins um hraðbraut gegnum miðbæinn.um Öskjuhlíð og Fossvogsdal? Svarið er einfalt. 4ra ára kjörtímabil vinstri manna hefur ekki dugað til að vinna nýtt skipulag umferðarkerfis og samþykkja það, þótt vinna við endurskoðunina hafi verið alllengi í gangi. Það var nefnilega ekki aðeins umferðarskipulag Sjálfstæðis- flokksins sem taka þurfti upp frá grunni, heldur bókstaflega allt sem viðkemur skipulagsmálum og til þess eru 4 ár stuttur tími. Nægir þar að nefna aðalskipulag nýrra bygginga- svæða, skipulag nýja miðbæjarins í Kringlumýri, skipulag Eiðsgranda- svæðisins, skipulag Grjótaþorpsins og svo mætti lengi telja upp verk sem þegar er lokið endmskoðun á síðan 1978. En önnur verk eru í miðjum klíðum; skipulag Kvosarinnar, sem haldin verður samkeppni um í sumar, skipulag gamla bæjarins innan Hringbrautar og Nóatúns, umferðar- skipulag miðbæjarins og tengingar við austurborgina, endurskoðun á leiðakerfi SVR og fleira og fleira. 4 ár hafa reynst of stuttur timi til að leiðrétta öll afglöp Sjálfstæðis- fiokksins í skipulagsmálum. Til þess voru þau of mörg og of mikil. Og því er það að við leitum eftir umboði Reykvíkinga til að halda þessu verki áfram. Við viljum áfram standa vörð um svipmót gamla bæjarins og lífga hann, við viljum forðast stórfelldar skemmdir á náttúru og útivistar- aðstöðu við Tjörnina, í öskjuhlíð og i Fossvogi, við viljum tryggja öryggi hins óvarða vegfaranda og bæta al- menningssamgöngur í borginni. Laugavegur að göngugötu Tillögur að nýju umferðar- skipulagi í miðbænum, sem kynntar voru fyrir tveimur vikum, bera vott um þá vinnu sem nú er í gangi á veg- um borgarstjórnar og stefnu hennar. Þar er bent á aðra valkosti en þá sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðið uppá, en tillögugerðinni er langt frá því að vera lokið. Framundan er mikil vinna. Það þarf að efna til víðtækrar umræðu um þessar tillögur og útfæra þær í samráði við þá sem hagsmuna eiga að gæta, íbúa, kaupmenn og farþega SVR. Á Laugavegurinn aðeins að vera fyrir gangandi vegfarendur? Á hann að vera fyrir gangandi fólk og strætis- vagna? Á hann aðeins að vera fyrir gegnumakstur einkabíla? Við vitum að gangandi fólk, SVR ogbílstjórar eiga oft í miklum erfiðleikum við að komast ieiðar sinnar þennan stutta spotta. En Reykvíkingar þurfa að taka afstöðu til þess hvernig á að leysa úr þeim erfiðleikum og hver eigi að víkja fyrir hverjum, SVR, einka- bíllinn eða gangandi fólk. Og meta hvaða afleiðingar ákvarðanir í þessum efnum hafa fyrir miðbæinn. Þessum tillögum hefur hins vegar verið tekið með þögninni einni í her- búðum Sjálfstæðisflokksins, því einnig í þessum efnum hyggjast þeir hverfa aftur til gamla íhaldstímans, endurheimti þeir meirihluta sinn i borgarstjórn Reykjavíkur. Það þekkjum við af fyrri verkum þess flokks, andstöðu hans við skipulags- breytingar á kjörtímabilinu og yfir- lýsingum borgarstjóraefnisins. 26. april, 1982. Álfheiður Ingadóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.