Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Síða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR15. SEPTEMBER1982.
5
Listdansskóli
Þjóðleikhússins
Inntökupróf í listdansskólann veröa laugardaginn
18. september kl. 14. Endurinnritun eldri
nemenda verður fimmtudaginn 16. september kl.
17—19 og hafi þeir meö sér stundaskrá.
Skólastjóri.
DV-mynd GTK.
Fundurinn hjó blaflamannaklúbbnum í Washington: Þar voru þafl afleins prinsar og prinsessur sem
blaflifl og minnist ekki einu orfli á Vigdisi.
Fáránleg sýning á
snobberíi og tignarfólki
— segir Ekstra blaðið um samnorrænu kynninguna, Scandinavian Today
Menningarsókn Dana í Banda-
ríkjunum, Scandinavia Today, sem
kostar skattgreiðendur tugi milljóna
króna er ekki bara jafnvafasöm og
nýju fötin keisarans heldur líka fárán-
leg sýning á snobberíi og tignarfólki,
segir í Ekstra blaöinu danska um
þessa umdeildu samnorrænu
kynningu.
Blaðiö ræðir síðan blaðamannafund
sem haldinn var fyrir bandariska
blaðamenn í Washington og segir að
menningarráðherra Dana, Lise öster-
gaard, hafi haldið þar bamalega, póli-
tíska ræðu sem enginn innlendra hafi
botnaö neitt í.
— Eina menningarframlag Dana
við þetta tækifæri var rauðgrautur
með rjóma sem enginn haföi lyst á,
heldur blaðið áfram. — Svíar og Norð-
menn sem gína yfir flestum atriðum
dagskrárinnar mættu svo á blaða-
mannafund hjá Alþjóða blaðamanna-
klúbbnum með krónprinsana Bertil og
Harald og prinsessurnar Lillian og
Sonju, en vitnað var í hana í Washing-
ton Post næsta dag en hins vegar var
ekki minnst einu orði á Danmörku.
— Á meöan Svíar og Norðmenn
fleyttu rjómann af þessu eina atriði
sem fékk rækilega blaðakynningu var
Hinrik prins í New York þar sem hann
skemmti sér með listamönnum og
tískufólki. Á fimmtudag flaug hann svo
í leigðri þotu til Washington og hélt
ræðuna sem Margréti drottningu hafði
verið ætlað að halda við opnun
samnorrænnar málverkasýningar.
Þar voru m.a. myndir eftir P. S.
Kröyer, Michael Ancher og Hammer-
höj. Fáir gátu séð samhengi á milli
þeirra og Skandinavíu nútímans
(Svandinavia Today) þar sem þeir eru
allir látnir.
— Heil bílalest, sumir með vælandi
sírenur, fylgdu Hinriki til safnsins.
Þangað hafði verið boðið 500 uppá-
búnum tignarmönnum, þar á meðal
Henry Kissinger. Var hann einn af
þeim mörgu sem ekki létu sjá sig.
— Þeir sem neyddust til skoðuðu
málverkin en flestir skunduöu beint að
kalda borðinu og ræddu stjórnmála-
ástandiö í Bandarikjunum. Áttu
Kanarnir í stökustu vandræðum með
að átta sig á matnum norræna. Margir
settu rjómapiparrót í kramarhúsin sín
en yfirmaður FBI ergði sig yfir að hafa
sett sinnep á graflaxinn sinn. Þetta var
svo ein af sögunum í Washington Post
næsta dag.
Það skal tekið fram aö hvergi er
minnst á Island né íslenska forsetann í
þessari hörðu gagnrýni blaðsins á
Scandinavia Today.
-JÞ.
SIMI27015 KL. 2
Innritun í skólanum, Stórholti 16, daglega kl.
2—7 síödegis, sími 27015.
Upplýsingar á öörum tímum í síma 85752.
Kvöldtímar fyrir fulloröna
Hljódfæri á staönum
Eldri nemendur sem halda áfram
hafi samband sem fyrst
SUMARAUKI
í MALLORKA
SÓL
LÚXUSVILLUR í SÓLSKINSPARADÍS
OG ÓKEYPIS BÍLALEIGUBÍLL
Beint leiguflug til Mallorka
28. september.
Fjögurra vikna dvöl i lúxusvillum
(bungalows) eða ibúðum á einum
fegursta og eftirsóttasta ferða-
mannastaðnum á Mallorka, Puerto
de Andrtaitx.
Óviðjafnanleg náttúrufegurð. Mini-Folies býður upp á allt það sem hugur
ferðamannsins girnist. Þrjár sundlaugar og barnalaug, frábær útivistar- og
sólbaðsaðstaða, veitingastaðir, skemmtistaðir og diskótek, iþrótta-
miðstöð, fjórir tennisvellir og tennisskóli, sauna-böð leikfimisalir með
æfingatækjum og verslunarmiðstöð.
TAKIÐ EFTIR - TAKMARKAÐUR
ÞESSUM VILDARKJÖRUM.
SÆTAFJÖLDI Á
AMSTERDAM,
FÖGUR OG HEILLANDI BORG.
í boði er gisting í glæsilegum
villum og íbúðum af mis-
munandi stærðum.
Innifalið: Flugferðirnar, ferðir milli flugvallar og gististaðar,
gisting, bílaleigubíll í eina viku með ótakmörkuðum kíló-
metrafjölda og skyldutryggingu, íslenskur fararstjóri.
Verð frá
kr. 8.900,-.
Miðstöð menningar og iista. Fjölbreyttar
skemmti- og skoðunarferðir. Ein hagstæð-
asta verslunarborg Evrópu. Draumaborg
sælkerans með fjölbreytilegum veitinga-
stöðum. Glaðvært skemmtanaiif. Amster-
dam er sérkenniieg og fögur borg. Feneyjar
Norður-Evrópu með ótal borgarskurðum
með liflegri umferð þar sem sérkennilegur
Nánarí
upplýsingar
á skrífstofu
okkar.
og fagur, fíæmskur byggingarstíllinn spegi-
ast á ijúfum síðsumardögum. Kynnið ykkur
fjölbreytta haust- og vetraráætlun.
ÞAÐ KOSTAR ÓTRÚLEGA LÍTIÐ
SKREPPA í VIKU TIL AMSTERDAM.
AÐ
VERÐ FRÁ:
4 dagar 4.900.00
5dagar 5.300.00
1 vika 6.200.00
Ferðaskrifstofan Laugavegi 66,
101 Reykjavík, Sími: 28655