Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1982, Blaðsíða 28
Félag f luguntf erðarstjóra samþykkti að reka Ólaf Haraldsson úr félaginu:
ÞESSIBROTTVÍSUN
FÆR EKKISTAÐIZT
— segir Helgi Ágústsson, deildarstjóri vamarmáladeildar
Félagsmenn í Félagi flugum-
feröarstjóra ráku Olaf Haraldsson
úr félaginu í allsherjaratkvæða-
greiðslu. 71 af 79 félagsmönnum tóku
þátt í atkvæðagreiðslunni. 59 voru
fylgjandi brottrekstri en 7 voru á
móti. Fimm seðlar voru auöir.
Atkvæðagreiðslunni lauk í fyrradag.
I 5. grein laga félagsins segir aö
félagsmönnum sé óheimilt að vinna
með þeim sem vikið hefur verið úr
félaginu.
Olafur Haraldsson sagði í samtali
viö DV að úrslitin kæmu sér ekki á
óvart enda hefði tilgangurinn með
atkvæðagreiðslunni verið að reka
sig. Að öðru leyti vildi Olafur ekki tjá
sig um málið.
„Þaö er búið aö vísa honum úr
félaginu og við munum einungis
framfylgja lögum félagsins. Fleira
hef ég ekki um máliö aö segja,”
sagði Hallgrímur Sigurðsson, vara-
formaður félagsins, í samtali viö DV.
Leifur Magnússon, formaður flug-
ráös, sagði að Olafur væri rekinn úr
félaginu fyrir skoðanir sínar sem
hann setti fram í viðræðunefnd um
mannaflaþörf á Keflavíkurflugvelli.
Hann hafi verið að gegna skyldu-
störfum, enda skipaður í viðræðurn-
ar af sínum yfirmönnum. „Það er
mjög alvarlegt ef félagslög koma
þannig í veg fyrir að menn geti gegnt
skyldustörfum sínum án þess að eiga
á hættu að verða reknir,” sagði Leif-
ur.
Málefni Keflavíkurflugvallar
heyra undir varnarmáladeild utan-
ríkisráðuneytisins. DV leitaði álits
Helga Agústssonar deildarstjóra á
atkvæðagreiðslunni. „Tilefni
atkvæðagreiðslunnar er mér mikið
undrunarefni og brottvísun Olafs úr
FlF fær ekki staðizt að mínum dómi.
Hann hefur sinnt störfum sínum vel
og samvizkusamlega og mun áfram
sinna ýmsum störfum hjá flugmála-
stjórninni á Keflavíkurflugvelli.”
-GSG
Mikid skelfing er gaman í dag. Bœöi 17. júní og glampandi sólskin. Finnstþér ekkigamanpabbi? (DV-myndÞórir).
Kjarasamningarnir:
MEIRIVÍSITÖLUSKERÐING
EN ÓLAFSLÖG ÁKVEÐA?
Aöilar að kjarasamningum ræöa nú
hvort semja megi um nánast sömu
kauphækkanir til ASI-fólks og
byggingarmenn fengu en meö meiri
vísitöluskerðingu en felst í Olafslögum.
Hugmyndir um hvemig sl£k vísitölu-
Nær 200 kfló af marijúana gerð upptæk:
VIÐTAKENDUR ENN ÓFUNDNIR
Ekki hefur enn skýrzt hver eða
hverjir viðtakendur kannabisefn-
anna sem hingað komu til lands á
dögunum áttu að vera. Hér er um aö
ræða 189,4 kíló af marijúana sem er
mesta magn fíkniefna er gert hefur
verið upptækt á einu bretti hérlendis.
Fíkniefnin komu hingað frá
Jamaica með millilendingu i New
York. Voru efnin í trékössum,
fjórum talsins, merktum tilteknu
fyrirtæki hér í borg. Var sendingunni
lýst á farmskjali sem varahlutum í
skip.
Það var í apríllok sem efnin komu
hingaö til lands flugleiðis. Síðan þá
hefur verið unniö aö málinu.
Fyrirtækið sem sendingin var stíluð
á bar sig aldrei eftir að sækja send-
inguna og að sögn lögreglunnar
hefur ekkert komið fram er varpað
gæti grun á fyrirtækið.
Þá er og alls ósannað að fíkniefnin
hafi átt að dreifast hér heldur er allt
eins líklegt að þau hafi aðeins átt að
millilenda hér á landi.
Marijúana er algengasta fíkniefniö
á markaðnum í Bandaríkjunum, en
ekki eins algengt hér á landi.
Verðmæti þessara tæpra 200 kílóa er
talið nema rúmum 20 milljónum.
-KÞ.
skerðing yrði í framkvæmd eru ekki
fullmótaöar.
Ætlun þeirra sem að þessum hug-
myndum standa mun vera að koma
kjarabótum aftur sem næst í það far
sem áætlanir voru um áður en
byggingamenn „sprengdu rammann”
og fengu meiri kauphækkanir en reikn-
aö var með. Þetta gerðist með því aö
auka skerðingu á vísitölunni. A þann
hátt yrðu kjarabætur hugsanlega
nokkuð í þeim dúr sem rætt var um
fyrir samninga byggingamanna.
Byggingamenn ákváðu í sínum
samningum aö fara eftir þeirri vísitölu
semASlsemdium.
Traust milli aöila í samningunum
hefur vaxið við f restun verkfalla og út-
lit batnaö. Þó þorir enginnennað spá
samningum á allranæstu dögum.
Næsti samningafundur hefst
klukkan f jögur í dag.
-HH
frfálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR18. JUNÍ1982.
Boris Christoff mun syngja á einum
tónleikum hórlendis. Þeir verða
haldnir i Laugardalshöll á sunnu-
dag.
Boris Christoff:
„Veit ekki
hvort ég er
stjarna”
„Eg veit ekki hvort ég má kallast
stjarna á söngsviðinu, það er annarra
að dæma um það,” sagði Boris
Christoff í samtali við DV. Christoff
hefur notið heimsfrægðar og hylli tón-
listarunnenda í nærri fjóra áratugi og
er gjarnan kallaöur konungur bassa-
söngvaranna. Viðtal við Maestro
Christoff birtist í Helgarblaöi DV á
morgun.
-SKJ
Með bil-
aða vél
við Eyjar
Vélbáturinn Már KO 13 lenti í vand-
ræðum við Vestmannaeyjar í gær
vegna vélarbilunar. Skipverjar sendu
út hjálparbeiðni og fann Sæbjörg SU
bátinn eftir mikla leit og dró hann til
Eyja.
Már lagði af staö frá Sandgerði áleið-
is til Eyja á miönætti i fyrrakvöld. Upp
úr hádegi í gær bilaði vél bátsins
þar sem hann var staddur norðvestur
af Vestmannaeyjum. Veöur var frem-
ur leiðinlegt og þegar ekki tókst að
koma vélinni í gang var sent út neyðar-
kall. Sæbjörg fór þá áleiðis til hjálpar
en fann ekki Má fyrr en um klukkan 19.
Skipverjar á Má höfðu þá skotið
neyðarblysi á loft. Sæbjörg kom með
bátinn til Eyja um klukkan 21.30 í gær-
kvöldi. Þriggja manna áhöfn er á Má.
Báturinn var nýlega keyptur til Eyja.
-FóVm/SG
LOKI
Værí ekki rótt aö reka
flugumferðarstjóra fyrír
brottreksturínn?