Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Síða 1
DAGBLAÐIЗ VÍSIR
209. TBL. — 72. og 8. ARG. — MIÐVIKUPAGUR 15. SEPTEMBER 1982.
DR. KRISTJAN ELDJARN LATINN:
Dr. Kristján Eldjárn, fyrrum for-
seti íslands, er látinn. Hann lést á
sjúkrahúsi í Cleveland í Ohio í
Bandaríkjunum um klukkan átján í
gær að islenskum tíma. Hann var 65
ára.
Dr. Kristján hafði haldið utan fyrir
um hálfum mánuði til lækninga.
Gekkst hann undir níu stunda hjarta-
aðgerð í fyrradag.
Hann gegndi æðsta embætti þjóð-
arinnar um tólf ára skeið, á árunum
1968tU1980.
Hér fer á eftir ávarp frá forseta
íslands, Vigdisi Finnbogadóttur,
vegna fráfalls dr. Kristjáns Eld-
járns:
„Hryggð mín við fráfall dr.
Kristjáns Eldjárns, fyrrverandi for-
seta íslands, er dýpri en ég fæ tjáð i
orðum.
Vér íslendingar, hver og einn,
höfum misst mikinn og mætan vin.
tslensk þjóð sameinast i söknuði og
horfist í augu við örlög, sem kallað
hafa „svo vænan vinnumann af
velli heim á bæ um miðjan dag.”
Dr. Kristján Eldjárn fæddist að
Tjörn í Svarfaðardal 6. desember
árið 1916. Foreldrar hans voru Þór-
arinn Eldjárn, bóndi og kennari, og
kona hans, Sigrún Sigurhjartar-
dóttir.
Hann varð stúdent frá Menntaskól-
anum á Akureyri árið 1936. Var hann
þvi næst við nám í Kaupmannahafn-
arháskóla til ársins 1939. Mag. art.
próf tók hann við Háskóla íslands
árið 1944.
Dr. Kristján Eldjám (1916-1982).
Hann var skipaður þjóðmin javörð-
ur árið 1947. Því starfi gegndi hann
til ársins 1968 er hann var kjörinn
þriðji forseti íslenska lýðveldisins.
Doktorsritgerð varði hann árið 1957.
Eftirlifandi kona hans er frú Hall-
dóra Ingólfsdóttir Eldjárn. Þau eign-
uðust f jögur böm.
-KMU.
- sjá svipmyndir af
og leiðara á bls. 12
„VÉR ÍSLENDINGAR,
HVER OG EINN,
HÖFUM MISST MIK-
INN OG MÆTAN VIN”
—segir forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, í ávarpi
vegna fráfalls fyrrum forseta íslands
Grace furstafrú og fjölskylda hennar dvaldi nýlega
á íslandi eins og fram kom i fréttum. Myndin var
tekin er furstahjónin komu til Bessastaða.
Grace furstafrú lést
af völdum bílslyss
— sjáerl.fréttirbls.9
Gemayel,
nýkjörinn
Líbanonfor-
seti myrtur
—sjá erl.fréttirbls.8
lolíuleitíFlatey
—sjá bls. 2-3
Sáralítið fannstaf
þorsk- ogýsuseiðum
— Ijóst að árgangur 1982
verðurafarlélegur
— sjábls.4
Hvað erJC?
— sjá Dægradvöl bls. 36-37
Hvað verðurum
áfengisútsölu
Skagamanna
— sjá lesendabréf bls. 16-17