Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Page 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 15.SEPTEMBER 1980.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Frá heimsókn furstafjölskyldunnar í Mónakó til tslands sl. snmar. Taliö frá hægri: Vigdis Finnbogadóttir, forseti tslands, Grace furstafrú, Karólina prinsessa, Rainier fursti og Albert prins.
Grace furstafrú fórst af
Grace furstafrú af Mónakó, sem á
sínum tíma sneri baki viö stjömu-
himni Hollywood til þess aö giftast
einum af furstum Evrópu, andaðist á
sjúkrahúsi í gærkvöldi vegna
meiösla sem hún hlaut í bílslysi á
mánudaginn.
Læknar höfðu þá í hálfan annan
sólarhring barist fyrir lífi hennar, en
fengu ekki við neitt ráöiö.
Banameiniö er sagt vera heila-
blæðing.
Furstafrúin haföi mjaðmar-
brotnaö, viöbeinsbrotnað og rif-
brotnað þegar hún missti stjórn á
bifreið sinni á krókóttum veginum í
bröttum brekkunum á leið til
Mónakó. — En hún hafði í fyrstu ekki
verið talin í neinni lífshættu.
Þjóðarsorg ríkir í furstadæminu.
Spilavítunum var lokað í nótt vegna
fréttarinnar. Lögreglan hefur
mikinn viðbúnað vegna hugsan-
legrar umferðarteppu sem búast má
við af samansöfnuöi syrg jenda.
Furstafrúin var dóttir írsks inn-
flytjenda í Fíladelfíu en varð heims-
fræg kvikmyndastjama. Minnast
menn enn Grace Kelly úr myndum
eins og High Noon, Dial M For
Murder, Rear Window og The
Country Girl. Hún vann til æðstu
verðlauna Hollywood og var meðal
hæstlaunuðu leikkvenna.
26 ára gömul sneri hún baki við
kvikmyndunum til þess að ganga að
eiga Rainier fursta af Mónakó og
helgaði sig þaðan í frá eiginmanni og
fjölskyldu. — I blaðaskrifum 1956
var því spáð að hjónabandiö mundi
aidrei endast og að leikkonan hefði
einvörðungu gifst hinum 32 ára
fursta titilsins vegna. Það átti eftir
að afsannast rækilega.
Saman stýrðu þau þessu smáríki,
sem varð eitt af glæsilegustu
afdrepum auðkýfinga og áhrifa-
manna, auk glaumgosa og „þotulífs-
fólks”.
Fyrsta barn þeirra, Karólína prin-
sessa, fæddist 1957, en ríkisarfinn
Albert prins fæddist árið eftir.
Yngsta barnið, Stefanía prinsessa,
fæddist 1965.
Stefania prinsessa var í bif reiðinni
með móður sinni, þegar slysið varð á
mánudaginn. Hún hlaut lítils háttar
heilahristing en útskrifaöist sam-
dægurs af sjúkrahúsinu.
Það er talið, að hemlar bifreið-
arinnar hafi bilað og að furstafrúin
hafi reynt að stöðva bilinn með því
aö aka honum utan í öryggisgrind-
verk. Sjónarvottur, garðyrkjumaður
einn, sagði að við áreksturinn hefði
bíllinn (10 ára Rover) snúið alveg við
á veginum og síðan oltíð nokkrar
veltur uns hann stöðvaðist 40
metrum neðar á veginum. Eldur
kom upp í vélarhúsi bifreiðarinnar
en garðyrkjumaðurinn hafði slökkvi-
tæki í sinum bíl og náði að slökkva
eldinn nær samstundis.
' Guðmundur Pétursson
Hann hjálpaði Stefaníu prinsessu
út úr bifreiðinni, en furstafrúin haföi
kastast aftur í aftursætið og urðu þau
að bíða þar til sjúkraliðið var komið
á vettvang en þaö náöi hinni slösuöu
út um afturgluggann.
Bandaríska kvikmyndastjarnan Grace Kelly stóð á hátindi frægðar slnnnr er
hún giftist Rainier fursta. Hér sjáum við hana ásamt James Stewart í mynd-
inni Glugginn á bakhliðinni.
AUGLÝSINGADEILD
SÍÐUMÚLA
33
Síminner 27022.
Smáauglýsingar
jÞverhoIti 11
Sími27022