Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Síða 4
Rækjubáturinn Siggi Sveins kemur að landi með góðan afla.
. ÞRIÐJUDAGUR 16.NOVEMBER1982.
ViKuhríngja
íKóiumbíu?
Símnotendur á Islandi, sem
áhuga hafa, geta hringt til Banda-
ríkjanna í síma 1 307 410 6272 og
fylgst meö samtölum áhafnar
bandarísku geimferjunnar Kólum-
biu við stjórnstööina í Houston 16.
nóvember frá kl. 04.00 um nóttina
og þar til hún lendir kL 14.28.
Ámi Kristjánsson.
Fyrstu
tónleikar
Kammer-
Mokaflthjá rækjubát-
um við ísafjarðardjúp
Mokafli hefur verið hjá rækju-
bátum viö Isafjaröardjúp frá byrjun
vertiöar, sem hófst 2. nóvember sl.
30 bátar stunda nú rækjuveiðar í
Isafjarðardjúpi frá Isafiröi, Bolung-
arvík og Súðavík. Hver bátur má
veiða 6 tonn á viku en ley filegur afli á
dag er 2 tonn á bát. Sú rækja sem
veiðst hefur er mjög góð. Bátarnir
UPPSAGNIR Á SKEIÐFAXA
— starfsmenn óánægðir með hvernig staðið er að samdrættinum
Tveimur af f jögurra manna áhöfn
Skeiðfaxa, flutningaskips Sements-
verksmiðju ríkisins á Akranesi,
hefur verið sagt upp störfum. Eins
og sagt var frá í DV í síðustu viku
hefur allri áhöfn hins flutningaskips
Sementsverksmiðjunnar, Freyfaxa,
verið sagt upp vegna þess að ekki er
fyrirsjáanlegt að verkefni finnist
fyrir skipiö nema fram til næstu
mánaðamóta.
Mikil óánægja rikir meðal starfs-
manna með þessar uppsagnir, sér-
staklega vegna þess að þeir tveir af
áhöfn Skeiðfaxa sem halda vinnunni
hafa styttri starfsaldur en þeir sem
sagt var upp. Friðrik Jónsson, út-
gerðarstjóri Sementsverksmiðj-
unnar, sagöi í samtali við DV að
ástæðan fyrir því væri sú að þeir
tveir menn sem eftir verða hafi veriö
ráðnir sérstaklega á þetta skip en
hinir ekki.
Tveir af áhöfn Freyfaxa munu
taka við störfum á Skeiðfaxa.
-ÓEF.
hafa yfirleitt veriö búnir með viku-
skammtinn á þremur dögum og hafa
fengið allt upp í 2 tonn í klukkutima
togi. V.J./PÁ
klúbbsins
Fyrstu tónleikar Kammermúsík-
klúbbsins í vetur verða haldnir á
Kjarvalstöðum i kvöld, kl. 20.30.
A efnisskránni eru verk eftir
Jóhannes Brahms og Pétur
Tsjækovskí, tríó í C-moll opus 101
eftir þann fyrri en tríó í A-moll op.
50 eftir þann seinni.
Flytjendur verða
Árni
Kristjánsson píanóleikari, Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari og
Gunnar Kvaran, sellóleikari.
-ihb
Slökkvistöðin sér um
rekstur neyðarbíls.
Jón Ingvar Ragnarsson, læknir á
Borgarspítalanum, hringdi og vildi
koma því á framfæri að í frétt í DV
hefðu komið fram rangar upplýs-
ingar um neyðarbílinn. Eftir honum
var haft að Rauði krossinn sæi um
rekstur neyðarbQsins en rétt er að
Slökkvistöðin sér um hann. Einnig
sagði hann að fullmikiö væri að segja
að neyðarbíllinn hefði bjargaö
mannsh'fum. I raun væri aðeins hægt
að f ullyrða að bíllinn hefði örugglega
bjargað mannslifi einu sinni.
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöf ði Svo mælir Svarthöf ði
Aðförín gegn flokkaskipanmni hafin?
Tveir þingmenn hafa ákveðið að
taka ekki þátt í prófkjörum flokka
sinna. Þeir eru dr. Gunnar Thorodd-
sen og Vilmundur Gylfason. Miklar
umræður eiga sér nú stað manna á
meðal um, hvort þessir tveir menn
ætli að fara fram utan flokka í næstu
kosningum, en þeir eru báðir hljóðir
sem gröfin um fyrirætlanir sinar.
