Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1982, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1982, Qupperneq 32
NÝJA AGFAFILMAN ÓTRÚLEGA SKÖRP OG NÆM FYRIR LITUM ÓDÝRARI FILMA SEM FÆST ALLS STAÐAR PIERPODT Svissnesk quartz gœða-úr. Fást hjá flestum úrsmiðum AUGLÝSINGAR AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1982. . Hrottaleg árásá lögreglumann Tuttugu og tveggja ára gamall lögregluma&ur varö fyrir hrottalegri líkamsárás í Breiöholti um klukkan átta í gærkvöldi. Fjórir unglingspilt- ar voru að verki og slógu þeir hann hvað eftir annaö í andlitið. Munu meiösl hans vera talsverð. Hann er nefbrotinn, meö skurö fyrir ofan augun og bólginn. Piltamir náöust allir og eru þeir nú i gæslu á Upptökuheimilinu í Kópavogi. Lögreglumaðurinn var á gangi eftir Suöurhólum er piltarnir komu að honum. Einn piltanna mun hafa barið hann hvað eftir annað í andlitið á meöan hinir héidu honum þannig aö hann gat sig hvergi hreyft. Piltarnir hlupu síöan í burtu og skyldu manninn eftir liggjandi í sárum sínum. Vitni voru að árásinni. Piltarnir fundust skömmu síöar. Þeir eru á aldrinum þrettán til fimmtán ára og hafa allir komiö við sögu lögreglunnar áöur. I septemberbyrjun réöust þeir á ungan mann fyrir utan Austurbæjar- bíó og böröu hann til óbóta. Lög- reglan komst í þaðmál, en maðurinn vildi ekki kæra piltana. -JGH. Hækka, hækka Um næstu mánaðamót hækkar gjaldskrá Pósts og síma um 19% vegna símaþjónustu og um 16% vegna póstþjónustu. Dagvistunar- gjöld hækka enn fremur um 19,27 til 19,76% þann 1. nóvember. Verölags- yfirvöld hafa einnig heimilað 10,5 til 14,0% hækkun á unnum kjötvörum. Margar beiönir um hækkanir liggja óafgreiddar h já Verölagsráöi. -SKJ Breiðafjarðarferjan: Sigtingamálastjóri athugartilbodin Ákvöröunar um smíði nýrrar Breiðafjaröarferju er ekki að vænta allra næstu daga, samkvæmt upplýs- ingum frá samgönguráöuneytinu. Siglingamálastjóra hefur veriö faliö að fara í sumana á tilboðunum í bæði skipin sem teiknuð voru og gefa ráðuneytinu matsgjörð á þeim. Um er aö ræða bæöi verðmat og mat á skipagerðinni. JBH LOKI Ég legg til að blandað verði apótekaralakkrís í vatnið. Útgáfa námsgagna sem næst stöðvuð —fjárlagaf rumvarpið gæti kyrkt stof nunina „Það er óhætt aö segja að Náms- gagnastofnun þurfi aö skera starf- semina stórlega niöur. öll útgáfa námsgagna hefur veriö því sem næst stöövuð,” sagði Ásgeir Guðmunds- son námsgagnastjóri í samtali við DV í morgun. „Lagerinn tætist upp og við komum ekki út námsgögnum sem átti aö gefa út í framhaldi af ööru námsefni. Námsgagnastofnun er bæði f járvana og skuldug. Ef fjár- veitingar til stofnunarinnar verða samkvæmt fjárlagafrumvarpinu þá er veriö að kyrkja hana,” sagði Ásgeir. Námsgagnastofnun hefur búið við afar þröngan kost undanfarin ár og ástandið fer stöðugt versnandi. Á þessu ári hefur stofnunin óskaö eftir aukafjárveitingu, en aö sögn Ásgeirs hefur hún aöeins fengið lítinn hluta þess f jár sem beðið var um. Ásgeir ságði að ýmis brýn verkefni Náms- gagnastofnunar sætu á hakanum, til að mynda þau sem varða fræðslu- myndasafn