Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Page 7
DV. MIÐVKUDAGUR15. SEPTEMBER1982.
Neytendur Neytendur Neytendur
Þingað var i Þingholti um notkun flúors til varnar gegn tannskemmdum. Nokkir þátttakenda é þinginu eru
hér á myndinni.
DV-mynd: GVA.
Vísindamenn
þinga um flúor
— lítið dregið úr tannskemmdum hérlendis þrátt fyrir
fyrirbyggjandi starf í skólum
1 síðustu viku — eða dagana 8.-9.
sept. — var haldið flúorþing í
Reykjavík. Markmið þingsins var aö
kynna nýjustu rannsóknir á hvernig
flúor verði notaður á öruggastan og
hagkvæmastan hátt gegn tannsjúk-
dómum. Til þessa þings var boðað af
Tryggingastofnun ríkisins, Sam-
bandi ísl. sveitarfélaga, Reykja-
víkurborg og Landlæknisembættinu.
Þátttakendur á þinginu voru ís-
lenskir vísindamenn og stjórnendur
heilbrigöismála, svo og vísindamenn
frá Norðurlöndum.trlandi og Banda-
ríkjunum.
Til umræðu var notkun efnisins flú-
or á tvennskonar hátt, inntaka eða
útvortis meðferð. Inntaka flúors fer
fram með blöndun efnisins í neyslu-
vatn, fæðu eða meö töflugjöf.
Samkvæmt upplýsingum frá
Tryggingastofnun ríkisins er var-
lega áætlaöur kostnaður hins opin-
bera viö tannviðgerðir árið 1982 tal-
inn veröa um 120 milljónir króna.
Fyrir þessa upphæð mætti byggja 20
þriggja deilda barnaheimili, eöa 4
grunnskóla fyrir 500 nemendur,
hvort tveggja með öllum búnaði. Eöa
þá 4 stór keppnisíþróttahús. Hér er
ekki talinn með kostnaður borgar-
anna og öll þau óþægindi sem af
tannskemmdum stafa.
WHO mælir með
flúorbætingu neysluvatns
Tugir milljóna manna um víða
veröld neyta nú vatns í fæöu með
auknu flúorinnihaldi.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) mælir með flúorbætingu
neysluvatns. Bandaríkjamenn hafa
um 50 ára reynslu af flúorblöndun. A
Irlandi var flúorbæting neysluvatns
lögboöin fyrir um tuttugu árum.
Útvortis flúormeðferð fer fram
með flúorburstun, skolun eöa pensl-
un. Hafa Danir til að mynda lagt
mikla áherslu á slíka flúormeðferð
og nær tekist aö útrýma
tannskemmdum í skólabörnum á
þann hátt. Þrátt fyrir mikið fyrir-
byggjandi starf tannlækna í gcunn-
skólum hér á landi og aukna al-
yienna fræðslustarfsemi virðist lítið
draga úrtannskemmdumhérlendis.
Drykkjarvatn er hér mjög flúor-
snautt og hefur getum verið aö því
leitt að samband kunni að vera á
milli þess og hinna miklu tann-
skemmda.
Á flúorráðstefnunni skiptust'
menn á gagnlegum upplýsingum og
þekkingar, var aflaö um gildi flúors
fyrir heilbrigöi tanna. Á grundvelli
þeirrar þekkingar verða væntanlega
teknar ákvarðanir um framtíðar-
stefnu Islendinga í tannvemdar-
málum.
-ÞG.
Smáhlutir í skápum
allir á snúningsdisk
— þá eruílátin
auðfundin
,,Hvar er sósuliturinn, ég hélt að
hann væri hér einhvers staðar.” Þetta
verður mörgum að orði er þeir líta í
eldhússkápinn og færa til krukkur,
flöskur og glös, til að sjá þau ílát, sem
em innarlega í skápnum. Þetta vanda-
mál er úr sögunni ef hafður er
„snúningsdiskur” inni í skápnum. A
þá er ýmist raðað kryddi, í mat-
vöruskápum eða þvottaefnum þar sem
þau em geymd, eða hverju sem geymt
er í eldhússkápum. Þá þarf ekki lengur
að færa hlutina til, disknum er snúið og
úrvalið í skápnum kemur í ljós.
Þessir snúningsdiskar em úr plasti
og eru þeir framleiddir í Þýskalandi.
Einn diskur kostar 55 krónur en tveir
saman með súlum á miili kosta 85
krónur. Diskarnir em fáanlegir I
allavega litum og fást í flestum
búsáhaldaverslunum.
-RR.
Tveir snúningsdiskar kosta 85 krónur. Hlutimir aru mun aflgengílegri á plötu sem
snýst, en á stórri hillu, þar sem aðeins sást i fremstu glösin.
7
CITRC VARAHI Frambretti — grill — svuntur — stuðarar — húdd — framhurðir — afturhurðir — afturbretti — skuthurðir — hemladiskar — hemlaklossar — kúplingsdiskar — kúp- lingspressur í GS, GSA, CX. 5ÉRA LUTIR , Driföxlar (hjöruliðir) — hjólalegur — stýrislegur — spindilkúlur — klafa- fóðringar — ballansstanga- fóðringar. Allt í pústkerfið í GS og GSA og margt fleira.
E.ÓSKARSSOn. ^ SKEIFUNNI5 SÍIVII 33510 OG 34 504 REYKJflVÍK j
ÞESSI JEPPABIFREIÐ ER TIL SÖLU
Tegund:
Willys Ren&gade
árg. 1978 C. J. 7
Vél 6 cyl., 258 cub.,
Uppl. í sima 91-34203 miðvikudag, fimmtudag og
föstudag milli kl. 17 og 21.
^ 1
Breidd 120 cm
Verð frá 2500
fA A A A A A
ÍU.
Húsgagnadeild _
J|i| _____________________
Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Simi 10600
-j'jum.rn
unnuuuuuuiiHh
ÓDÝRAR
BÓKAHILLUR
fáanlegar úr
eik og teak
ogfuru
Stærð:
Hæð 190 cm
Dýpt 26 cm
Breidd 60 cm
Verðfrá 1460
Breidd 90 cm
Verð frá 1680