Sérkennilegt er, þegar svona hendir,
að í fréttum og umsögnum manna er
gengið út frá því að flokkarnir séu
eins konar löggiltar stofnanir, þar
sem menn eigi að bjóða sig fram og
annars staðar ekki Hitt er gjarnan
kallað sérframboð, en er auðvitað
rökleysa, því hver og einn sem fær
næga meðmælendur getur boðið sig
fram til þings og þarf ekki á þeirri
stundu að vera í neinum flokki til aö
teljast „löggiltur”.
Og þaö er einmitt tímanna tákn,
að tveir forustumenn, hvor í sínum
flokki, skuli heldur kjósa að halda
þeim möguleika opnum aö fara fram
án tilverknaðar flokka en velja hina
hefðbundnu leið í kosningum. Þaö er
jafnvel talað um veikleika í
framboðum af þessu tilefni, og vist
er um það, að atkvæði myndu skipt-
ast eitthvað út fyrir „löggildingar”
og hefðir ef af framboöum þessara
tveggja manna yrði. En það umrót
sem nú er á þessum málum speglar
umrótið í þjóðfélaginu sjálfu, og þvi
pólitíska niðurbroti, sem lýsir sér i
ráðleysi og stjórnunarleysi á flestum
sviðum atvinnu- og efnahagsmála.
Við slikar aðstæöur er flokka-
skipaninni hætt, hinar gömlu tuggur
stjórnmálaflokkanna eru uppétnar
og almennt orðalag um þjóðfrelsi,
framtak og veilíðan fyllir ekki lengur
i skörð, sem hafa myndast i stjórnar-
farið almennt.
Auðvitað eru stjórnmála-
flokkarnir lítið annað en samsafn
mismunandi skoðanahópa sem fylkt
hafa sér undir eitt pólitiskt
vörumerki til að koma ár sinni eða ár
heilla stétta fyrir borð. Hafi enginn
gagn lengur af þessu vörumerki eða
flokksheiti, leggjast þeir einfaldlega
niður, en nýir taka að þróast i gegn-
um þingflokka, sem myndast eftir
kosningar. Þetta er kannski að ger-
ast núna, þegar grónir löggildingar-
menn úr frægum og gömlum
flokkum telja jafnvel að framboð á
eigin spýtur sé heppilegra en að tala
i nafni flokks. Þótt enn sé ekkert
yfirlýst um framboð dr. Gunnars og
Vilmundar, bendir flest til þess að
Vilmundur a.m.k. muni fara fram.
Hann hefur sjálfur taliö flokka-
skipulagið riðlað og skekkt og yrði
því ekkl langt frá því s jónarmiði með
þvi að vera einn á báti i framboði.
Allt er þetta óljósara og dulara
hvað dr. Gunnar snertir. Sem for-
sætlsráðherra verður hann að halda
við trúnni á pólitiskt gildi sitt og
mundi þvi seint verða til þess núna
að lýsa því yfir að hann ætlaði að
hætta í pólitík. Á sama augnabliki
yrði stjórn hans aðeins starfsstjórn
með heldur erfiðum afleiðingum
vegna margvíslegra vandamála,
sem að steðja. Hann mun þvi
væntanlega draga í lengstu lög að
gera nokkuð uppskátt um
fyrirætlanir sínar.
Ljóst er að það er opið mál fyrir
dr. Gunnar og Vilmund að hefja
aðförina að flokkaskipulaginu með
framboðum, en slík framboð eru
stöðugt að verða auðveldari og sjálf-
sagðari, komi menn ekki lyndi við
flokka sína. Áður en það flokka-
skipulag varð til, sem nú hefur gilt i
landinu næstum þvi til jafnlengdar
öldinni, komu menn saman til þings
og skipuðu sér þar i þingflokk sem
þelm sýndist. Þeir voru það sem
kallað er langsum og þversum,
heimastjórnarmenn og Valtýingar.
Pólitíkin var svo sviptivindastím, og
þurfti á svo mörgum kúvendingum
að halda, að þetta flokkslausa kerfi
blessaðist um tíma.
Hvað. risa kann úr öskunni, sem
verið er að byrja að efna til núna,
skal ósagt látið, en fyrstu kyndar-
amir era farnir að athafna sig, og
bera flokkaþreytu og cfnahagsóreiðu
á eldinn. Við kjósendur getum svo
horft í rauðan logann meðan flokka-
skipan er i mótun. Svarthöfði.