og videovæðingu skólanna. „Menntamálaráðuneytið hefur stutt við bakiö á Námsgagnastofnun og gert tillögur um úrbætur,” sagði örlygur Geirsson, deildarstjóri fjár- máladeildar menntamálaráðuneyt- isins. „Fjárveitingar til stofnunar- innar hafa tæpast haldiö í við verð- bólguna og fjárveitinganefnd hefur verið gerð grein fyrir vandanum,” sagði örlygur. Hann kvað endanlega ákvörðun í þessu máli vera i höndum fjármálaráðuneytis og alþingis. -SKJ A morgun gengst Landsráð gegn krabbameim fyrir fjársöfnun um landallt. Þá munu sjátfboðaliðar heimsækja hvert heimili á landinu og taka við frjálsum framlögum. Á myndinni má sjá Bjöm Tyggvason, aðstoðarbanka- stjóra Seðlabankans, taka við söfnunargögnum sinum, en hann er einn hinna fjöímörgu sjálfboðaliða. Forseti Islands, forsagtísráðherra og blskup- inn yfir íslandi hafa sent frá sár ávarp, þar sem þessir æðstu embættis- menn þjóðarinnar hvetja alla landsmenn til öfíugrar liðveislu iþessu þjóð- arátaki. DV-mynd EÓ/óm Ríkisstjómin stefnu- laus í vaxtamálunum — sérstök ráðherranefnd leitar sátta um vexti afurðalána Seðlabankinn er nú í þann veginn að gefa út tilkynningu um vaxtahækkun á almennum lánamarkaði um 8—9% á innlánum og 6—7% á útlánum, en að sjálfsögðu mun minni hækkun á vöxt- um verðtryggðra lána. Ríkisstjómin hefur á hinn bóginn ekki tekið afstöðu til vaxtahækkunar á afuröalánum, sem eru á hennar könnu. Sérstök ráð- herranefnd leitar sátta í málinu. Eins og kunnugt er hafa legið fyrir tillögur frá Seölabankanum um vaxta- hækkanir síðan í ágúst. Bankinn ákveður raunar almennu vextina, að- •eins með vitund ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt Olafslögum ber ríkis- stjórninni hins vegar að taka endan- lega ákvörðun um vexti endurkaupa- lána, rekstrarlána og afurðalána at- vinnuveganna, en þeir vextir eru nú 29%. Ríkisstjórnin hefur ekki tekið af skarið í sínum þætti vaxtamálanna og ekki hefur þótt efnilegt að hækka al- mennu vextina en skilja vexti afurða- lána eftir. Slík tilhögun opinberaði stefnuleysi ríkisstjórnarinnar í vaxta- málum. Á ríkisstjómarfundi í gær lágu tillög- ur ekki enn fyrir og var ósamkomulag um afgreiðslu vaxtamálanna. I morgun var ekki ljóst hvort Seðla- bankinn myndi bíða með sín vaxtamál fram eftir degi eða til mánudags. Ráðherranefndin sá hins vegar fram á helgarvinnu í vaxtamálum ríkis- stjómarinnar. HERB Þverfjall rannsakað Sérfræðingar frá Flugmála- stjóm, formaður rannsóknar- nefndar flugslysa og maður frá Pósti og síma fóm upp á Breiða- dalsheiði i gær og skoðuðu fjar- skiptastöðina á Þverfjalli. Til- gangurinn var að leita að orsökum þess að flugfjarskiptasendir varö óvirkur síðastliðinn þriðjudags- morgun, skömmu eftir að flugvélin TF-MAO f ór í loftið frá SuðureyrL 1 ljós kom að varaaflstöð hafði stöðvast er öryggi sló út af ástæðum sem ekki eru kunnar. Vélar frá Flugmálastjórn og Vamarliðinu leituðu í gær að týndu flugvélinni. Beindist leitin aðallega að því að hlusta eftir hugsanlegum sendingum frá neyðarsendi flug- vélarinnar. —KMU,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.