Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Qupperneq 2
2 DV. MIÐVKUDAGUR 15.SEPTEMBER 1982. Björg og Hreinn handlékn oliutunnumar, sem að likindum geyma rússneska olíu—allavega enn sem komið er. Sesselja Jónsdóttir er ráðskona hópsins og vildi hún ekld viðurkenna, að bormenn væru matvandir. „Við þorum ekki að kvarta, því að þá er hún vis til að byrla okkur eitthvert helvítis eitur,” sagði þá Hreinn og glotti við, en hann og Sesselja era hjón. IOUULEITIFLATEY — Skyldi finnast olía í setlögunum undir Flatey? „Við kunnum Ijómandi vel við okk- ur hér í Flatey, ekki síst vegna þess hvað hér er friðsælt og stresslaust umhverfi. Til að byrja með hoföum við ekkert útvarp, sjónvarp sjáum við ekki og engin dagblöð hafa borist enn sem komið er. En aðbúnaðurinn er góður og okkur líður vel,” sagði Sigurgeir Ingimundarson, verkstjóri hjá Jarðborunum rikisins, þegar við ræddum saman yfir kaffibolla úti í Flatey á Sk jálfanda á laugardaginn. Sigurgeir hefur verið í Flatey síðan á fimmtudaginn, ásamt Hreini Sigurgeirssyni, Gunnari Hólm, Björgu Pétursdóttur og Sesselju Jónsdóttur. Aðrir íbúar eru ekki í eynni, en byggð þar lagðist af 1967. Nokkrum íbúðarhúsum er þó haldið við og gamlir Flateyingar og afkom- endur þeirra hafa sumardvöl i eynni. Þá hefur verið stunduð útgerð frá eynni vor og sumur. Finnst olía í Flatey? Verkefni Sigurgeirs og félaga í Flatey er að bora 400—500 m djúpa holu með jarðbomum ,JJrífanda”, eins og það tæki er nefnt á „fínu máli” hjá Jarðborunum ríkisins. Meðal starfsmanna er hann þó oft nefndur þvi óvirðulega nafni „Hroll- ur”, sem er tilkomið vegna þess hve hrollvekjandi tækið var þegar það f^st kom til starfa hjá Jarðborun- um. Tilgangurinn með boruninni er að kanna setlög undir eynni, sem ef til viil hafa að geyma gasefni eða olíu. Kjaminn úr borholunni verður rannsakaöur af sérfræðingum hér og í NoregL Sigurgeir og féiagar hans, ásamt „Hrolli” og öðrum búnaði, komu til Flateyjar með nýja Drang. Drangur er búinn kröftugri bómu, sem fór létt með að sveifla „Hrolli” langt upp á bryggju, að sögn Sigurgeirs. — Ég komst hins vegar út í eyju fyrir til- stuðlan Siguröar Aöalsteinssonar hjá Flugfélagi Norðurlands. Hann útveg- aði mér „Super Cub” til fararinnar, en það er einshreyfils flugvél, sem Víðir Gislason hafði öruggt taum- hald á í ferðinni. Hentar þessi vél sérstaklega vel þar sem lendingar- skilyrði eru slæm, eins og á við um Flatey. Þar var raunar ágætur flug- völlur, aö vísu grasvöllur, en hann hefur nú verið eyðilagður. En það er önnur saga, sem sögð verður í DV næstu daga. Myrkranna á mi/fí Bormennimir í Flatey em að myrkranna á milli 10 daga í senn. Þá fá þeir fri í 4 daga og fara heim. Sigurgeir sagðist aðeins verða nokkra daga í eynni, á meðan borun- in væri að komast í gang, en hann sagði aö til stæði að bæta viö bor- mönnum, þannig að hægt verði að taka upp vaktir. En til aö úr því geti orðið þarf að vera völ á vönum mannskap. Þaö þarf nefnilega æfð handtök við ,3roll” og að sögn Sigurgeirs þarf mannskapurinn að vera samhentur. Borinn er austast á eynni, nokkra metra frá vitanum og steinsnar frá B jargi, þar sem bormennimir búa. Finnst olía í Flatey? — En hvers vegna er verið að leita eftir olíu á Skjálf anda ? „Olía er talin myndast úr leifum lifvera, sem setjast fyrir í seti á sjávarbotni eða í vötnum. Þær lifver- ur, sem leggja mest af mörkurn, eru plöntu- og dýrasvif, en sumsstaðar er framburður plöntuleifa af landi einnig mikilvægur”, sagði Karl Gunnarsson, jarðeðlisfræðingur m.a. í yfirlitsskýrslu um hafsbotninn umhverfis Island, þar sem hann fjallar m.a. um myndun oliu. Allmikil lægö er á hafsbotninum frá mynni Skjálfanda út fyrir mynni Eyjafjarðar, að þvi er fram kemur i skýrslu Karls. Síðan segir í skýrsl- unni: „Þessi þyngdarlægð bendir til þess að nokkuð þykkt set hafi safnast i sigdæld, sem myndast hefur í mis- genginu. Ein mælilina Westem Geophysical Co. fer yfir setdældina út af mynni Eyjafjarðar. Þær mæl- ingar sýna lagskipan og endurkast- fleti á miklu dýpi, og gefa ástæðu til aö ætla að setiö sé allt að 4 km á þykkt í dældinni. Flatey á Skjálfanda situr ofan á setdældinnL Eyjan er hlaðin upp af basalthraunum, og sýn- ir að basaltmyndanir hylja nokkum hluta setsins.” Síðan leiðir Karl rök að þeirri ályktun, aö setdældin hafi vart byrjað að myndast fyrr en fyrir 6 milljónum ára. Um hugsanlega olíu- myndun í setdældinni, sem Flatey trónir á, segir Karl: „Þótt engar upplýsingar liggi fýrir um gerð þessara setlaga, má athuga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.