Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VISIR. FÖSTUDAGUR18. JUNI1982.
3
Undirskríftalistarnir til stjómar VR:
„TILHÆFULAUS ABURDUR
—að st jómendur fyrírtækja haf i skipt sér af málinu,” segir Jóhanna Sveinsdóttir sem gekkst fyrir
undirskríftunum
„Þaö var ég sem ýtti af stað
þessum lista þar sem skoraö var á
stjórn Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur aö boöa til félagsfundar
og leggja fram tillögu um að fresta
verkfallinu,” sagði Jóhanna Sveins-
dóttir ritari hjá Eimskip er hún haföi
samband viö blaöiö.
I frétt DV á miðvikudaginn um
þetta mál kom fram aö innan
stjómar VR teldu menn aö listarnir
væru runnir undan rifjum stjóm-
enda Flugleiða og Eimskips. Einkum
var Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða þar til nefndur, en hann
dvelur hins vegar erlendis. Stjórnar-
menn VR töldu einkaritara hans
hafa gengiö meö lista innan Flug-
leiöa aö undirlagiyfirmanna.
„Þessi áburöur er gjörsamlega
tilhæfulaus. Þaö var sama viö hvem
ég ræddi, allir vom á móti því að
fara í verkfall eöa töldu sig ekki hafa
efni á því. Eg ákvaö því aö hrinda af
stað undirskriftalista sem gekk hér
hjá Eimskipi auk þess sem ég haföi
samband viö starfsfélaga hjá Flug-
leiðum, Heimilistækjum, Hafskipum,
og fleiri fyrirtækjum. Undirtektir
vom mjög góðar eins og sést á því aö
um 200 manns skrifuðu undir á
skömmum tíma. En aö halda því
fram að undirskriftir hafi veriö
geröar aö undirlagi eigenda og
stjórnenda fyrirtækjanna er
alrangt,” sagöi Jóhanna Sveinsdótt-
ir.
Þess má geta aö allmargt félags-
fólk úr VR haföi samband viö blaðiö
og vildi mótmæla aðdróttunum um
aö þessar undirskriftir heföu ekki
oröiö til fyrir tilstilli óbreyttra
félagsmanna. Fullyrðingar um
annaö væri yfirklór forsvarsmanna
VR sem vildu reyna aö bjarga sér út
úr aögerðum er þorri félagsmanna
heföi verið mótfallinn.
-SG
Lára G. Friðjónsdóttir að störfum í atvinnumiðlun námsmanna.
Slæmt ástand hjá námsfólki:
DV-mynd: ÞÓG
Horfur á vinnu mun
verri en í fyrra
„Astandið hjá okkur er mjög slæmt.
Sex hundruð námsmenn hafa skráö sig
atvinnulausa. Við höfum einungis út-
vegað þriöjungi þeirra atvinnu. Horfur
á sumarvinnu eru því mun verri en í
fyrra. Þá voru færri á skrá og fleiri at-
vinnutækifæri buðust,” sagði Lára G.
Friðjónsdóttir, starfsmaður atvinnu--
miölunar námsmanna, í samtali viö
DV.
Hún sagöi einnig aö yfirvofandi
verkföll og óvissan sem því fylgdi
heföi haft mjög slæm áhrif á sumar-
vinnu skólafólks og að lítið væri um að
atvinnurekendur hringdu og óskuðu
eftir starfsfólki. Að sögn Láru eru þaö
helzt störf í fiskvinnslu sem bjóðast
þessa dagana.
Gunnar Helgason, forstööumaöur
Vinnumálastofnunar Reykjavíkur-
borgar, sagöi í samtali viö DV aö verk-
föllin heföu mjög mikil áhrif á sumar-
vinnuna.
„Atvinnurekendur halda algjörlega
aö sér höndum. Þaö ræöur enginn nýtt
fólk til starfa í óvissu sem þessari,”
sagðiGunnar.
Hjá Reykjavíkurborg eru 169 skráöir
atvinnulausir. Á sama tíma í fyrra
voru 144 skráöir þar. Gunnar áætlaði
að þeir hefðu útvegað rúmlega 600
námsmönnum atvinnu í sumar.
-GSG
Nýja símaskráin til-
búin til dre'rfingar
Nýja símaskráin er tilbúin og verður segja aö hún fari inn á hvert heimili. mjög í vöxt aö báðir makar séu skráöir
dreift á Reykjavíkursvæöinu á mánu- Notendur á landinu eru alls 87.867. fyrirsíma.Þaökostar66,65kr.ánsölu-
dag. Skömmu síðar veröur henni dreift Sjálfvirkir símar eru 97% af öllu síma- skatts aö skrá aukanafn á símann.
um allt land. Að sögn Hafsteins kerfinu og stefnt er aö því aö gera það Auglýsingar eru í skránni, eins og
Þorsteinssonar símstöövarstjóra er alltsjálfvirktánæstu4—5árum. verið hefur, og greiða þær og
símaskráin gefin út í 111 þúsund ein- Breytingar frá síðustu símaskrá eru aukanöfnin alian kostnaö við útgáfu
tökum. Hún er því útbreiddasta bók allt aö 24 af hundraöi, þ.e. ný nöfn, simaskrárinnar.
sem gefin er út hérlendis og óhætt aö flutningur og fleira. Þá færist það -JH
fTR FASTEICNA
J-ÍJHÖLUN
FASTEIGNAVIÐSKIPTl
««ðbæb Hi«.etnsanAtrrs8-60
SIMflB 35300435301
H. BRIDDE
S: 13843
ORLOFSHÚSIN SEM REYNAST VEL Á ÍSLANDI.
Húsin falla vel að íslenzku iandslagi.
Einangrunarstaðall fyrir okkur
K-VÆRDI 0,36 W/M2 C°.
Eldhús fylgir og tvöfalt
verksmiðjugler.
VIÐ TEUUM
að notaðir
VOLVO
bflar
séu betri
en nýir bflar
af ódýrari
gerðum
V0LV0 LAPPLANDER ÁRG. '80
ekinn 2000 km. Verö 185.000
V0LV0 244 GL ÁRG. '80
sjálfskiptur, ekinn 37.000 km. Verö 160.000
V0LV0 343 DL ÁRG. 79
sjálfskiptur, ekinn 30.000 km. Verö 98.000
V0LV0 244 GL ÁRG. 79
beinskiptur, ekinn 28.000 km. Verö 135.000
V0LV0 244 GL ÁRG. '79
sjálfskiptur, ekinn 37.000 km. Verö 133.000
V0LV0 244 DL ÁRG. 78
beinskiptur, ekinn 60.000 km. Verö 116.000
V0LV0 244 DL ÁRG. 78
beinskiptur, ekinn 82.000 km. Verö 120.000
V0LV0 244 DL ÁRG. 76
beinskiptur, ekinn 90.000 km. Verð 90.000
Opið laugardag kl. 10—16.
■umuyaiuay m. iu- iu. ■■■
35200 VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT16