Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Page 36
36
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982.
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
Nancy
ræðir
ekki
fjármái
Ung stjarna á uppleið
— Burt Reynolds, Vittorio
Gassman og fleiri sýna vissulega
góðan leik, en það er Rachel Ward
sem ber höfuð og herðar yfir alla.
Blaðamenn í Hollywood tilnefndu
Rachel nýlega til Golden Globus
verðlaunanna — sem haefileikamestu
nýstjörnuna.
Enda hefur hana ekki skort tilboð-
in eftir að vinnu við Sharkey’s
Machine lauk. Töku á mynd nr. 2,
Dead Men Don’t Wear Plaid, er þeg-
ar lokið, en þar lék hún á móti Steve
Martin. Og þótt um 200 leikkonur
gerðu sér vonir um að hreppa aðal-
hlutverk í nýrri framhaldsmynd fyrir
sjónvarp, Thorn Birds, var það
Rachel sem fór með sigur af hólmi.
Það má því með sanni segja um
Rachel að hún er ung stjarna á
uppleið í Hollywood.
Samkvæmt pottþéttum
heimildum er Victoria
Principal — Pamela í Dallas —
nú yfir sig ástfangin á ný. Ást-
mögurinn nýi er einnig stjarna
úr bandarískum framhaldsþátt-
um sem kallast Magnum P.I.
Þvi miður höfum við íslend-
ingar víst ekki fengið að berja
þá þætti augum enn, en
stjarnan heitir Tom Selleck.
Þau Victoria og Tom hittust
er bæði unnu við kvikmynda-
upptökU á Hawaii og segja
nánir vinir að þar hafi orðið ást
við fyrstu sýn. Samkvæmt
sömu heimildum gátu kringum-
stæður heldur ekki verið heppi-
legri fyrir nýtt ástarævintýri:
Eiginkonan var nýbúin að gefa
Tom Selleck reisupassann og
Victoria Principal var að hugsa
um að gera það sama við ást-
mann sinn, söngvarann Andy
Gibb.
En sem sagt, þau hjúin hafa
verið alveg óaðskiljanleg síðan
og hamingja þeirra yfírgengi-
legri en nokkru sinni fyrr á æv-
inni.
Nancy Reagan (58 ára), for-
setafrú Bandaríkjanna, er iðin
við alls kyns góðgerðarstarf-
semi og nýlega var hún í mikilli
reisu um landið þar sem hún
sótti heim sjúkrahús og sjúkra-
hæli fyrir börn. Hún komst svo
mjög við er hún heimsótti
sjúkrahús í Los Angeles fyrir
krabbameinssjúk börn að hún
brast í grát.
Hún var þó fljót að þurrka
tárin er forstöðumaður sjúkra-
hússins kvartaði undan því að
niðurskurður Reagans á fjár-
framlögum til félagsmála kæmi
hart niður á sjúkrahúsum.
— Ég kom hingað til að
ræða um börn en ekki fjármál,
svaraði forsetafrúin kuldalega.
Það þarf þó nokkuð til að stela
senunni frá Burt Reynolds. En það er
einmitt það sem enska leikkonan
Rachel Ward gerir í mynd hans,
Sharkey’s Machine.
Eftir frumsýningu á myndinni gat
að líta eftirfarandi umsögn frá flest-
um gagnrýnendum í Hollywood:
fíachel Ward og Burt Reynolds:
Hún fékk betri dóma en hann.
Nixon og Kissinger: Kissinger sm/aðraði fyrir forsetanum en
rægðihann útá við.
FORSETI
DRYKKFELLDUR
gjafi Nbtons. Hann segir að Kissinger
hafi smjaðrað fyrir forsetanum, en
síðan gagnrýnt hann opinberlega á
illgjarnan hátt.
Greinarhöfundur vitnar í Roger
Morris, starfsmann í öryggisráði
Nixons. Hefur hann eftir Morris að
hann hafi oft heyrt samræöur á milli
Kissinger og Nixons, og hafi forset-
inn þá greinilega verið dauöadrukk-
inn.
— Morris minnist þess að oft
komu skeyti seint á kvöldin, en
Kissinger réði alltaf frá því að vekja
forsetann þar sem allt tal hans væri
hvort eð er gjörsamlega samhengis-
laust, skrifar Hersh. — Morris hryllti
við þeirri tilhugsun að hafa forseta
sem væri óvinnufær eftir sólarlag.
Hann velti því oft fyrir sér hvað
mundi gerast ef Sovétmönnum dytti i
hug að gera árás á Bandaríkin aö
næturlagi.
Richard M. Nixon var oft svo
drukkinn í Hvita húsinu að Henry
Kissinger varð að afsaka hann þegar
skeyti komu seint á kvöldin. Var
hann þá vanur að segja að það þýddi
ekkert að vekja forsetann þar sem
hann væri hvort sem er ekki fær um
að taka neinaákvörðun.
Þessar upplýsingar koma fram í
grein í tímaritinu Atlantic. Þar getur
einnig aö lesa aö Kissinger hafi ekki
haft mikið álit á helzta meðhjálpaia
sínum, Alexander Haig.
— Haig var tvöfaldur i roðinu.
Hann kom sér vel við Nixon,
Haldeman og aðra háttsetta sam-
starfsmenn sína með því að rægja
Kissinger og halda uppi njósnum um
hann, segir i greininni.
Greinarhöfundur, Seymour M.
Hersh, lýsir einnig tvöfeldni
Kissingers, sem þá var öryggisráð-
Barry Gibh A ad leika Byron lavarö
Agnetha Fa/tskog
Biöur ettir Barry
Anni Frid Lyngstad er nu aö leggja s/öustu hond a ny/a hreiöskitu. en
fram/eiöandi hennar er Phil Co/lins, trommu/eikan Genesis Hin ABBA
stelpan, Agnetha Fa/tskog, er Iika farin aö huga aö nyrri so/o p/otu og er
áæt/aö aö upptaka hefjist i sumar Agnetha xronast til aö fa Barry Gihh /
Bee Gees sem fram/eiöanda, en hann þykir mikill kraftawerkamaöur ettir
aö hann lagöi gjorva hond sina a hina vinsælu plotu Borhru Streisand
Gui/ty. Gihh hefur þegar /ofaö Agnethu aö taka aö ser starfiö en vandama/
iö er aö finna tima, þvi aö Gibh hefur hka tekiö aö ser aö leika hinn k ynvillta
Byron /avarö i k vikmynd sem taka a upp nu i ar
Ahha strakarnir. Benny og Bjorn eru a hinri hoginn onnum katnir viö
lagasmiöar um þessar mundir þvi aö aætlaö er aö ny plata meö o/lum
hopnum komi ut / februar a næsta ari